Fréttablaðið - 29.07.2003, Síða 30

Fréttablaðið - 29.07.2003, Síða 30
29. júlí 2003 ÞRIÐJUDAGUR Hann var uppáhaldið mitt íæsku,“ segir Ómar Ragnars- son um bandaríska skemmtikraft- inn Bob Hope sem lést í fyrra- kvöld, hundrað ára að aldri. „Bob Hope var meistari tímasetning- anna. Engin hafði betri tímasetn- ingar í bransanum þar sem saman fóru tilsvör og svipur. Hann bjó yfir ótrúlegri tækni á þessu sviði og var í raun meistari tilsvar- anna,“ segir Ómar sem eins og aðrir skemmtikraftar lærði mikið af Bob Hope þó hann við- urkenni fúslega að hafa aldrei náð að beisla alla þá tækni sem Bob bjó yfir: „Bob Hope og Bing Crosby voru félagar og og skemmtu sem slíkir. Ég man vel eftir þeim syngja sam- an Don´t Fench Me In sem í raun var fyrsta kántrýlagið sem varð vinsælt hér á landi,“ segir Ómar og bætir því við að leitun sé að öðrum eins kómíker og Bob Hope var: „Ef ég ætti að nefna eina Íslendinginn sem kemst nálægt því sem Bob Hope var að gera með tilsvörum sínum og svipbrigðum þá er það Bessi Bjarnason. Hann hefur ein- nig þessa tilfinningu fyrir tíma- setningu sem er svo mikilvæg öll- um gamanleikurum.“ ■ Andlát ■ Bandaríski skemmtikrafturinn Bob Hope lést í fyrrakvöld, hundrað ára að aldri. Hann var í uppáhaldi hjá Ómari Ragnarssyni. Imbakassinn Meistari tilsvaranna allur VERSLUNIN HÆTTIR K R I N G L A N , S . 5 3 3 5 1 5 0 Enn meiri verðlækkun! ALLT Á AÐ SELJAST Aðeins 4 verð: 990 1.990 2.990 3.990 Foreldrar - Elskum börnin okkar Veist þú hvað unglingurinn þinn ætlar að gera um verslunarmannahelgina? Flugeiðir 2x10 Sala á regnhlífum er hafin íHagkaupum í fyrsta sinn í sögu verslunarinnar. Svara Hag- kaupsmenn þar eins og oftar nýrri eftirspurn sem byggir á breyttu loftslagi í höfuðborginni en aldrei þessu vant rignir nú lóð- rétt í Reykjavík. Og það í logni. Kjöraðstæður fyrir notkun regn- hlífa. Afgreiðslustúlka í Hagkaupum segir að regnhlífarnar séu bæði til sölu í leikfangadeild verslun- arinnar svo og í matvöruverslun- inni. Um er að ræða skrautlegar og litsterkar regnhlífar úr plasti sem kosta aðeins 399 krónur. Er salan í þeim verulega góð, að sögn starfsmanna. Breytingarnar á rigningunni í Reykjavík helgast einna helst af því að nú rignir oftar en áður í logni. Veðurfræðingar hafa ein- nig tekið undir þá skoðun að regn- droparnir hafi stækkað og það eitt stuðlar að lóðréttri rigningu ekki síður en lognið. Skýra veður- fræðingarnir stækkun regn- dropana með breyttum skilyrðum í háloftunum en þegar best lætur minnir rigningin í höfuðborginni á það sem gerist í Mið-Evrópu á slíkum dögum. Getur bæði verið skemmtilegt og þarflegt að vera með regnhlíf þegar svo viðrar. „Ég get nú varla tekið undir þetta,“ segir Víðir Þorgrímsson í Tösku og hanskabúðinni á Skóla- vörðustíg. „Þó er ég búinn að selja regnhlífar í 35 ár. Fólk kaup- ir regnhlífar eins og annað þegar það þarf á þeim að halda.“ Víðir í Tösku og hanskabúðinni hefur reynt að vera með vand- aðar regnhlífar í verslun sinni og kaupir þær helst ekki inn nema með 8-12 teinum: „Fjögurra teina regnhlífar hafa ekki þolað ís- lenskt veðurfar og átt það til að fjúka upp. Þess vegna hef ég reynt að vera með milliverð á regnhlífunum því fólki sárnar skiljanlega þegar dýr regnhlíf fýkur upp í hvassviðri,“ segir Víður sem býður góðar regnhlífar á verðinu frá 800 krónum og upp í 2.500 krónur: „Það er að sjálf- sögðu hægt að fá miklu dýrari regnhlífar en ég hef reynt að hafa þetta í takt við íslenskt veður.“ eir@frettabladid.is Og þú! Þú, þúhreyfir þig ekki! Lárétt: 1 ávöxtur, 6 meiða, 7 malla, 9 tveir sérhljóðar, 10 nem, 11 kenna góða hegðun, 12 flana, 13 málmpinni, 15 ullar- hnoðri, 17 komist. Lóðrétt: 1 tréílátið, 2 fæða, 3 karlfugl, 4 tuddinn, 5 hrista , 8 lyf, 11 herbergi, 14 tveir eins, 16 ær. 1 7 8 10 13 14 16 17 19 18 15 2 3 4 5 12 9 11 6 Lausn: Lárétt:1ananas,6særa,7krau- ma,9ua,10tek,11siða,12ana,13nál, 15ló,17náir. Lóðrétt: 1askurinn,2næra,3ara,4 nautið,5skaka,8meðal,11sali,14áá, 16óð. ÓMAR RAGNARSSON Bob Hope var uppáhaldið. BOB HOPE Bjó yfir sérstakri tækni skopleikarans. REGNHLÍFAFÓLK Sjaldgæf sjón í Reykjavík: Brosandi fólk með regnhlífar. Rigning ■ Breyting hefur orðið á úrkomu á suð- vesturhorni landsins og nú getur fólk auð- veldlega notað regnhlífar sem fram til þessa hefur verið nánast ómögulegt. Rigningin í sumar hefur verið lóðrétt í Reykjavík og má þakka það logni og svo hugsanlegri stækk- un regndropa sem veðurfræðingar skýra með háloftakenningum alls konar. Loks regnhlífar í Reykjavík

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.