Fréttablaðið - 19.09.2003, Blaðsíða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR
Hægfara við-
skiptajöfur
Ofsalega varð ég fyrir miklumvonbrigðum þegar ég frétti af
því í gær að það væri búið að
kaupa Eimskip. Ég hafði nefnilega
sjálfur hugsað mér gott til glóðar-
innar og var byrjaður að nurla
saman fé og efna til samskota.
Ekki hefði verið amalegt að eiga
skipafélag. Standa hnarreistur í
stafni á einum fraktaranum og
sigla um höfin blá. Ég skal segja
ykkur það! En svona er þetta. Mað-
ur er alltaf of seinn.
OG SVO er líka búið að kaupa
Sjóvá Almennar, þannig að ekki
getur orðið af þeim draumum mín-
um að eignast tryggingafélag. Mig
hefur alltaf langað í tryggingafé-
lag. En það er svona. Einhver
frekja ryðst fram fyrir mann í röð-
inni og kaupir allt heila klabbið án
þess að maður fái rönd við reist.
Svona er yfirgangurinn orðinn
mikill í þjóðfélaginu.
REYNDAR er ég skjaldbaka í
þessum málum. Þegar kemur að
því að kaupa fyrirtæki eru aðrir
mér sneggri. En ég er samt ekki
reiðubúinn að gefa upp alla von.
Sígandi lukka er best. Ég er búinn
að setjast yfir dæmið. Ef ég legg
10 þúsund krónur til hliðar á mán-
uði mun ég eiga einn milljarð, að
minnsta kosti – því ég reikna ekki
með vöxtum – eftir 8.300 ár. Það er
ljóst að einn milljarður getur kom-
ið manni vel áleiðis í viðskiptalíf-
inu.
MENN MEGA því fara að vara
sig. Ég er í hægfara en áreiðan-
legri sókn. Ég tala nú ekki um ef
ég næ að leggja fyrir 10 þúsund á
mánuði næstu hundrað þúsund
árin. Spáið í það. Ég geri ráð fyrir
að margir áhrifamenn í viðskipta-
lífinu skjálfi á beinunum við þessa
tilhugsun, því þá á ég hvorki meira
né minna en 12 milljarða og get
keypt Landsbankann. Og þá segi
ég nú bara: Sá hlær best sem síð-
ast hlær! Ha, ha, ha! Minn tími
mun koma.
! "
#
"
$$
! %
!"
!
"#$!