Fréttablaðið - 26.07.2003, Side 20

Fréttablaðið - 26.07.2003, Side 20
■ ■ SKEMMTANIR  21.00 Hljómsveitin Í svörtum föt- um spilar á Unglist 2003 í Félagsheimil- inu á Hvammstanga.  21.00 Hljómsveitin BSG spilar á Vopnaskaki í Miklagarði, Vopnafirði.  Gleðisveitinn Buff mun skemmta fólkinu á Gauk á Stöng.  Hljómsveitin Úlfarnir leikur fyrir dansi á Kringlukránni. Úlfarnir er skipuð norðanmönnunum Ingvari Birni Grétars- syni sem syngur og spilar á gítar, Jóni Kjartani Ingólfssyni, söngvara og bassa- leikara, og Ingva Rafni Ingvasyni slag- verksleikara.  Ingi Valur trúbador skemmtir á Kránni, Laugavegi 73.  Geirmundur spilar á Players í Kópavogi.  Trúbadorinn Óskar Einarsson skemmtir á Ara í Ögri.  DJ Master heldur uppi partístemn- ingu á Café Amsterdam.  Palli Maus verður á Laugavegi 11.  Bobby K. sér um tónlistina á Laugavegi 22.  Hermann Ingi jr. skemmtir á Café Catalína við Hamraborg í Kópavogi. 26. júlí 2003 LAUGARDAGUR20 hvað?hvar?hvenær? 23 24 25 26 27 28 29 JÚLÍ Laugardagur TÖLVULEIKIR Þegar Doom kom ‘93 voru áhrifin á umheiminn áþekk því að fara í fallhlífarstökk; svolít- ið skelfilegt en stórskemmtilegt og í meira lagi ánetjandi. Fjölmargir tölvuleikjablaðamenn kenna Doom um núverandi starf og skort á skólagráðum; að sjá og spila Doom er tungllending í augum hina tölvuleikjaóðu. Skambyssa í annari, hnúajárn í hinni og allir árar helvítis fram undan. Þannig byrjaði fyrsti leik- urinn í þessari goðsagnakenndu leikjaröð frá höfundunum Id. Ekki var kafað dýpra í þetta ófrumlega plott enda lítið meira sem þarf að vita. Frumleiki tölvuleikja felst sjaldnast í söguþræðinum eða per- sónusköpuninni heldur hvernig spilarinn er gripinn heljartökum af spilun leiksins. Það er grípandi að tæma plasmarifilinn sinn á fljúgandi véldrýsilshöfuð sem spúa eldboltum. Doom hrundi líka af stað net- spilunaræðinu sem er komið til að vera, en hann var fyrsti skotleik- urinn sem bauð upp á slíkt. Minn- ingar um að lemstra og myrða vini og ókunnuga í Doom fá jafnvel hörðustu nerði til að tárast í nost- algíukasti. Doom 2 var óumflýjanlegur, en þar var lítið breytt, bara meira og stærra. Id-menn voru líka upptekn- ir við sköpun Quake en það er önn- ur frægðarsaga. En fyrir tveimur árum bárust fréttir af sköpun Doom 3. Í honum er spilarinn aftur í sporum strandaglóps í helvíti. Helvítið er geimstöð á Mars þar sem óhugnaður veður uppi. Heitt blóð mætir ísköldu stáli og enn á ný standa þúsundir afmyndaðra skrímsla og stökkbreyttra manna milli spilara og útgangsins. Leikurinn kemur út 2004 og þrátt fyrir langan þróunartíma og seinkanir stendur honum enginn leikur á sporði tæknilega: Svoköll- uð tuskubrúðu-eðlislögmál (rag- doll physics) gera hvert dráp ein- stakt; óvinirnir hendast af veggj- um, gegnum glugga og niður stiga, allt á raunverulegan máta. Hver nibba varpar fullkomnum skugga og óvinir gera sér fulla grein fyrir flóknu umhverfi sínu og hvernig á að valda sem mestum skaða. Eftirvæntingin fyrir Doom 3 er komin í algjört hámark og vonandi að hann þoli slíkar væntingar. Eina hugsanlega samkeppnin er sjálfur Half Life 2 sem kemur í lok sept- ember. ■ Allir árar helvítis Doom er fyrirbæri sem sérhver tölvunörður með snefil af sjálfsvirðingu verður að geta lýst í bundnu máli í takt við drunur í keðjusög að sarga gegnum uppvakn- ingshold. Leikirnir sem mótuðu tölvuleikjalandslag nútímans meira en allir aðrir. hársverði? BIO+ fæst á hársnyrtistofum og í apótekum. Vandamál í • psoriasis • exem • flasa • skán • hárlos • kláði • feitur hársvörður lausnin er BIO+ hársnyrtivörur frá Finnlandi sniðin að þörfum húðarinnar með mildum ilmi Krem sápa ph 3,5 e in n t v e ir o g þ r ír 2 8 5. 0 18 DOOM 3 Þetta er atriði sem margir kannast við úr alpha-útgáfu sem lak ólöglega út. Fréttiraf fólki SJÓNVARP Tom Hanks og Steven Spiel- berg ætla að vinna aftur saman að sjónvarpsefni, en síðast gerðu þeir saman 10 þátta Seinni Heimsstyrj- aldar epíkina Band of Brothers. Nýi þátturinn verður sjálfstætt fram- hald þeirrar þáttaraðar. Seinni Heimsstyrjöldin er enn sögusviðið en nú verða átök Bandaríkjamanna í Kyrrahafinu, sem enduðu á einu kjarnorkuárás heimsins til þessa dags, tekin fyrir. Þættirnir munu, líkt og fyrirrennarinn, snúast um eina sveit bandarískra hermanna og stríðsbrölt þeirra á eyjum í kyrrhaf- inu allt að ströndum Japan. Ólíkt fyrri þáttaröðinni verður sú nýja ekki byggð á sönnum atburðum, heldur verður skáldað í eyður sagn- fræðilegra staðreynda og persónur ekki sannar. Bruce McKenna, sá sem sá um að skrifa handrit Band of Brothers upp úr metsölubók sagn- fræðingsins Stephen Ambrose mun semja nýtt handrit frá grunni í þetta sinn, en hann vann til verðlauna fyr- ir Band of Brothers. Umfang þáttargerðarinnar er gífurlegt og ekkert til sparað, en hún mun kosta meira en 100 milljón- ir dollara í framleiðslu. Band of Brothers þættirnir þóttu heppnast gífurlega vel, hlutu 19 Emmy til- nefningar og fengu þar af 6 verð- laun. Þeir voru líka fyrsta stóra verk Playtone, framleiðslufyrirtækis Tom Hanks, en það er nú að sækja í sig veðrið og virðist ætla sér að end- urvekja hina fornu list smá- þáttaraðagerðar. Þeir eru með verk- efni sem spanna alla átakasögu Bandarísku þjóðarinnar á prjónun- um. ■ Titanic-leik-konan Kate Winslet er ófrísk af sínu öðru barni. Þetta verður fyrsta barn hennar með eiginmanni sín- um, leikstjóranum Sam Mendes. Fyrir á Winslet tveggja og hálfs árs gamla dóttur með fyrri eigin- manni sínum, Jim Threapleton. Barnið er væntanlegt í heiminn á næsta ári. Rapparinn sálugi Tupac Shakurætlar að fylgja fordæmi koll- ega síns 50 Cent og fara af stað með nýja fatalínu sem ber heitið Makaveli. Tæknilega séð er það reyndar móðir Shak- ur, Afeni, sem stend- ur fyrir uppátækinu. Hún segist vilja halda arfleifð sonar síns við með þessum hætti. Hún er einnig að vinna að heimildarmynd um kappann sem hefur verið fimm ár í vinnslu. TOM HANKS Ætlar að halda áfram farsælu samstarfi sínu við Steven Spielberg í kvikmyndum og sjónvarpi. Spielberg og Hanks: Heimsstyrjaldarframhald ÚT JÚLÍ-MÁNUÐ AF FÖRÐUNARLÍNU NO NAME SJÁ ÚTSÖLUSTAÐI Á WWW.NONAME.IS 15% AFSLÁTTUR kl. 4, 6, 8 og 10 b.i. 12 ára kl. 6NÓI ALBINÓI kl. 4 og 8RESPIRO 5.50 og 10HOLLYWOOD ENDING Ástríkur&Kleópatra-ísl.tal Forsýnd kl. 3 kl. 4.10 og 10.10USSSS b.i. 12 Sýnd kl. 4, 6, 8, 10 og 11.10 b.i. 16 ára kl. 8 b.i. 14DARK BLUE kl. 2, 3, 4.30, 5.40, 8 og 10.20 TÖFRABÚÐINGURINN m/ísl.tali kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 Lúxus kl. 3.30, 6, 8.30 og 11 b.i. 14 DUMB AND DUMBERER 4 og 6 PHONE BOOTH b.i. 14 kl. 8 og 10 kl. 2 2 FAST 2 FURIOUS kl. 8 b.i. 12 THE MATRIX RELOADED kl. 10 KANGAROO JACK kl. 4 - 6 kl. 5.50 - 8 - 10.10 bi.16 Sýnd í lúxus kl. 5.50 - 8 - 10.10 VIP Sýnd kl. kl. 3, 5.45, 8.30, 10 Ástríkur & Kleopatra m/ísl. 1.40, 3.45 LIZZIE MAGUIRE kl. 2 - 4 - 6 - 8 WHAT A GIRL. 1.45, 3.45, 5.50, 8, 10.10

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.