Tíminn - 09.09.1971, Blaðsíða 1
SAMVINNUBANKINN ÁVAXTA? «PARIFÉ YÐAJt
MEÐ HÆSTU VÖXTUK
SAMVINNUBAMKfK'W
Fimmtudagur 9. september 1971
Vöruskiptajöfnuðurinn
hagstæður í júlímánuði
En óhagstæð-
ur um 2.218
nfljónir
jan.-júlí 71
Ráðherramir, sem sátu rá'ðherra-
fund Norðurlandaráðs í Helsing-
fors í Fhmlandt f gaer. F. v. Ótaf-
ur Jóhannesson forsætisráðherra,
Kjell Olof Feldt viðskiptamálaráð-
herra Svíþióðar, Nybö Andersen
viðsklptamálaráðherra Danmerk-
ur, Per Kleppe viðskiptamálaráð-
herra Noregs og Kristian Gestrin
varnarmálaráðherra Finnlands.
(UPI-mynd)
Ráðherrafundur
Norðurlandaráðs
NTB—Helsingfors, miðvikud.
Umhverfisvernd, eitur-
lyfjavandamálið, samgöngumál
og iðnaðarmál voru meginefn-
in á fundi ráðherra frá öllum
Norðurlöndunum, sem komu í
dag saman til fyrsta norræna
ráðherranefndarfundarins í
Ilelsingfors.
Framhald á bls. 14.
fyrir 20 milljónir næsta vor
ÞÓ—Reykjavík, miðvikudag.
Sem kunnugt er af fréttum, hafa allmörg sveitarfélög á Austurlandi
lengi haft áhuga á að leggja olíumöl á götur í bæjunum fyrir austan.
Bergur Sigurbjörnsson viðskiptafræðingur, framkvæmdastjóri Sam-
bands sveitarfélaga á Austurlandi, sagði í viðtali við Tímann í dag, að
á fundi sambandsins, sem haldinn var á Reyðarfirði um sl. helgi, hafi
forráðamenn þeirra sveitarfélaga, sem áhuga liafa haft á olíumalarlagn-
ingu, komið saman til fundar. Á fundinum var ákveðið að leggja olíu-
möl á Austurlandi fyrir 20 milljonir næsta vor.
Það eru aðallega sjávarplássin
fyrir austan, sem ætla út í þessar
framkvæmdir næsta ár, og verður
olíumölin aðallega lögð í kringum
staði þar sem matvælaiðnaður fer
fram, eins og t.d. frystihús og
aðrar líkar stofnanir. í fyrstu var
hugmyndin að blanda olíumölina
fyrir austan, en þegar ekkert heppi
legt efni fannst í hana þar, hóf-
ust umræður milli sveitarfélag-
anna ag Olíumalar h.f. um kaup
á olíumöl að sunnan. Er nú
ákveðið að olíumölin verði blönd-
uð hér fyrir sunnan í vetur, en
næsta vor verður hún síðan flutt
.austur með skipi. Á skipið að
hafa lagningartækin að auki um
borð, verður komið við á öllum
■höfnum, þar sem leggja á olíu-
möl, og mölin og tækin sett í land.
Er búizt við að taka muni einn
Framhald á bls. 14
Síldarbátar
gefast upp
ÞÓ—Reykjavík, miðvikudag.
„Það finnst hverki pnnktur, al-
veg sama hvar leitað er,“ sagði
Sveinn Svexnbjörnsson leiðangurs-
stjóri á Árna Friðrikssyni í viðtali
við blaðið í dag. í nótt leituöu bát-
arnir ásamt Áma Friðrikssyni í
Breiðamerkurdjúpi, en það er eini
staðurinn fram til þessa, sem síld
hefur fengizt á.
Sveinn sagði, að nú væri komin
bræla á miðunum og bjóst hann
við, að þeir fáu bátar, sem á mið-
FramhaH á bls. 14
EJ—Reykjavík, miðvikudag.
Á tímabilinu janúar—júlí 1971
var vöruskrptajöfnuður íslands
óhagstæður um 2.21S.0 milljónir
króna — þrátt fyrir það að vöru-
skiptajöfnuðurinn í júlímánuði
væri hagstæður um 250 mUljónir.
Htfhitningur í júlí nam 1.622
miHj. fl.385.4 millj. í júlí 1970)
en iimflutningur 1.372:0 millj. (1.
237.1).
Irniflutrrntgur í janúar—julí
1971 nam 7S89S milfj. (7.269.1
millj. í fyxia) en innSutningurinn
nam 1O5107Í5 xnilij. (0.-886.7 millj.
í fyrra>). ffimx ðhagstæði vöru-
skiptajöfnuður fyxai helming
þessa árs statfær því fyrst og
Erandialö á bls. M.
Austfirðingar leggja olíumöl
Brezku sjónvarpsmennimir um borð í varðskipinu Þór í dag. Fremstir ræðast þeir við Penycate, framleið-
andi, og Taylor, fréttamaður. (Tímamynd GE)
BBC-menn kanna land-
helgis- og varnarmál
SJ—Reykjavík, miðvikudag.
Hér eru nú staddir fimm mcnn frá brezka sjónvarpinu BBC, í því
skyni fyrst og fremst að útbúa sjónvarpsefni, sem lýtur að landhelgis-
málinu og áformum ríkisstjórnarinnar um að bandaríski herinn verði
sendur burt, en einnig er hugsanlegt, að þeir taki hér upp annað sjón-
varpsefni. Þeir vonast til að fyrsta sjónvarpsmynd þeirra héðan verði
sýnd í Bretlandi í næstu viku.
Sjónvarpsmenn þessir starfa all-
ir við þáttinn „24 hours“, en 1
honum ér á hvei-ju kvöldi hálf-
tíma í senn, fjallað um ýms mál,
sem ofarlega eru á baugi í heirn-
inum. Yfirstjórnandi þáttarins
nefnist Peter Pagnaminta, en fast-
ir starfsmenn iim 40, en auk þess
vinnur fjöldi annarra starfsmanna
brezka sjónvarpsins á einn eða
anniu- hátt að honum. Þáttur
þessi nýtur vinsælda í Bretlandi
og venjulega horfa um 4—5 millj.
manna á hann, en stundum fleiri,
eða allt upp í 8 milljónir. Við get-
um því búizt við að almenningur
í Bretlandi verði stórum fróðari
um landhelgis- og vamarmál ís-
lands, ef starf brezku sjónvarps-
mannanna hér á lindi ber árang-
ur
Við áttum í gær tal við tvo
sjónyarpsmannanna, John Peny-
cate, framleiðanda og David Tay-
lor, fréttamann. Penycate kom
Framhald á bls. 14