Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.07.2003, Qupperneq 29

Fréttablaðið - 26.07.2003, Qupperneq 29
Unnur Ösp Stefánsdóttir er aðgera það gott um þessar mundir í söngleiknum Grease, en segir laugardagskvöldin þó líða nokkuð fyrir vinnuna. „Á morgun er ég að leika, eins og undanfarin laugardagskvöld. Ég leik þessa líka ágætis tæfu og það er rosa- lega gaman. Ég lifi mig það mikið inn í hlutverkið að ég er oft svolít- il tæfa fram eftir kvöldi,“ segir Unnur og hlær. „Sýningin byrjar klukkan 6 og oft er góð stemning eftir á. Þá fer hópurinn kannski út að borða eða að súpa smá bjór, þesslags. En ef það er ekkert húll- umhæ er allt eins gaman að skríða bara heim og hafa kósý kvöld með kærastanum. Best er samt þegar maður kemst í eðal eins og að fara í sumarbústað, eitthvað út á land í góðra vina hópi. Éta af grilli og hvíla sig. Það hefur samt verið sorglega sjaldan í sumar.“ Unnur segist vera sérstaklega hrifin af laugardagskvöldum, myndi jafnvel segja að þau væru eftirlætiskvöld vikunnar. „Ég út- skrifaðist úr leiklistarskólanum síðasta sumar og vinir og fjöl- skylda eru að átta sig á því að það er ekkert hægt að bjóða manni í mat eða bíó um helgar, vinnan mín heftir laugardagsskemmti- iðju mína þó nokkuð. Það hefur hreinlega orðið flókið að nærast um helgar, því maður vill ekki vera of þungur á sér á sviði. Oft er ég að borða kvöldmat milli tólf og eitt á næturnar.“ Í æsku segir Unnur að laugar- dagskvöldin hafi snúist í öllu um laugardagsmyndina. „Þá var bara tilhlökkunarefni gegnum alla vik- una að hlamma sér fyrir framan kassann og horfa á góða mynd með vinkonum eða fjölskyldu. Svo á unglingsárunum var maður úti að skemmta sér, öllum stund- um, jafnvel fram úr hófi, verð ég að viðurkenna. Maður á að hugsa sem svo að það sé alltaf helgi. Ekki kyrja það manískt, bara hafa hugsunina bak við eyrað, þá er alltaf gaman.“ ■ LAUGARDAGUR 26. júlí 2003 UNNUR ÖSP STEFÁNSDÓTTIR ■ Útskrifaðist nýlega úr leiklistarskólan- um og leikur um þessar mundir í söng- leiknum Grease í Borgarleikhúsinu. Henni finnst fá kvöld standast laugardagsútgáfurnar. Útsölustaðir: Lyf & Heilsa: (Kringlan - Mjódd - Austurver - Melhagi). Hringbrautarapótek - Árbæjarapótek - Kaupfélag Skagfirðinga - Ólafsvíkurapótek - Vestmannaeyjaapótek. smart® strípulitir • fyrir skapandi fólk! • aflitun • m/hettu • ál-strípur • tvílitar ál-strípur • f/undirhár og toppa Auðveldir í notkun. Allt í einum pakka. Suðri er ekki til sölu, samahvað í boði væri,“ segir Sig- urður Sæmundsson, lands- liðseinvaldur í hestaíþróttum og eigandi stóðhestsins Suðra frá Holtsmúla. „Stóðhesturinn er nú í hryssum hér heima við og ekk- ert á förum,“ segir Sigurður og slær þar með á orðróm þess efn- is að auðugur Bandaríkjamaður hafi fest kaup á Suðra, sem er landsfrægur gæðingur og Íslands- meistari í fjórgangi. Var talið að Suðri hefði verið seldur Banda- ríkjamanninum á 18 milljónir króna og ætti að keppa fyrir hönd Bandaríkjanna á Heimsmeistaramóti ís- lenskra hesta sem hefst í Herning í Danmörku í byrjun næstu viku: „Suðri fer ekki út á mótið en ég er hins vegar að fara í dag ásamt öðrum keppendum,“ segir Sigurður Sæmundsson og bætir því við að stóðhesturinn Logi frá Skarði hafi hins vegar verið seldur Bandaríkjamanni á dög- unum. En Logi sé ekki Suðri né heldur öfugt. ■ SUÐRI Í hryssum í Holtsmúla og ekki falur fyrir nokkuð fé. Stóðhestur ■ Sigurður Sæmundsson í Holtsmúla kveður niður orðróm þess efnis að einn þekktasti stóðhestur landsins hafi verið seldur Bandaríkjamanni sem ætli að láta hann keppa fyrir hönd Bandaríkjanna á Heimsmeistaramótinu í Herning. Suðri ekki seldur 1Útimarkaður aðMosskógum í Mosfellsdal. Líf- rænt grænmeti, silungur og murta. Diddú mætir með frægar pestósósur sínar. Hún syngur bragðið í þær. 230 ár frá þvíBruce Lee dó. Rifjaðu upp snilld- ina á næstu leigu. 3Croissant íBjörns- bakarí við Hring- braut. Bestu morgunhorn bæjarins. 4Faru með litlufrænku og frænda á Grease. Gott að vinna sér inn prik. Gætu orðið góðar barnapíur þegar fram líða stundir. 5Eltu sólina. Vertu í miðbæReykjavíkur. Þar er besta spáin. SUÐUREYRI Íbúarnir heimta fleiri strætóferðir til Ísa- fjarðar. Strætó á Suðureyri SAMGÖNGUR Ísafjarðarbæ hefur verið afhentur undirskriftalisti þar sem óskað er eftir fjölgun ferða almenningsvagna á leiðinni milli Ísafjarðar og Suðureyrar. Í raun eru íbúar að krefjast nýrrar ferðar í hádeginu en nú þegar er ein ferð á morgnana, önnur um miðjan dag og sú þriðja að kveldi. Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar er að fara yfir þessi mál en strætis- vagnar bæjarins eru mikið notað- ir enda svæðið víðfeðmt og fólk þarf bæði að sækja skóla og vinnu. ■ 5 ráð fyrirhelgina UNNUR ÖSP Finnur sér margt skemmtilegt að gera á kvöldin, sér í lagi á laugardagskvöldum. Laugardagskvöld Tæfa fram eftir kvöldi FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.