Fréttablaðið - 26.07.2003, Page 14

Fréttablaðið - 26.07.2003, Page 14
Hvað á maður að gera ef maðurverður var við innbrotsþjóf inni hjá sér um miðja nótt? Velta sér á hina hliðina og reyna að sofna aftur? Fara á stúfana og heilsa upp á kauða? Þetta eru ekki sérlega skemmtilegar spurningar að velta fyrir sér, en í Bretlandi stendur nú yfir heit umræða um einmitt þessi mál. Sú umræða á sér sína forsögu. Innbrot í skjóli nætur Sagan hófst í ágústmánuði árið 1999 þegar tveir innbrotsþjófar, Fred Barras, 16 ára, og Brendon Fearon, 33 ára, lögðu leið sína á af- skekkt bóndabýli í Norfolk-skíri í Englandi og brutust þar inn um miðja nótt. En móttökurnar komu þeim í opna skjöldu. Bóndinn og einbúinn Tony Martin, 53 ára, greip haglabyssu sína og skaut á þá. Fred Barras fékk skot í bakið og lést á staðnum, en Fearon fékk skot í fótinn og náði aftur heilsu eftir að hafa legið á sjúkrahúsi og fengið viðeigandi meðferð. Þremur dögum seinna var Tony Martin handtekinn og síðan dæmd- ur í ævilangt fangelsi fyrir morð að yfirlögðu ráði. Þegar dómurinn var kveðinn upp yfir Martin ætlaði allt af göfl- unum að ganga. Húseigendur um allt Bretland spurðu hvernig það mætti vera að maður sem hefði verið að verja bústað sinn fyrir innbrotsþjófum væri dæmdur fyrir morð. Og ekki nóg með það heldur höfðaði innbrotsþjófurinn sem komst lífs af einkamál á hendur bóndanum vegna miska og vinnutaps vegna sjúkrahússlegu. Við réttarhöldin kom það á daginn að þetta var ekki í fyrsta sinn sem innbrotsþjófar höfðu gert sig heimakomna á hinu af- skekkta eyðibýli Martins. Aðeins þremur vikum áður höfðu inn- brotsþjófar komist inn í húsið og haft á braut með sér verðmæti um einnar milljónar króna. Vantreysti lögreglunni Martin vantreysti lögreglunni til að sjá um að vernda býlið og náði sér í haglabyssu, án byssuleyfis, og svaf upp frá þessu alklæddur með byssuna við höndina. Við réttarhöldin, sem fóru fram í aprílmánuði árið 2000, hélt Martin því fram að hann hefði skotið á þjófana í sjálfsvörn. En þá kom það fram að þjófarnir höfðu verið að flýja út um glugga þegar þeir urðu fyrir skotum hans. Kviðdómendur fengu einnig að vita að 6 árum áður hafði Martin skotið úr haglabyssu í áttina að bíl, og fyrir það var hann sviptur byssuleyfi. Ákæruvaldið hélt því fram að Martin hefði ekki skotið úr byss- unni í sjálfsvarnarskyni heldur hefði hann gengið miklu lengra en nauðsyn bar til. Og dómsniðurstað- an var eins og fyrr segir: Martin var sakfelldur og dæmdur í ævi- langt fangelsi. Manndráp – ekki morð Martin áfrýjaði dómnum sam- stundis og í október árið 2000 var dómur kveðinn upp að nýju, að þessu sinni fyrir manndráp en ekki morð, og refsingin var ákveðin 5 ára fangelsi. En málinu var ekki lokið þar með. Nú hefur innbrotsþjófurinn Fearon höfðað mál á hendur Martin bónda og fer fram á tvær milljónir í skaðabætur vegna vinnutaps og vegna þess að hann kveðst ekki geta horft á hleypt af byssu í sjón- varpinu. Enn fremur segist hann vera ófær um að njóta ásta vegna hins andlega og líkamlega áfalls sem hann varð fyrir þegar bóndinn hlunkaði á hann úr haglaranum. Fearon hlaut sjálfur nýverið 18 mánaða dóm vegna fíkniefnamáls, en áður en hann braust inn hjá Martin hafði hann hlotið meira en 30 refsidóma fyrir margvísleg af- brot. Hann lýkur við að afplána fíkniefnadóminn á næstu dögum og hyggst þá einbeita sér að málaferl- um á hendur Martin bónda. Hinn 28. þessa mánaðar verður Martin loksins látinn laus en þá hefur hann lokið við að afplána tvo þriðju af refsingu sinni. Skilorðs- nefnd hafnaði ávallt beiðnum hans um að fá lausn á skilorði. Nefndin segir að hann hafi staðfastlega neit- að að iðrast gerða sinna. Hótað hefndum Tony Martin bóndi hlýtur þó að líta til frelsisins með blendum til- finningum. Kannski er ekki mikið að sitja í fangelsi í 5 ár fyrir að drepa mann – en 5 ár í fangelsi er þung refsing fyrir að verja heimili sitt fyrir innbrotsþjófum. Enn fremur er það kvíðvænlegt fyrir Martin að vinir Fearons hafa látið þau boð út ganga að þeir hyggi á hefndir og muni heimsækja Martin í einsemdinni við fyrsta hentug- leika. Í Bretlandi hafa margir orðið til þess að skrifa dómsmálayfirvöld- um til að láta í ljósi vanþóknun á því að Tony Martin skuli hafa verið lát- inn líða fyrir að grípa til varna gegn glæpamönnum sem ruddust inn á hann í skjóli nætur. Sagt er að inn- brotsþjófar hafi drepið meira en 60 húsráðendur á árunum 1996-2000, sem sýnir hversu hættulegir þessir óboðnu gestir geta verið. En mál Tonys Martins sýnir líka að það get- ur verið hættulegt að verja hendur sínar. ■ 14 26. júlí 2003 LAUGARDAGUR Fyrir börn á öllum aldri! FARSÍMAR Flestir kannast við það hvimleiða fyrirbæri að fá lag á heilann. Oft eru þetta misskemmti- leg stef sem líma sig á heilabörk- inn. Þetta færist stöðugt í aukana. Upp úr þurru fara menn að raula fyrir munni sér einhver lög og hafa enga hugmynd um hvaðan þau koma. Rannsóknarblaðamenn Fréttablaðsins lögðust á eitt og sökudólgurinn fundinn: Farsímar. Hringitónar mega heita lymskuleg árás á undirmeðvitundina. Dægur- og jólalög vinsælust Nokkrir aðilar selja farsímanot- endum hringitóna í síma og fara þar símafyrirtækin Síminn og Og Vodafone fremst í flokki. Á með- fylgjandi lista frá Símanum má sjá hvaða lagstúfar eru vinsælastir um þessar mundir og endurspeglar sá topplisti að nokkru leyti þau lög sem hafa verið vinsæl að undan- förnu. Pétur Pétursson, kynningar- fulltrúi Og Vodafone, segist ekki sjá neina toppa í sölu hringitóna á ársgrundvelli, eftirspurnin sé nokkuð jöfn, nema um jólin. Í des- ember vilja farsímaeigendur gjarn- an hafa jólaleg stef í sínum símum. Vinsælasta lagið hjá Og Vodafone frá upphafi er jólalagið „Let It Snow“. Pétur segir jafnframt að ekki fari á milli mála að fylgni sé milli þess hverju fólk hleður inn á síma sína og því þegar vinsælar er- lendar hljómsveitir koma til lands- ins. Til dæmis var mjög vinsælt að hlaða inn á GSM-símann sinn laga- brotum með hljómsveitinni Ramm- stein þegar hún var hér á ferð fyrir ekki löngu. Hringitónar stjarnanna Fréttablaðið hringdi af handa- hófi í nokkra valinkunna Íslend- inga, söngvara og sjónvarpsmenn, og forvitnaðist um hvaða hringi- tóna eða lög þeir hefðu í sínum síma. Vissulega er þetta ekki mark- tækt úrtak en það kemur á óvart að aðeins tveir af fimm eru með lagstúf. Það kemur ekki á óvart að Frank Sinatra-aðdáandinn og söngvarinn Geir Ólafsson er með „New York, New York“ í símanum. „Það er mér til áminningar um hvar ég á heima í lífinu og tilverunni,“ segir Geir. Valgerður Matthíasdóttir, hönn- uður og sjónvarpsmaður, er hins vegar ekki með neinn lagstúf í sín- um síma. „Ég hef ekki hugmynd um hvað hringitónninn minn heitir, þetta er svona gamaldags tónn,“ segir hún. Hún segist ekki vera mjög hrifin af lagstúfum í símum almennt. „Ég þoli ekki lagstúfa í GSM-símum,“ segir hún. „Einkum er þetta hvimleitt á kaffihúsum.“ Logi Bergmann Eiðsson sjón- varpsmaður er líka með gamla hringingu, en þó ekki þá sömu og Vala Matt. „Ég er með svona hring- ingu eins og var í gömlu svörtu símunum,“ segir Logi, „eins og heyrist þegar hringir á lögreglu- stöðvum“. Þessi hringing hefur reyndar einn hvimleiðan ókost. „Þetta er fín hringing,“ segir hann, „en hún hefur þann ókost að ég gríp alltaf til símans þegar ég er að horfa á lögguþætti í sjónvarpinu.“ Páll Óskar Hjálmtýsson söngv- ari hefur átt GSM-síma, að eigin sögn, nánast frá því þeir voru fundnir upp. „Ég var einn af þeim fyrstu sem keyptu GSM-síma á Ís- landi og var litið á mig sem furðu- dýr þá,“ segir Páll. „En þessi sími dugar mér enn og er alveg frábær- lega endingargóður. Hringingin er svona skali sem fer upp: dirí lirí lirí lirí lirí lirí lídd...“ Ragnheiður Gröndal söngkona er með titillagið í Sex in the City í sínum síma. „Þetta er flott hringing og skemmtilegur þáttur,“ segir Ragnheiður. „Vinkona mín var með þessa hringingu og ég bað hana um að senda mér hana. Svoldið töff að vera með svona hringingu. Þessi þáttur er náttúrlega um konur og... jújú, kannski má segja að þessi lagstúfur höfði til einhvers konar kvennabaráttu. En það er þá mjög ómeðvitað.“ jakob@frettabladid.is Einbúi í Bretlandi dæmdur í fimm ára fangelsi: Skaut innbrotsþjóf – var dæmdur fyrir morð Lymskuleg árás á undirmeðvitundina Stuttir lagstúfar sem hljóma úr fjarska verða sífellt algengari hluti af daglega lífinu. Örsökin er fullkomnari GSM-símar, búnir hringingum úr dægurlagaheiminum. TOPP TÍU - VINSÆLUSTU LÖG SÍMANS Sæti Tónn Tónskáld Flytjandi 1. I Love Rock ’n’ Roll Hooker/Merrill Britney Spears 2. Down Boy Davis Holly Valance 3. Not Gonna Get Us Galoyan o.fl. T.A.T.U. 4. I’m Gonna Getcha Good Lange/Twain Shania Twain 5. Insomnia Maxi Jazz o.fl. Faithless 6. Sing For the Moment Eminem Eminem 7. Segðu mér allt Hallgrímur Ó. Birgitta Haukdal 8. All the Things She Said Gayloyan o.fl. T.A.T.U. 9. Vertu Frjáls Pétur Bjarnason Botnleðja 10. Smells Like Teen Spirit Cobain o.fl. Nirvana LAGSTÚFAR Í GSM-SÍMUM Eru að verða æ algengari með fullkomnari símum. Fullkomnustu símarnir bjóða upp á búnað sem spilar margtóna lagstúfa. GEIR ÓLAFSSON Er með New York, New York í símanum. RAGNHEIÐUR GRÖNDAL Titillagið úr Sex and the City hljómar úr hennar síma. VALA MATT Segist ekki þola lagstúfa í símum. PÁLL ÓSKAR HJÁLMTÝSSON Hefur átt sama GSM-símann nánast síðan símarnir voru fundnir upp. LOGI BERGMANN EIÐSSON Er með hringingu eins og heyrist á lögreglustöðvum. FRÁ LONDON Sérstætt sakamál kemur þar fyrir rétt á næstunni. Innbrotsþjófur hefur höfðað mál gegn manninum sem hann braust inn hjá fyrir að hafa skotið á sig. Þjófurinn segist m.a. hafa orðið fyrir varanlegum sálrænum skaða.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.