Fréttablaðið - 19.09.2003, Blaðsíða 16
16 19. september 2003 FÖSTUDAGUR
■ Bandaríkin
ÓSÁTT BALLETTMÆR
Ballettdansarinn Anastasia Volotsjkova,
sem var rekin úr Bolshoj-ballettinum fyrir
skömmu, íhugar nú málsókn vegna brott-
rekstrarins. Hún ásakar yfirmenn sína m.a.
um að hafa logið um þyngd sína og hæð.
Volotsjkova er mjög vinsæl í Rússlandi og
hefur mál hennar vakið mikla athygli.
Góða veðrið gengur á jökla landsins:
Snæfellsjökull
hopar 24 metra
UMHVERFI Snæfellsjökull hefur enn
rýrnað á milli ára eins og undan-
farin ár.
Hallsteinn Haraldsson, sem
tók árið 1975 við af föður sínum
sem mælingarmaður á Snæ-
fellsjökli, mældi jökulinn 7. sept-
ember. Mælt er á tveimur stöðum
austan til í jöklinum; á Jökulhálsi
og við sporð skriðjökulsins Hyrn-
ingsjökuls. Niðurstaðan er sú að
jökullinn hopaði um 24 metra á
Jökulhálsi en um 2 metra á Hyrn-
ingsjökli. Sömu tölur í fyrra voru
9 metrar fyrir Jökulháls og 7
metrar fyrir Hyrningsjökul.
„Hopið fram að þessu hefur
ekki verið mjög mikið. Hins vegar
hefur hann þynnst geysimikið,
ekki síst ofan til. Þó er mjög mik-
ill aur á jökulsporðinum sem
varnar því að hann þynnist,“ segir
Hallsteinn.
Þrátt fyrir talsverða rýrnun
Snæfellsjökuls á undanförnum
árum hefur Hallsteinn séð jökul-
inn enn minni en hann er nú:
„Það vantar enn yfir hundrað
metra upp á Háhyrningsjökull
komist í sömu stöðu og þegar
hann var stystur niður rétt fyrir
1970. Ef það gerir nokkur góð
snjóaár er þetta fljótt að snúast
við aftur,“ segir Hallsteinn. ■
Þetta er farið að minna óþægi-lega á deilur þær sem við átt-
um við Rússana á sínum tíma,“
sagði Guðmundur Gunnarsson,
formaður Rafiðnaðarsambands-
ins, um deilur þær sem nú standa
yfir á milli verkalýðsfélaga í Sam-
ráðsnefnd og verktakafélagsins
Impregilo, sem sér um að reisa
Kárahnjúkavirkjun.
„Það er með ólíkindum að
lenda aftur og aftur í þessari að-
stöðu sem við erum í í dag. Ann-
ars staðar í hinum
vestræna heimi
væru yfirvöld
löngu búin að af-
greiða mál sem
þessi, en slíku er
ekki til að dreifa
hér á landi. Ef ein-
hver er tekinn án
atvinnuleyfis í
Englandi eða
Bandaríkjunum
er hann viðstöðulaust sendur úr
landi eða í steininn.“
Guðmundur segir að aðvörun-
arbjöllur hefðu átt að hringja um
leið og tilboð Impregilo barst inn á
borð Landsvirkjunar, en útboðið
er það stærsta sem nokkru sinni
hefur farið fram á Íslandi. „Það
sögðu margir þegar tilboðin í
virkjunarframkvæmdina voru
opnuð að það væri dularfullt
hversu mikill munur væri á tilboði
Impregilo og næsta tilboði fyrir
ofan það. Það voru hvorki meira
né minna en 13 milljarðar sem bar
á milli. Þar sem launakostnaður er
yfirleitt stærsti hluti útgjalda
hvers fyrirtækis þarf engan snill-
ing til að sjá að ein besta leiðin til
að ná þessum mismun er í launa-
kostnaði. Það eru einu útgjöldin
sem fyrirtækið getur haft áhrif á
að einhverju marki.“
Guðmundur segir að þessum
deilum svipi til annars máls sem
tengist Landsvirkjun, sem Rafiðn-
aðarsambandið kom að fyrir
nokkrum árum. „Við stóðum í
átökum við rússneska mafíu lengi
vel út af starfsmönnum Techno-
prom Export sem unnu hér fyrir
Landsvirkjun. Starfsmenn þeirra
voru skjóllitlir að störfum langt
uppi á heiði og fengu hvorki
mannsæmandi laun né voru önnur
réttindi virt. Eftir miklar deilur
og átök náðum við loks að keyra
Landsvirkjun upp að vegg í því
máli og gripið var til aðgerða
gagnvart Technoprom.“
Guðmundur óttast með tilliti til
fortíðar Impregilo, en fyrirtækið
hefur víða staðið í málaferlum, að
ekki séu öll kurl komin til grafar
og að vandamál tengd fyrirtækinu
séu rétt að byrja.
„Ég get ekki annað en brosað
að þessu Kárahnjúkamáli,“ sagði
Birgir Björgvinsson, formaður
Sjómannafélags Reykjavíkur.
„Þetta ástand hefur blasað við í
langan tíma og enginn haft mikl-
ar áhyggjur fyrr en nú. Núna
standa allir upp á afturlappirnar
og svitna sem aldrei fyrr. Fáir
hafa sýnt okkur stuðning í gegn-
um tíðina þegar við höfum mót-
mælt öllum þeim fjölda starfa á
íslenskum skipum sem er í hönd-
um útlendinga. Það eru einna
helst Grétar Þorsteinsson, forseti
ASÍ, og Sævar Gunnarsson, for-
maður Sjómannasambands Ís-
lands, sem hafa staðið vaktina
með okkur.“
Birgir segir sérstaklega mikið
um erlenda starfsmenn á fragt-
flutningaskipum Íslendinga.
„Þeir koma allir frá þessum
starfsmannaleigum eins og raun-
in er með starfsmenn Impregilo.
Þetta er ekkert einsdæmi. Flug-
félagið Atlanta hefur í áraraðir
notað erlenda starfsmannaleigu.
Okkar reynsla er sú að það dugar
ekkert annað en að berja í borðið
og steyta hnefann. Þessi verka-
lýðssambönd gera ekkert annað
en ota einum hagfræðingnum á
annan og það breytir engu. Þess-
um stuldi á íslenskum störfum
verður að linna og það gerist
ekki nema verkalýðsforingjar
hætti að röfla yfir kaffi og klein-
um og grípi til aðgerða. Það er
löngu kominn tími til að fólk slíti
sig úr viðjum kreditkortareikn-
inga og berjist fyrir sínu því ann-
ars er hætta á að hér gangi út-
lendingar í öll störf. Þetta er
tímasprengja og hún tifar með
hverju augnabliki sem líður.“
albert@frettabladid.is
Fréttaviðtöl
ALBERT ÖRN EYÞÓRSSON
■ talar við Guðmund Gunnarsson
og Birgi H. Björgvinsson um
Kárahnjúkadeilurnar.
FRÁ KÁRAHNJÚKUM
Formaður Rafiðnaðarsambandsins
óttast að ástandið þar eigi eftir að
versna til muna.
ATVINNULEYFI
Til lengri tíma:
33 leyfi - Þar af:
Tyrkir 4
Kínverjar 3
Aðrar þjóðir 26
Til styttri tíma:
96 leyfi
Rúmenar / Tyrkir
Tifandi tímasprengja
Guðmundur Gunnarsson og Birgir Björgvinsson hafa báðir mikla reynslu af átökum
vegna erlendra starfsmanna hér á landi. Þeir vara báðir við því að ástandið við
Kárahnjúka eigi eingöngu eftir að versna.
GUÐMUNDUR GUNNARSSON
Ekki í fyrsta sinn sem hann stendur í stríði
vegna erlendra starfsmanna.
BIRGIR BJÖRGVINSSON
Telur löngu tímabært að breyta orðum
í aðgerðir.
SNÆFELLSJÖKULL
Hyrningsjökull sunnan og austan í Snæfellsjökli er annar tveggja staða í jöklinum sem
mældir eru á hverju hausti. Þó hann hafi ekki hopað mikið hefur hann þynnst því meira.
Samræmd vísitala EES:
Ísland
næstlægst
VERÐBÓLGA Verðbólga á Íslandi síð-
asta árið var næstminnst ríkja
Evrópska efnahagssvæðisins,
mæld með samræmdri vísitölu
neysluverðs. Vísitalan hækkaði
um 0,2% að meðaltali í ríkjum
EES milli júlí og ágúst, en lækkaði
hér á landi um 0,4%. Meðaltal
verðbólgu síðustu tólf mánuði var
2% hjá EES-ríkjum, 2,1% á evru-
svæðinu en 1% á Íslandi. Hagstof-
an birti vísitöluna í gær.
Mesta verðbólga á Evrópska
efnahagssvæðinu á þessu tólf mán-
aða tímabili var 3,9% á Írlandi og
3,3% í Grikklandi. Verðbólgan var
minnst 0,9% í Austurríki. ■
VILL HALDA KOSNINGAR Æðsti
yfirmaður stofnunarinnar sem
sér um kosningar í Kaliforníu
hvetur dómstólinn sem setti lög-
bann á væntanlegar ríkisstjóra-
kosningar að snúa við ákvörðun
sinni. Hann segir úrskurðinn
hættulegt fordæmi sem skaði
hagsmuni almennings.
ÓNÝTT HEIMILD Heimild banda-
rískra stjórnvalda til að krefjast
upplýsinga um kaup og lán fólks
hjá bókasöfnum, bókabúðum og
fleiri fyrirtækjum vegna rann-
sókna sem beinast að hryðjuverka-
starfsemi hefur aldrei verið nýtt,
samkvæmt frétt í Washington
Post. Heimildin hefur sætt mikilli
gagnrýni.
BUSH OG ABDULLAH II
Bush var harðorður í garð Yassers Arafats á
fundi með Abdullah II Jórdaníukonungi.
Bush gagnrýninn:
Arafat
mislukkaður
CAMP DAVID, AP „Palestínumenn
verða að skilja að ef þeir vilja frið
verða þeir að hafa forystusveit sem
er fullkomlega reiðubúin til að
berjast gegn hryðjuverkum,“ sagði
George W. Bush Bandaríkjaforseti
eftir að hann fundaði með Abdullah
II Jórdaníukonungi. Bush sagði
Yasser Arafat hafa brugðist sem
leiðtoga. Bush lýsti vonbrigðum
með afsögn Mahmouds Abbas,
fyrrum forsætisráðherra, og sagði
Arafat hafa grafið undan friðarvið-
leitni hans. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M