Fréttablaðið - 29.07.2003, Síða 21
■ ■ SÝNINGAR
Brynhildur og Finna kynna Nýja
Hluti í Gallerí Nema hvað, Skólavörðu-
stíg 22c. Opið 15.30-19.00.
Ljósmyndasýningin World Press
Photo 2003 er nú í Kringlunni. Þetta er
þekktasta samkeppni í heiminum á sviði
fréttaljósmyndunar og hefur verið haldin
árlega síðan 1955. Sýningin stendur til
2. ágúst.
„Meistarar formsins“ nefnist stór
höggmyndasýning í Listasafni Akureyr-
ar, sem gerð er í samvinnu við Ríkis-
listasafnið í Berlín. Á sýningunni eru
verk eftir 43 listamenn, þar af 11 Íslend-
inga.
Hlynur Hallsson er með sýninguna
BÍÓ-KINO-MOVIES í aðalsal Ketilshúss-
ins á Akureyri. Finnska listakonan
Senja Vellonen sýnir jafnframt bókverk
á svölum. Báðum sýningunum lýkur í
dag.
Dýrfinna Torfadóttir, gullsmiður og
skartgripahönnuður, sýnir verk sín í List-
húsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5. Dýrfinna
sýnir í þetta sinn skart unnið úr íslenskri
ull með ívafi hefðbundinna eðalmálma.
Sýningin stendur til 31. júlí.
Sýningin “Look out for my Love,
it’s in your neighbourhood“ er í Gall-
erí Hlemmi. Þetta er fyrsta einkasýning
Hrafnhildar Halldórsdóttur hér á landi,
en hún er búsett í Glasgow þar sem
hún útskrifaðist frá Glasgow School of
Art árið 2001.
Íslensk og alþjóðleg samtímalista-
verk eru til sýnis í Safni, Laugavegi 37.
Starfsemi Gallerí Dvergs er hafin að
nýju með opnun á myndlistarsýningu
Hugins Þórs Arasonar, sem hann
nefnir „Hundraðshluta“. Sýningarhús-
næðið er í kjallara á Grundarstíg 21.
ÞRIÐJUDAGUR 29. júlí 2003
FÖT FYRIR HELGINA
merkjavara á 50-80% lægra verðij l i
+ + + m e r k i f y r i r m i n n a + + +
Faxafeni 10 - sími: 533 1710
O U T L E T 1 0
Anorakkar
Úlpur
Vindjakkar
Vindbuxur
Peysur
Jogging gallar
Gallabuxur
Strigaskór
Húfur
Nærföt
Bolir
Barna Jogging
Hermannabuxur
1.990
3.500
1.990
1.990
1.990
2.990
1.390
1.990
990
490
990
2.490
3.990
frá kr.
frá kr.
frá kr.
frá kr.
frá kr.
frá kr.
frá kr.
frá kr.
frá kr.
frá kr.
frá kr.
frá kr.
frá kr.
Verum flott um helgina Opið
Mán. - fös. 11-18
Lau. 2. ágúst Lokað
...í bústaðinn
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I I Y
D
D
A
/ sia
.is / N
M
0
6
8
2
1
Foreldrar - Stöndum saman
Styðjum börnin okkar í að afþakka áfengi og
önnur vímuefni
■ MYNDLIST
Sýning á verkum þriggja listamanna
í Listasafni ASÍ. Verkin eru eftir lista-
mennina Svavar Guðnason, Nínu
Tryggvadóttur og Kristján Davíðsson.
Sýnd verða verk frá 5. og 6. áratug síð-
ustu aldar sem öll eru í eigu safnsins.
Um er að ræða verk sem safnið hefur
hlotið að gjöf frá velunnurum sínum.
Tilkynningar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar
en sólarhring fyrir birtingu.
Sýningu Hlyns Hallssonar, semhefur staðið yfir í Deiglunni á
Akureyri í nokkrar vikur, lýkur nú
á fimmtudaginn. Sama dag opnar
Hlynur litla sýningu undir stigan-
um í galleríinu i8 við Klapparstíg.
Á Akureyri sýnir hann vídeó-
verk og ljósmyndir og nefnir sýn-
inguna Sýning tveggja heima.
„Ég er að stilla saman fjöl-
skyldulífinu annars vegar og svo
heimsmálunum hins vegar og
skoða hvernig þetta tvennt bland-
ast saman eða blandast ekki sam-
an. Svo er ég líka með ýmsa aðra
hluti sem passa ekki saman en ég
set samt saman, eins og til dæmis
myndir úr þýsku dagblaði með
texta úr íslensku dagblaði. Eða
sjónvarpsfréttir þar sem þulirnir
lesa texta sem á við allt aðrar
fréttir. Út úr því kemur þessi rugl-
ingur, en sem gæti samt passað
því ef maður reynir að finna teng-
ingu þá getur textinn oft passað
við myndirnar.“
Ýmislegt fleira leynist á sýn-
ingu Hlyns eins og til dæmis við-
horfskönnun, sem kannski er ein-
um of beinskeitt til þess að auðvelt
sé að svara henni. Svo er þarna
listi yfir topp tíu hryðjuverkaríkin
með Ísrael í efsta sæti og Ísland
nýkomið inn í níunda. ■
Það sem passar
og passar ekki
FJÖLSKYLDULÍF
Frá sýningu Hlyns Hallssonar í Deiglunni á
Akureyri.