Fréttablaðið - 26.07.2003, Side 15
LAUGARDAGUR 26. júlí 2003
■ Bókahillan mín
15
MYNDLIST Óendurgoldin ást á 17 ára
stúlku varð til þess að listamað-
urinn Paul Gauguin yfirgaf
Frakkland og settist að á Kyrra-
hafseyjum þar sem hann málaði
mörg frægustu málverk sín.
Þessi nýja kenning kom fram í
heimildarmynd um Gauguin sem
nýlega var sýnd á BBC í tilefni af
hundrað ára dánarafmæli lista-
mannsins.
Gauguin sagðist sjálfur hafa
yfirgefið Frakkland og haldið til
Kyrrahafseyja til að leita listar-
innar en listfræðingar hafa um
áraraðir leitað dýpri skýringa á
þessum skyndilegu umskiptum á
högum listamannsins. Listgagn-
rýnandinn Waldemar Januszczak
segir að tímamót hafi orðið í lífi
Gauguins þegar hann, sumarið
1888, var kynntur fyrir Madel-
eine, systur vinar hans, lista-
mannsins Emile Bernard. Madel-
eine var fyrirsæta hjá nokkrum
listamönnum, þar á meðal Gaugu-
in. Gauguin varð gagntekinn af
Madeleine en hún endurgalt ekki
tilfinningar hans. Bréf sem fóru á
milli þeirra sýna afar sterkar til-
finningar hans. Madeleine trúlof-
aðist listamanninum Charles
Laval, sem elskaði Gauguin. Parið
giftist ekki og Madeleine lést 24
ára gömul. Það að Madeleine
skyldi hafna Gauguin hafði gríð-
arleg áhrif á hann, segir
Januszczak, sem heldur því fram
að það hafi verið þessi ást sem
olli úrslitum um að Gauguin sneri
frá vinnu sem verðbréfasali og
varð listamaður. ■
EGGERT PÉTURSSON
Segist yfirleitt ekki lesa bækur
út af söguþræðinum.
Les eina
blaðsíðu
á dag
Ég hef verið að lesa Finn-egan’s Wake árum saman,“
segir Eggert Pétursson mynd-
listarmaður. „Það er eilífðar-
verkefni. Ég hef lengi verið að
lesa blaðsíðu og blaðsíðu hist og
her í bókinni, en er núna að fara
í gegnum hana og les eina blað-
síðu á dag, alltaf á morgnana.
Áður fyrr las ég hana alltaf á
kvöldin af því ég hélt að það
væri svo gott að sofna við hana,
en svo komst ég að því að það er
miklu betra að vakna við hana.
Svo er ég með góða orðskýringa-
bók með.“
Annars segist Eggert hvorki
lesa mikið né skipulega. Hann á
náttúrlega listaverkabækur, en
ekkert óskaplega mikið af þeim.
„Hér í hillunni hjá mér er
mjög skemmtileg bók sem ég las
fyrir nokkrum árum. Hún heitir
Still Life with a Bridle og er eft-
ir Herbert Zbigniew, sem er
pólskur. Þetta eru ritgerðir um
hollenska myndlist og hann kem-
ur þar inn á eitt og annað
skemmtilegt.“
Í gamla daga voru það helst
Guðbergur Bergsson og Einar
Guðmundsson sem heilluðu Egg-
ert með skrifum sínum. Svo
finnst honum líka gott að vita af
Þórbergi uppi í hillu.
„Annars les ég yfirleitt bara
kafla og kafla í bókum. Ég les
þær yfirleitt ekki út af sögu-
þræðinum. Mér finnst það ekki
spennandi og dett alltaf út úr
honum, gleymi því sem hefur
gerst.“ ■
SJÁLFSMYND
Samkvæmt nýrri heimildarmynd var það óendurgoldin ást á 17 ára stúlku sem gerði
meistara fransks expressjónisma að því sem hann var. Gauguin fæddist árið 1848 og var
einn frægasti listmálari Frakka.
Heimildarmynd BBC varpar nýju ljósi á franska listmálarann Paul Gauguin:
Ástin í lífi Gauguin