Fréttablaðið - 07.07.2003, Qupperneq 42
48 ÁRA Dr. Jón Viðar Jónsson, for-
stöðumaður Leikminjasafns Ís-
lands, er 48 ára í dag. En ætlar
hann að gera eitthvað í tilefni
dagsins? „Nei, nei. Ég er nú þan-
nig gerður að ég vil bara að þessi
dagur líði eins og aðrir. Ég á hins
vegar mjög afmælisglaða fjöl-
skyldu sem passar upp á að ég
kemst ekki upp með það.“
Það verður því líklega eitthvað
gert fyrir Jón Viðar í dag þótt
hann viti ekki nákvæmlega hvað
það verður en sjálfur hefur hann
ekki fundið hjá sér ríka þörf til að
blása til veislu þegar hann á af-
mæli.
„Ég er náttúrlega svo ungur að
ég tel mig ekki hafa átt nein raun-
veruleg stórafmæli. Mig minnir
að Rómverjarnir hafi sagt að
maður væri barn þar til maður
yrði þrítugur, unglingur til sex-
tugs og fullorðinn eftir það. Get-
ur það ekki verið? Ég held að það
sé best að lifa samkvæmt þessu
og bíða með öll hátíðarhöld þar til
ég er sprottinn úr grasi.“
Í þessu ljósi þarf engan að
undra að Jón Viðar sá ekki
ástæðu til þess að halda upp á fer-
tugsafmælið með pompi og prakt.
„Ég hef reynt að komast fram hjá
þessu með eins lágan prófíl og
hægt er en eins og ég sagði þá bý
ég við strangt aðhald frá fjöl-
skyldunni og kemst ekki upp með
neina vitleysu.“
Hvað afmælisdagana í æsku
varðar segist Jón Viðar ekki telja
að neinn einn sérstakur standi
upp úr í minningunni. „Mér
fannst allir afmælisdagarnir jafn
skemmtilegir þegar ég var ungur,
í það minnsta fram að tíu ára
aldri.“
Jón Viðar er með ýmis járn í
eldinum en Leikminjasafnið er
fyrirferðarmikið um þessar
mundir. „Ég er aðallega í því að
koma upp safni um íslenska leik-
listarsögu. Safnið var stofnað í
vor og ég tók það að mér að veita
því forstöðu fyrsta kastið. Við
stöndum í því núna að fá húsnæði
fyrir safnið og ég hugsa að það
yrði besta afmælisgjöf sem ég
gæti fengið ef við fengjum það
húsnæði sem við höfum augastað
á en það er frágengið.“
thorarinn@frettabladid.is
24 7. júlí 2003 MÁNUDAGUR
■ Nýjar bækur
■ Tímamót
■ Nýjar bækur
Pondus eftir Frode Øverli
Afmæli
JÓN VIÐAR JÓNSSON,
■ forstöðumaður Leikminjasafns Ís-
lands, er 48 ára í dag. Hann sér enga
ástæðu til þess að gera mikið með það
enda lifir hann samkvæmt fornri róm-
verskri speki og lítur en á sig sem ung-
ling.
Úrval-Úts‡n
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 • Keflavík: 420 6000
Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666 og hjá umbo›smönnum um land allt. www.urvalutsyn.is
Innifali›: Sjá Sérfer›abækling Úrvals Úts‡nar
og á www.urvalutsyn.is
5 sæti sæti laus í skemmtilega siglingu.
Ver› frá 178.840 kr. á mann í tvíb‡li.
Eyjahaf og dvöl á Krít, 18. ágúst - 1. sept.
Fararstjóri: fióra Valsteinsdóttir
Skemmtisigling á öldum Eyjahafs ber flig til ótrúlegra áfangasta›a.
Krít, Rhodos, Patmos, Myknos Aflena, Thessaloniki, Istanbul,
Kusadasi og Santroni.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
16
79
07
/2
00
3
8 sæti laus í draumasiglinguna.
Ver› frá: 199.980 kr. á mann í tvíb‡li.
Sigling um Mi›jar›arhaf
og dvöl í Barcelona, 30. ágúst - 13. sept.
Fararstjóri: Erla Erlendsdóttir
Sannköllu› draumafer›, flar sem farflegum gefst kostur á a› upplifa
helstu perlur Mi›jar›arhafsins. Nice, Flórens, Pisa, Róm, Napoli,
Malta og Barcelona.
Nei
takk!
Þú gerir síma-
sölumönnum
aldeilis
erfitt fyrir!
Þeir hafa
gott af að
liðka málbein-
ið aðeins!Mál og menning hefur gefið útbókina Í grænni lautu. Þar
er að finna gamla og nýja
söngvaleiki sem Ragnheiður
Gestsdóttir hefur valið og mynd-
skreytt með litríkum klippimynd-
um. Börn á öllum aldri hafa um
árabil leikið þessa söngvaleiki
jafnt innan dyra sem utan. Sumir
þeirra hafa gengið kynslóð fram
af kynslóð en aðrir eru nýrri og
bókin ætti því að koma sér vel
hvar sem börn eru að leik. Í
grænni lautu er barnabók júlí-
mánaðar og er seld með 30% af-
slætti út mánuðinn.
Nýhil hefur gefið út ljóðabókina2004 eftir Hauk Má Helgason.
Haukur er fæddur í Reykjavík árið
1978. Hann segir íslenska skóla-
kerfið ekki hafa verið sér alslæmt
en hann hefur þó meiri mætur á út-
lendum görðum. Helsta sálarkröm
Íslands er að hans mati lútersk
þyngsl og menningarsjokkið þegar
herinn færði okkur samtímann. Þá
þykir honum ekki bæta úr skák að
hér sé aldrei sumar en hann er þó
þakklátur Íslandi fyrir vegabréfið
sitt.
ANDLÁT
Karl Sigurðsson lést á Landspítalanum
Hringbraut föstudaginn 4. júlí.
Bergþór Finnbogason kennari frá Hítar-
dal, Sóvöllum 13, Selfossi lést fimmtu-
daginn 3. júlí.
Halldóra Guðmundsdóttir Sóltúni 2,
áður á Bergstaðastræti 43a, lést þriðju-
daginn 1. júlí.
Sigrún Stefánsdóttir frá Gautastöðum,
Svalbarðaströnd, lést á dvalarheimilinu
Hlíð, Akureyri, fimmtudaginn 3. júlí.
Ásdís Bjarnadóttir Kirkjubóli, í Dýrafirði,
andaðist fimmtudaginn 3. júlí.
Guðbjörg Hjálmarsdóttir áður til heim-
ilis á Freyjugötu, Sauðárkróki, andaðist á
Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks.
Rafn Markús Skarphéðinsson,
Hraunsvegi 21, Njarðvík, lést föstudag-
inn 4. júlí.
JARÐARFARIR
13.30 Arnbjörg Markúsdóttir Miðvangi
151, Hafnafirði, verður jarðsungin
frá Lágafellskirkju í Mosfellssveit.
13.30 Hrefna Jóhannsdóttir, Aðalstræti
9, Reykjavík, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni.
13.30 Dóra S. Jónsdóttir, Danmörku,
sem lést þann 23. júní síðastlið-
inn, verður kvödd með athöfn í
Bústaðakirkju.
15.00 Óskar Jónsson, Skúlagötu 44,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Fríkirkjunni í Reykjavík.
Unglingur fram
undir sextugt
JÓN VIÐAR JÓNSSON
„Ég hef reynt að komast fram hjá þessu með eins lágan prófíl og hægt er“, segir hann
um afmælin sín, „en ég bý við strangt aðhald frá fjölskyldunni og kemst ekki upp með
neina vitleysu.“