Fréttablaðið - 07.07.2003, Blaðsíða 45

Fréttablaðið - 07.07.2003, Blaðsíða 45
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar ÞRÁINS BERTELSSONAR Gúrkutíð OLYMPUS C-120 DIGITAL Camedia C-730 Zoom Camedia C-50ZOOMOLYMPUS Mju 300 Camedia C-350 199.0 00.- með stáli að fr aman t li f R A F T Æ K J A V E R S L U N HEKLUHÚSINU • LAUGAVEGI 172 • 105 REYKJAVÍK • S ÍMI 590 5090 Þegar fréttastjórar á plánetunniverða uppiskroppa með styrjaldir, morð og manndráp, gjaldþrot, bók- haldsfalsanir, uppsagnir, og allt það sukk og svínarí sem í daglegu tali kallast fréttir – þá er upprunnin svo- nefnd gúrka eða gúrkutíð – það er sá tími ársins þegar það er helst í frétt- um að garðyrkjubændum fæðist af- brigðileg agúrka, kannski 20 kíló á þyngd, eða kannski í laginu eins og tvíhöfða kálfur. GÚRKUTÍÐ var augljóslega í garð gengin um helgina þegar fjölmiðlar kepptust við að slá upp fréttinni um danska dýralækninn sem vinnur á sláturhúsi Danish Crown (dönsku krúnunnar) í Tönder í Danmörku. En sá góði maður var að sinna eftirliti með framleiðslu á fyrsta flokks nautahakki og fann af tilviljun brjóstahaldara í góðu standi í vömb aldraðrar mjólkurkýr sem hann var að krukka í. ÞESSARI MERKU FRÉTT fylgdi svo gáfuleg fréttaskýring sem var eitthvað á þessa leið: „Eins og margir kannast við, þá eru kýr mjög forvitn- ar skepnur og gleypa í sig ólíklegustu hluti, sem svo sitja eftir í vömbinni. Þannig hafa fundist ýmsir hlutir s.s. reipi, garðslöngur, vírar og ýmislegt annað í vömb kúa. Í mörgum tilfell- um gera þessir hlutir lítið til og dvelja þarna þar til kýrin kveður. Eftir stendur bara ósvöruð sú spurn- ing, hvar kýrin komst í þá aðstöðu að éta brjóstahaldara.“ ÞETTA er fréttamennska á háu plani, skörp og fræðandi í senn og textinn listavel skrifaður. Þarna er meira að segja kitlandi undirtónn þegar frétta- maðurinn spyr hvar beljan hafi kom- ist í aðstöðu til að éta brjóstahaldara, og maður les milli línanna að hugsan- lega hafi Skjalda heitin ráðist á unga og íturvaxna húsmóður sína, bónda- konuna og sleikt af henni brjósta- haldarann – í stað þess að teygja sig yfir girðingu og sloka hann í sig af þvottasnúrunum. En það er ekki aðal- atriðið í þessu máli, heldur skiptir það mestu máli að nú er hafin gúrkutíð þegar mikilmenni heimsins eru í sum- arfríi með fjölskyldum sínum og frétt- irnar snúast um nautgripi, snjómenn, marsbúa og fljúgandi furðuhluti þar til mikilmennin koma aftur úr sumar- fríinu og setjast aftur að á forsíðum blaðanna. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.