Fréttablaðið - 29.07.2003, Síða 19
■ Fótbolti
ÞRIÐJUDAGUR 29. júlí 2003
FÓTBOLTI „Það er skýlaus krafa
mín, forráðamanna og annarra
stuðningsmanna að taka öll þrjú
stigin í heimaleikjunum,“ sagði
Aðalsteinn Víglundsson, þjálfari
Fylkis, en liðið er í efsta sæti
Landsbankadeildarinnar eftir
11.umferðir og fær ÍBV í heim-
sókn í kvöld.
„Þetta er búið að vera óvenju-
legt mót hingað til í sumar og
langt síðan að staðan hefur verið
þetta jöfn. Það er ein ástæða þess
að við nálgumst alla andstæðinga
með virðingu því öll félögin geta
unnið öll önnur félög á góðum
degi. Það er kannski helsta breyt-
ingin frá fyrri mótum að það var
meira bil á milli félaga. Þetta er
afleiðing þess að það er mikill agi
hjá félögunum og fótboltinn er
tekinn alvarlega.“
Aðalsteinn segir að gæta þurfi
vel að sóknarmönnum Eyja-
manna. „Það vita allir sem spilað
hafa við Eyjamenn að það er
aldrei auðvelt. Þeir eru vinnu-
samir og duglegir úti á vellinum
og eiga skæða framherja, þá
Gunnar Heiðar [Þorvaldsson] og
Steingrím [Jóhannesson]. En ætl-
unin hjá okkur er að halda okkar
striki og til þess verðum við að
sigra.“ ■
AÐALSTEINN VÍGLUNDSSON
Segir Eyjamenn eiga stórhættulega
sóknarmenn.
EYJÓLFUR HÆTTUR Eyjólfur
Sverrisson lék sinn síðasta leik
sem atvinnumaður í knattspyrnu
á heimavelli Hertu Berlín í sér-
stökum kveðjuleik fyrir hann og
Michael Preetz. Eyjólfur sagði
eftir leikinn að þetta væri sér
ógleymanleg stund og ekki væri
hægt að hætta með skemmtilegri
hætti.
FREKARI LEIT Forráðamenn Real
Madrid leita logandi ljósi að
varnarmanni eftir
að Argentínumað-
urinn Gabriel
Milito stóðst ekki
læknisskoðun hjá
félaginu. Sem
stendur hafa þeir
augastað á franska
landsliðsmanninum Phillip
Mexés en hann þykir hafa staðið
sig mjög vel með Auxerre und-
anfarin ár. Heimildir herma að
klásúla í samningi hans leyfi
honum að fara fyrir fjórar millj-
ónir evra [350 milljónir króna]
sem er gjafverð fyrir franskan
landsliðsmann. Aðrir á lista Real
eru Walter Samuel hjá Roma og
Christoph Metzelder hjá Dort-
mund.
FERSKUR VINDUR Ronaldinho
spilaði sinn fyrsta leik með
Barcelona í vináttuleik gegn
Juventus. Leikurinn endaði 2-2 en
Barcelona sigraði í vítakeppni.
Ronaldinho kom inn á í seinni
hálfleik og hafði Frank Rijkaard
þjálfari Barca á orði að hann
hefði komið sem ferskur vindur
inn í leikinn, svo vel hefði hann
staðið sig.
VIEIRA ÚTI Patrick Vieira fyrir-
liði Arsenal er enn að reyna að ná
sér af hnémeiðslum
sem hann hlaut fyr-
ir þremur mánuð-
um í leik gegn
Manchester United
í ensku úrvalsdeild-
inni. Eykur það enn
á áhyggjur Wenger
framkvæmdastjóra Arsenal að
Vieira á enn eftir að skrifa undir
framlengdan samning við liðið en
hann á einungis eitt ár eftir af
núverandi samningi.
REID ILLUR Peter Reid stjóri
Leeds hefur varað leikmenn sína
við að ef þeir fylgi honum ekki að
málum með stjórn liðsins geti
þeir tekið pokann sinn. Kemur
þessi yfirlýsing í framhaldi af
fréttum enskra fjölmiðla um að
Mark Viduka hafi óskað eftir að
vera seldur frá félaginu.
HÓTUN KEANE Roy Keane hinn
litríki fyrirliði Manchester
United segist ætla
að leggja skóna á
hilluna að ári ef
hann verður ekki
kominn í sitt besta
form í fyrstu leikj-
um liðsins í úrvals-
deildinni í vetur.
Hann hefur glímt við meiðsli um
langan tíma og honum gengur
verr en búist var við að ná sér
aftur á strik.
Aðalsteinn Víglundsson, þjálfari Fylkis:
Sigur er skýlaus krafa