Fréttablaðið - 29.07.2003, Side 32

Fréttablaðið - 29.07.2003, Side 32
Bakþankar KRISTÍNAR HELGU GUNNARSDÓTTUR SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Drepum sendiboðann Vatnaskógur er í Svínadal skammt frá Saurbæ í Hvalfirði og ekki nema 65 km frá Reykjavík Sæludagar í Vatnaskógi um Verslunarmannahelgina 1.–4. ágúst 2003 Koddaslagur Knattspyrna Kassabílar Kaffihús Barnastundir Skógarmannakvöldvökur Bátar Flugeldar Barnadagskrá Fræðslustund Vatnafjör Varðeldur Helgistundir Unglingadagskrá Bænastundir Sæludagar Ellen KristjánsdóttirKK Magnús Eiríksson Hátíðarguðsþjónusta í tilefni 80 ára afmælis sumarbúðanna í Vatnaskógi. Sr. Sigurður Pálsson Hallgrímskirkju Reykjavík. fyrir alla fjölskylduna Verð aðeins 3.000 kr. fyrir alla helgina 7.000 kr. hámark fyrir fjölskylduna Dagsheimsókn 2.000 kr. Tónleikar 2.000 kr. Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu KFUM og KFUK í síma 588 8899 og á heimasíðu www.kfum.is Stórtónleikar á laugardagskvöldi Án áfengis að sjálfsögðu Þingmaður leggur til að leitaðverði í dyrum og dyngjum að sendiboðanum, svikaranum sem lak upplýsingum til almennings um sam- ráðssamsæri olíufurstanna. Það hlýt- ur hver maður að sjá að það er kjarni þessa máls. Að auki skal gera málið hápólitískt með því að draga borgar- meistarann upp í hæstu flaggstöng, skítt veri með þótt einn olíufurstanna hafi verið spúsi í æðstaráðinu á land- inu bláa. Koddahjal hjóna er ævaforn siður. Hvernig var dagurinn þinn, elskan? Æ, nei annars, ekki segja mér. Alls ekki segja mér. Það er best ég viti sem minnst hvað þú ert að bjástra. SAMVINNUSTEFNAN hefur líka greinilega verið höfð að leiðarljósi þegar gamlir samvinnumenn unnu saman að því að finna rétt olíuverð. Þar hefur þó samvinnuhugsjónin not- ið sín sem aldrei fyrr. Já, pólitík er viðkvæmt musteri og ráðlegast að kasta sem fæstum hnullungunum úr því glerhúsi. EN NÚ þegar pöpullinn reifar svika- myllu aðalsins í sumarhúsum, tjald- vögnum, veiðikofum og á fjallstind- um ríkir þögnin ein. Furstar og ráð- gjafar þeirra þegja líkt og þeir séu tunguskornir. Brátt bera þeir jafnvel fyrir sig hæsi líkt og góður leikari en verri forseti gerði vestan hafs á sín- um tíma þegar hann lenti í klípu. Að tala er silfur, að þegja er gull. Ef maður þegir nógu lengi fara menn kannski að ræða eitthvað annað og fjölmiðlar hljóta að gefast upp ef þeir fá nógu oft svarið: No comment. HIÐ HÁLEYNILEGA trúnaðar- tæki tölvupóstur er snilldarinnar samskiptaleið slyngra samsæris- manna. Þar er komin einföld leið sem óhætt er að mæla með við CIA, MI5, KGB og mafíur. Einu notendaleið- beiningarnar eru; Eyðið þessum pósti að lestri loknum. Lögregluforinginn orðumprýddi tvístígur vandræða- lega, biður menn að vera formlegri, vill ekki taka við frumskýrslunni góðu frá Samkeppnisstofnun og kast- ar boltanum frá sér eins og glóandi eldhnetti. Auðvitað eiga menn líka að reyna að vera formlegri en svo að jarma út sérstakan fund með lögg- unni og bjóða upp á lesefni. Svoleiðis kaffiboð eru auðvitað bara til skemmtunar. Það þarf að senda bréf, tína til fylgigögn, stimpla og fara á pósthús. En hvað sem því líður skal stóra málið fyrst og fremst vera að drepa sendiboðann. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.