Fréttablaðið - 29.07.2003, Side 18
SUND „Árangurinn er bæði undir
og yfir væntingum á þessu móti,“
sagði Steindór Gunnarsson, yfir-
þjálfari íslenska sundlandsliðsins,
en keppni á heimsmeistaramótinu
í sundi í Barcelona er lokið.
„Árangurinn er yfir vænting-
um að því leyti að allir íslensku
keppendurnir bættu sig í sínum
greinum og sýndu þor undir því
álagi sem fylgir að keppa á stór-
móti, en það eru viss vonbrigði að
ná ekki enn lengra því við höfðum
augastað á að komast jafnvel á
verðlaunapall í einstökum grein-
um. Hins vegar er aldeilis frá-
bært að fá sjö Íslandsmet í þeim
23 sundgreinum sem við kepptum
í og í heildina séð er þetta mjög
viðunandi. Auðvitað náðust ekki
þau markmið sem við stefndum á
í upphafi en þetta er sannarlega
árangur til að byggja á í framtíð-
inni.“
Bandaríkjamenn og Ástralar
náðu hvað bestum árangri á mót-
inu í heild. Bandaríkin vegna ung-
lingsins Michael Phelps sem setti
fimm ný heimsmet á leikunum en
Phelps er nýorðinn 18 ára gamall.
Aðeins einu sinni áður í sögu
sundíþróttarinnar hefur einstakur
sundmaður náð svipuðum ár-
angri. Það gerði Bandaríkjamað-
urinn Mark Spitz á Ólympíuleik-
unum 1972 en þá setti hann fjögur
ný heimsmet og vann sjö gull-
verðlaun.
Ian Thorpe dró vagninn fyrir lið
Ástralíu í mótinu eins og búist
hafði verið við. Thorpe jafnaði
eldra met Þjóðverjans Michael
Gross og nældi sér í sinn þrettánda
verðlaunapening á stórmóti í sundi
og er það glæsilegur árangur.
Kínverska liðið sigraði keppni í
dýfingum nokkuð örugglega en
hún fór fram á sama tíma. Liðið
vann fjögur gull, fjögur silfur og
fjögur bronsverðlaun, eða alls 12
verðlaun. Rússar komu næstir
með helmingi færri verðlaun. ■
18 29. júlí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
JAPÖNSK HESTAMANNAHÁTÍÐ
Hestamenn í fullum herklæðum
samuræja sýndu listir á hátiðinni.
Kappreiðar
hvað?hvar?hvenær?
26 27 28 29 30 31 1
JÚLÍ
Þriðjudagur
KÖRFUBOLTI „Það sem stendur fyrir
dyrum nú eru stífar æfingar hjá
Dallas,“ segir Jón Arnór Stefáns-
son körfuboltakappi, en hann er
aftur á leið til körfuboltaliðsins
Dallas Mavericks sem leikur í
bandarísku NBA deildinni.
„Þessar æfingabúðir sem ég
sæki nú standa fram í september
eða október og þar verða bæði
leikmenn sem eru í liðinu og eins
nokkrir samningslausir eins og
ég. Við fáum að berjast um laus
sæti í aðalliðinu fyrir komandi
leiktíð.“ Leiktíðin í NBA deildinni
hefst venju samkvæmt í byrjun
nóvember.
„Nú fæ ég loks færi á að sýna
hvað í mér býr. Ég er orðinn góð-
ur af meiðslunum og fengið grænt
ljós frá læknum að ég geti farið að
taka á því af alvöru. En jafnvel þó
að ég komist ekki inn í haust er
þetta gríðarleg reynsla og upplif-
un að æfa með slíku liði. Ég er líka
ungur og á margt ólært enn.“
Jón Arnór segir engin sund lok-
uð ef hann kemst ekki að. „Ég hef
fengið tilboð frá félögum í Evrópu
og ég get farið alltaf farið þangað.
En ég er engu að síður bjartsýnn.
Forráðamenn Dallas hafa skoðað
mig mikið og áhugi þeirra á að fá
mig sýnir að þeim er alvara. ■
Frábært að fá sjö
Íslandsmet í Barcelona
Steindór Gunnarsson, landsliðsþjálfari í sundi, er sáttur við þann árangur sem íslenska
landsliðið náði á heimsmeistaramótinu í Barcelona þrátt fyrir að enginn Íslendingur
hafi komist á verðlaunapall eins og stefnt var að.
HEIMSMEISTARAMÓTIÐ
Lið gull silfur brons samtals
Bandaríkin 9 12 4 25
Ástralía 5 7 5 17
Þýskaland 4 1 2 7
BANDARÍKJAMAÐURINN
MICHAEL PHELPS
Setti fimm ný heimsmet á heims-
meistaramótinu í sundi. Það
hefur engum tekist áður.
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Jón Arnar Magn-
ússon og Sunna Gestsdóttir stóðu
sig hvað best, að öðrum ólöstuð-
um, á 77. meistaramóti Íslands í
frjálsum íþróttum sem fram fór í
Borgarnesi.
Jón sigraði í öllum sínum greinum
á mótinu, alls sex talsins, og
Sunna lék sama leik í sínum fjór-
um greinum. ■
JÓN ARNAR MAGNÚSSON
Sigraði í öllum sínum greinum og var í sigursveit Breiðabliks í boðhlaupi
Meistaramót Íslands:
Jón Arnar sigursæll
Jón Arnór óþreyjufullur að komast út aftur:
Upplifun að
æfa með Dallas
JÓN ARNÓR STEFÁNSSON
Er á leið aftur í æfingabúðir með Dallas Mavericks.
19.15 Fylkisvöllur
Topplið Fylkis fær ÍBV í heimsókn í fyrs-
ta leik 12. umferðar Landsbankadeildar-
innar.
16.20 RÚV
Canon mótið í golfi. Endursýndur þáttur
frá kvöldinu áður.
15.10 Sýn
Trans World Sport (Íþróttir um allan
heim). Endursýnt kl. 19.00 og 01.50