Fréttablaðið - 31.10.2003, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 31.10.2003, Blaðsíða 8
8 31. október 2003 FÖSTUDAGUR Aldurinn segir til sín „Ég veit ekki hvað ég hef oft skorað tvö mörk – ég hef ekki náð að skora þrjú mörk síðan ég var unglingur...“ Eiður Smári Guðjohnsen, DV 30. október. Hið ljúfa einelti „Áhrif frá einelti hafa oft orðið til góðs, komið í veg fyrir fitu eða krakkar þurft að berjast fyr- ir rétti sínum til að vera með miklar rasskinnar. Oft var það fyrir áhrif stríðni að fólk varð ekki sömu offitu að bráð og núna.“ Guðbergur Bergsson. Kjallaragrein í DV 30. október. Einhver sérstök? „Það hafa mörg vötn runnið til sjávar...“ Kolbrún Halldórsdóttir í umræðu um að gera kaup á vændi refsiverð. Alþingi, 30. október. Orðrétt STJÓRNMÁL „Mér finnst ótímabært að bregðast við framboðinu en komi það fram skiptir máli á hvaða forsendum það er gert,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir, verðandi varaformaður Sam- fylkingar, um væntanlegt fram- boð Margrétar Frímannsdóttur til formennsku í framkvæmda- stjórn Samfylkingarinnar. Stefán Jón Hafstein, formaður framkvæmdastjórnar, lýsti því yfir í Fréttablaðinu að hann hygð- ist gefa kost á sér til áframhald- andi formennsku hvað sem fram- boði Margrétar liði. Hann er tal- inn vera einn af nánustu sam- herjum Ingibjargar Sólrúnar en Margrét er meðal þeirra sem standa fast að baki Össuri Skarp- héðinssyni, formanni Samfylk- ingar. Össur Skarphéðinsson segir að framboð þeirra sem vilji takast á hendur trúnaðarstörf fyrir Samfylkinguna sé mál lands- fundar til að taka afstöðu til. „Landsfundur er æðsta valda- stofnun flokksins og það er hans að setja fólk á þá pósta sem þarf að skipa. Landsfundarfulltrúum er best treystandi til þess,“ segir Össur. ■ WASHINGTON, AP George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur ríkulega umbunað fyrirtækjum og einstak- lingum sem lögðu fé í kosninga- baráttu hans árið 2000. Samkvæmt nýlegri rannsókn á úthlutun verkefna við uppbygg- ingu í Írak og Afganistan hafa fyrirtæki og verk- takar sem lögðu verulegt fé í kosn- ingasjóði Bush fengið úthlutað verkefnum í Írak og Afganistan fyrir samtals rúma átta milljarða doll- ara, rúma 600 milljarða króna. Í ljós hefur komið að yfir 70 fyrir- tæki sem eru nú með verkefni á vegum Bandaríkjastjórnar í lönd- unum, lögðu hvert um sig meira en 500.000 dollara í kosningasjóði Bush, ríflega 38 milljónir króna. Þetta er meira en sömu fyrirtæki hafa gefið samanlagt til annarrar stjórnmálastarfsemi síðustu tíu ár. Þá leiddi rannsóknin ennfremur í ljós að stærstu verkefnunum var úthlutað án útboðs og var því borið við að útboð tækju allt of langan tíma. Það voru fyrrum stórlaxar úr bandaríska stjórnkerfinu eða vinir og kunningjar núverandi póli- tíkusa sem fengu úthlutað tíu stærstu uppbyggingarverkefnun- um í Írak og Afganistan. Athygli vekur að Halliburton fékk úthlutað stærsta einstaka verkefninu, olíuverkefni upp á 2,3 milljarða dollara. Fyrrum stjórn- arformaður Halliburton er Dick Cheney, sem raunar hætti hjá fyrirtækinu árið 2000 og bauð sig fram sem varaforsetaefni Bush Bandaríkjaforseta. Annað stærsta uppbyggingar- verkefnið, upp á rúman milljarð dollara, fékk Bechtel-verktaka- fyrirtækið. Meðal stjórnarmanna í Bechtel er George Schulz, fyrr- um utanríkisráðherra Bandaríkj- anna. Talsmenn beggja fyrirtækja segja sér misboðið með framsetn- ingu upplýsinganna og spyrja hvort nokkrum heilvita manni detti í alvöru í hug að kunnings- skapur eða framlög í kosninga- sjóði forsetans hafi ráðið þegar ákvörðun var tekin um úthlutun verkefna í Írak og Afganistan. the@frettabladid.is Námafyrirtæki gagnrýnd: Pútín krefst úrbóta RÚSSLAND Vladimír Pútín Rúss- landsforseti hefur farið fram á að gerð verði allsherjarúttekt á rúss- neskum námum. Forsetinn segist óttast að mannskæð námaslys séu að verða daglegt brauð í Rússlandi og krefst úrbóta. Sjö námaverkamenn fórust á innan við viku í tveimur námaslysum í Rússlandi. Mikhaíl Kasjanov forsætisráðherra hefur gefið út þá yfirlýsingu að slysin megi rekja til brota á öryggisregl- um. Segir hann að námafyrirtæk- in hafi virt að vettugi tilskipanir yfirvalda um úrbætur í öryggis- málum. ■ ÚT AF Í HÁLKU Jeppi fór út af veginum í mikilli hálku og valt á leiðinni inn að Kárahnjúkum í gærmorgun. Þrennt var í bílnum og meiddist einn farþeginn minniháttar. Bíllinn er mikið skemmdur. RANN ÚT AF Jeppi rann út af veg- inum á Fjarðarheiði milli Egils- staða og Seyðisfjarðar í gærdag. Mikil hálka var og rann bíllinn niður brattan halla. Að sögn lög- reglunnar á Egilsstöðum fór bet- ur en á horfðist og slapp ökumað- ur ómeiddur. Bíllinn var ökufær eftir að búið var að draga hann upp á veginn. SLYSALAUS BÍLVELTA Bíll valt eft- ir að hafa lent út af í hálku við Dyrdal á Nesjavallavegi í gær. Bíllinn er talinn ónýtur eftir velt- una en engin meiðsl urðu á fólki. ÞRÍR LENTU UTAN VEGAR Þrír bíl- ar lentu út af vegna hálku í ná- grenni Húsavíkur í gær. Enginn slasaðist. Einn bíllinn er nokkuð skemmdur. N O N N I O G M A N N I I Y D D A / s ia .i s / N M 0 8 5 1 6 Tölum saman fia› er ód‡rara en flú heldur! flegar flú hringir úr heimilissímanum. 15 mínútna símtal innanlands á kvöldin og um helgar kostar innan vi› 20 krónur 15 20/ kr.mín - á kvöldin og um helgar ALÞINGI Ríkissjóður myndi verða af tekjum upp á 1,5 milljarða króna á ári ef virðisaukaskattur á barnavörur yrði lagður af. Þetta kemur fram í svari Geirs H. Haarde fjármálaráð- herra við fyrirspurn Össurar Skarphéðinssonar, formanns Samfylkingarinnar. Virðisauka- skatturinn er 24,5% í dag. Ef hann yrði lækkaður í 7% yrði rík- ið af einum milljarði króna og ef hann yrði lækkaður í 14% yrði tekjutap ríkisins um 650 milljón- ir króna. Össur spurði enn fremur hvort það væri stefnuskrá ríkis- stjórnarinnar að lækka virðis- aukaskatt á barnavörum. Geir svaraði að í stefnuyfirlýsingu stjórnarinnar væri tekið fram að endurskoða ætti virðisaukaskatt- kerfið á kjörtímabilinu. Frekar tímasetningar um undirbúning og framkvæmd verksins lægju ekki fyrir. ■ Fegurðardrottning: Fordæming Hæstaréttar AFGANISTAN, AP Hæstiréttur í Afganistan hefur fordæmt 23 ára gamla af- ganska konu sem er sjálf- skipaður full- trúi landsins í k e p p n i n n i Ungfrú Jörð. Vida Sama- dzai, sem er fyrst afg- anskra kvenna til að taka þátt í þessari ár- legu fegurðar- s a m k e p p n i , kom fram í baðfötum á sýningu í Man- ila á Filipps- eyjum. S a m a d z a i fluttist til Bandaríkjanna um miðjan tí- unda áratug- inn. Að eigin sögn ákvað hún að taka þátt í keppninni til að gefa heiminum nýja mynd af afg- önskum konum. Afgönsku hæstaréttardómar- arnir sendu frá sér yfirlýsingu þar sem þeir ítrekuðu að Sama- dzai væri að brjóta íslömsku Sharia-lögin með því að koma fram fáklædd. ■ FJÁRMÁLARÁÐHERRA Geir segir að endurskoða eigi virðisauka- skattkerfið á kjörtímabilinu. Hugmyndir um að leggja niður virðisaukaskatt á barnavörur: Kostar ríkissjóð 1,5 milljarða FEGURÐAR- DROTTNING Fulltrúi Afganistans í keppninni Ungfrú Jörð kom fram á baðfötum á sýningu í Manila á Filippseyjum. STEFÁN JÓN HAFSTEIN Vill verða endurkjörinn. Ingibjörg Sólrún um formennsku í framkvæmdastjórn: Forsendurnar fyrir framboði skipta máli MARGRÉT FRÍMANNSDÓTTIR Stefnir í framboð. Fengu milljarða verkefni án útboða Bush Bandaríkjaforseti hefur umbunað þeim sem lögðu fé í kosningasjóði hans og úthlutað átta milljarða dollara verkefnum við uppbyggingu Íraks og Afganistans án útboða. ■ Stærstu verk- efnunum var úthlutað án út- boðs og var því borið við að út- boð tækju allt of langan tíma. BUSH OG CHENEY Bush Bandaríkjaforseti ásamt Dick Cheney. Halliburton, sem áður var undir stjórn Cheneys, fékk úthlutað milljarða dollara olíuverkefni í Írak án útboðs. Stærstu uppbyggingarverkefnunum í Írak og Afganistan var úthlutað til fyrirtækja sem létu fé af hendi rakna í kosningasjóði Bush. ■ Lögreglufréttir ■ Alþingi GULLFOSS UPPLÝSTUR Margrét Frímannsdóttir, þingmaður Sam- fylkingarinnar, hefur beint fyrir- spurn til Sivjar Friðleifsdóttur umhverfisráðherra um lýsingu við Gullfoss. Margrét spyr hvort það hafi komið til álita að lýsa upp Gullfoss með ljóskösturum og ef svo er, hver sé afstaða ráð- herra og viðkomandi stofnunar til hugmyndarinnar.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.