Fréttablaðið - 26.07.2003, Page 6
6 26. júlí 2003 LAUGARDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 76,8 -0,18%
Sterlingspund 124,22 0,00%
Dönsk króna 11,87 -0,24%
Evra 88,22 -0,26%
Gengisvístala krónu 124,30 -0,08%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 154
Velta 3.364,5
ICEX-15 1.507 -0,44%
Mestu viðskiptin
Íslandsbanki hf. 254.104.261
Bakkavör Group hf. 88.530.766
Eimskipafélag Íslands hf. 82.614.367
Pharmaco hf. 34.210.027
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 17.739.246
Mesta hækkun
Samherji hf. 2,82%
Nýherji hf. 2,41%
SH hf. 0,95%
Pharmaco hf. 0,47%
Og fjarskipti hf. 0,38%
Mesta lækkun
Kögun hf. -4,17%
Skeljungur hf. -3,45%
Bakkavör Group hf. -2,78%
Össur hf. -2,54%
Flugleiðir hf. -2,27%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ: 9.153,8 0,5%
Nasdaq: 1.700,8 0,0%
FTSE: 4.131,2 -0,4%
Nikkei: 9.671,0 0,6%
S&P: 985,3 0,4%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Hilmir Snær Guðnason leikari erstaddur í London þar sem hann hefur
verið í prufu hjá heimsfrægum leikstjóra.
Hvað heitir leikstjórinn?
2Hvaða fugl hefur umhverfisráðherrafriðað næstu þrjú ár?
3Hvaða heimsfrægi rokkari fagnar sex-tugsafmæli sínu í dag?
Svörin eru á bls. 30
Íslendingur bíður dóms í Færeyjum:
Tekinn með 20 kíló af hassi í Færeyjum
FÍKNIEFNI Tæplega þrítugur Íslend-
ingur var tekinn með tuttugu kíló
af hassi í Færeyjum. Færeyska út-
varpið greindi frá því að Íslending-
urinn sitji í gæsluvarðhaldi í Þórs-
höfn í Færeyjum. Lögreglan í Fær-
eyjum hefur ekki greint fyrr frá
málinu þar sem rannsókn hefur
staðið yfir bæði á Íslandi og í Dan-
mörku.
Maðurinn var tekinn þegar Nor-
ræna kom til hafnar í Hanstholm 7.
júlí síðastliðinn. Færeyskir toll-
verðir ákváðu að bíll Íslendingsins
skyldi vera einn þeirra bíla sem
yrðu kannaðir þennan morguninn.
Í bílnum reyndust vera fimm kíló
af hassi í hverri hurð, samtals tutt-
ugu kíló. Maðurinn átti pantað far
til Íslands tveimur dögum síðar og
því er talið víst að ætlunin hafi
verið að smygla hassinu til Íslands
en ekki að selja það í Færeyjum, að
því er fram kemur í færeyska rík-
isútvarpinu.
Íslendingurinn hefur verið
úrskurðaður í gæsluvarðhald til
fjórða ágúst.
„Við vorum í góðu sambandi við
færeysku lögregluna varðandi
þetta mál. Hann var tekinn í Fær-
eyjum og verður dæmdur þar,“
segir Ásgeir Karlsson, aðstoðar-
yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni
í Reykjavík. ■
Samskiptaleysi,
kák og klúður
Aukin hæfni og samvinna FBI og CIA hefði getað komið í veg fyrir
hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september 2001. Bandaríkjaþing
fékk í hendur 900 síðna rannsóknarskýrslu um aðdraganda árásanna.
WASHINGTON, AP Samskiptaleysi
milli skrifstofa bandarísku alrík-
islögreglunnar, FBI, kom í veg
fyrir að tækist að
hindra hryðjuverk-
in í Bandaríkjunum
11. september
2001. Bandaríkja-
þing fékk í vikunni
skýrslu um mistök leyniþjónust-
unnar, CIA, og alríkislögreglunn-
ar, sem gerð voru í aðdraganda
hryðjuverkaárásanna. Skýrslan
er 900 blaðsíður en 28 blaðsíður
eru auðar. Bandaríkjastjórn neit-
aði að birta síðurnar þar sem á
þeim voru viðkvæmar upplýsing-
ar um aðgerðir Sádi-Arabíu og
annarra landa. Samkvæmt
skýrslu nefndarinnar hefðu aukin
hæfni, samvinna, hugvit og
heppni starfsmanna alríkislög-
reglunnar og leyniþjónustunnar
getað hindrað árásirnar. Ekki
kemur þó fram að tímasetning
árásanna eða hvar þær yrðu gerð-
ar lægi fyrir.
Tillögur til úrbóta eru settar
fram í að minnsta kosti sextán lið-
um, meðal annars um aukna
ábyrgð starfsmanna leyniþjónust-
unnar og bætt samskipti. Rann-
sóknarnefndin lauk skýrslugerð-
inni í desember síðastliðnum en
það var ekki fyrr en í vikunni sem
sátt náðist um hvað skyldi birta og
hvað ekki.
Bob Graham, öldungardeildar-
þingmaðurinn sem stjórnaði rann-
sókninni, sagði að vinnubrögð
leyniþjónustunnar hafi borið
merki óviðunandi klúðurs og
káks. Að sögn Grahams eru
stjórnvöld í Sádi-Arabíu harka-
lega gagnrýnd en sá kafli skýrsl-
unnar hefur ekki verið gerður op-
inber. Graham segir að flugræn-
ingjarnir hafi fengið aðstoð frá
Riyadh og að yfirvöld þar hafi
ekki gert nóg til að aðstoða banda-
rísku leyniþjónustuna. Í skýrsl-
unni er ekkert sem segir að yfir-
völd í Sádi-Arabíu hafi fjármagn-
að eða haft önnur tengsl við flug-
ræningjana sem réðust á Banda-
ríkin 11. september, en 15 þeirra
voru Sádi-Arabar.
Bandar bin Sultan, sendiherra
Sádi-Arabíu í Bandaríkjunum,
hefur brugðist ókvæða við ásök-
unum Bandaríkjamanna.
„Sádi-Arabía hefur ekkert að
fela. Við getum svarað spurning-
um sem settar eru fram opinber-
lega en við bregðumst ekki við
auðum blaðsíðum,“ sagði bin
Sultan.
the@frettabladid.is
Spánn:
ETA
sprengir enn
MADRÍD, AP Maður slasaðist lítil-
lega þegar sprengja sprakk við
dómshús í bænum Estella í
Navarra-héraði á Spáni í gær.
Þá varð lítil sprenging eftir að
kveikt var í olíutunnum við heim-
ili þingmanns í borginni Bilbao í
Baskahéröðunum. Enginn hefur
lýst ábyrgð á sprengingunum á
hendur sér en yfirvöld segja
böndin berast að ETA, samtökum
aðskilnaðarsinnaðra Baska. Í vik-
unni slösuðust 13 manns þegar
sprengjur sprungu á tveimur hót-
elum við Miðjarðarhafsströnd
Spánar. Yfirvöld sögðu ETA hafa
staðið á bak við árásirnar. ■
Einkavæðingarnefnd:
Sala Símans
reynd á ný
EINKAVÆÐING Einkavæðingarnefnd
ríkisins hyggst hefja undir-
búning að sölu Landssímans í
haust eða vetur og er reiknað
með útboði á næsta ári. Tilraun
til að selja Símann kjölfestufjár-
festi brást á síðasta ári og verður
nú reynt að selja fyrirtækið í
hlutum, að því er Ríkisútvarpið
hefur eftir Ólafi Davíðssyni,
formanni einkavæðingarnefndar.
Í stjórnarsáttmála segir að Sím-
inn verði seldur á kjörtímabilinu
fyrir sanngjarnt verð og þes
verði gætt að markaður verði
hagstæður. ■
Dönsk stjórnvöld setja
blátt bann:
Engar fata-
fellur í löggu-
partíum
KAUPMANNAHÖFN, AP Stjórnvöld í
Danmörku ætla að banna þarlend-
um lögregluþjónum að ráða fata-
fellur í partí á vinnustöðum. Segja
þau athæfið vera með öllu „óvið-
unandi“.
Ákvörðunin var tekin eftir að
kvörtun barst frá stjórnmála-
flokki kristinna manna, sem er í
stjórnarandstöðu. Kvartað var
vegna atviks sem átti sér stað í
síðasta mánuði þegar lögreglu-
stöð í miðborg Kaupmannahafnar
réð erótíska dansarann Simone til
að skemmta í árlegu sumarpartíi
stöðvarinnar. ■
Framkvæmdastjóri Nató:
Kveðjuheim-
sókn á Íslandi
HEIMSÓKN George Robertson lá-
varður, framkvæmdastjóri Atl-
antshafsbandalagsins, er vænt-
anlegur hingað til lands. Hann
kemur til Íslands í kveðjuskyni
þar sem hann mun láta af störf-
um framkvæmdastjóra í lok árs-
ins. Heimsóknin hefst 28. júlí en
hann mun meðal annars eiga
fund á Þingvöllum með Davíð
Oddssyni forsætisráðherra og
Halldóri Ásgrímssyni utanríkis-
ráðherra. ■
NORRÆNA
Faldi fimm kíló af hassi í hverri hurð bifreiðar sinnar í Norrænu. Talið er víst að ætlunin
hafi verið að koma efninu til Íslands.
LANDS-
SÍMINN
Leitast verður
við að selja
Símann í hlut-
um, en ekki til
kjölfestufjár-
festis líkt og
reynt var til
þrautar í fyrra.
■
„Við bregðumst
ekki við auðum
blaðsíðum.“
BOB GRAHAM
Öldungardeildarþingmaðurinn sem stýrði rannsókn á aðdraganda hryðjuverkjanna 11.
september 2001 sagði fjölmargt í 900 blaðsíðna skýrslu nefndarinnar. En ýmislegt vantaði
líka í skýrsluna.
Kaupm.höfn
London
París
Berlín
Algarve
Benidorm
Torrevieja
Krít
Kýpur
Róm
New York
Miami
22°C skúrir
19°C skýjað m. köflum
23°C skúrir
25°C heiðskírt
33°C skýjað m. köflum
28°C heiðskírt
33°C heiðskírt
27°C heiðskírt
29°C skýjað m. köflum
29°C heiðskírt
33°C heiðskírt
32°C þrumuveður
SunnudagurÍ dag
Mánudagur
Veðrið úti í heimi í dag
Úrkomusvæði eru skyggð á kortinu. Minniháttar skúraleiðingar eru táknaðar með dropum. Hitatölur sýna hæstu hitagildi dagsins.
Veðrið
BENSÍNVERÐ
Það verður
úrkomulítið á land-
inu í dag og hægur
vindur. Í höfuð-
borginni verður
veðrið hvað best,
nokkur sól og hlý-
indi. Þannig fá
borgarbúar og þar
með talinn borgar-
stjórinn kærkomið
tækifæri til að
spássera um borg-
ina og hugsa um
hve dýrmætt það er
að spara bensínið,
enda stór útgjalda-
liður heimilanna. Af
hverju hefur manni
alltaf fundist bens-
ínið svona
dýrt?
Kveðja,
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veðurfræðingur
Hægur
vindur
Hægur
vindur
Hægur
vindur
Gola
Hægur
vindur
Hægur
vindur
Hægur
vindur
Hægviðri
Hægviðri
Hægur
vindur