Fréttablaðið - 29.07.2003, Síða 28
28 29. júlí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
■ Áhugamál
■ Jarðarfarir
Kennari við nemanda: „Hvað eralgengasta svarið við spurningu
kennara?“
Nemandi: „Ég veit það ekki.“
Kennari: „Það er rétt.“
Með súrmjólkinni
Ég held að þetta sé í blóðinu,“segir Sigríður Ásgeirsdóttir ,
lögfræðingur og formaður Dýra-
verndunarsambands Íslands, um
áhuga sinn fyrir velferð dýra.
„Það voru margir kettir á æsku-
heimili mínu og við hjónin áttum
tvo hunda þótt það hafði verið
bannað á þeim tíma,“ segir hún.
Sigríður var gift Hafsteini heitn-
um Baldvinssyni lögfræðingi og
ráku þau saman lögmannsstofu
um áratugaskeið. Nú einbeitir Sig-
ríður sér að dýrunum og hefur
reyndar gert lengi. Hún var ein af
þeim sem stóðu að Dýraspítala
Watson sem settur var upp í Víði-
dal og var sá fyrsti sinnar tegund-
ar hér á landi. Þá starfaði Sigríður
lengi sem lögfræðingur fyrir Fé-
lag einstæðra foreldra:
„Tryggvi Gunnarsson
langömmubróðir minn stofnaði
Dýraverndunarfélag Reykjavík-
ur en hann var einnig mikill
áhugamaður um náttúru og gróð-
ur. Hann beitti sér fyrir stofnun
Alþingisgarðsins bak við Alþing-
ishúsið en þar er hann einmitt
grafinn.“
Yngra fólk ætti að kannast við
Tryggva Gunnarsson því mynd af
honum prýddi græna hundrað
krónu seðilinn sem nýlega var tek-
inn úr umferð. Annað skyldmenni
Sigríðar var á fimmhundruð króna
seðlinum sem einnig var grænn á
sínu tíma: „Það var Hannes Haf-
stein en hann var afi minn,“ segir
Sigríður sem ætlar að halda áfram
óeigingjörnu starfi sínu fyrir dýr-
in í landinu um ókomna tíð. ■
SIGRÍÐUR
ÁSGEIRSDÓTTIR
Hefur áhuga fyrir
velferð dýra í blóðinu.
Persónan
SIGRÍÐUR ÁSGEIRSDÓTTIR
■ lögfræðingur er formaður Dýravernd-
unarsambands Íslands. Hún fagnar nýj-
um viðmiðunarreglum um hundabú.
Forfeður á peningaseðlum
Ég hef verið framkvæmda-stjóri hátíðarinnar í tvö ár
núna, þetta er annað árið mitt,“
segir Geir Jón Þórisson, yfirlög-
regluþjónn í Reykjavík. „Þetta er
54. Kotmótið og það hefst strax á
fimmtudagskvöld með Gospel-
veislu.“
Um síðustu helgi var einmitt
gospelnámskeið hjá þeim í Kot-
inu og heppnaðist hún rosalega
vel. Þar náðist að smala í 200
radda kór og sú samsetning syng-
ur ofan í gesti Hvítasunnufólks í
Kirkjubæjarkoti í Fljótshlíð á
sunnudagskvöld. Ef það rignir
lumar Geir Jón á hluta gamla
tívolísins í Hveragerði. 3000 fer-
metra veislusalur. Þau kalla hann
Örkina, í höfuðið á Örkinni hans
Nóa:
„Við búumst við 2000 manns
en höfum góða aðstöðu fyrir
3000. Bæði á tjaldstæðum og svo
er þarna svefnpokapláss. En
þetta er með sérstakari fjöl-
skylduhátíðum. Vímulaus með
öllu, en það eru ýmsir kristnir
söfnuðir sem standa að hátíð-
inni.“
Auðvitað verður messað yfir
hópnum og verða þar innlendir
guðsmenn í aðalhlutverki. En
Geir Jón segir að hátíðin brúi ald-
ursbilið. Þó hafa þeir eitthvað
sérstaklega í boði fyrir unglinga
og börn. Dansleiki og sérstakt
barnamót fyrir þau yngri.
„Við verðum í góðum gír og
enn betri fíling í Fljótshlíðinni
um helgina,“ segir Geir Jón og
heldur áfram að skipuleggja
þessa sérstæðu hátíð. ■
Yfirlögreglu-
þjónn með útihátíð
GEIR JÓN ÞÓRISSON
Yfirlögregluþjónn í sumarfríi. Sér um
úthátíð hvítasunnufólks í Kirkjulækjarkoti
í Fljótshlíð.
Útihátíð
GEIR JÓN ÞÓRISSON
■ yfirlögregluþjónn í framkvæmda-
stjórastafi. Hvítasunnufólk með útihátíð
um Verslunarmannahelgina. Gospeltón-
leikar, unglingaball og barnadagur. Það
verður mikið stuð og allir í góðum fíling
um helgina, vímulaust.
Íundirbúningi er stofnun samtakasem ætla að beita sér fyrir bens-
ínlausum degi 1.
ágúst næstkom-
andi. Stofnun
samtakanna á
rætur í fréttum
undangenginna
vikna um meint
samráð olíufé-
laganna á verð-
lagningu og vænta aðstandendur
almennrar þátttöku landsmanna
með því að kaupa alls ekki bensín
1. ágúst. Í dreifbréfi á netinu er
meðal annars að finna þessa setn-
ingu í hvatningarávarpi hópsins:
„...látum við jakkafatamenn á
glansskóm rúlla yfir okkur og glot-
ta framan í okkur í kvöldfréttun-
um - þeir eru of uppteknir við lax-
veiðar til að geta svarað spurning-
um fréttamanna.“
Kaffi Reykjavík er komiðheim. Stofnandinn Valur
Magnússon, hefur tekið aftur
yfir staðinn sinn og nú á að
breyta og betrumbæta. Þessi
staður hefur um árabil verið
langvinsælasti staður landsins,
sérstaklega hvað fullorðið fólk
varðar. En eftir að Valur seldi
fór aðsóknin hægt og hægt dvín-
andi. Valur ætlar hinsvegar að
opna eftir tvær vikur og þessi
vani veitingamaður mun örugg-
lega ná að kýla upp aðsókn og
stemmningu á skömmum tíma.
Fréttiraf fólki
Ég fer reglulega í veiði,“ segirGunnar Helgason, leikari og
leikstjóri, um sitt helsta áhugamál.
„Er einmitt að pakka núna. Á leið-
inni út á land. Tek stöngina með og
við strákurinn minn rennum alveg
örugglega fyrir fisk. En þótt ég
veiði á flugu þá er ég enn ekki far-
inn að hnýta sjálfur. Það kemur
samt að því, fyrr eða síðar.“
15.00 Minningarathöfn í Fossvogskirkju
um Gísla Sigurðsson frá
Hraunási.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Kóreustríðið
Atlantsolía
Grísirnir voru 22 talsins.