Fréttablaðið - 31.10.2003, Page 37
37FÖSTUDAGUR 31. október 2003
hvað?hvar?hvenær?
28 29 30 31 1 2 3
OKTÓBER
Föstudagur
Boltabullur handteknar:
Brutu og
brömluðu
FÓTBOLTI Rúmlega 90 stuðnings-
menn West Ham voru handteknir
fyrir og eftir leik gegn Tottenham
í deildabikarnum í fyrradag.
Lögreglan var kölluð út að öld-
urhúsi í London þar sem stuðn-
ingsmenn liðsins voru búnir að
ganga berserksgang. Stuttu síðar
voru boltabullurnar handteknar
fyrir skemmdarverk og ósæmilegt
athæfi.
Þó nokkrir meiddust í átökum
stuðningsmannanna en aðeins
þurfti að flytja einn leikmann á
sjúkrahús til aðhlynningar.
Átta voru handteknir fyrir ölv-
un á meðan á leik stóð. ■
Leikmenn Bodø/Glimt:
Afþökkuðu
bónusa
FÓTBOLTI Leikmenn Bodø/Glimt
hafa afþakkað bónusana sem þeir
hafa unnið til í ár svo félagið geti
lokið við að vinna sig út úr mikl-
um fjárhagsörðugleikum.
Bodø/Glimt var næstum gjald-
þrota í desember árið 2001 eftir
19 milljóna norskra króna halla-
rekstur. Félagið hefur náð að
minnka hallann stig af stigi og er
útlit fyrir að reksturinn verði á
sléttu á næsta ári.
Bodø/Glimt verður í öðru eða
þriðja sæti úrvalsdeildarinnar og
leikur til úrslita í bikarkeppninni.
Dagblaðið Norland áætlar að bón-
us hvers leikmanns hefði numið
um 20.000 norskum krónum. ■
■ ■ LEIKIR
19.15 UMFG fær Hauka í heim-
sókn til Grindavíkur í INTERSPORT-deild-
inni í körfubolta.
19.15 Keflavík keppir við Snæfell
í Keflavík í INTERSPORT-deildinni í
körfubolta.
19.15 Þór og KFÍ keppa í Þorláks-
höfn í INTERSPORT-deildinni í körfu-
bolta.
■ ■ SJÓNVARP
18.00 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði.
21.00 UEFA Champions League á
Sýn. Fréttaþáttur um Meistaradeild Evr-
ópu.
22.00 Mótorsport 2003 á Sýn. Ít-
arleg umfjöllun um íslenskar akstursí-
þróttir.
ÍSLENDINGASLAGUR Ívar Ingi-
marsson og félagar í Reading
mæta Eiði Smára Guðjohnsen og
félögum í Chelsea í fjórðu um-
ferð deildabikarsins á Englandi.
West Bromwich Albion, með Lár-
us Orra Sigurðsson innanborðs,
mætir Manchester United og Jó-
hannes Karl Guðjónsson, Paul
Gascoigne og félagar í Úlfunum
mæta Arsenal. Aðrar viðureignir
eru Aston Villa - Crystal Palace,
Tottenham - Manchester City,
Southampton - Portsmouth,
Liverpool - Bolton og Middles-
brough - Everton.
SCHOLES ÚTI Paul Scholes, leik-
maður Manchester United, verður
að öllum líkindum ekki í leik-
mannahópi enska landsliðsins í
vináttuleik gegn Dönum 16. nóv-
ember. Scholes fór í aðgerð í vik-
unni og nær líklega ekki að jafna
sig áður en landsliðsþjálfarinn
Sven-Göran Eriksson velur hópinn.
ZIEGE MEIDDUR Á NÝ Christian
Ziege lék að nýju með Tottenham
í deildabikarleik gegn West Ham
í fyrradag. Ziege, sem hefur ver-
ið frá í um ár vegna aðgerðar,
haltraði af velli eftir rúmlega
klukkutíma leik. Ekki er þó talið
að hann þurfi að gangast undir
aðgerð.
■ Fótbolti