Fréttablaðið - 26.07.2003, Qupperneq 13
John Lennon er minn maður, ekkispurning,“ segir Heimir Már
Pétursson, framkvæmdastjóri
Hinsegin daga, en undirbúningur
undir þann stórviðburð stendur nú
sem hæst. Hann er spurður um
hver sé hans hetja, fyrirmynd:
hver sé sá maður sem hann hefur
helst í hávegum. En af hverju John
Lennon?
„Í fyrsta lagi var hann náttúr-
lega ótvíræður leiðtogi sinnar kyn-
slóðar og stóð fyrir sjónarmiðum
sem gjörbreyttu hugsunarhætti
fólks á síðari hluta 20. aldar. Þar
með var kastað fyrir róða úreltum
gildum sem menn höfðu drattast
með allt frá Viktoríutímanum. Síð-
an var hann eitt besta rokktónskáld
og textahöfundur sem hefur verið
uppi,“ segir Heimir Már og leynir
ekki aðdáun sinni á Lennon.
„Ég lít ekki á John Lennon sem
neinn sérstakan hugmyndafræðing
í þeim skilningi að hann hafi sett
niður einhverjar niðurnjörvaðar og
mótaðar heimspekilegar hugmynd-
ir. Hans heimspeki birtist miklu
fremur í því hvernig hann lifði líf-
inu og hvernig hann brást við því
sem var að gerast í heiminum á
hans tíma. Til að mynda hvernig
hann brást við Víetnamstríðinu
með því að stýra þeirri athygli sem
fjölmiðlar veittu honum og nýta
hana til að koma sínum friðarboð-
skap á framfæri. Hann var heldur
ekki hræddur við að láta hlæja að
sér. Til dæmis þegar hann og Yoko
boðuðu blaðamenn til sín þar sem
þau voru í hjónarúminu á Hilton í
Amsterdam, þá nýgift. Eins þegar
þau fundu upp hina svokölluð poka-
stefnu, komu fram fyrir fjölmiðla
íklædd poka til að tryggja að það
sem þau höfðu að segja væri í önd-
vegi en ekki hvernig þau litu út
þann daginn.“
Heimir Már er hafsjór af fróð-
leik um Lennon og hefur stúderað
hann frá því hann man eftir sér.
Hann hreifst af Bítlunum í gegnum
plötusafn eldri bræðra sinna en
fljótlega skar John Lennon sig út
úr frá hinum Bítlunum. Heimir
Már á meira og minna allt útgefið
efni þar sem John Lennon kemur
við sögu. Stundum hlustar hann
ekki á neitt nema Lennon og er það
aðallega þegar Heimir Már er í ein-
hverri hugmyndavinnu sjálfur.
„Hann kveikir hjá mér hugmynd-
ir,“ segir hann. „Og ég hef hitt John
Lennon í draumi, baksviðs í Laug-
ardalshöllinni. Hann var blindfull-
ur þar, kom allt of seint á tónleik-
ana og sagði mér að hann myndi
bara spila einhverja gamla stand-
arda sem hann hefði aldrei spilað
með þessari hljómsveit áður. Svo
gerði hann það.“
Ekki er nóg með að Heimir Már
hafi John Lennon í hávegum heldur
er hann honum einnig fyrirmynd,
eins langt og það nær.
„Eins og hann trúi ég því að
hægt sé að fá meiru áorkað með
því að höfða til betri hliða fólks en
æsa það upp í slagsmál og óeirðir.
Og ég trúi því líka að það sé best að
koma til dyranna eins og maður er
klæddur hverju sinni. Því þótt
hann hafi verið eitt stærsta rokk-
goð sögunnar, þá neitaði hann alltaf
að fylgja uppskriftum ímynd-
arsmiðanna.“
jakob@frettabladid
LAUGARDAGUR 26. júlí 2003 13
Hole in One • Bæjarlind 1-3 • Sími 577 40 40 • www.holeinone.isTop-Flite og Callaway kúlur á góðum tilboðum
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
|
Y
D
D
A
/
s
ia
.i
s
/
N
M
0
9
9
1
1
Sumaropnun
Virka daga 10-19
Laugardaga 10-16
Sunnudaga 12-16
FARA GOLFSKÓR
3.900K
R
SUMARTIL
BOÐ
OG
5.900
ALLUR FATNAÐUR
SUMARTIL
BOÐ
10-50%
AFSLÁTTU
R
Sumar
TILBOÐ
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
Y
D
D
A
/S
IA
.I
S
FULLT GOLFSETT
> 3-PW járn
> river
> 3 og 5 tré
> Pútter
> Góður
burðarpoki
24.900KR
SUMARTIL
BOÐ
Fullt golfs
ett
með burða
rpoka
Mynd mánaðarins er að þessusinni verk Ásgríms Jónssonar
Hekla frá árinu 1909 sem máluð er
með olíulitum á striga. Þetta verk
má nú sjá á Sumarsýningu Lista-
safns Íslands en safnið keypti verk-
ið árið 1922. Ásgrímur er einn af
brautryðjendum íslenskrar nútíma-
listar og er þessi mynd af Heklu
mesta stórvirkið frá fyrstu starfs-
árum hans. Það er þó ekki stærðin
ein sem vekur athygli, hin víðáttu-
mikla fjallasýn og túlkun birtunnar
fanga einnig augað. Ásgrímur mál-
aði myndina á staðnum en lauk
henni síðar í vinnustofu sinni.
Myndin á sér þó lengri sögu því
áður hafði Ásgrímur málað Heklu
og tengist fjallið einnig æskuminn-
ingum hans.
Í þessu stóra verki leggur Ás-
grímur áherslu á áhrif birtunnar á
landið og víðáttumikla fjarsýn inn
til landsins. Myndina byggir hann
að klassískum hætti inn í myndrým-
ið, með forgrunn, miðhluta og bak-
grunn. Sjóndeildarhringurinn ligg-
ur við miðju myndflatarins þannig
að bjartur himinflöturinn eykur á
tign fjallsins á miðri myndinni.
Mesta glíman hefur verið við hvítan
tind fjallsins þar sem ótal litatónum
er stillt saman. Liturinn er þar bor-
inn þykkt á, andstætt þunnum lita-
lögum í forgrunni sem minna á
vatnslitamálun.
Þarna hefur Ásgrímur ekki ein-
ungis túlkað hina síbreytilegu birtu
á landið, sem markaði nýtt skeið í
listferli hans, heldur einnig tjáð
rómantíska sýn á landið þar sem hin
tignarlega og upphafða náttúra er
táknmynd þess sem er manninum
æðra. ■
JOHN LENNON
Gerbreytti hugsunarhætti sinnar kynslóðar og
var þá kastað fyrir róða úreltum gildum sem
menn höfðu drattast með allt frá Viktoríutím-
anum. Heimir Már nefnir hann sem þann
mann sem hann hefur helst í hávegum.
HEKLA
Olía á striga, (150 x 290). Meistaraverk frá Ásgrími Jónssyni en það er málað árið 1909
og telst mesta stórvirkið frá fyrstu starfsárum mannsins sem sumir telja mesta listmál-
ara Íslands.
Tignarleg og
upphafin náttúra
Framkvæmdastjóri
Hinsegin daga fer
ekki leynt með að-
dáun sína á John
Lennon, sem er sá
maður sem hann
hefur helst í háveg-
um. Ekki bara að
Heimir Már eigi
svo gott sem allt
efni sem John
Lennon hefur kom-
ið nálægt heldur
hefur Lennon birst
Heimi í draumi.
■ MAÐUR AÐ MÍNU SKAPI
■ MÁLVERK VIKUNNAR
HEIMIR MÁR PÉTURSSON
John Lennon er hans maður, eitt besta rokktónskáld og textasmiður sem uppi hefur verið
og neitaði alltaf að fylgja uppskriftum ímyndarfræðinga.
Lennon í
Laugardalshöll
KARÍBAHAF - PANAMA - KYRRAHAF
DAY PORT ARRIVAL DEPART
September 7, 2003 Miami to Los Angeles
Miami 4:00 P.M.
1 „Fun Day“ at Sea
2 „Fun Day“ at Sea
3 Cartagena, Colombia 9:00 A.M. 2:00 P.M.
4 Panama Canal Transit 8:00 A.M. 4:00 P.M.
5 „Fun Day“ at Sea
6 Puntarenas, Costa Rica 8:00 A.M. 6:00 P.M.
7 „Fun Day“ at Sea
8 „Fun Day“
9 Acapulco, Mexico 7:00 A.M. Midnight
10 Zihuatanejo/Ixapa, Mexico* 8:00 A.M. 3:00 P.M.
11 Puerto Vallarta Mexico 10:00 A.M. 10:00 P.M.
12 „Fun Day“ at Sea
13 „Fun Day“ at Sea
14 Los Angeles, Californina 7:00 A.M.
14 daga
lúxussigling
7. sept.
CARNIVAL
PRIDE
frá kr. 91.520,-
+ skattar og flug.
PÖNTUNARSÍMI 56 20 400
Austurstræti 1, 3ja hæð
PRIMA
TRAVEL
LTD.