Fréttablaðið - 26.07.2003, Qupperneq 2
2 26. júlí 2003 LAUGARDAGUR
Auðvitað vildi maður það gjarnan eins og
núverandi ríkisstjórn hegðar sér en slíkt
er ekki hluti af okkar stjórnsýslu. Slíkt
fyrirkomulag hefði vísast kosti og galla.
Leiðin væri kannski að gera þjóðar-
atkvæðagreiðslur algengari. Það er erfitt
að mæla gegn milliliðalausu lýðræði.
Steingrímur J. Sigfússon er formaður Vinstri grænna.
Íbúar Kaliforníu hafa knúið fram atkvæðagreiðslu um
að binda enda á kjörtímabil ríkisstjóra síns.
Spurningdagsins
Steingrímur, á að vera hægt að aftur-
kalla umboð stjórnarinnar?
■ Verkalýðsmál
■ Lögreglufréttir
Skeljungi kennt
um samráðið
Stjórnendur Olís og Olíufélagsins lýsa frumkvæði að samráði á hendur
samkeppnisaðilanum. „Shell vildi að Essó léti Reykjavíkurborg í friði.“
SAMKEPPNI Í frumskýrslu olíu-
félaganna er því lýst að Skeljung-
ur hafi átt frumkvæði að samráði
olíufélaganna þriggja. Bæði for-
svarsmenn Olíu-
félagsins og Olís
hafa lýst því við
S a m k e p p n i s -
stofnun að Skelj-
ungur hafi átt
frumkvæði í
mörgum tilvik-
um.
Samkeppnis-
stofnun lýsir því
á blaðsíðu 22 í
frumskýrslunni
að málsgögn
sýni með skýr-
um hætti að
samráð hafi átt
sér stað við gerð
tilboða í útboðum Reykjavíkur-
borgar og Landhelgisgæslunnar.
Forsvarsmenn Olíufélagsins
sögðu Samkeppnisstofnun að
frumkvæðið hefði komið frá for-
stjóra Skeljungs árið 1995. Í því
samhengi er rétt að benda á að
Olíufélagsmenn voru fyrstir til að
bjóða yfirvöldum samvinnu í því
skyni að fá afslátt. Einar Bene-
diktsson, forstjóri Olís, lýsti því
við Samkeppnisstofnun á fundi 9.
ágúst 2002 að það hefði verið að
frumkvæði Skeljungs að „halda
ætti áfram skiptisölu“ og niður-
staðan hefði orðið sú að félögin
höfðu með sér samráð um útboð í
því skyni. Samkeppnisstofnun
segir að skiptisala í þeirri merk-
ingu sé hugtak sem olíufélögin
noti og lýsi í aðalatriðum þeirri
framkvæmd félaganna að skipta á
milli sín í ákveðnum hlutföllum
sölu til ákveðinna viðskiptavina.
Þá segir að yfirleitt sé þetta gert
án vitneskju viðskiptavinanna.
Samkeppnisstofnun hefur eftir
Kristni Björnssyni í skýrslunni að
hann gæti ekki fullyrt hver hafi
átt frumkvæðið að samráðinu.
Stofnunin staðhæfði aftur á móti
að gögn frá árunum 1995 og 1996
staðfesti framburð forsvars-
manna Olís og Olíufélagsins. Þá
segir að ljóst sé að Skeljungur
hafi strax á árinu 1995 byrjað að
undirbúa samstarf félaganna
vegna hugsanlegs útboðs Reykja-
víkurborgar og því til stuðnings
er vísað í ódagsett minnisblað frá
Olís sem talið er að ritað hafi ver-
ið í júlí 1995. Í minnisblaðinu er
lýst efni símaviðræðna milli
stjórnenda Olís og Olíufélagsins.
„Síðan ræddum við SD mál og
fleira sem tengist Shell og óform-
legri beiðni Shell til Essó um að
þeir láti Reykjavíkurborg í friði
ef/þegar til næsta útboðs kemur.“
rt@frettabladid.is
Rannsókn á viðskiptum olíufélaganna:
Stjórnarandstaðan furðar sig á lögreglu
SAMKEPPNI Nefndarmenn Sam-
fylkingarinnar og Vinstri grænna
í efnahags- og viðskiptanefnd
lögðu fram bókun á fundi nefnd-
arinnar í gærmorgun þar sem lýst
var yfir furðu með að lögreglu-
yfirvöld hefðu ekki uppfyllt þá
lagaskyldu sína að taka mál til
rannsóknar ef vitneskja eða grun-
ur er um að refsivert brot hafi
verið framið, hvort sem kæra hafi
borist eða ekki.
Lúðvík Bergvinsson og Ög-
mundur Jónasson, nefndarmenn
úr stjórnarandstöðunni, segjast
hafa áhyggjur af því að sakir
fyrnist í samráðsmáli olíufélag-
anna. Sakir einstakra brota-
manna fyrnast fimm árum eftir
að brotin eru framin.
Auk þess lýstu stjórnarand-
stæðingar furðu sinni á því að
meirihluti stjórnarliða í nefndinni
skuli hafa neitað ósk um að gestir
yrðu boðaðir á fundinn. Stjórnar-
andstaðan óskaði eftir að fulltrúar
samkeppnisyfirvalda, lögregluyf-
irvalda og olíufélaganna mættu á
fundinn. Pétur Blöndal, formaður
nefndarinnar, synjaði óskinni á
grundvelli þess að hann vildi ekki
að fundurinn breyttist í réttarhöld
þar sem mættust sakborningar,
ákæruvald og dómarar. Í bókun
stjórnarandstæðinga er spurt:
„Hvaða hagsmuni er verið að
verja með því að meina þingnefnd
að afla upplýsinga?“ ■
Atlantsolía:
Fyrsta olían
afgreidd
OLÍA Atlantsolía afgreiddi sína
fyrstu pöntun í gærdag þegar
verktakafyrirtækið Magni keypti
10.000 lítra af fyrirtækinu. Af-
greiðslan fór fram í Gufunesi, en
þangað keyrðu olíubílar Atlants-
olíu.
„Við erum búnir að flytja inn
hundrað tonn sem við vorum að
nota til þess að prufukeyra stöð-
ina okkar í Hafnarfirði,“ segir
Stefán Kjærnested, talsmaður
Atlantsolíu. „Við eigum síðan von
á 2.000 tonnum um helgina en
byrjuðum bara að afgreiða strax.“
Fyrsta bensínsjálfsafgreiðslu-
stöð fyrirtækisins verður opnuð í
Hafnarfirði strax eftir helgi og að
sögn Stefáns eru menn bjartsýnir.
„Þetta gengur allt mjög vel.“ ■
DONALD RUMSFELD
Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna varði þá
ákvörðun að birta myndir af illa útleiknum
líkum sona Saddams Husseins. Myndbirt-
ingin hefur vakið reiði í arabaheiminum.
Synir Saddams:
Blaðamönn-
um sýnd líkin
BAGDAD, AP Lík sona Saddams
Husseins, fyrrum Íraksforseta,
þeirra Udays og Qusays, voru
sundurskotin en réttarlæknar
bandaríska hersins sýndu blaða-
mönnum líkin í gær. Á hvoru líki
um sig voru yfir 20 skotsár, auk
annarra áverka, svo sem skurða
og brunasára. Andlit bræðranna
hafa verið lagfærð töluvert og
búið er að búa líkin til útfarar.
Donald Rumsfeld, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, varði þá
ákvörðun Bandaríkjastjórnar að
birta myndir af líkum sona Sadd-
ams, en birting myndanna hefur
vakið reiði í arabaheiminum.
Rumsfeld sagði að myndbirtingin
myndi bjarga lífum bandarískra
hermanna og sanna að fyrri vald-
hafar muni ekki snúa aftur til
valda í Írak. Hann sagði að mynd-
birtingin hefði verið erfið en hár-
rétt ákvörðun. ■
ALASTAIR CAMPBELL
BBC segir Campbell vilja hætta sem áróð-
ursmeistari Blairs en þó ekki fyrr en rann-
sókn á dauða Davids Kellys er lokið.
Áróðursmeistari Blairs:
Íhugar
afsögn
LONDON, AP Miklar vangaveltur eru
nú um framtíð Alastair Campbell,
áróðursmeistara Tonys Blairs, for-
sætisráðherra Bretlands.
Breska ríkisútvarpið BBC seg-
ist hafa heimildir fyrir því að
Campbell hafi tilkynnt Blair að
hann vilji hætta, en þó ekki fyrr en
rannsókn á dauða Davids Kellys sé
lokið. BBC segir að Campbell og
Blair hafi orðið ásáttir um að brott-
hvarf Campbells nú mætti túlka
sem viðurkenningu á sekt í sam-
bandi við dauða Kellys. Talsmenn
ríkisstjórnar Blairs segja ekkert
hæft í fullyrðingum BBC, þær séu
óskhyggja.
„Þetta er enn eitt dæmið um
það hvernig BBC byggir frétta-
flutning sinn á sögusögnum frek-
ar en staðreyndum,“ sagði tals-
maður ríkisstjórnar Blairs. ■
Idi Amin:
Á batavegi
SÁDI-ARABÍA, AP Idi Amin, fyrrum
forseti Úganda, er heldur að
braggast. Hann lá í dauðadái,
tengdur við öndunarvél, á sjúkra-
húsi í Sádi-Arabíu en er nú kom-
inn til meðvitundar. Læknar halda
honum enn í gjörgæslu og segja
ástand hans alvarlegt.
Amin, oft nefndur „Slátrarinn
frá Afríku“ vegna blóðugrar
stjórnartíðar sinnar, hefur óskað
eftir því að fá að snúa heim til Úg-
anda. Stjórnvöld segja að hann
geti eins og aðrir komið til lands-
ins. Hans bíði þó ekkert annað en
réttarhöld vegna grimmdarverka
sem hann framdi á átta ára valda-
tíð sinni. ■
LENTI UTAN VEGAR Bíll lenti utan
vegar á Dynjandisheiði seinni
partinn í gær. Tveir fullorðnir og
eitt barn voru í bílnum og sluppu
þau með lítilsháttar meiðsl. Bíll-
inn var hins vegar gjörónýtur og
þurfti að flytja hann á brott með
vörubíl.
ÞRJÚ INNBROT Brotist var inn í
þrjá bíla í Reykjavík í fyrrinótt
og stolið útvörpum og geislaspil-
urum.
ÁFENGI Tilkynnt hefur verið um
hættulegar eftirlíkingar af
þekktu áfengi sem eru í umferð á
Norðurlöndunum. Í Finnlandi lést
maður og nokkrir veiktust alvar-
lega eftir að hafa drukkið úr
flösku merktri Captain Morgan
og í Noregi er maður í öndunar-
vél eftir neyslu drykkjar sem
merktur var Absolut vodka. Vitað
er um eftirlíkingar af fleiri
áfengistegundum en ekki hefur
fengist staðfest hvaða tegundir
um ræðir.
Talið er að eftirlíkingarnar hafi
í báðum tilfellum verið bruggaðar
í Eistlandi og síðan smyglað til
landanna, en eftirlíkarnar eru vel
gerðar þannig að ekki sést að um
eftirlíkingar sé að ræða. Ekki er
ástæða til að óttast vöru sem seld
er eftir viðurkenndum leiðum og
hægt er að rekja beint til fram-
leiðanda.
„Við höfum sérstakar áhyggjur
af þessu núna því það er að koma
verslunarmannahelgi og krakkar
eru kannski ginnkeyptari fyrir
smygli,“ segir Ágúst F. Hafberg,
framkvæmdastjóri tæknisviðs
ÁTVR, og brýnir fyrir neytendum
að hafa varann á. ■
TÍU Í SÖMU SÆNG Verkalýðs- og
sjómannafélag Tálknafjarðar er
orðið tíunda verkalýðsfélagið á
Vestfjörðum til að sameinast
Verkalýðsfélagi Vestfirðinga. Að-
ildarumsókn var samþykkt með
yfirgnæfandi meirihluta félags-
manna og einróma af trúnaðar-
mannaráði Verkalýðsfélags Vest-
firðinga.
M
YN
D
/A
P
Emmessís:
Hulk-lurkar
innkallaðir
NEYTENDUR Emmessís hefur látið
innkalla Hulk-lurka úr verslunum
þar sem í ljós kom að notað var
meira af litarefnum við fram-
leiðslu þeirra en leyfilegt er. Þeg-
ar hafa selst yfir 50 þúsund Hulk-
lurkar en samkvæmt fréttatil-
kynningu frá Emmessís eru engar
líkur á að varan hafi verið skaðleg
neytendum. Nokkuð var um að
hægðir barna lituðust grænar eft-
ir að þau höfðu borðað Hulk-
lurka. Uppskrift lurksins hefur
verið breytt til samræmis við lög
og reglur. Fyrir vikið er litur
Hulk-lurksins heldur daufari og
er nú ljósgrænn. ■
LÚÐVÍK BERGVINSSON
Nefndarmenn efnahags- og viðskipta-
nefndar Alþingis úr stjórnarandstöðu
spyrja sig hvaða hagsmuna sé verið að
gæta með því að meina nefndinni að afla
upplýsinga.
„Síðan
ræddum við
SD mál og
fleira sem
tengist Shell
og óformlegri
beiðni Shell
til Essó um að
þeir láti
Reykjavíkur-
borg í friði...
SKELJUNGUR
Samráðsmenn í hinum olíufélögunum lýsa því að Skeljungsmenn hafi átt frumkvæði að
samráði.
VÍN
Brýnt er fyrir neytendum og veitingahúsum
að hafa varann á og kaupa aðeins áfengi
af viðurkenndum aðilum.
Eftirlíkingar af þekktu áfengi í umferð á Norðurlöndunum:
Lést eftir neyslu smyglvarnings