Fréttablaðið - 19.09.2003, Blaðsíða 32
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
12
11
13
14
15
16
17
18
19
20
FM957
Stereophonics -
MAYBE TOMORROW
50 Cent -
P.I.M.P.
Lumidee -
NEVER LEAVE U
Outlandish -
AICHA
Robbie Williams -
SOMETHING BEAUTIFUL
Nelly -
SHAKE YA TAILFEATHER
Quarashi -
MESS IT UP
Richard X -
FINEST DREAMS
Mary J. Blige -
LOVE @ FIRST SIGHT
Fabolous -
INTO YOU
Christina Aguilera -
CAN’T HOLD US DOWN
Pharrell -
FRONTIN
The Rasmus -
IN THE SHADOWS
Craig David -
SPANISH
Land & Synir -
Á 4 FÓTUM
Stacie Orrico -
THERE’S GOTTA BE MORE...
Igor -
FROM THE BED TO ...
Írafár -
ALDREI MUN ÉG
Chingy -
RIGHT THURR
Busted -
SLEEPING WITH THE LI....
Topp 20Íslenski listinn
Leikarinn Brad Pitt flaug tæpa4.200 kílómetra frá Möltu til
London til þess
að láta laga á
sér hárið. Pitt
hafði áhyggjur
af því að sterk
sólin á Miðjarð-
arhafssvæðinu
hefði rústað á
sér lokkunum
og treysti ekki
hárgreiðslu-
mönnum eyjar-
innar eða þeirra sem störfuðu við
kvikmyndina til þess að bjarga
sér. Hann gerði sér því lítið fyrir
og flaug til London. Þegar þangað
var komið var hárgreiðslustofan
lokuð en Pitt hringdi í eigandann
og lét hann opna.
Gítarleikari Rolling Stones,Ronnie Wood, öðlaðist þann
heiður á dögunum að fá málverk
sín hengd upp á listasafni Royal
Academy.
Sama dag og
þrjú málverk
hans voru
hengd þar upp
voru málverk
eftir Picasso,
Rossetti og
Waterhouse
sett upp. Mun-
urinn var þó
sá að málverk
Woods voru hengd upp á veitinga-
stað safnsins en ekki í sýningar-
salnum.
Maria Shriver, eiginkonaArnolds Schwarzeneggers,
berst nú við að kyngja öllum slúð-
ursögunum um bónda sinn sem
hafa komist á kreik eftir að hann
bauð sig fram
til ríkisstjóra
Kaliforníu. Þau
hafa verið
saman í 26 ár
og segist hún
ekki ætla að
láta blaðaskrif
hafa áhrif á
sambandið.
Hún ætti svo
sem að vera
vön þessu því hún var frænka
John F. Kennedy, fyrrum Banda-
ríkjaforseta, og mikið hefur verið
slúðrar í gegnum tíðina um hann
og hans fjölskyldu.
32 19. september 2003 FÖSTUDAGUR
Pondus eftir Frode Øverli
Væntanlega „vinkona“ sem er
„ekki alveg í úrvalsdeild“!
GETTU HVER!
Didda slær í
gegn í Stormviðri
KVIKMYNDIR Kvikmyndin Stormy
Weather, eða Stormviðrið, eftir Sól-
veigu Anspach verður frumsýnd í
Háskólabíói í kvöld. Sérstök for-
sýning var á myndinni í Vest-
mannaeyjum í gærkvöldi en þar
hefur myndin nú verið tekin til al-
mennra sýninga: „Sólveig á rætur
að rekja til Vestmannaeyja og hef-
ur sérstakar taugar til staðarins og
íbúanna þar. Hluti myndarinnar var
tekinn upp í Vestmannaeyjum og
fólkið þar var frábært í samvinnu,“
segir meðframleiðandinn Baltasar
Kormákur.
Sólveig Anspach vakti athygli
árið 1999 fyrir mynd sína Hertu upp
hugann þar sem hún fjallaði um
reynslu sína af brjóstakrabbameini:
„Ég sá Hertu upp hugann í
Cannes. Ef ég á að segja eins og er
var ég dreginn inn á myndina því
mig langaði ekkert sérstaklega að
sjá mynd um krabbamein. Þetta er
engin vælumynd en hún hafði slík
áhrif á mig að ég held að ég hafi
grenjað mest í bíó.“
Baltasar sá Stormviðrið einnig í
Cannes: „Henni var feikilega vel
tekið enda er hún mannleg, falleg
og öðruvísi en það sem gengur og
gerist,“ segir Baltasar, sem fer
með hlutverk héraðslæknisins í
Vestmannaeyjum: „Didda sló í
gegn á Cannes. Hennar frammi-
staða setti mig og Ingvar út á kant-
inn og það er alveg frábært að sjá
einhvern koma svona út úr skápn-
um sem leikari. Ég var sjálfur svo-
lítið efins í fyrstu um að láta óvana
leikkonu leika svona stórt hlut-
verk. En um leið og ég sá prufurn-
ar varð ég að játa að ég hafði rangt
fyrir mér. Didda stal meira að
segja athyglinni frá samleikkonu
sinni, Elodie Bouchez, sem er stór-
stjarna í Frakklandi.“
Stormviðrið var meðal annars
valin til sýningar á kvikmyndahá-
tíðinni í Toronto en það hefur
mikla þýðingu fyrir dreifingu
myndarinnar í Bandaríkjunum og
Kanada. Stormviðrið er samstarfs-
verkefni Frakka, Íslendinga og
Belga og verður tekin til sýningar í
Frakklandi í nóvember.
thora@frettabladid.is
ELODIE BOUCHEZ OG DIDDA
Í hlutverki geðlæknis og skjólstæðings í Stormviðrinu sem verður frumsýnd í Háskólabíói í kvöld.
Fréttiraf fólki
Platan
ÓMAR SUAREZ, RAPPARI
QUARASHI
Ég er tilneyddur til þess að velja„Doggystyle“ með Snoop Doggy
Dogg eins og hann hét þá,“ segir
Ómar Suarez. „Þetta er plata sem ég
vil aldrei slíta mig frá. Ég kynntist
henni stuttu eftir að hún kom út árið
1993. Það eru nú ekki nema tvö ár
síðan ég keypti hana sjálfur. Þetta er
algjör klassík, Snoop Dogg hefur ekki
gert góða plötu síðan.“
50 CENT
Það þarf meira en níu byssukúlur í búkinn
til þess að stöðva þennan mann í
baráttunni um toppsætið.