Fréttablaðið - 29.11.2003, Side 8
8 29. nóvember 2003 LAUGARDAGUR
■ Þjónusta
Góð fyrirmynd
„Sömu grundvallarhugmyndir
hafa mótað réttinn til nýtingar
náttúruauðlinda og Íslendingar
hafa einkum horft til Rússlands
þegar fjármála- og viðskiptalíf-
inu hafa verið settar reglur.“
Ásgeir Sverrisson í Viðhorfspistli.
Morgunblaðið, 28. nóvember.
Hunda- og kóngalíf
„Ég hef stundum farið einn nið-
ur að styttunni af kónginum og
reynt að átta mig á því hvað
veldur þessum ósköpum en verð
einskis vísari. Þetta er mér hul-
in ráðgáta en hundurinn
brjálast alltaf.“
Hundur Einars Ólafssonar þolir ekki styttuna
af Kristjáni IX. DV, 28. nóvember.
Kjörin fyrir glæpasögur?
„Ég er alveg óhræddur í Reykja-
vík. Samanborið við stórborgir
úti í heimi er hún í versta falli
hrekkjusvín.“
Ævar Örn Jósepsson glæpasagnahöfundur.
DV, 28. nóvember.
Orðrétt
Breski Íhaldsflokkurinn sækir í sig veðrið:
Nýr leiðtogi lyftir flokknum
BRETLAND Breski Íhaldsflokkurinn
nýtur meira fylgis en Verka-
mannaflokkurinn, samkvæmt
nýrri skoðanakönnun sem birt var
í dagblaðinu The Telegraph. Fylg-
isaukning íhaldsmanna er nær öll
á kostnað frjálslyndra demókrata.
38% aðspurðra sögðust styðja
Íhaldsflokkinn, 36% Verkamanna-
flokkinn og 19% Frjálslynda
demókrata. Þessi niðurstaða þykir
mikill sigur fyrir Michael Howard,
sem var kjörinn leiðtogi íhalds-
manna fyrir aðeins rúmum þrem-
ur vikum. Íhaldsflokkurinn hefur
ekki mælst með jafn mikið fylgi
síðan Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, tók við forystu í Verka-
mannaflokknum fyrir níu árum.
Samkvæmt könnuninni eru
59% kjósenda óánægð með störf
ríkisstjórnarinnar og 65% telja
hana hafa gerst seka um óheiðar-
leika. 31% sagðist vilja sjá Blair í
embætti forsætisráðherra, 27%
Howard og tíu prósent Charles
Kennedy, leiðtoga Frjálslyndra.
Iain Duncan Smith, fyrrum leið-
togi Íhaldsflokksins, naut aldrei
fylgis meira en 21% aðspurðra í
skoðanakönnunum. ■
Lævís takmörkun
á tjáningarfrelsinu
Formaður Starfsmannasamtaka RÚV segir vinnubrögð útvarpsstjóra í
Spegilsmálinu forkastanleg. Telur yfirvofandi skipulagsbreytingar læ-
víslegar. Hollvinasamtök RÚV lýsa áhyggjum.
FJÖLMIÐLAR „Það eru forkastanleg
vinnubrögð í þessu máli öllu. Út-
varpsstjóri neitaði að tala við Frið-
rik Pál Jónsson þrátt fyrir að hann
hafi verið beðinn um að gera það.
Útvarpsstjóri á að standa með sínu
fólki þar til eitthvað sannast,“ seg-
ir Jón Ásgeir Sigurðsson, formað-
ur Starfsmannasamtaka Ríkisút-
varpsins, um framkomu og viðhorf
Markúsar Arnar Antonssonar út-
varpsstjóra til aðstandenda út-
varpsþáttarins Spegilsins. Hann
segir að eðli málsins samkvæmt
hefði útvarpsráð átt að kynna sér
þessi mál til að fá botn í það hvort
ávirðingarnar ættu einhverja stoð
í raunveruleikanum. „En það er
ekkert gert og bara hlaupið til og
ályktað,“ segir Jón Ásgeir.
Jón Ásgeir
rifjaði upp að
árið 1998 kvart-
aði Davíð Odds-
son forsætisráð-
herra yfir því í
a ð d r a g a n d a
borgarstjórnar-
kosninga að slag-
síða væri á
fréttaflutningi
Útvarpsins, Sjálfstæðisflokknum í
óhag.
„Það mál var krufið til mergjar
og í ljós kom að ekkert var athuga-
vert og jafnvægi var í fréttaflutn-
ingnum,“ segir Jón Ásgeir.
Hann tekur í sama streng og
fréttastjóri og varafréttastjóri Út-
varpsins varðandi skipulagsbreyt-
ingar innan stofnunarinnar, sem
hann telur ekki aðeins óþarfar
heldur skaðlegar.
„Þessar óbeinu takmarkanir á
tjáningarfrelsi eru þær lævísleg-
ustu og erfiðast er að eiga við þær.
Þarna virðist eitthvað slíkt búa að
baki,“ segir Jón Ásgeir.
Jón Ásgeir er umsjónarmaður
þáttarins Víðsjár, sem útvarps-
stjóri líkti í frægum tölvupósti við
helgarútgáfu „Hljóðviljans“.
Hann segir að Starfsmanna-
samtökin verði með fund í næstu
viku þar sem þessi mál verði
rædd.
„Í þessu máli er augljóslega
trúnaðarbrestur á milli útvarps-
stjóra og þeirra sem sakaðir eru
um ákveðna hluti,“ segir Jón Ás-
geir.
Stjórn Hollvinasamtaka Ríkis-
útvarpsins sendi „að gefnu tilefni“
frá sér ályktun í gær vegna þessa
máls. „Hollvinir Ríkisútvarpsins
vara við aðgerðum sem auka mið-
stýringu innan stofnunarinnar og
ítreka mikilvægi þess að stofnunin
og starfsmenn hennar haldi fag-
legu sjálfstæði og breidd í innra
starfi,“ segir meðal annars í álykt-
uninni.
rt@frettabladid.is
Sjómannaafsláttur:
Dapurt
innlegg
SJÁVARÚTVEGUR „Þetta útspil fjár-
málaráðherra er verulega dapurt
innlegg í aðdraganda kjaravið-
ræðna og til þess eins fallið að
draga stórlega úr möguleikum á að
sjómenn og útvegsmenn nái að
semja sín í milli,“ sagði Árni
Bjarnason, forseti Farmanna- og
fiskimannasambandsins.
Hann vísaði þar til yfirlýsinga
um afnám sjómannaafsláttar og
yfirlýsinga Geirs Haarde þar um á
nýliðnu þingi útvegsmanna. Sjó-
menn brugðust hart við, enda
segja þeir afsláttinn hluta af kjör-
um sínum og viðurkenningu á sér-
stöðu sjómannsstarfsins. ■
BRÉFIN SKRÁÐ
Svanbjörn Thoroddsen, forstjóri Medcare
Flögu, og Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallar Íslands, ganga frá skráningu
fyrirtækisins á aðallista Kauphallar Íslands.
Kauphöll Íslands:
Flaga fór
vel af stað
HLUTABRÉF Bréf fyrirtækisins
Medcare Flögu fengu góða byrjun
í Kauphöll Íslands. Bréfin voru
skráð á fimmtudag og þá gátu við-
skipti með þau hafist. Mikil eftir-
spurn var eftir bréfunum í útboði
til fagfjárfesta. Gengið í þeim við-
skiptum var sex krónur á hlut.
Verð bréfa Medcare Flögu hækk-
aði í átta, en lokaverð dagsins var
sjö krónur á hlut. Hækkun dags-
ins nemur því tæpum 17% yfir
daginn. Alls voru viðskipti með
bréfin 148 fyrir 235 milljónir
króna. ■
Stökur á Akureyri keyptu
Loðskinn á Sauðárkróki:
Eiga allan
iðnaðinn
SKINNAIÐNAÐUR Einkahlutafélagið
Stökur á Akureyri hefur keypt
allt hlutafé Loðskinns á Sauðár-
króki. Stökur eiga jafnframt
meirihluta hlutafjár í Skinnaiðn-
aði hf. á Akureyri og þar með all-
an skinnaiðnað í landinu.
Loðskinn Sauðárkróki var
stofnað árið 1999 af Búnaðar-
banka Íslands eftir gjaldþrot
samnefnds fyrirtækis. Yfirtók
bankinn þá eignir og rekstur
þrotabúsins og hefur rekið fyrir-
tækið sem skuldaskilaeign und-
anfarin ár. Ítrekað hefur verið
reynt að selja fyrirtækið, en án
árangurs, fyrr en nú.
Ormarr Örlygsson, fram-
kvæmdastjóri Skinnaiðnaðar á
Akureyri, hefur tekið við fram-
kvæmdastjórn Loðskinns.
Ormarr segir ekki ljóst
hvernig rekstri fyrirtækisins
verði hagað til framtíðar. Þó sé
ljóst að einhverjar breytingar
verði á starfseminni. Þær ættu
að liggja fyrir um miðjan næsta
mánuð. Um 40 manns vinna hjá
Loðskinni á Sauðárkróki. ■
VIÐSKIPTI Radisson SAS Hótel
Saga og Háskóli Íslands hafa
tekið upp samstarf sem felst í
því að hótelið tekur að sér alla
sölu- og markaðssetningu á
funda- og ráðstefnusölum Há-
skóla Íslands þann tíma sem
húsnæðið er ekki nýtt undir
kennslu eða aðra starfsemi. Um
er að ræða sex sali í Háskólabíói
og kennslustofur í Lögbergi og
Odda auk funda- og fyrirlestrar-
sala í hinu nýja Náttúrufræða-
húsi.
„Við teljum að samstarfið sé
báðum aðilum til góðs. Háskól-
inn fær betri nýtingu á húsa-
kosti sínum auk þess sem fag-
aðili sér um markaðs- og sölu-
starf jafnt innanlands sem
utan,“ segir Hrönn Greipsdóttir,
hótelstjóri Radisson SAS. ■
HOWARD OG BLAIR
Rúm þrjátíu prósent breskra kjósenda telja
Tony Blair hæfastan til að gegna embætti
forsætisráðherra en 27% vilja sjá Michael
Howard í embættinu.
SPEGILLINN
Starfsmenn Spegilsins hafa orðið fyrir einkunnagjöf útvarpsstjóra, sem uppnefnir þáttinn
Hljóðviljann. Formaður Starfsmannafélagsins segir að útvarpsstjóri eigi að standa með
sínu fólki þar til sannist að ávirðingar eigi sér stoð. Á myndinni er Helga Vala Helgadóttir
dagskrárgerðarmaður að störfum.
„Útvarps-
stjóri á að
standa með
sínu fólki þar
til eitthvað
sannast.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
LOÐSKINN
Eigendur Skinnaiðnaðar á Akureyri keyptu
allt hlutafé Loðskinns á Sauðárkróki í gær
og eiga þar með allan skinnaiðnað í land-
inu.
M
YN
D
/V
IG
G
Ó
Radisson SAS:
Samstarf við Háskólann
SAMSTARF UNDIRRITAÐ
Hrönn Greipsdóttir, hótelstjóri Radisson SAS, Páll Skúlason háskólarektor og Stefán Ólafs-
son, stjórnarformaður Háskólabíós.
FLEIRI Í MIÐGARÐ Fleiri nýta
sér þjónustu Miðgarðs, þjón-
ustumiðstöðvar Reykjavíkur-
borgar í Grafarvogi, nú en fyrir
tveimur árum ef mið er tekið
að þjónustukönnunum Gallups
fyrir borgina. Fyrir tveimur
árum sögðust 15,2% nýta sér
þjónustuna en 20,0% nú. 14,2%
segjast nýta sér þjónustu Vest-
urgarðs.