Fréttablaðið - 26.07.2003, Qupperneq 8
8 26. júlí 2003 LAUGARDAGUR
Talk to the hand
„Það verður að segjast eins og
er að ef Pétur heldur að þriðj-
ungur þingnefndar óski eftir
fundi fyrst og fremst til að
spjalla við hann þá skjátlast
honum.“
Lúðvík Bergvinsson. Fréttablaðið, 25. júlí.
Ekki hann líka!
„Fallegar konur eru yfirleitt
meira fyrir augað. Sjáðu bara
James Bond. Hann verður að
hafa fallega konu upp á arm-
inn.“
Gullveig Sæmundsdóttir. Fréttablaðið, 25. júlí.
Í vitlausri íþróttagrein?
„Liðið barðist sem einn maður
og lögðu leikmenn sig alla fram
í verkefnið. Julian Johnson hef-
ur líklega hlaupið hátt í hálf-
maraþon í leiknum.“
Umfjöllun um leik Þróttar og ÍA. DV, 25. júlí.
Orðrétt
Olíusamráð:
Samráðsmaður í stjórn Símans
SAMKEPPNI Meðal þeirra sem
nefndir eru til sögu í frum-
skýrslu Samkeppnisstofnunar
um verðsamráð olíufélaganna er
Thomas Möller, þáverandi milli-
stjórnandi hjá Olís. Eitt þeirra
gagna sem Samkeppnisstofnun
gerði upptæk við leit í höfuð-
stöðvum Olís árið 2001 var tölvu-
póstur sem gekk milli Olísmann-
anna Thomasar Möller, Einars
Benediktssonar, Jóns Halldórs-
sonar og Kristjáns B. Ólafssonar
eftir sameiginlegan fund olíufé-
laganna í höfuðstöðvum Skelj-
ungs þann 29. október 1998 þar
sem Samkeppnisstofnun segir að
ákveðið hafi verið að bjóða
Landssímanum þriggja króna af-
slátt af eldsneyti, en fyrirtækið
hafði óskað eftir tilboðum.
Í umræddum tölvupósti, sem
gekk innan Olís daginn eftir, má
lesa eftirfarandi: „ákv. að bjóða
3kr. m vsk. Síðan fóru í gang við-
ræður sem skiluðu þessu: póstur-
inn fái sama, skipt upp um áramót
þó að samn gildi til 2000. lögregl-
an rædd, eðlilegt að hún endi í
sama farvegi, hún er 95% essó í
dag, líklegt að hún bjóði út bráð-
lega...“
Thomas Möller svaraði ekki ít-
rekuðum skilaboðum Fréttablaðs-
ins. Hann er í dag meðal þeirra
nýju stjórnarmanna sem tóku við
hjá Landssímanum þegar allri
stjórninni var skipt út í kjölfar
ýmissa hneykslismála sem dundu
á fyrirtækinu.
Seta Thomasar í stjórn Símans
þykir sumpart sambærileg við
það að Þórólfur Árnason, fyrrver-
andi markaðsstjóri Olíufélagsins,
var í miðju samráðinu að mati
samkeppnisyfirvalda en er nú
borgarstjóri í Reykjavík. Ef
marka má skýrsluna eiga bæði
Síminn og Reykjavíkurborg hugs-
anlegar skaðabótakröfur á olíufé-
lögin. ■
Samráð um svartagull
Frumskýrsla um meint samráð olíufélaganna setur allt á annan endann. Nokkrir hafa þegar misst
vinnuna vegna olíumálsins. Milljarða sektir gætu dunið á félögunum en einstaklingar sleppa.
FRÉTTASKÝRING Frumskýrsla Sam-
keppnisstofnunar um meint sam-
ráð olíufélaganna þriggja hefur
bókstaflega sett samfélagið á ann-
an endann. Í frumskýrslunni, sem
Fréttablaðið sagði fyrstu fréttir
af fimmtudaginn 17. júlí, kom
fram að fjöldi gagna sýndi fram á
að félögin höfðu ítarlegt samráð
varðandi útboð á kaupum á elds-
neyti. Svo var að sjá að stjórnend-
ur félaganna hafi ekki farið leynt
með samráð sitt því símbréf og
tölvupóstar gengu á milli fyrir-
tækjanna og þegar Samkeppnis-
stofnun gerði húsleit í
höfuðstöðvum olíufélag-
anna skömmu fyrir jólin
árið 2001 var af nógu að
taka og hald lagt á gífur-
legt magn af sönnunar-
gögnum. Gögnin benda til
þess að olíulögin hafi sam-
mælst um að hlunnfara
fjölda fyrir-
tækja, ríkis-
stofnana og
sveitarfélaga.
Þar má nefna
F l u g l e i ð i r ,
Flugfélag Ís-
lands, Lands-
símann, Ísal,
Íslenska Járn-
blendifélagið,
Vegagerðina, lögregluna,
Landhelgisgæsluna, Innkaupa-
stofnun Reykjavíkurborgar,
Útgerðarfélag Akureyringa,
Ístak og mörg fleiri. Fullyrt er í
skýrslunni að olíufélögin hafi
skipulega mætt útboðum með
samráði.
Samkeppnislögin voru sett
árið 1993 en þar er kveðið á um
heimildir Samkeppnisráðs til þess
að sekta fyrirtæki um allt að 40
milljónir króna eða 10 prósent af
veltu í alvarlegum tilvikum. Þá er
kveðið á um að þeir einstaklingar
sem brjóta samkeppnislögin skuli
í alvarlegum tilvikum sæta fang-
elsisvist allt að fjórum árum.
Þetta undirstrikar hve alvarleg-
um augum löggjafinn lítur brot af
þessu tagi. Vandinn er sá að hæga-
gangur í rannsókn leiðir til þess
að brot einstaklinganna eru gjarn-
an fyrnd þegar rannsókn og mála-
rekstri lýkur. Þar nægir að benda
á grænmetismálið og rannsóknina
á tryggingafélögunum.
Meðvituð brot
Við húsleitina hjá Skeljungi
fannst minnisblað sem dagsett
var 3. september 1997 sem „sýnir
svo ekki verður um villst að
stjórnendum félagsins var ljóst að
aðgerðir þeirra voru ólöglegar“.
Skýrslan lýsir því að þessu til
enn frekari stuðnings hafi fundist
símbréf í höfuðstöðvum Olís frá
12. september sama ár. Í símbréf-
inu var búið að þurrka út dálk
sem sýndi þann afslátt sem ætlast
var til að Olís og Olíufélagið
veittu. Olísskjalinu hafði verið
breytt þannig að Samkeppnis-
stofnun telur ljóst að stjórnend-
um Skeljungs hafi verið ljóst að
þarna hafi verið um ólöglegt at-
hæfi að ræða og því hafi farið
fram „gagnahreinsun“. Þá sýna
gögn frá Olís að fjármálastjóran-
um var brugðið þegar símbréfið
barst. Hann sendi út eftirfarandi
tölvupóst til forstjóra og tveggja
framkvæmdastjóra fyrirtækis-
ins: „Fékk inn á borð fax frá Shell
vegna Ísal-útboðs. Skil ekki að
Shell sendi fax út af verðum í
þessu útboði, það er allt of vara-
samt“.
Atvinnumissir
Skýrslan hefur þegar haft mik-
il áhrif á stöðu einstaklinga sem
koma við sögu í olíumálinu. Geir
Magnússon, sem var forstjóri
Olíufélagsins, hefur látið af störf-
um þar sem forstjóri en starfar
áfram hjá Keri, sem rekur Essó.
Talið er víst að honum hafi ekki
verið sætt á stóli forstjóra. Krist-
inn Björnsson, forstjóri Skelj-
ungs, er á förum frá félaginu. Ef
marka má skýrsluna er hann í
aðalhlutverki hvað samráðið
varðar. Hinir forstjórarnir hafa
báðir vitnað um forystu Skeljungs
í að koma á víðtæku og að því er
virðist ósvífnu samráði um að
svíkja þá viðskiptavini sem báðu
öll þrjú félögin um tilboð í því
skyni að lækka eldsneytiskostnað.
Heimildir herma að Benedikt
Jóhannesson, stjórnarformaður
Skeljungs, hafi eftir að hann las
skýrsluna stillt Kristni upp við
vegg og gert honum að hætta.
Benedikt var ekki stjórnarformað-
ur Skeljungs á þeim tíma sem
rannsóknin nær til og ber því ekki
ábyrgð. Opinberlega sagði Krist-
inn að hann hætti af fúsum og
frjálsum vilja til að breyta til.
Kristinn missti einnig stjórnarsæti
sitt í Eimskipi og er ástæðan einn-
ig rakin til Benedikts. Kristinn
þykir hafa staðið sig vel sem for-
stjóri Skeljungs og gert fyrirtækið
að því stærsta af þeim þremur. En
örlög hans ráðast af meintu sam-
ráði. Sólveig Pétursdóttir, eigin-
kona Kristins, hefur einnig þurft
að súpa seyðið af meintu samráði.
Hún var dómsmálaráðherra í rík-
isstjórn Davíðs Oddssonar þegar
innrásin í höfuðstöðvar olíufélag-
anna var
gerð fyrir jólin 2001. Þá kom með-
al annars í ljós að olíurisarnir
höfðu sammælst um að viðhafa
samráð vegna útboðs dómsmála-
ráðuneytisins, sem vildi spara í
eldsneytisútgjöldum lögreglu og
Landhelgisgæslu. Sólveig fór illa
út úr prófkjöri sjálfstæðismanna
fyrir kosningarnar síðustu. Hún
missti svo ráðherrastól sinn í vor.
Ástæðan er rakin til samráðsins.
Þáttur Þórólfs
Einar Benediktsson er enn for-
stjóri Olís en sú breyting er orðin
á högum hans að hann er nú aðal-
eigandi félagsins, með stuðningi
Landsbankans að talið er. Olís hef-
ur, eins og Olíufélagið, verið af-
skráð af hlutabréfamarkaði.
Einn af millistjórnendum Olíu-
félagsins var Þórólfur Árnason,
núverandi borgarstjóri. Sam-
kvæmt skýrslunni var hann í lykil-
hlutverki varðandi samráðshóp
olíufélaganna þriggja. Tölvupóstar
hans undirstrika það hlutverk hans
en þeir voru afdráttarlausir og
báru heiti eins og „Fundur okkar
þriggja í dag“. Þórólfur var ráðinn
sem borgarstjóri í skugga olíu-
skýrslunnar. Hann hefur engu
svarað um hlutverk sitt í samráð-
inu en segist vilja bíða niðurstöðu
Samkeppnisstofnunar. Þá hefur
hann nefnt sér til málsbóta að hann
hafi unnið með Samkeppnisstofn-
un að því að upplýsa málið. Mál
hans er grafalvarlegt í því ljósi að
hann tók meðal annars þátt í að
mæta útboði Reykjavíkurborgar,
sem hann stjórnar nú. Málsbætur
hans eru þær að hann lét Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrr-
verandi borgarstjóra, vita af þætti
sínum í skýrslunni en taldi sig geta
varist. Sök Þórólfs, eins og margra
annarra í olíumálinu, er fyrnd þar
sem meira en fimm ár eru liðin frá
því meint brot voru framin. En
hann þarf að sannfæra almenning í
Reykjavík um að brot hans séu
ekki þess eðlis að honum beri að
víkja frá stjórn borgarinnar.
Enn einn hefur misst vinnuna
vegna olíumálsins. Starfsmaður
tæknideildar Landssímans missti
stjórn á sér í reiði og sendi for-
stjóra Skeljungs orðljótan tölvu-
póst vegna samráðsins. Lands-
símamaðurinn var umsvifalaust
rekinn úr starfi.
Óljóst er hvaða afleiðingar
Olíumálið mun hafa. Flest bendir
til þess að samráð sé nú að baki og
virðing fyrir samkeppnislögum
hafi aukist að einhverju leyti. Fyr-
irtækin munu þó þurfa að mæta
andúð almennings vegna þess
sem lýst er í skýrslunni.
Milljarðasektir?
Ef marka má skýrsluna eru
brotin grafalvarleg og því líklegt
að fyrirtækin muni fá hæstu sekt-
ir, sem eru 10 prósent af ársvelt-
unni árið 2001. Samanlegt velta
olíufélögin þrjú um 40 milljörðum
króna á hverju ári. Þau gætu því
þurft að borga sektir sem nema
milljörðum króna. En refsiþáttur
laganna mun væntanlega vera
fyrndur í langflestum tilvikum.
Lögregla og saksóknari hafa ekki
sýnt neinn vilja til þess að taka
málið upp til að forða því að sök
fyrnist.
Viðhorfið til samkeppnislag-
anna má nokkuð lesa út úr orðum
Péturs Blöndals alþingismanns,
sem telur það fyrst og fremst
vera grafalvarlegt að skýrslan
skuli hafa komið fyrir almenn-
ingssjónir og vill rannsaka hvers
vegna. Lúðvík Bergvinsson, al-
þingismaður Samfylkingar, og
Kristinn H. Gunnarsson, alþingis-
maður Framsóknarflokks, eru á
allt annarri skoðun og telja að
rannsaka verði þátt einstakling-
anna í því skyni að sök þeirra nái
ekki að fyrnast. Haraldur Johann-
essen ríkislögreglustjóri hefur af
því tilefni látið hafa eftir sér að
engin ástæða sé til þess að hefja
rannsókn. Sá andi svífur því yfir
vötnum að í lagi sé að sekta fyrir-
tæki en brotin séu ekki af þeirri
gerð að rétt sé að dæma einstak-
linga. Samráðið um svartagullið
er því talið slæmt en ekki þess
eðlis að menn eigi að fara í fang-
elsi. Þannig er andi laganna túlk-
aður af þeim sem ráða ferðinni.
rt@frettabladid.is
DÝR OLÍA
Útgerðarmenn sendu Samkeppnisstofnun
bréf skömmu fyrir innrásina í olíufélögin
árið 2001.
Olíusamráð:
Eyjamenn
kærðu
SAMKEPPNI Haustið 2001 sam-
þykkti Útvegsbændafélag Vest-
mannaeyja á aðalfundi sínum að
rita Samkeppnisstofnun bréf þar
sem stofnunin var hvött til þess að
skoða verðmyndunarþáttinn í
olíunni. Tilefnið var að loðnuskip
Eyjamanna höfðu landað í Fær-
eyjum, þar sem hver olíulítri
reyndist vera tíu til ellefu krónum
ódýrari en á Íslandi. Á það var
bent í bréfinu að félögin þrjú
birtu yfirleitt samtímis verð sem
þá væru ævinlega í takt. Óskað
var eftir því að kannað væri hvort
vinnubrögð félaganna stæðust
samkeppnislög. Það var Magnús
Kristinsson, formaður Útvegs-
bændafélagsins, sem fór með
bréfið en Magnús var á þessum
tíma varamaður í stjórn Olíu-
félagsins hf. Stuttu síðar var
ráðist til inngöngu í höfuðstöðvar
olíufélaganna þriggja og lagt var
hald á fjölda gagna sem nú hafa
verið gerð opinber. ■
LANDSSÍMINN
Fulltrúar olíufélaganna komu saman í höf-
uðstöðvum Skeljungs til að ræða sameig-
inlega um tilboð til Símans.
■
Gögnin benda
til þess að olíu-
lögin hafi sam-
mælst um að
hlunnfara
fjölda fyrir-
tækja, ríkis-
stofnana og
sveitarfélaga.
SAMKEPPNI
Í skýrslu Sa
mkeppnis-
stofnunar v
egna ranns
óknar á
meintu sam
ráði olíufél
aganna
Skeljungs, O
lís og Olíuve
rslunar-
innar hf. ke
mur fram a
ð fjöldi
gagna sýni
fram á að
félögin
höfðu ítarle
gt samráð þ
egar um
var að ræða
útboð á ka
upum á
eldsneyti. M
eðal annars h
öfðu fé-
lögin samrá
ð um það a
ð frum-
kvæði Skelj
ungs að ger
a tilboð í
útboð Ísals á
eldsneyti.
Rannsóknin
á olíufélögu
num
hófst með hú
sleit í höfuðs
töðvum
olíufélagann
a skömmu fy
rir jólin
árið 2001, f
yrir rúmleg
a hálfu
öðru ári. La
gt var hald
á gífur-
legt magn af
gögnum.
Í frumskýr
slu Samkep
pnis-
stofnunar ke
mur fram að
félögin
hafi gert Ís
al þannig t
ilboð að
tryggt væri
að Skeljung
ur héldi
viðskiptunu
m áfram s
vo sem
verið hafði,
gegn því að
„Skelj-
ungur héld
i áfram að
skipta
framlegð af
viðskiptunu
m með
Olís og OHF
“.
Í skýrslunn
i er því lý
st að
ráðagerð
olíufélagann
a hafi
gengið upp
þar sem Sk
eljungur
hafi fengið
viðskiptin o
g skipti-
salan haldið
áfram.
Við húsleiti
na hjá Ske
ljungi
fannst min
nisblað, da
gsett 3.
september 1
997, sem „sý
nir svo
ekki verður
um villst a
ð stjórn-
endum félag
sins var ljós
t að að-
gerðir þeirr
a voru ólögle
gar“.
Skýrslan lýs
ir því að þes
su til
enn frekari
stuðnings ha
fi fund-
ist símbréf
í höfuðstöðv
um Olís
frá 12. sep
tember sam
a ár. Í
símbréfinu v
ar búið að þu
rrka út
dálk sem sý
ndi þá afslæ
tti sem
ætlast var t
il að Olís og
Olíufé-
lagið veittu
. Olísskjalin
u hafði
verið breyt
t þannig a
ð Sam-
keppnisstof
nun telur
ljóst að
stjórnendum
Skeljungs h
afi ver-
ið ljóst að þ
arna hafi ve
rið um
ólöglegt ath
æfi að ræða
og því
hafi farið fr
am „gagnahr
einsun“.
Þá sýna gög
n frá Olís a
ð fjár-
málastjóran
um var brug
ðið þeg-
ar símbréfið
barst. Hann
sendi út
eftirfarandi
tölvupóst
til for-
stjóra og tv
eggja framk
væmda-
stjóra fyrirt
ækisins: „Fé
kk inn á
borð fax frá
Shell vegna
Ísal-út-
boðs. Skil ek
ki að Shell s
endi fax
út af verðum
í þessu útb
oði, það
er allt of var
asamt“.
Fréttablaðið
mun á mo
rgun
birta meira
úr frumskýr
slu Sam-
keppnisstofn
unar.
rt@frettabla
did.is
MEST LESNA
DAGBLAÐ
Á ÍSLANDI
Suðurgötu 10
, 101 Reykjav
ík — sími 515
7500
FIMMTUDA
GUR17. jú
lí 2003 – 161
. tölublað – 3
. árgangur
RÉTTARHÖLD
FÆRÐ TIL
Dómari í máli
John Allen
Muhammad, s
em
er grunaður um
að vera önnur
leyniskyttan se
m
myrti íbúa í ná
-
grenni Washin
gton, hefur ák
veðið að réttar
-
höldin verði fæ
rð um set til a
ð tryggja
sanngjarna má
lsmeðferð. Sjá
bls. 2
VELDUR VAN
DRÆÐUM
Jafnréttisfulltrú
i Reykjavíkur s
egir dóm
Héraðsdóms N
orðurlands eys
tra yfir Leikfé-
lagi Akureyrar
vegna brots á
jafnréttislögum
valda atvinnur
ekendum vand
ræðum. Þeir
verði nú að ta
ka mið af ráðn
ingum annarra
rétt eins og sín
um eigin. Sjá
bls. 2
ÓSIGUR Í ARM
ENÍU
KR beið eins m
arks ósigur fyri
r armenska
liðinu Pyunik á
útivelli. Ungur
leikmaður,
Kristinn Magnú
sson, lék sinn
fyrsta meist-
araflokksleik m
eð KR. Sjá bls
. 6
LÆKKA MEIR
A
Flugleiðir hafa
brugðist við ú
rskurði Sam-
keppnisstofnu
nar með því a
ð lækka
netsmelli í ver
ði og fella niðu
r vildarpunkta.
Viðbrögðin ko
ma formanni N
eytendasam-
takanna á óva
rt. Sjá bls. 8
● fjögurra daga
ferð í Svarta
kot
▲
SÍÐUR 26
Ógleymanleg
ferð frá Öskju
ferðir o.fl.
Ása Richards
dóttir:
VEÐRIÐ Í D
AG
snýr aftur í le
iklist og tónl
ist
Helgi Björns:
▲
SÍÐA 38
Eitt kjörtíma-
bil er nóg spáir í leik fyrrum l
ærisveina
Logi Ólafsson
:
▲
SÍÐA 24
Jafntefli kemur
ekki á óvart
„Skil ekki að
Shell sendi fax“
Fjármálastjóri
Olís lýsti því að
slíkt væri „allt
of varasamt“ í
tölvupósti til y
firmanna sinna
.
Skýrsla Samke
ppnisstofnunar
lýsir sönnunar
gögnum um sa
mráð olíufélag
anna þriggja.
„Gagnahreinsu
n“ sögð hafa fa
rið fram innan
Skeljungs.
SKÝRSLAN
Samkeppnisst
ofnun lýsir við
brögðum fjárm
álastjóra Olís
eftir að Skelju
ngur sendi sím
bréf.
Vinnuslys:
Slys tvo
daga í röð
01 16.7.2
003 21:01
Page 1
Pétur Blöndal:
Vill finna
lekann
RANNSÓKN Pétur Blöndal, formað-
ur efnahags- og viðskiptanefndar
Alþingis, telur að lögregla ætti að
rannsaka hvernig frumskýrsla
Samkeppnisstofnunar um verð-
samráð olíufélaganna hafi borist
til fjölmiðla.
„Þetta er mjög
alvarlegt mál. Ég
veit ekki hvort
við höfum tæki
til að rannsaka
það, en það getur
verið að lögregl-
an eigi að rann-
saka slíkt. Mér
finnst að Sam-
keppnisstofnun
eigi að biðja lög-
regluna um að rannsaka málið.“
Hann telur að fjölmiðla-
umfjöllun um málið á þessu stigi
sé til þess fallin að valda skaða.
„Vandinn er sá að þegar fjöl-
miðlaumfjöllun er svona mikil er
búið að dæma. Menn tapa sínum
réttindum, þeir fara að tapa eign-
um og fjölskyldu út af umræðu
þar sem þeim eru gefnar sakir.
Síðan kemur dómsúrskurðurinn
nokkru seinna, en þá er búið að
fordæma menn, líkt og sást í
Bretlandi nýverið. Þetta er mjög
hættulegur dómur og fjórða vald-
ið verður að taka á honum stóra
sínum og skoða hvað það er að
gera.“ ■
PÉTUR BLÖNDAL
Segir alvarlegt mál
að skýrslunni hafi
verið lekið.
FYRSTA FRÉTT
Fréttablaðið vitnaði í skýrsluna í síðustu viku.
Pétur Blöndal vill finna þann sem
lak skýrslunni.