Fréttablaðið - 29.07.2003, Síða 4
4 29. júlí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Hvað á að gera um Verslunar-
mannahelgina?
Spurning dagsins í dag:
Hvenær lýkur sumrinu?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
7%
59%
Fara á útihátíð
Fara í útilegu 16%
19%Eitthvað annað
Vera heima
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
PALESTÍNA „Alvarlegast af öllu er
þegar lífsviðurværi fólks er rænt
með því að taka frá því landið og
eyðileggja ávaxtagarðana,“ segir
Sveinn Rúnar Hauksson, formað-
ur Félagsins Ísland-Palestína,
sem kominn er hingað til lands
eftir þriggja vikna ferðalag um
Gaza-svæðið og Vesturbakkann í
Palestínu. „Þessi lífsbjörg sem
tekin er frá fólkinu er eitthvað
sem kynslóðirnar hafa verið að
varðveita mann fram af manni og
það líða áratugir þar til trén fara
að bera ávöxt á ný.“
Sveinn Rúnar endaði ferð sína
með heimsókn til borgarinnar
Qalqilya, vestast á Vesturbakkan-
um, en borgin er umlukin átta
metra háum aðskilnaðarmúr.
Qalqilya stendur á frjósömu og
vatnsríku svæði og aðstæður þar
eru hinar bestu, að sögn Sveins
Rúnars, en þrátt fyrir það er 70%
atvinnuleysi í borginni og 7000 af
8500 fjölskyldum borgarinnar lifa
á matargjöfum frá hjálparstofn-
unum. „Fólkið sér enga framtíð og
vonleysið er að verða algert,“ seg-
ir Sveinn Rúnar. ■
STJÓRNMÁL Fundurinn með Ro-
bertsson var mjög gagnlegur, að
sögn Davíðs Oddssonar forsætis-
ráðherra.
„Við ræddum mál sem snerta
stöðu Nato á ýmsum svæðum í
heiminum en þó eyddum við mikl-
um tíma í að fjalla um stöðuna á
milli Íslands og Bandaríkjanna
varðandi varnarliðið á Keflavíkur-
flugvelli.“
Aðspurður hvort Robertsson,
sem lætur af störfum fram-
kvæmdastjóra Nató í árslok, hefði
haft einhverjar hugmyndir fram
að færa í því samhengi sagði Dav-
íð að málið væri á milli Banda-
ríkjamanna og Íslendinga. „Hann
hefur enga sérstaka stöðu sem
sendiboði þar á milli. Hins vegar
nýtur hann trausts bæði Íslands
og Bandaríkjanna og er með víð-
tæka þekkingu og tengsl við öll
bandalagslöndin. Þess vegna er
mjög gott að heyra hans viðhorf
og fá tækifæri til að skýra okkar
viðhorf gagnvart honum,“ sagði
Davíð.
Robertson hefur átt viðræður
við bandarísk yfirvöld um varnar-
málin í Keflavík og ræddi þau
m.a. við George W. Bush Banda-
ríkjaforseta í Hvíta húsinu á dög-
unum. Hann segir þær viðræður
ekki hafa leitt til neinnar niður-
stöðu og hann eigi eftir að ræða
málið nánar við ráðamenn í Was-
hington. „Ég hef engar persónu-
legar skoðanir á málinu en ég
vona að vinsamleg lausn fáist í
það. Það er vilji af beggja hálfu að
viðurkenna það hlutverk sem Ís-
land hefur leikið til þessa og hið
mikilvæga hlutverk sem landið á
eftir að leika í framtíðinni,“ sagði
Robertson.
Að sögn Robertson fer það eftir
útkomu viðræðnanna á milli Ís-
lendinga og Bandaríkjanna hvort
sambandið skipti sér eitthvað
frekar af málefnum varnarliðsins.
„Heimurinn í dag er mjög frá-
brugðinn þeim sem var árið 1951
þegar Íslendingar sömdu við
Bandaríkin. Það er því eðlilegt að
þjóðirnar ræði saman um hvernig
haga beri vörnunum,“ sagði Ro-
bertson. „Ísland hefur verið með-
limur Nato síðan 1951 og hefur
ávallt haft góða hernaðarlega
staðsetningu fyrir sambandið.
Þess vegna hefur ávallt verið fyl-
gst náið með herstöðinni í Kefla-
vík og Nató er alltaf reiðubúið að
hjálpa til.“
Robertson sagði Nató hafa tek-
ið stórfelldum breytingum undan-
farið með það fyrir augum að auka
skilvirknina innan sambandsins.
„Við erum að skapa öflugan her
sem hægt verður að senda af stað
með stuttum fyrirvara til hvaða
lands sem er. Nú þegar kalda stríð-
inu er lokið höfum við nýjar og
hættulegar áskoranir að glíma við
og þá er ekki hægt að nota verk-
færi gærdagsins fyrir vandamál
morgundagsins.“
freyr@frettabladid.is
ATLANTSOLÍA
Brendon G. Rose afhendir skipstjóra Norsk
Drott bók til minningar um Ísland.
Olíufarmur til landsins:
Starfsemi
Atlantsolíu
hafin
NEYTENDUR Fyrsta löndunin úr
tankskipi í Hafnafjarðarhöfn á
vegum Atlantsolíu var í gær. Áður
hafði fyrirtækið fengið nokkra ol-
íugáma til að kanna dælur og bún-
að birgðastöðvarinnar. Í tilefni af
komu tankskipsins afhenti full-
trúi eigenda Atlantsolíu, Brandon
G. Rose, skipstjóra skipsins ljós-
myndabók frá Íslandi. Tankskipið
heitir Norsk Drott og var það
lestað í Mongstad í Noregi, en olí-
an er keypt hjá Statoil. Við upphaf
dælingar úr skipinu sagði
Brandon starfsemi Atlantsolíu
formlega hafna. ■
www.icelandair.is
London
www.icelandair.is/london
Eyða einum degi í Westbourne Grove og
Notting Hill, fjarri skarkala helstu verslunar -
gatnanna. Fara á markaðinn á Portobello Road á
laugardegi.
Í London þarftu að:
á mann í tvíbýli í 2 nætur. Innifalið: flug, gisting á Henry
VIII, morgunverður, flugvallarskattar og þjónustugjöld.
Brottfarir 16. jan. og 21. feb.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
21
70
5
0
7/
20
03
Oxford
Street
Wigm
ore S
treet
Grosv
enor
Squar
e
Grosv
enor
Street
Kensington Road
Bayswater
Road
Paddington
Station
Knigh
gsbrid
ge
Ki
ng
s R
oa
d
Sloan Street
St. Jam
es's Street
Baker Street
G
loucester Street
Edgware Roadt
Westmister Bridge
O
ld Bond
Street
N
ew
Bond
Street
Victo
rya
Stre
et
River Thames
Covent
Garden
Soho
W
aterloo Bridge
Pic
cad
illy
Pa
ll M
all
Oxford
Street
New
Oxfo
rd
Regent Street
Regent Street
H
aym
arket
C
haring C
ross R
oad
Picadilly
Circus
Hide Park
Green Park
Marylebone
Henry VIII
Churchill
Inter
Continental
Thistle Kensington
Palace
Mayfair
Bloomsbury
Knightsbridge
Notting Hill
Sherlock Holmes
Millennium
Mayfair
Jurys Doyle Clifton Ford
K-West
Verð frá 29.900 kr.
VR orlofsávísun
Munið ferða-
ávísunina
Sveinn Rúnar Hauksson kominn heim frá Palestínu:
Alvarlegast þegar lífs-
viðurværi fólks er rænt
QALQILYA
Borgin, sem er staðsett vestast á Vestur-
bakkanum, er umlukin 8 metra háum að-
skilnaðarmúr. Myndin er tekin frá Ísrael.
Vestfirðir:
Tíu félög
sameinast
VERKALÝÐSFÉLÖG Verkalýðs- og sjó-
mannafélag Tálknafjarðar hefur nú
sameinast Verkalýðsfélagi Vest-
fjarða, en sameiningin var sam-
þykkt einróma á trúnaðarmanna-
ráðsfundi Verkalýðsfélags Vest-
firðinga þann 24. júlí. Áður hafði
verið sameiningin verið samþykkt
með miklum meirihluta atkvæða í
Verkalýðs- og sjómannafélagi Vest-
firðinga. Með sameiningunni hafa
tíu stéttarfélög á Vestfjörðum sam-
einast í eitt félag og eru félags-
menn sammála um að reynslan af
sameiningunni sé mjög góð, sam-
kvæmt fréttatilkynningu frá
Verkalýðsfélagi Vestfirðinga. ■
Enginn sendiboði
fyrir Íslendinga
George Robertsson lávarður, framkvæmdastjóri Nató, fundaði með Davíð Oddssyni, forsætis-
ráðherra, og Halldóri Ásgrímssyni, utanríkisráðherra í blíðskaparverðri á Þingvöllum í gær.
ROBERTSSON OG HALLDÓR
Vel fór á með þeim Robertson lávarði og Halldóri Ásgrímssyni á Þingvöllum. Virtust þeir
njóta sín vel í sólskininu fyrir utan ráðherrabústaðinn. Þetta var kveðjuheimsókn Robert-
son hingað til lands áður en hann lætur af embætti.
Afganskir hælisleitendur:
Tíu á
sjúkrahús
BRUSSEL, AP Tíu Afganskir hælis-
leitendur sem voru í hungurverk-
falli í Brussel til að knýja á um
hælisvist í Belgíu, voru fluttir á
sjúkrahús í gær vegna ofþornun-
ar. Afganarnir eru í hópi 270 hæl-
isleitenda sem hafast við í kirkju í
Brussel og hefur hungurverkfall
þeirra staðið í fjóra daga. ■
HAMFARIR „Ég vona að ég eigi
aldrei eftir að lenda í þessu aft-
ur þar sem ég var alveg logandi
hræddur,“ segir Karl Eiríksson,
bóndi á Miðdalskoti.
Mikið þrumuveður var um
helgina við bæinn og að sögn
Karls voru eldingarnar mjög
neðarlega. „Þetta voru einar sex
eldingar á mjög stuttum tíma.
Maður getur ímyndað sér að
svona muni heimsendir líta út.“
Karl segir allt rafmagn hafa
slegið út, ein tölva hafi skemmst
og rafmagnstafla brunnið. „Það
var nýbúið að flytjast inn í nýtt
íbúðarhús hér en þar var búið að
setja upp lagnir fyrir sjónvarp,
útvarp og síma og þetta eyði-
lagðist allt saman.“
Karl var á heimleið úr reiðtúr
þegar þrumurnar skullu á. „Við
heyrðum drunur í skýjabakka
austan við okkur þannig að við
ákváðum að snúa hestunum við
þar sem þetta var allt mjög
skuggalegt.
Allt í einu kom skær blossi
eins og verið væri að taka mynd
með sterku flassi, hestarnir
fældust rosalega þannig að eitt
okkar féll að baki en slasaðist
sem betur fer ekki.“
Karl segir eldingarnar hafa
verið mjög staðbundnar. Hann
segist hafa heyrt að einhverjar
skemmdir hafi orðið á bæjunum
í kring. ■
Þrumur og eldingar:
Líktist heimsendi
HÆLISLEITENDUR
Hælisleitendur hafast við í kirkju í Brussel.