Fréttablaðið - 31.10.2003, Side 2

Fréttablaðið - 31.10.2003, Side 2
2 31. október 2003 FÖSTUDAGUR „Það kemur fyrir.“ Haraldur Briem er sóttvarnalæknir og passar upp á að við hin verðum ekki allt of lasin af flensu og öðrum fjára. Spurningdagsins Haraldur, verður þú aldrei veikur sjálfur? ■ Hæstiréttur Undirskrift ráðningar ljósrituð úr vegabréfi Stéttarfélagið Efling sakar Vinnumálastofnun um að hunsa umsagnir sín- ar vegna umsókna um atvinnuleyfi. Ráðningarsamningur íslensks fyrir- tækis við útlending var undirritaður með ljósriti úr vegabréfi mannsins. KJARAMÁL Opinber ráðningarsamn- ingur íslensks fyrirtækis við lit- háískan starfsmann bar ljósritaða undirskrift útgefanda vegabréfs starfsmannsins í Litháen. Starfs- maðurinn hafði annan samning undir höndum, sem fól í sér um 30.000 króna lægri dagvinnu- laun en sá opin- beri. Maðurinn kannaðist ekki við samninginn sem atvinnurek- andinn hafði sent til Vinnu- málastofnunar vegna umsóknar um atvinnuleyfi fyrir hann, þeg- ar hann sá opinbera samninginn hjá stéttarfélaginu Eflingu í sept- ember. Tryggvi Marteinsson, þjón- ustufulltrúi Eflingar í Reykjavík, segir allt benda til þess að um mistök við fölsun samnings hafi verið að ræða. Við fölsun ráðning- arsamnings Litháans hafi verið ljósrituð vitlaus undirskrift úr vegabréfi hans. Í stað hans eigin undirskriftar var undirskrift út- gefanda vegabréfsins afrituð yfir í ráðningarsamninginn. Efling er umsagnaraðili vegna atvinnuleyfisumsókna íslenskra fyrirtækja fyrir erlenda starfs- menn. Vinnumálastofnun veitti at- vinnuleyfi fyrir litháíska starfs- manninn út á ráðningarsamning sem hann kveðst ekki hafa séð. Að sögn Tryggva heldur Vinnumála- stofnun áfram að veita umræddu fyrirtæki atvinnuleyfi, þrátt fyrir að Efling hafni umsóknunum á grundvelli þess að fyrirtækið brjóti á erlendum starfsmönnum. „Vinnumálastofnun virðist hunsa umsagnir okkar. Fyrirtæki sem við höfum staðið að því að brjóta á erlendum starfsmönnum halda áfram að fá atvinnuleyfi. Þegar við skrifum hafnað, er um- sókn samt samþykkt. Við lendum í því að erlendir starfsmenn fyrir- tækja sem við höfum áður hafnað um atvinnuleyfi komi til okkar og bendi á að brotið sé á þeim,“ segir Tryggvi. Jóhanna Sigurðardóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, hefur krafið Árna Magnússon félags- málaráðherra svara um eftirlit með ráðningarsamningum útlend- inga í fyrirspurn á Alþingi. „Þegar ég fæ svona upplýsing- ar þar sem allt bendir til að lög séu brotin og jafnvel sé um skjala- fals sé að ræða, er það skylda mín sem þingmanns að spyrja ráð- herra hvað hann ætli að aðhafast. Þetta er angi af því máli sem varðar slæman aðbúnað og kjör erlendra starfsmanna sem koma hingað til lands fyrir milligöngu starfsmannaleiga. Ég bíð við- bragða ráðherra við þessari fyrir- spurn,“ segir Jóhanna. jtr@frettabladid.is FJÖLMIÐLAR Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor og ævi- söguritari Halldórs Kiljans Lax- ness, segist vera undrandi á þeim spurningum sem minnihluti Út- varpsráðs hefur borið fram varð- andi innkaup Sjónvarpsins á efni sem hann eða fyrirtæki í hans eigu hafi selt. „Ég á ekki í neinu fyrirtæki enda hef ég ekki áhuga á rekstri. Ég á ekkert í Alvís, sem reyndar er ekki skráð fyrirtæki. Jónas Sigurgeirsson útgefandi rekur þetta sem einstaklingur á eigin kennitölu og ekki á ég hlut í Jónasi,“ segir Hannes. Hannes segir að ástæða þess að Útvarpsráð vísaði frá spurn- ingu minnihlutans hafi einfald- lega verið sú að hann eigi ekkert í fyrirtækjum. „Á þá að setja fyrirtæki sem ég hef unnið fyrir á svartan lista? Ég hef unnið fyrir Saga film, Plús film og ég hef unnið fyrir Jónas. Á kannski að ganga á fyrirtækin og spyrja: „Hefur Hannes unnið fyr- ir ykkur?“ Það er verið að segja að ekki megi versla við fyrirtæki sem hafa gyðinga í vinnu.“ Hann- es Hólmsteinn segir ekkert vera athugavert við að Sjónvarpið sýni tíu dögum fyrir jól þátt sem hann gerði um Halldór Laxness. Jónas hafi boðið Sjónvarpinu þáttinn til kaups og efnið hafi þótt áhuga- vert. Þetta sé af sama toga og þeg- ar Gísli Pálsson, höfundur ævi- sögu Vilhjálms Stefánssonar land- könnuðar, hafi komið að gerð þátta um landkönnuðinn sem sýndir hafi verið í Sjónvarpinu. ■ EIMSKIP Tveggja milljarða króna hagnaður. Eimskip: Góð afkoma VIÐSKIPTI Hagnaður Eimskipafé- lagsins á þriðja ársfjórðungi árs- ins nam rúmum tveimur milljörð- um króna. Stærstan hluta hagnað- arins má rekja til góðrar afkomu Burðaráss, fjárfestingararms fé- lagsins, en einnig er greinilegur bati á rekstri flutningastarfsemi félagsins. Þetta kemur meðal ann- ars til af auknum innflutningi og betri nýtingu á flutninganetum fé- lagsins. Afkoma Brims, sem er útgerð- arhluti Eimskipafélagsins, er lak- ari en áætlanir gerðu ráð fyrir. Sú niðurstaða kemur þó ekki á óvart miðað við almenna stöðu sjávarút- vegsins. ■ SKILORÐSBUNDINN DÓMUR Hæstiréttur staðfesti dóm Hér- aðsdóms Austurlands yfir manni sem var ásamt öðrum manni valdur að meiðslum á farþega annars hinna ákærðu. Fengu þeir hvor um sig eins mánaðar skil- orðsbundinn fangelsisdóm og sekt en annar þeirra áfrýjaði dómi Héraðsdóms Austurlands til hæstaréttar. ÍRAK Bandarískur hermaður á vettvangi sjálfsmorðsárásar í Írak. Leyniþjónustan: Hefur frest til fimm WASHINGTON, AP Lokafrestur sá sem sérstök nefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings veitti banda- rísku leyniþjónustunni, CIA, til að afhenda allar upplýsingar sem leyniþjónustan safnaði saman um Írak og gereyðingarvopn þeirra fyrir innrásarstríðið í vor, rennur út klukkan fimm í dag. Nefnd öldungadeildarinnar skilar á næstunni skýrslu um vinnubrögð CIA í aðdraganda stríðsins og er fullyrt að þar sé leyniþjónustan harkalega gagn- rýnd, sem og forstjóri CIA, George Tenet. ■ SJÁVARÚTVEGUR Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra varaði við aðild að Evrópusambandinu á að- alfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna í gær. Ráðherrann sótti fund í Edinborg í Skotlandi í síðustu viku, þar sem fjallað var um vandamál fiskveiða og fisk- veiðistjórnunar í skoskum sjávar- útvegi. Þar kom fram að erfitt væri að koma á eignarrétti hvað varðar nýtingu fiskistofna innan ESB. „Ástæðan er fyrst og fremst ótti manna við svokallað kvóta- hopp, jafnvel þótt um svæðis- bundna fiskveiðistjórn væri að ræða, þar sem aflaheimildir yrðu seldar til fyrirtækja utan Skotlands. Þetta yrði til þess að öll umsvifin sem tengdust kvótanum á viðkomandi svæðum gætu flust annað. Ég get um margt deilt þessum áhyggjum með Skotun- um,“ sagði Árni í ræðu sinni. Árni benti einnig á blikur á lofti í sam- keppnisstöðu íslensks sjávar- útvegs. Hann sagði yfirvof- andi að erfiðara geti orðið að selja afurðir en verið hefur að undanförnu, og benti á að Norð- menn hygðust framleiða 100 til 300 þúsund tonn af þorski í fiskeldi á næstu tíu árum. „Sam- keppnin frá Kína, þar sem vinnu- aflið kostar nánast ekki neitt, og fiskeldið eru að breyta myndinni mun hraðar en talið var á þeim tíma þegar við hittumst hér síð- ast.“ ■ Á AÐALFUNDI LÍÚ Sjávarútvegsráðherra varaði við að Evrópusambandsaðild gæti leitt til þess að kvótinn flyttist úr landi. Árni Mathiesen óttast Evrópusambandsaðild: Íslendingar gætu misst kvótann FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T FR ÉT TA B LA Ð IÐ /I N G Ó LF U R JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR Lagði fram fyrirspurn á Alþingi til félags- málaráðherra um eftirlit með ráðningar- samningum útlendinga. SIGURÐUR BESSASON Formaður Eflingar, sem fer með mál Litháans. „Fyrirtæki sem við höf- um staðið að því að brjóta á erlendum starfsmönn- um halda áfram að fá atvinnuleyfi. FRÉTTAB LAÐ IÐ /RÓ B ERT HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON Er óánægður með spurningar minnihluta Útvarpsráðs. Hannes Hólmsteinn Gissurarson á ekki í neinum fyrirtækjum: Segist vera ofsóttur af minnihluta Útvarpsráðs FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T HAGVÖXTUR TVÖFALDAST Hag- vöxtur í Bandaríkjunum mældist 7,2% á ársgrundvelli á þriðja fjórðungi þessa árs. Þetta er tvö- falt meiri hagvöxtur en á öðrum fjórðungi ársins og mun meira en spár höfðu gert ráð fyrir. ■ Bandaríkin

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.