Fréttablaðið - 14.09.2003, Blaðsíða 29
SUNNUDAGUR 14. september 2003 29
rað/auglýsingar
Fræðslumiðstöð
málmiðnaðarins ehf.
Vélaverkfræðingar -
Véltæknifræðingar!
Við leitum að starfsmanni - karli eða konu -
sem hefur góða starfsreynslu í málm-,
véltækni- og framleiðslugreinum.
Verksvið starfsmannsins er m.a.:
• Að leggja mat á þekkingarþörf sérhæfðra
starfsmanna í mál-, véltækni- og framleiðslu-
fyrirtækjum sem FM þjónar, í samvinnu við
starfsmenn fyrirtækjanna.
• Skipuleggja og hafa umsjón með námskeiðum
og annarri þekkingarmiðlun á þessum sviðum.
• Taka þátt í uppbyggingu gæðakerfis fyrir
þekkingarmiðlun og aðra starfsemi FM.
• Hafa forgöngu um faglega upplýsingaöflun og
miðlun innanlands og utan í málm- véltækni- og
framleiðslugreinum.
Hér er um áhugaverð og krefjandi viðfangsefni
fyrir metnaðarfullan sérfræðing sem vill fá
tækifæri til að kynnast íslenskum málm-,
véltækni- og framleiðsluiðnaði til hlítar og
leggja að mörkum við uppbyggingu og eflingu
íslensks atvinnulífs.
Umsóknarfrestur er til 1. október n.k.
Öllum umsóknum verður svarað og farið með
þær sem trúnaðarmál.
Ráðið verður í stöðuna um næstu áramót.
Nánari upplýsingar veitir Gylfi Einarsson,
sími 562 4716, metal@metal.is
Fræðslumiðstöð málmiðnaðarins ehf.
er í eigu Samtaka iðnaðarins og Samiðnar.
Hallveigarstíg 1,
101 Reykjavík,
Sími 562 4716
Netfang: metal@metal.is,
Veffang: www.metal.is
Auglýsing
Nýsköpunarsjóður tónlistar
- Musica Nova
Nýsköpunarsjóður tónlistar - Musica
Nova auglýsir hér með eftir umsóknum
um styrki til nýsköpunar í tónlist.
Tilgangur sjóðsins er:
a. að stuðla að nýsköpun metnaðarfullrar íslenskrar
tónlistar
b. að styrkja hin ýmsu svið tónsköpunar og koma þannig
til móts við framþróun og aukna menntun á sviði tónlistar
c. að auka atvinnuskapandi tækifæri í tónlistarlífi Íslendinga
og stuðla þannig að fjölbreyttri menningu.
Í samræmi við tilgang sjóðsins skal úthluta
styrkjum úr honum til pöntunar tónverka eftir
því sem fjárhagur sjóðsins leyfir. Umsækjendur
koma úr röðum flytjenda, og tónleikahaldara.
Umsóknum skal skila til:
Nýsköpunarsjóður tónlistar - Musica Nova
Laufásvegi 40
101 Reykjavík
Í umsóknum skulu koma fram nákvæmar upp-
lýsingar um tónverkið s.s. hljóðfæraskipan,
tímalengd, áætlaðan samningstíma og frum-
flutning.
Umsóknarfrestur er til 1. 10. 2003 og
verður afgreiðslu umsókna lokið um
miðjan október.
TIL LEIGU Í
HÚSI VERSLUNARINNAR
Stórglæsilegt skrifstofuhúsnæði til leigu á
10. hæð í Húsi verslunarinnar.
Húsnæðið er 98 m2 með frábæru útsýni og svölum. Hús-
næðinu er skipt niður í 3 - 4 herbergi. Lítill eldhúskrókur er
innan skrifstofunnar. Húsnæðið er laust.
Áhugasamir hafi samband við
Bílgreinasambandið í síma 568 1550.
Umhverfisstofnun heldur námskeið í
landvörslu í október komandi.
Markmið námskeiðsins er þjálfun til
starfa við þjónustu við gesti og um-
hverfistúlkun á friðlýstum svæðum.
Þeir sem ljúka námskeiðinu með
fullnægjandi hætti öðlast réttindi til
að starfa sem landverðir.
Aldurstakmark er 20 ár. Gert er ráð fyrir að þeir
sem sækja um þáttöku í námskeiðinu hafi þekk-
ingu og áhuga á náttúrufari Íslands sem og tungu-
málakunnáttu.
Þjónusta er stór þáttur í starfi landvarða og þurfa
landverðir því að hafa þjónustulund til að bera og
mikinn áhuga á mannlegum samskiptum.
Námskeiðið verður haldið í Reykjavík dagana 6.
október til og með 30. október. Fyrirkomulag nám-
skeiðsins verður sem hér segir:
Kvöldtímar dagana 6., 7., 8., 9., 27., 28., 29. og
30. október frá kl. 17:30-21:30.
Vettvangs- og fræðsluferðir dagana 11., 12., 25. og
26. október frá kl 9:00-17:00.
Farið verður að kvöldi 15. október frá Reykjavík í
Skaftafell og dvalið þar dagana 16. -19. október.
Skriflegar umsóknir, á þar til gerð eyðublöð, skulu
berast Umhverfisstofnun Suðurlandsbraut 24, 108
Reykjavík, fyrir 1. október nk.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu
stofnunarinnar að Suðurlandsbraut 24, þriðju hæð.
Einnig má sækja um með rafrænum hætti á
heimasíðu stofnunarinnar www.ust.is.
Fólk búsett utan Reykjavíkur er sérstaklega hvatt til
að senda inn umsóknir því áformað er að halda
landshlutabundin námsskeið þar sem næg þáttaka
fæst. Þau námskeið verða 11.og 12. október og
helgarnar 7. - 9. og 14. - 16. nóvember. Farið verður
að kvöldi 15. október frá Reykjavík í Skaftafell og
dvalið þar dagana 16. -19. október.
Námskeiðsgjald er kr. 65.000-. Innifalið í nám-
skeiðsgjaldi eru námsgögn, akstur og uppihald í
vettvangsferðum.
Námskeið
í náttúruvernd og landvörslu
LAUS STÖRF
• Stuðningsaðila í hlutastarf með fötluðu
barni hjá Félagsþjónustunni
• Aðstoðarskólastjóra í Hjallaskóla
• Dægradvöl í Lindaskóla
• Skrifstofustjóra á framkvæmda-
og tæknisvið
Leikskólakennara vantar í
eftirtalda leikskóla:
• Álfatún v/Álfatún, deildarstjóra
• Fögrubrekku v/Fögrubrekku 100%
• Smárahvamm v/Lækjasmára 100%
• Smárahvamm v/Lækjasmára hlutastarf
Einnig:
• Leikskólasérkennara með umsjón
• Talmeinafræðing í hlutastarf
Nánari upplýsingar á:
www.kopavogur.is
og www.job.is
KÓPAVOGSBÆR
www.kopavogur.is