Fréttablaðið - 29.07.2003, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 20
Leikhús 20
Myndlist 20
Bíó 22
Íþróttir 18
Sjónvarp 24
ÞRIÐJUDAGUR
29. júlí 2003 – 173. tölublað – 3. árgangur
STA Ð R EY N D UM
A U K I N
F O R YS TA
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í júní 2003
29,1%
53,4%
65,9%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
D
V
FRIÐARHORFUR
Í LÍBERÍU
Friðargæsluliðar frá
Nígeríu halda af til Lí-
beríu í dag til að
freista þess að binda
enda á átök milli upp-
reisnarmanna og her-
sveita forseta landsins. Friður gæti verið í
augsýn. Sjá nánar bls. 2
RÆTT SAMAN
Framkvæmdastjóri Nató telur eðlilegt að Ís-
lendingar og Bandaríkjamenn ræði saman
um hvernig haga skuli vörnum landsins.
Hann er staddur hérlendis og hitti forsætis-
ráðherra og utanríkisráðherra á Þingvöllum
í gær. Nánar bls. 4
YFIRTAKA
Burðarás, Sjóvá Almennar og Kaupþing
Búnaðarbanki eiga í viðræðum um hugsan-
legt yfirtökutilboð vegna hlutabréfa í Skelj-
ungi. Kaupþing Búnaðarbanki hefur keypt
grimmt undanfarna mánuði og á nú 39,2%
hlutafjár í félaginu. Nánar bls. 2
STAÐA BORGARSTJÓRA
Oddviti Samfylkingar í borgarstjórn vill að
borgarstjóri skýri þátt sinn í meintu sam-
ráði olíufélaganna. Borgarstjóri hefur efnis-
lega engu svarað um sinn þátt í málinu og
er staða hans innan Reykjavíkurlistans talin
veik. Sjá nánar bls. 6
VEÐRIÐ Í DAG
æfir með Dallas Mavericks
Jón Arnór Stefánsson
▲
SÍÐA 18
Óþreyjufullur
að komast út
yfirlögregluþjónn í sumarfríi
Geir Jón Þórisson
▲
SÍÐA 28
Sér um útihátíð
Búist er við votviðri og hægviðri víða um
land í dag. Þó eru líkur á birtu og yl á Eg-
ilsstöðum. Sjá nánar bls. 6
BRASSTÓNLIST
Heimilistækjahljómsveitin Mulinex kemur
fra ásamt brassbandi nokkru á Gauknum í
kvöld. Áki Ágeirsson, Helgi Hrafn Jónsson
og Stefaán Jón Bernharðsson munu flytja
splunkunýja brasstónlist og raftónlist eftir
íslensk tónskáld. Sjá nánar:
DAGURINN Í DAG
Sumarnetleikur Búnaðarbankans - www.bi.is
lést í fyrrakvöld
Bob Hope
▲
SÍÐA 30
Meistari tilsvar-
anna allur
„Það eru allar líkur á að Árni
muni stjórna brekkusöngnum,“
segir Páll Scheving, fram-
kvæmdastjóri ÍBV, um þá óvissu
sem nagað hefur Vestmannaey-
inga þar sem að óvíst hefur verið
hvort Árni Johnsen, fyrrverandi
alþingismaður, fái helgarleyfi frá
Kvíabryggju til þess að taka þátt
í þjóðhátíð Eyjamanna um versl-
unarmannahelgina. Páll segir að
nú séu allar líkur á að þingmaður-
inn fyrrverandi mæti en hann
hefur stjórnað brekkusöngnum
um áratugaskeið. Páll segir að
unnið hafi verið að þessu máli
mánuðum saman en nú hafi loks
rofað til.
„Við borgum ríkislögreglu-
stjóra fjórar milljónir króna í
löggæslukostnað og það er lág-
markið að fá Johnseninn sem
uppbót,“ segir Páll.
Hann viðurkennir að nokkur
óvissa sé um það hvort helgar-
leyfi Árna renni út áður en kem-
ur að hefðbundnum tíma Brekku-
söngsins.
Það er engin þjóðhátíð án
Árna. Við munum færa brekku-
sönginn framar í dagskránna ef
þörf krefur,“ segir Páll.
Hann segir að forsala miða á
þjóðhátíð gangi stórvel enda hafi
hann heimildir fyrir því að það
verði sólskin í Eyjum um
verslunarmannahelgina. ■
ÁRNI JOHNSEN
Á leiðinni á þjóðhátíð.
Vestmannaeyingar undirbúa Þjóðhátíð af krafti:
Árni mætir í brekkusönginn
HEIMSFRÆGUR KYLFINGUR Á HVALEYRINNI Kylfingurinn Justin Rose, sem er í 16. sæti á evrópsku mótaröðinni í golfi, sýndi listir
sínar á Hvaleyrinni í Hafnarfirði í gær. Þar lék Rose, sem hefur unnið sér inn 55 milljónir króna í verðlaunafé í ár, ásamt íslenskum
kylfingum og Peter Baker á Canon Pro-golfmótinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A
SAMKEPPNI „Mönnum er það ljóst að
það skortir á löggjöf hvað það varð-
ar hvernig mál flytjast frá Sam-
keppnisstofnun til lögreglu,“ sagði
Jón H. Snorrason, yfirmaður efna-
hagsbrotadeildar ríkislögreglu-
stjóra, eftir fund sem embætti hans
átti með Samkeppnisstofnun í gær
vegna olíumálsins.
Niðurstaða fundarins var sú að
Jón H. og Ásgeir Einarsson, lög-
maður Samkeppnisstofnunar,
myndu nú leita leiða til að koma ol-
íumálinu til embættis ríkislögreglu-
stjóra með lögformlegum hætti.
Haraldur Johannessen ríkislög-
reglustjóri telur það frumskilyrði
að lögreglan fái að sinna sínum
rannsóknum án afskipta stjórn-
málamanna.
Össur Skarphéðinsson, for-
maður Samfylkingar, gagnrýnir
aðgerðarleysi ríkislögreglustjóra í
málinu.
„Háttsemi embættis ríkislög-
reglustjóra í þessu máli er furðu-
leg, svo ekki sé fastar að orði kveð-
ið,“ segir Össur. „Ríkislögreglu-
stjóri hefur sagt opinberlega að
hann geti ekki hafið rannsókn þar
sem hann skorti gögn og vitneskju í
málinu. Nú er komið á daginn að
Samkeppnisstofnun hefur staðið
kórrétt að málinu og kynnt skýrsl-
una bæði munnlega og jafnframt
viljað afhenda hana embætti ríkis-
lögreglustjóra. Þá gerist það að rík-
islögreglustjóri virðist neita að taka
við henni. Það er óskiljanlegt. Emb-
ætti ríkislögreglustjóra hefur í
besta falli orðið uppvíst að ósam-
kvæmni og það er engu líkara en að
embættið sé að koma sér undan
þessari rannsókn. Embættið verður
að gefa skýringar á þessu máli. Það
verður að vera tryggt að allir séu
jafnir fyrir lögunum; hvort sem um
er að ræða olíufursta eða Gunnar
litla á götunni,“ segir Össur.
„Lögreglan fer að lögum í land-
inu og það er nákvæmlega það sem
ríkislögreglustjóri hefur gert,“ seg-
ir Haraldur.
Í fréttatilkynningu frá ríkislög-
reglustjóra í gær er því lýst að eng-
in hefð eða verklag hafi myndast
um framsendingu mála frá Sam-
keppnisstofnun. Þá er tekið fram að
engin gögn hafi skipt um hendur á
fundinum með Samkeppnisstofnun
í gær.
rt@frettabladid.is
hrs@frettabladid.is
Furðuleg háttsemi
ríkislögreglustjóra
Formaður Samfylkingar gagnrýnir aðgerðaleysi lögreglu og segir að
tryggja verði að allir séu jafnir fyrir lögunum. Ríkislögreglustjóri og
Samkeppnisstofnun leita leiða til að koma olíumálinu á milli stofnana.
TONY BLAIR
Þarf nú í ofanálag við öll fyrri vandræði, að
glíma við gríska lögmenn sem vilja draga
hann fyrir stríðsglæpadómstólinn í Haag
vegna Íraksstríðsins.
Grískir lögmenn leita til
stríðsglæpadómstólsins:
Blair
lögsóttur
LONDON, AP Færustu lögmenn
Grikklands vilja lögsækja Tony
Blair, forsætisráðherra Bretlands
og aðra háttsetta embættismenn í
Bretlandi fyrir innrásina í Írak.
Lögmennirnir komu til
Hollands í gær og ætla að freista
þess að fá stríðsglæpadómstólinn
í Haag til þess að ákæra Blair og
embættismennina fyrir brot á al-
þjóðalögum. Þeir segja að stríðið
gegn Írak brjóti í bága við stofn-
skrá Sameinuðu þjóðanna, Gen-
farsáttmálann og fleiri alþjóða-
samninga.
Lögmannasamtök Aþenu segj-
ast hafa sterk rök í málinu og
beina spjótum sínum að Tony Bla-
ir, Geoff Hoon varnarmálaráð-
herra og Jack Straw utanríkisráð-
herra. Stríðsglæpadómstóllinn í
Haag var settur á fót til að fást við
stríðsglæpi, þjóðarmorð og glæpi
gegn mannkyninu. ■