Fréttablaðið - 26.07.2003, Page 30
30 26. júlí 2003 LAUGARDAGUR
Vikan var góð. Ég byrjaðihana á því að eiga frí á
mánudaginn,“ segir Inga Lind
Karlsdóttir, sjónvarpskona í af-
leysingum á Stöð 2, um vikuna
sem brátt er á enda. „Frídaginn
notaði ég í að fara í tveggja ára
afmæli hjá hundi vinkonu minn-
ar sem heitir Tyson. Borðuðum
þar súkkulaðiköku og glöddust
með hundinum, sem fékk reynd-
ar enga köku sjálfur. Ég var líka
að afhenda þessari vinkonu
minni barnarúm og annað því
hún á von á sér innan skamms,“
segir Inga Lind, sem sjálf er
með fjögur börn á heimili og
segir að flestir frídagar fari í að
fylla ísskápinn og tæma þvotta-
húsið því allt situr það á hakan-
um þá daga sem hún er að vinna.
Svo rann stóri dagur vikunnar
upp á föstudaginn þegar Inga
Lind las í aðalfréttatíma Stöðvar
2 í fyrsta sinn með aðstoð Krist-
jáns Más Unnarssonar:
„Þetta var jómfrúarlestur
minn og menn líkja því stundum
við að missa meydóminn; ekkert
of þægilegt í fyrsta sinn en svo
kemur það kannski. Annars gekk
þetta allt vel og allir mínir nán-
ustu fylgdust með og voru bara
ánægðir. Það er gott að hafa
mann eins og Kristján Má við
hliðina á sér við aðstæður eins og
þessar,“ segir Inga Lind, sem not-
aði vikuna einnig í það að fara í
bíó. Sá sjóræningjamynd með
Johnny Depp og skemmti sér vel:
„Í fyrsta sinn í lífinu fannst mér
ég vera elst í bíó,“ segir hún.
Nú um helgina ætlar Inga Lind
svo að fara í veiði ásamt eigin-
manni sínum og er stefnan tekin
á Ytri Rangá: „Mér er sagt að
veiðin þar sé mjög að glæðast
þannig að þetta verður líklega al-
veg dásamlegt. Svo er bara að
takast á við næstu viku.“ ■
Vikan sem var
INGA LIND KARLSDÓTTIR
■ sjónvarpskona á Stöð 2 byrjaði vikuna
með því að fara í afmæli hjá hundi vin-
konu sinnar. Svo las hún fréttirnar á Stöð
2 í fyrsta sinn og skellti sér á ævintýra-
mynd með Johnny Depp.
Imbakassinn
Haukfránum augum lítur hann
fram á veginn og sér margt sem
öðrum er hulið. Augnaráðið getur
hrætt en líka brætt hörðustu
hjörtu. Allt eftir því hvernig þeim
er beitt. Hver á augun?
Jómfrúarlestur og hundaafmæli
(Kári Stefánsson.)
Augun
Einn flottasti sportbar
og skemmtistaður í Breiðholti
Sjón er sögu ríkari.
Happy hour í kvöld frá kl. 18-21.
Tveir fyrir einn á 500 kr.
Opið til kl. 03.00 um helgar.
Jafnarseli 6, s. 557 3132
Er þetta ekki merkilegt! Óli
fer alltaf að gráta þegar hann
hengir upp þvottinn...
LÁRÉTT: 1 fráa, 7 týran, 8 meðganga, 9
nabbi, 11 á fæti, 13 sveii, 16 sólguð, 17
svar, 19 stelur.
LÓÐRÉTT: 1 snar, 2 lána, 3 dana, 4 reykir,
5 skammst., 6 ekki þessa, 10 tveir eins,
12 spil, 14 stefna, 15 málmur, 18 ekki.
LAUSN:
1
7
8
10
13 14
16 17
19
18
15
2 3 4 5
12
9
11
6
LÁRÉTT: 1fljóta,7ljósið,8játa,9arða,11
tá,13ussi,16ra,17nei,19 rænir.
LÓÐRÉTT: 1fljótur, 2ljá,3jóta,4ósar, 5ti,
6aðra,10ðð,12ásar, 14inn15eir, 18ei.
FJÖLSKYLDA VALDA
Eftirlifendur Valdimars Friðrikssonar. Aftari
röð frá vinstri: Haukur Helgi, Ellert Borgar,
Þórhallur og Guðmann. Fremri röð frá vin-
stri: Elínborg, Kristín Pétursdóttir og Friðrik.
Maðurinn er fyrst og fremstþekktur undir nafninu Eiki
og yfirleitt með viðskeytinu
borgari. Eikaborgarar í Voga-
hverfinu voru þekktir um land
allt en krakkarnir í hverfinu
kölluðu Eika Dýrlinginn af því
að maðurinn var svo bóngóður
að krakkar gátu mætt og farið út
með ruslið og fengið ókeypis
skammt af frönskum hjá
öðlingnum.
„Jú, maður var í borgurunum
þessi ár en eins og flestir vita hef
ég verið í salatinu síðan. Kynnti
salatbarinn fyrir Íslendingum og
reyni alltaf að gera eitthvað nýtt
sem enginn annar er að gera. Nú
er ég með „all you can eat“ salat-
bar því ég var að koma frá
Bandaríkjunum og nýi salatbar
Eika á Hótel Cabin er eins og það
besta sem er að gerast vestan
hafs,“ segir Eiki og býður gosið
með, eins mikið og þú vilt, en
veitingaflóra Íslands missti mik-
ið þegar Eiki fór á þvæling. Hann
er kominn heim. ■
EIKI Á BARNUM
Salat og aftur salat. Grænt og aftur grænt.
Beint frá Bandaríkjum Norður-Ameríku.
Eiki er kominn heim.
Eftirlifendur
Valda
TÓNLIST „Þetta er langþráður
draumur,“ segir Guðmar Valdi-
marsson um þá ákvörðun systkina
sinna að gefa út disk með lögum
pabba síns, Valdimars Friðriks-
sonar. „Við systkinin syngjum og
spilum ásamt frændfólki.“
Diskurinn er seldur á Eskifirði
en símtöl hafa borist víða að, enda
Valdi sannur alþýðulistamaður sem
byrjaði að læra á harmónikku 13
ára og sleppti henni rétt til að róa
eða mæta í vinnu í landi. ■
Hollusta
■ Eiki var eitt sinn konungur íslenska
hamborgarans ásamt Tomma á Tomma-
borgurum. Í dag eru þeir báðir horfnir til
nýrra starfa og Eiki vitlaust í allt sem er
grænt og holt.
Salatbar
Eika borgara
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
INGA LIND KARLSDÓTTIR
Jómfrúarlesturinn í fréttatíma Stöðvar 2
gekk vel – þó sumir líki því við að missa
meydóminn.