Tíminn - 09.09.1971, Blaðsíða 7

Tíminn - 09.09.1971, Blaðsíða 7
a*~V- x FHVIMTlTDA'GtTR 9. september 1971 TIMINN Á fjórða hundrað manns hafa látizt í flóðum og skriðum NTB-DeíÆ og Tólcíó, miðvikudag. Yfir 300 marrns hafa látiS lífið í flóðum í Uttar Pradesh í Norður-fndlandi. K> þúsund manns hafa flúið heimili sín. f bafuðborgrrmn Lucknow eru mörg hundruð manns einangr- uð vegna vatnsins. Þá hafa afð minnsta lcosti 55 manns látið lífið í Japan af volduro skrfiSufalta, sem fellibylurinn „Wirginia" kom af sr hann íór yftr Kyrrahafsströndina í dag. ForsæíSsraðherra IJttar Pradesh | skýra frá flóðunum í landinu. Gom- héSt MaðamaiHiafTmd í dag, til að | ati-áin flæddi yfir bakka sína, þeg- ar yfirborð hennar hækkaði um 3 metra umfram hættumerkið. Út- varpið í Nýju Delhi sagði í dag, að um 10 þúsund manns hefðu flú- ið heimili sín og um helmingur af 650 þúsund íbúum höfuðborgarinn- ar, Lucknow, eiga í erfiðleikum vegna vatnsflaumsins. Fjöldi manna vann að því í borg inni í dag, að verja vatnsból henn- ar, og var það erfitt verk, enda ausandi rigning. Borgin má heita klofin í tvennt vegna flóðanna og eru hundruð manna einangruð •í öðrum helmingnum. Metradjúpt vatn er á aðaltorgi borgarinnar. Frá Tókýó berast þær fréttir, að yfir 55 manns hafi farizt i skriðu- föllum og óttazt er, að þeir 50, sem grófust undir, séu ekki allir lengur á lífi. Auk þeirra er 5 manna saknað. Þetta varð á Kyrrahafs- strönd Japans, eftir að fellibylur- inn „Virginia" fór þar yfir í dag. Geysileg rigning fylgdi í kjölfar fellibylsins og þegar verst lét, rigndi 12 sentimetra á klukkustur.d. Alls munu hafa fallið 29 skriður, stórar og smáar. Ein þeirra stærri féll á fjölbýlishús og þar var Það, sem 55 manns fórust. Fellibylur- inn sjálfur olli ekki tjóni, aðeins rigningin í kjölfar hans, sem siðan orsakaði skriðurnar. 26% ÞJOÐARFRAMLEIÐSLU ÍSRAEL TIL HERMÁLA EJ—Reykjavík, þriðjudag. Birt hefor verið í Bretlandi skýrsla um útgjöld hinna ýmsu þjóða heims fil herna'ðar. Þar kemur m. a. fram, hve stórum hluta þjóðarframleiðslunnar hinar ýmsu þjóðir veita til hernaðar, og reyndist fsrael vera þar efst á blaði, með 26,5%. Öniœr rflri í Mið-Austurlönd- um eyða einnig miklum hluta þjóðarframleiðslunnar til hem- aðarþarfa. Þannig eyðir Egypta- land um 19,6%, Jórdanía 16,4%, Sýrland 12,1%, írak 9,4% og Ir- an 74 af hundraði þjóðarfram- leiðslunnar til hemaðar. Kinverska alþýðulýðveldið og Formósa eyða einnig mjög veru- legum úpphæðum til hernaðar- þarfa, eða 9,5% og 8,8% hlut- fallslega. Tölumar varðandi varðandi Kínverska alþýðulýð- veldið eru þó óvissar. Risaveldin tvö nota að sjálf- sögðu mjög verulegar fjárhæð- ir til hemaðar, Sovétrflrin um 11% og Bandarflrin um 7,8% af þjóðarframleiðslunni. Meðal Varsjárbandalagsríkj- anna kemur A-Þýzkaland næst á eftir Sovétríkjunum me'ð 5,9%, þá Tékkóslóvakía með 5,8%, Pólland með 5,2%, Rúm- enía og Ungvcrjaland með 3,5% og Búlgaría me'ð 3,1%. Af NATO-ríkjunum kemur Portúgal næst á eftir Banda- ríkjunum með 6,5%, Bretland Vill gera 1. janúar að umhverfisdegi NTB—Osló, iniðvikudag. Þeir, sem leið eiga um mið- borg Oslóar frá deginum á morgun geta rekizt þar á 24 ára Bandaríkja mann, sem situr þar einhvers stað- ar og safnar undirskriftum við á- skorun til Sameinuðu þjóðanna um að hefja 1. jan. nk. alheimsherferð gegn mengun, scm staiida skuli í eitt ár. Maðurinn heitir Thomas Fland- ern og var eitt sinn þjóðlagasöngv- ari. Hann hóf pílagrimsferð sína gegn mengun í marz í ár. og hefur víða fengið góðar viðtökur. Fyrst fór hann til Norður-írlands og Bretlands, þá til Hollands og Dan- merkur og nú er hann kominn til Noregs. I Osló verður hann nokkra aaga, en síðan er ferðinni heitið til Kristiansands og þaðan til Finnlands. og Grikkland með 4,9% hvort land, Frakkland me‘ð 4% og V- Þýzkaland með 3,3%, Noregur með 2,9%, Danmörk með 2,3%, Luxemborg með 0,9% ög ísland er ekki meðtalið. Af hlutlausum ríkjum í Evr- ópu veitir Svíþjóð mest til her- mála, eða 3,7% af þjóðarfram- leiðslunni, sem gerir 1146 millj. Framhald á bls. 14 Tveir piltar brutust inn á sjúkrahús og myrtu þar móður sína NTB-Kaupmannahöfn, miðvikudag. Tveir ungir menn brutust í nótt inn á sjúkrastofu á Roskilde-sjúkrahúsinu í Danmörku og urðu fársjúkri móður sinni, sem þar lá, að bana. Piltarnir, sem eru 19 og 26 ára, fengu leyfi til að vera á sjúkrahúsinu í nótt, vegna þess að móðir þeirra var svó veik. Um tvöleytið í nótl kom hjúkrunarkonan að þeim, þar sem þeir voru komnir inn á sjúkrastofuna og höfðu gefið móður sinni sprautu af ban- vænu efni. Hún lézt skömmu síðar. Eitrið höfðu piltarnir tekið með sér. Synirnir hafa sagt við yfir- heyrslqr, að mó'ðir þeirra hafi þjá'ðst í mörg ár af hræðileg- um sjúkdómi og þeir hafi Framhald á bls. 14 Viðræður Breta og Möltu hafa siglt í strand NTB—Valetta, miðvikudag. Stjórn Möltu tilkynnti seint í gærkvöldi, að héðan í frá fengju erlendar herstöðvar á eynni ekki tóllfrjálst eldsneyti, vegna þess að samningaviðræður um fjár- hagsaðstoð frá Brctlandi eru sigldar í strand. Þetta mun fyrst og fremst koma niður á flugvélum Breta, sem þeir hafa staðsett á Möltu. Sumar þessara flugvéla eru not- aðar til að fylgjast með' ferðum sovézkra herskipa á Miðjarðar- hafi. Tilkynning þessi kom óvænt, því flogið hefur fyrir, að samn- ingaviðræður við Breta væru í þann veginn að bera árangur. Stærsta olíuskip heims í jómfrúarferð NTB—Tókýó, miðvikudag. Stærsta tankskip í heimi, Nisseki Maru, fer jóinfrúarferð sína í dag. Skipið, sem er 372, 400 lestir, er smíðað í Tókýó. Mcðal áhafuarinnar eru fjórar stúlkur. Ekki er nema 35 manna á- höfn á þessu skipi og sóttu fleiri hundruð manns um pláss. Meðal þeirra, sem urðu fyrir valinu sru fjórar stúlkur. í skipinu eru margar töh’ur. Alls kostaði það dálítið á þriðja milljarð. Lengd skipsins er 347 metrar ög breiddin 94,5 metrar. Skipið á á næstunni að fara níu ferðir milli Japan og Persa- flóa með olíu. Hraði þess er 14,5 hnútar og hestöflin eru alls 10 þúsund. GETRAUN VINNINGUR 1. Hvaða tíma er sýningin opin? □ Állan sólarhringinn. IZJ ri. 14^22. O Af og til. 2. Hvað stendur sýningin lengi? O Til 19. sept. 19. □ Til 12. O Fram að sept. jólum. □ □ □ □ 4. □ P □ Hver er 'happdrættisvinningurinn sem dregið er um á hverjum degi í Gestahappdrættinu? Mallorka ferð fyrir þrjá. Hringferð, Gullfoss, Geysir, Laugavatn með Olafi Ketilssyni. Flugferð til Astralíu og ekki til baka. Umhverfis' island á einum degi með. Flugfélagi Islands. A hvaða dögum eru tizkusýningarnar? Merkið seðilinn með nafni og heimilisfangi setjið x i reitinn við rétt svör, klippið seð'ilinn út og skilið honum í kassa við innganginn I Laugardalshöllina fyrir kl'. 9 annað kvöld, bví þá verður dregið úr réttum seðlum. Vinningur : Flugferð til London með BEA . A Öllum virkum dögum. Laugardögum og sunnudögum. Tyllidögum;

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.