Tíminn - 09.09.1971, Síða 5
FnWMTUDAGUR 9. september 1971
TIMINN
5
J£
MED MORGUN
KAFFINU
Tveir blaðanienn, sem leigðu
saman íbúð, keyptu flösku af
koníaki til að eiga, ef þeir
skyldu verða veikir.
„Mér líður hálf illa í dag“,
sagði annar þeirra nokkrum
dögum síðar. „Ég held, að ég
verði að fá mér glas af
koníaki“.
„Það er of seint', svaraði
hinn. „Ég var veikur allan dag-
inn í gær‘.
★
Vilhjálmhr Stefánsson land-
könnuður, gerði lítið að því að
vera spaugsamur eða fyndinn í
ritum sínum. Þó bregður stund-
um fyrir fyndni í hans alvar-
lega og látlausa frásagnarstil.
Vilhjálmur sagði i einni bók
sinni frá þjóðflokki á norður-
slóðum, sem hann hafði sér-
stakar mætur á fyrir siðferðis-
þroska og frábært mannúðar-
þel til allra manna.
Alkunnugt er, að frumstæðir
þjóðflokkar verða sérstaklega
flatir fyrir áfengi, þegar þeir
kynnast því fyrst.
í frásögn sinni um þjóðflokk
þennan sagði Vilhjálmur::
„Ég reyndi í lengstu lög að
forða þeim frá sambandi við
menningarþjóðirnar af hræðslu
við, að þær sendu honum brenni
vin og trúboða.“
□ £ N I — Marnrna hennar var alltaf að
segja „aumingja frú MitchcU".
DÆMALAU51Erum viðaujni'ig3ar?
Stöku börn verða frægari en
önnur. Hann Cri-Cri er einn
þessara frægu drengja, sem í
framtíðinni á varla eftir að
fletta svo tímariti, að hann rek-
ist ekki á mynd af sjálfum sér.
Þið, sem lesið Spegil Tímans,
hljótið því nú þegar að vita
hver Cri-Cri er. Hann er soni
ur þeirra , hjóna Mirju og
’Gunter 'ísac’Vis. HéÉ' hol'fð for:
eldrarnir á soninn, og faðirinn
segir: — Nú er ég hamingju-
samur, ég á fallegustu konu
heims, og stórkostlegt barn.
Gtinter mun leggja það í vana
sinn, að skipta um bleiur á
litla Cri-Cri, ef rétt er frá skýrt
í stórblöðum heimsins. Það
veldur honum heldur engum
vandkvæðum, því hann fór og
lærði til bleiuskiptinga áður
en sonur hans, Rolf, fæddist, en
sá er nú fimmtán ára. Þegar
Cri-Cri fæddist barst foreldr-
um hans heillaóskaskeyti frá
fyrrverandi eiginkonu föður
hans, Birgitte Bardot. í skeyt-
ínu stóð: — Kossar frá BB
til barnsins. Mirja var fyrir
SÉömmiCKéifha í Svíþjóð í heim
sókn hjá forejdrum sínum. Þá
gladdi hún sænska blaðalesend-
ur með því að skýra frá því, að
öll fötin hans Cri-Cri væru
keypt í Svíþjóð, og þaö ekki að
ástæðulausu. Sænsku barnaföt-
in væru fallegri, smekklegri og
vandaðri heldur en þau þýzku.
— ★ — ★ —
Karl Bretaprins fór fyrir
skömrnu í smáflugferð í flugvél,
sem flýgur hraðar en hljóðið.
Hann lagði sig fram um að
fljúga hvað eftir annað sem
allra næst höll frænku sinnar,
Margrétar, og sagði um leið: —
Vonandi fær hún nú reglulegt
taugaáfall, svona einu sinni.
— ★ — ★ —
Kóka-kóla er tákn um heims-
valdastefnu og kapítalisma. í
tvö ár hefur verið bannað að
tappa kókakóla á flöskur í
Tékkóslóvakíu, en nú hefur
það verið leyft á ný. Þó er það
einungis til sölu fyrir erlenda
ferðamenn. Bannað var að
selja kókakóla nokkru eftir að
Dubcek var vikið frá, en árið
1969 á meðan hann réð ríkjum
í Tékkóslóvakíu. hafði tekizt'
samkomulag með framleiðend
um kókakóla í Fandaríkjunum
og framleiðendum gosdrykkia
í Tékkóslóvakíu um, að drykk-
urinn yrði framleiddur þar úr
erlendum hráefnum. Eftir að
framleiðsla er nú hafin á nýj-
an leik, þótt hún sé einungis
ætíuð útlendingum. kostar
flaskan um 25 kr., sehi mun
vera fjórfalt vcrð svipaðs
drykkjar, sem er tékkneskur.
og sagður eftirlíking hins kapít-
alíska kóks.
Það fór svo að Tina Onassis j
gifti sig og það manni, sem fað j
ir hennar þekkti ekki og hefði !
aldrei samþykkt, að hún gift- j
ist. Tína er 20 ára, og eiginmað j
urinn er 27 árum eldri, verð- j
bréfasali að nafni Joseph J
Bólker. Hjónavígslan fór fram j
í Las Vegas, og þar var enginn *
viðstaddur úr fjölskyldu brúð- ;
arinnar. Dómarinn, sem fram- j
kvæmdi hjónavígsluna, Carl j
Christensen, vissi ekkert hvaða j
fólk hann átti að gifta fyrr en j
það stóð fyrir framan hann, og |
með brúðhjónunum var hálf j
tylft gesta, en eins og fyrr seg- |
ir, enginn úr Onassis-fjölskyld- j
unni. Ari Onassis er ekki ánægð j
ur með þetta hjónaband, en það j
þýðir ekki að mögla úr þessu. j
Sumir halda því fram, að Tina j
hafi aðeins gifzt Joseph til þess j
að gera eitthvað á móti föður J
sínum, og aðrir segja að hún, j
og sömuleiðis bróðir hennar !
Alexander, sem lengi hefur j
verið í slagtogi við þýzka baron- j
essu, hafi bæði leitað sér fé- j
laga, sem líktust föður og móð- '
urhugmynd þein-a, því bæði j
fóru þau mjög á mis við um- j
hyggju foreldra sinna í upp- !
vextinum. Annars er Tína {
hreint og beint sauðþrá, og ef j
til vill hefur hún með þessu j
hjónabandi viljað sýna öllum j
furstunum, prinsunum og greif- !
unum, sem hafa elt hana á !
röndum vegna væntanlegs biilj- j
ónaarfs, að henni stæði gjörsam j
lega á sama um þá alla. En Það j
er um billjónirnar eða trilljón- !
irnar að segja, að Ari veltir því j
nú fyrir sér, að því er sagt er, j
hvort hann ætti ekki að gera j
Tinu arflausa, en enginn veit j
hvað framtíðin ber í skauti sér, =
hvorki fyrir hana né nokkurn j
(IIHMMnUltllltlMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIItlllMUIimillUlUIMIIMIIIIIIIIIIHtllllllllllMllimiUli