Fréttablaðið - 29.07.2003, Síða 10

Fréttablaðið - 29.07.2003, Síða 10
29. júlí 2003 ÞRIÐJUDAGUR Uppbygging í Laugardalnum: Samræmist okkar stefnu SKIPULAG „Það hefur ríkt ágæt sátt um þær framkvæmdir sem eiga sér stað við Laugardalshöll- ina enda samræmast þær stefnu okkar sem er að uppbygging í Laugardalnum eigi að tengjast útivist, íþróttum og fjölskyldu- tengdri þjónustu,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Á síðast fundi skipulags- og byggingarnefndar var samþykkt að kynna tillögur að breytingum við Vesturbæjarlaug. „Þetta er á algeru frumstigi en við teljum endurbætur og uppbyggingu tímabæra við Vesturbæjarlaug. Íbúar í kring virðast einnig hafa mikinn áhuga á að byggt verði upp á þessu svæði og þá helst í tengslum við laugina.“ Hanna segir talsvert hafa verið tekist á um þá uppbygg- ingu sem á sér stað við Laugar- dalslaug á sínum tíma. „Ágrein- ingurinn snérist um heilsurækt- ina en við hefðum vilja standa öðruvísi að vali á framkvæmdar- aðilum.“ ■ SKIPULAG „Undirbúningur hefur staðið í þó nokkurn tíma. Við ákváðum að ganga til viðræðna við Samtök iðnaðarins um byggingu sýningaraðstöðu í Laugardalnum,“ segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi R-listans og for- maður skipulags- og byggingar- nefndar Reykjavíkurborgar, um fyrirhugaða byggingu við hlið Laugardalshallar. Fyrsta skóflustungan hefur verið tekin og er áætlað að bygg- ingin muni verða 9500 fermetrar að stærð. Hún mun rísa austan við Laugardalshöllina og tengjast hlið- arbyggingu hennar sem byggð var í tengslum við heimsmeistaramót- ið í handbolta 1995. „Sýningaraðstaðan rímar við þá hugmyndarfræði að gera Laugar- dalinn að miðstöð íþrótta og af- þreyingar.“ Í framhaldinu segir Steinunn að hugmyndir af kviknað um að flétta sýningarhöllina sam- an við bætta aðstöðu fyrir frjálsí- þróttafólk og varð niðurstaðan sú að ráðast í byggingu fjölnota sýn- ingar- og frjálsíþróttahallar. Reykjavíkurborg og Samtök iðnaðarins hafa stofnað sérstakt hlutafélag um verkefnið sem heit- ir Íþrótta- og sýningarhöllin hf. og er það í jafnri eigu aðila. Félagið mun byggja mannvirkið í einka- framkvæmd og sjá um rekstur þess og markaðssetningu. Bygging íþrótta- og sýningar- hallarinnar er ekki eina fram- kvæmdin sem Reykjavíkurborg stendur að í Laugardalnum því uppbygging Laugardalslaugarinn- ar stendur einnig yfir. „Þar verð- ur 50 metra innilaug sem verður alþjóðleg keppnislaug og ger- breytir aðstöðu íþróttamanna. Við sjáum einnig fyrir okkur að í framtíðinni þróist nokkurs konar vatnaparadís í skjólinu sem myndast milli gamla sundlaugar- mannvirkisins og þess nýja,“ seg- ir Steinunn. Auk innilaugarinnar mun heilsuræktarstöð rísa, en Björn Leifsson í World Class byggir hana. Erlendir aðilar hafa sýnt áhuga á uppbyggingu og aðstöðusköpun í Vesturbænum en samþykkt var á fundi skipulags- og byggingar- nefndar að kynna tillöguna fyrir íbúum og hagsmunaaðilum í ná- grenni við Vesturbæjarlaug. „Haft er fyrir augum að stækka laugina og gera hana betri en hún er í dag,“ segir Steinunn, en bætir því við að hugmyndirnar séu á frumstigi. vbe@frettabladid.is HANNA BIRNA KRISTJÁNSDÓTTIR Telur endurbætur og upp- byggingu í Vesturbænum tímabæra. Frjálsíþróttahöll og keppnislaug Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi R-listans, segir bæði frjálsíþróttahöllina og innilaugina í Laugardal gerbreyta aðstöðu íþróttafólks. Hún segir framkvæmdirnar tímabærar. LAUGARDALSHÖLL Laugardalshöllin mun stækka talsvert mik- ið við breytinguna. Mannvirkið verður um 16 þúsund fermetrar að stærð. VESTURBÆJARLAUG Hugmyndir um uppbyggingu í Vesturbæn- um eru á frumstigi. Teikningin er eftir Jens Einar Þorsteinsson. LAUGARDALSLAUG Svona mun ásýnd sundlaugarinnar í Laugardal verða eftir byggingu innilaugarinnar. Arki- tektinn Ari Már Lúðvíksson hannaði mannvirkið. Á KAFI Í KÚPUNNI Röntgenmynd af höfuðkúpu mannsins áður en hníf- urinn var fjar- lægður. Slagsmál úr böndunum: Stakk hnífi í kúpuna NÝJA SJÁLAND, AP Slagsmálum tveg- gja manna á Nýja-Sjálandi um helgina lauk með því að annar stakk hnífi á kaf í höfuðkúpu hins. Mennirnir höfðu slegist heiftar- lega en ekki fylgir sögunni hvert þrætueplið var. Það tók lækna fimm klukkustundir að fjarlægja hnífinn úr höfuðkúpu mannsins. Hnífurinn gekk inn í heila og segja læknar að það komi ekki ljós fyrr en að nokkrum dögum liðnum hvort maðurinn hlýtur varanlegan heilaskaða af hnífslaginu. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.