Fréttablaðið - 26.07.2003, Qupperneq 12
Fregnir af því að borgaryfir-völd í Aþenu hyggist fjölga
rekstrarleyfum fyrir vændishús
upp í 230 til þess að anna eftir-
spurn vegna komandi Ólympíu-
leika í borginni hafa vakið mik-
inn úlfaþyt. Ráðamenn víða hafa
ekki sparað stóru orðin í mót-
mælum sínum gegn áformum
borgaryfirvaldanna. Í liðinni
viku sendu sjö ráðherrar jafn-
réttismála á Norðurlöndum og
Eystrasaltslöndum bréf til borg-
arstjórnar í Aþenu þar sem þeir
lýstu „viðbjóði“ sínum, eins og
þeir orðuðu það, á þessum áætl-
unum Grikkja. Íslendingar hafa
heldur ekki látið sitt eftir liggja.
Framkvæmdastjórn Íþrótta- og
Ólympíusambands Íslands sendi
Alþjóðaólympíunefndinni og
Ólympíunefnd Grikklands bréf
fyrr í mánuðinum þar sem lýst
er yfir andúð á þessum áformum
og óskað er eftir skýringum. Í
viðtali við Fréttablaðið af því til-
efni sagði Ellert B. Schram, for-
seti ÍSÍ, meðal annars að sér
fyndist það „hálfneyðarlegt að
þetta komi upp í Aþenu, vöggu
Ólympíuleikanna.“ Hann kvaðst
telja að þessi fjölgun á vændis-
húsum væri í ósamræmi við hug-
sjón leikanna. „Þessi tenging
vændis við íþróttir er siðferðis-
lega óviðeigandi og óþolandi,“
sagði hann.
Mótmæli íslenskra femínista
hafa náð í heimspressuna.
„Áform borgaryfirvalda í Aþenu
eru fullkomlega á skjön við anda
Ólympíuleikanna, sem byggir á
heilbrigði, friði, kynjajafnrétti
og samvinnu,“ sagði Kristín Ást-
geirsdóttir, talsmaður Femínista-
félags Íslands, í samtali við
breska blaðið The Guardian.
Ljóst er því að áform borgar-
yfirvaldanna eru í meira lagi
umdeild, enda er það ekki ríkt í
hugum fólks að tengja vændi við
Ólympíuleikana. Á yfirborðinu
lítur út fyrir að borgarstjórnin
vilji mæta auknum ferðamanna-
straumi til borgarinnar í tilefni
leikanna með því að auka fram-
boð á fremur vafasamri afþrey-
ingu. En hvað er það sem hér býr
að baki? Af hverju leggur borg-
arstjórnin í Aþenu svo miklu
áherslu á þetta mál, þrátt fyrir
svo mikla andstöðu? Þegar málið
er skoðað kemur í ljós að málið
er ögn flóknara en kann að líta út
í fyrstu. Ásetningurinn er ef til
vill ekki jafn „viðbjóðslegur“ og
menn kunna að halda.
Rétttrúnaðarkirkjan
mótmælir
Borgarstjórinn í Aþenu heitir
Dora Bakoyianni og er hún fyrsta
konan til að gegna því embætti.
Hún er talin ein helsta vonar-
stjarnan í grískum stjórnmálum
og stundum nefnd sem hugsanleg-
ur framtíðarleiðtogi þjóðarinnar.
Hún var kjörin borgarstjóri í
október síðastliðnum og vann þar
glæstan sigur á sitjandi borgar-
stjóra og mótframbjóðanda sínum
úr röðum sósíalista. Sjálf kemur
hún úr röðum miðsækinna hægri
manna. Áform hennar um að
fjölga skráðum vændishúsum
hafa mætt mikilli andstöðu innan-
lands, og þá einkum frá kirkjunn-
ar mönnum. Gríska rétttrúnaðar-
kirkjan hefur andmælt áformun-
um kröftuglega og segir þau
móðgandi við land og þjóð og
draga upp þá mynd af borgaryfir-
völdum í Aþenu að þau hafi óeðli-
legan áhuga á kynlífsiðnaði og láti
sér mansal á konum og kynlífs-
þrælkun í léttu rúmi liggja. Kirkj-
an hefur þannig djúpar áhyggjur
af ímynd borgarinnar út á við
vegna málsins og hafa þær
áhyggjur átt nokkurn rétt á sér
miðað við úlfaþytinn sem áformin
hafa vakið.
Dora Bakoyianni hefur hins
vegar hvergi hvikað frá áformum
sínum. Hvað gengur henni til?
Uggandi borgaryfirvöld
Hafa ber í huga að vændi er
löglegt í Grikklandi. Málið snýst
því ekki um hvort Bakoyianni vilji
leyfa eða banna vændi. Slík
ákvörðun er ekki á hennar færi.
Hins vegar er löglegt vændi háð
ýmsum skilyrðum. Það verður að
vera stundað inni á sérstökum
vændishúsum, sem verður að
skrá opinberlega og fá leyfi fyrir,
eða af vændiskonum sem hafa
sérstakt leyfi til að stunda iðju
sína. Skráðar vændiskonur njóta
ýmissa réttinda, eins og til að
mynda lífeyris að lokinni starfs-
ævi. Þær fara reglulega í læknis-
skoðun á vegum yfirvalda og er
starfsemin undir ýmiss konar eft-
irliti.
Borgaryfirvöld benda á að í
Aþenu sé vændi útbreitt en hins
vegar séu ákaflega fá vændishús
opinberlega á skrá og fáar vænd-
iskonur séu með leyfi. Illa hefur
því tekist að koma böndum á
vændisiðnaðinn í borginni. Talið
er að upp undir 6.000 vændiskon-
ur séu starfandi í Aþenu án leyfis.
Mikil eftirspurn eftir kynlífs-
þjónustu hefur reynst vera fylgi-
fiskur Ólympíuleika í stórauknum
mæli. Talið er að um 10 þúsund
vændiskonur víða að hafi starfað
á götum og á næturklúbbum í Syd-
ney á meðan á leikununum stóð
þar árið 2000. Tala kúnna er talin
hafa farið upp í hundrað og fimm-
tíu þúsund á dag þegar mest lét.
Borgaryfirvöld í Aþenu eru því
nokkuð uggandi að eigin sögn,
enda er talið að vændisiðnaðurinn
sé þegar farinn að panta flugfar
til Aþenu í stórum stíl. Haft er eft-
ir borgarembættismanni að ef
ekkert verði að gert megi gera
ráð fyrir að um alla Aþenu verði
útlendingar um alla borg „að
stunda kynlíf bak við runna eða
úti á götum.“
Vændiskonur mótmæla
Viðleitni borgaryfirvalda í Aþ-
enu snýst því í grundvallaratriðum
um það að koma böndum á vændi í
borginni. Þar á bæ líta menn svo á
að yfirvöld séu í keppni við tím-
ann, því Ólympíuleikarnir nálgast
óðfluga. „Við getum ekki stungið
höfðinu í sandinn,“ sagði aðstoðar-
borgarstjórinn í Aþenu, Ira Val-
samaki, í samtali við heimspress-
una. „Við erum með lög í landinu
sem leyfa vændishús og vændis-
konur mega vinna að því tilskildu
að þær hafi til þess leyfi, en þessi
lög eru hundsuð. Nú þegar leikarn-
ir nálgast verðum við að finna ein-
hverjar lausnir.“
Þess má geta að áform Doru
Bakoyianni um að fjölga skráðum
vændishúsum í 230 hafa einnig
mætt andstöðu vændiskvenna í
borginni, sem hafa staðið fyrir
mótmælum fyrir utan innanríkis-
ráðuneytið. Þær telja að með þess-
um áformum sé verið að takmarka
starfsemi þeirra og að tala skráðra
vændishúsa eigi að vera hærri.
Það er því ljóst að á málinu eru
margar hliðar. Í öllu falli er líklegt
að þessi viðleitni muni ekki ná því
markmiði að koma reglu á vændis-
iðnaðinn í tæka tíð. Þó svo að 230
vændishús fengjust til að skrá sig
opinberlega, og vinna þar með
undir opinberu eftirliti, myndi það
aðeins þýða að um 690 vændiskon-
ur störfuðu innan þeirra veggja.
Því eru yfirgnæfandi horfur á,
miðað við allar tölulegar stað-
reyndir, að borgaryfirvöldum í Aþ-
enu muni aðeins takast að koma
böndum á lítinn hluta af því vændi
sem stundað verður í borginni í
kringum Ólympíuleikana á næsta
ári, ef að líkum lætur.
gs@frettabladid.is
12 26. júlí 2003 LAUGARDAGUR
Áform Doru Bakoyianni, borgarstjóra í Aþenu, um að fjölga skráðum vændis-
húsum í borginni fyrir Ólympíuleikana 2004 hafa mætt mikilli andstöðu. Hún
stendur við fyrirætlanir sínar. Hvað gengur henni til?
Vændi og íþróttir
í Aþenu
VÆNDISKONUR MÓTMÆLA
Síðastliðinn fimmtudag mótmæltu um 70 vændiskonur í Aþenu þeim áformum yfirvalda
að takmarka, eins og þær líta á það, rekstrarleyfi vændishúsa fyrir Ólympíuleikana árið
2004 við einungis 230 hús.
Mikil eftirspurn
eftir kynlífsþjónustu hefur
reynst vera fylgifiskur
Ólympíuleika í stórauknum
mæli.
,,
ELLERT B. SCHRAM
„Þessi tenging vændis við íþróttir er sið-
ferðislega óviðeigandi og óþolandi,“ segir
formaður ÍSÍ.
KRISTÍN ÁSTGEIRSDÓTTIR
Talsmaður Femínistafélags Íslands segir
áform borgaryfirvalda í Aþenu um að
fjölga rekstrarleyfum vændishúsa úr 200 í
230 vera fullkomlega á skjön við anda
Ólympíuleikanna.
AP
/
PE
TR
O
S
G
IA
N
N
AK
O
U
R
IS
Viðburðarík ævi
Borgarstjórinn í Aþenu er um margt merkileg kona.
Dora Bakoyianni var vel kunn í Grikklandi
áður en hún var kjörin borgarstjóri Aþenu, en
hún er elsta barn Konstantíns Mitsotakis, sem
var forsætisráðherra Grikklands 1990 til 1993.
Hún er 49 ára gömul. Fjórtán ára gömul flúði
hún til Parísar með fjölskyldu sinni til að
flýja herforingjastjórnina sem stjórnaði
landinu á árabilinu 1967-74. Hún sneri aftur
til Grikklands þegar herforingjastjórnin
féll.
Hún er einnig kunn í Grikklandi sem
ekkja blaðamannsins Pavlos Bakoyiannis,
sem var myrtur árið 1989 á leið sinni til
vinnu af tveimur meðlimum hryðjuverka-
samtakanna 17. nóvember.
Í desember síðastliðnum var reynt að
ráða Bakoyianni, þá nýkjörin borgarstjóra, af dögum. Skotið var á bíl
hennar og varð það borgarstjóranum til happs að hún beygði sig eft-
ir töskunni á gólfinu í sama mund og skotið reið af. Byssumaðurinn
var 35 ára karlmaður, vanheill á geði.
Bakoyianni var menntamálaráðherra í ríkisstjórn föður síns. Vin-
sældir hennar hafa stöðugt aukist. Í borgarstjórnarkosningunum í
Aþenu í október vann hún sigur á mótframbjóðanda sínum með 20
prósenta mun. Hennar bíða ærin verkefni í Aþenu, ekki síst vegna
Ólympíuleikanna á næsta ári, en hún tók við embættinu þann 1. jan-
úar síðastliðinn.
DORA BAKOYIANNI
Borgarstjórinn í Aþenu
nýtur vinsælda í heima-
landi sínu.