Tíminn - 09.09.1971, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 9. september 1971
TÍMINN
9
Otgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
•'r-mkvæmclastjórl- Krlstján Benediktsson Ritstjórar: Þórarlnn
Þórarinsson láb) Jón Helgason. lndriöi G. Þorsteinsson og
l'ómas Karlsson Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason Rit.
stjórnarskrlistofur t Edduhúslnu simar 18300 - 18306 Skrif-
stotur Bankastræti 7 — Afgreiðsluslmi 12323 Auglýsingaslml:
10523 AOrar skrifstofur simi 18300 Askriftargjald kr UJ5.00
i mánuSi innanlands t lausasölu kr 12.00 elnt - Prentsm
Edda hf
r..
fi JIM HOAGLAND
Stjórnmálaleiötogar
hefja harðar deilur
í Zambíu
innbyrðis
Breytingar á verð-
lagningu búvöru
ÞaS er ljóst, eftir nýlokinn aðalfund Stéttarsambands
bænda, að fyrir dyrum stendur víðtæk breyting á lög-
unum um framleiðsluráð landbúnaðarins, þar sem m.a.
er að finna ákvæðin um verðlagningu landbúnaðarvara.
Höfuðatriði núgildandi verðlagningarákvæða er það, að
sexmannanefnd, skipuð fulltrúum framleiðenda og neyt-
enda, semja um verðið, en nái hún ekki samkomulagi,
skeri gerðardómur úr. Þetta fyrirkomulag gafst vel um
talsvert skeið, en hefur verið í reynd óvirkt síðustu árin,
því að samtök þau, sem áttu að tilnefna fulltrúa neyt-
enda, hafa skorazt undan að gera það, og ríkisstjórnin því
tilnefnt fulltrúa 1 stað þeirra. Sú skoðun hefur því rutt
sér til rúms, að eðlilegt sé, að bændur semji um verðið
beint við ríkisvaldið, eins og gert er víða annars staðar.
En jafnhliða því, sem óhjákvæmilegt er að breyta
ákvæðum um verðlagningu afurðanna af framangreind-
um ástæðum, er eðlilegt, að ýms önnur mikilvæg atriði
varðandi þessi mál, verði tekin til endurskoðunar.
Á áðurnefndum aðalfundi Stéttarsambands bænda,
var fallizt á það sjónarmið, að ríkisvaldið yrði viðsemj-
andi við bændur um verðlagsmálin í stað fulltrúa neyt-
enda. Jafnhliða lagði fundurinn áherzlu á eftirgreind
atriði:
1. Að bændum verði í sambandi við umrædda laga-
breytingu tryggðar sambærilegar tekjur við aðrar
vinnandi stéttir.
2. Að fé því, sem varið er til niðurborgana á bú-
vöruverði, sé veitt að meira eða minna leyti til lækk-
unar á stofn- og rekstrarkostnaði og lækki þannig
búvöruverðið.
3. Að athugað verði, hvort hægt sé með hreyfanleg-
um skatti á innflutt kjarnfóður, að hafa áhrif á fram-
leiðslumagn búsafurða með tilliti til markaðsskilyrða.
4. Að reynt verði að tryggja fjármagn til jöfnunar
á aðstöðu þeirra byggðarlaga, sem við erfiðust fram-
leiðsluskilyrði búa.
5. Að útflutningsuppbætur verði tryggðar í eigi
minna hlutfalli við heildarverðmæti landbúnaðarfram-
leiðslunnar en fellst í núgildandi lögum.
Þetta eru þau meginatriði, sem aðalfundurinn lagði
áherzlu á í sambandi við endurskoðun umræddra laga,
og verður ekki annað sagt en hér sé mörkuð hyggileg
og ábyrg stefna. Ákveðið var að kalla saman aukafund
Stéttarsambandsins strax og endurskoðun laganna væri
lokið.
Byggöalög í hættu
Nýlokinn aðalfundur Stéttarsambands bænda lagði
sérstaka áherzlu á, að hraðað yrði gerð byggðaáætlana,
einkum þar sem byggð er talin ótrygg. í því sambandi
minnti fundurinn sérstaklega á það. að sumar sveitir og
byggðalög á Vestfjörðum eigi á hættu að leggjast í eyði
sökum ýmissa erfiðleika.
í þessu sambandi benti fundurinn á. að taka ætti til
athugunar, auk skipulegrar kvikfjárræktar, hugsanlegt
fiskaeldi. aukna nvtingu hlunninda o.s.frv. Þá bæri að
stuðla að bví. að miólkurframleiðsla á Vestfiörðum verði
ævinlega til að fullnægja mjólkurneyzlu þar.
Þessa ábendingu aða’funda'- Stéttarsambandsins
verða þing og ríkisstjórn að taka fljótt til greina. — Þ.Þ.
Gamall samherji Kaunda gerist keppinautur hans.
TENINGUNUM var kastað
þegar stjórnmálamaðurinn
Simon Kapwepwe tilkynnti, að
hann ætlaði að stofna nýjan
stjórnmálaflokk til þess að
keppa við fyrrverandi sam-
herja sinn, Kenneth Kaunda
forseta Zambíu. Við þessu
hafði verið búizt um skeið,
enda var eftir því tekið um
alla sunnanverða Afríku.
Kapwepwe var um langt
skeið samherji Kaunda og eitt
sinn varaforseti. Vinslit þeirra
eiga rætur að rekja til hat-
rams kynþáttametings, sem
mjög grunnt er á í Zambíu
og mörgum öðrum ríkjum í
Afríku.
Þetta gæti einnig haft .nikil
áhrif á hin margslungnu kyn-
þáttamál í sunnanverðri álf-
unni, en þar hefir Zambía lykil
aðstöðu. Mörgum hafði að und
anförnu þótt sem Kaunda for-
seti gerðist til muna friðsam-
ari en áður í garð grannríkj-
anna, þar sem minnihluti
hvítra manna fer með völd.
NÚ á Kaunda allt í einu
við-harf'ari samkeppni að etja
en ^áður í stjórnmálum. Af
þeim sökum kann hann að
verða knúinn til að gerast að
nýju herskárri í orðastríðinu
við portúgölsku Angóla, Moz-
ambique, Rhódesíu og Suður-
Afríku, að minnsta kosti ef
Kapwepwe lætur til sín taka
á þeim vettvangi.
Zambía er mikilvægari efna
hagslega en flest önnur Afríku
ríki. Hún er þrioja mesta eir-
vinnsluland í heimi. næst á
eftir Bandaríkjunum og T >vét-
ríkjunum.
7 mbaí hét Norður-Rhódesía
ir/ n hún var nýlenda Breta
og Kapwepwe og Kaunda voru
voldugustu leiðtogarnir meðal
þjóðarinnar þegar landið öðl-
aðist sjálfstæði árið 1964. Þeir
hafa fjarlægzt smátt og smátt
undangengin tvö ár.
KAPWEPWE sagði fyrir
skömmu af sér lítilvægu ráð-
herraembætti, sem Kaunda for
seti skipaði hann í í október í
fyrra og tilkynnti í Lusaka síð-
ast í ágúst, að hann ætlaði að
stofna Sameinaða framfara-
flokkinn til þess að berjast
gegn forsetanum í stjórnmál-
um.
Fregnir, sem bori hafa til
Naii'obi, herma, að í odda hafi
endanlega skorizt. þegar for-
setinn hafnaði þeirr' kröfu
Kapwepwe að „hreinsun" færi
fram í ríkistjórninn: og ungir
og betur þjálfaðir m"nn væru
látnir taka við af gömlum emb
ættismönnum, sem fengið
höfðu ábvrgðarstoður að laun
um fyrir góða frammistöðu
sjálfstæðisbaráttunni.
Ekki hnfur komið til veru-
legra vandræða í stiórnmáh'm
íandsins við úrsögn Kapwepwe
úr ríkisstjórnim.i Þykir það
benda til, að sú ákvörðun
Kaunda hafi mælzt mjög vei
Simon Kapwepwe
fyrir, að láta alþjóðamál minna
til sín taka en áður og reyna
í þess stað að treysta aðstöð-
una betur inannlands.
i í * ^RÍíWotr-
jíAUNDA forseti var kjör-
inn formaður Einingarsamtaka
Afrikjuríkja í fyrra og tók sér
þá ferð á hendur til höfuð-
borga vesturlanda til þess að
reyna að afla stuðnings í bar-
áttu Afríkuríkja gegn stjórn-
inni í Suður-Afríku. Hann var
einnig kjörinn forseti ráð-
stefnu hlutlausra ríkisleiðtoga,
sem stjórn Zambíu efndi til í
september í fyrra. Sumir sam-
herjar Kaunda létu jafnvel að
því liggja, að hann hefði f
hyggju að reyna að keppa að
því að verða kjörinn eftirmað-
ur U Thants sem framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna.
Sagt er, að Kaunda hafi orð-
ið fyrir miklu áfalli í janúar í
vetur, þegar vini hans, Milton
Obote forseta í Uganda, var
steypt að stóli. Ríkið varð einn
ig fyrir miklu áfalli fjárhags-
iega, þegar heimsmarkaðsverð
á eir tók að falla og jarðhrun
lokaði einni af auðugustu nám-
unum í landinu.
SAMBÚÐ Zambíu við ná-
grannaríkin er einatt mjög mis
vindasöm .Kaunda getur leyft
sér að vera herskár þegar fjár-
hagsaðstaða ríkisins er hag-
stæð. Þegar harðnar í ári fjár
hagslega gerist hann aftur fri?
samari í garð grannríkjanna,
sem búa við stjórn hvíts minni
hluta. en Zambía á mest sam-
an við "'au að sælda í efna-
hagsmálum.
Til dæmis tilkynnti stjórn
Zambíu ''yrir nokkrum vikum.
að hún hefði í hyggju að flytja
inn 75 þúsund smálestir af
korni frá Rhódesíu, en áður
hefði verið að því stefnt að
hætta viðskiptum við Rhóde-
síumenn. Svo stendur á, að upp
skerubrestur hefur orðið hjá
kornræktarbændum í Zambíu
í sumar, þriðja si larið í röð.
TILKYNNINGIN um þessi
viðskipti var birt í sömu vik-
unni og Kaunda lét loka há-
skóla Zambíu og vísa úr landi
tveimur háskólakennurum,
sem höfðu stutt stúdenta til
mótmæla við skrifstofur
franska sendiherrans í Lusaka
í tilefni af byí, að Frakkar
tilkynntu um mikla vopnasölu
til Suður-Afríku.
Kaunda hafði staðið í þeirri
trú, að honum hefði tekizt í
fyrra að fá Frakka til að fall-
ast á að hætta við vopnasölu
til Suður-Afríku. En nú bann-
aði hann mótmælaaðgerðir við
sendiráð Frakka og fór væg-
um gagnrýnisorðum um vopna-
söluna.
Stjórn nágrannarikisins, Mal
awi hefur vinsamleg samskipti
við þau ríki sem hvítur minni-
hluti stjórnar. Sagt er, að
stjórn Zambíu hafi undan-
gengna mánuði haft mun vin-
samlegri samskipti við stjorn
Malawi en áður.
Kapwepwe hefur haft orð
fyrir eindregna andstöðu gegn
stjórn hvítra manna, en hann
hefur ekki beinlínis ráðizt
gegn Kaunda fyrir stefnubreyt-
ingu hans í utanríkismálum.
Hann hefur raunar lýst stefnu
sinni í einstökum atriðum síð-
an að hann sagði skilið við
Kaunda forseta, enda vakti for-
setinn sérstaka athygli á þessu
í hvassyrtri ræðu föstudaginn
27. ágúst, þar sem hann réðist
harkalega gegn Kapwepwe.
KAPWEPWE mun einkum
treysta á ættflokk sinn, Bemba
ættflokkinn, í stjórnmálabar-
áttunni, en sá ættflokkur er
fjáðari en aðrir ættflokkar í
landinu. Menn af þessum ætt-
flokki gegna flestum störfum
í „eirbeltinu“, eins og námu-
svæðið er að jafnaði nefnt.
Stjórnmálamenn af ættflokki
Bemba hafa haldið því fram
opinberlega, að ríkistjóm
Kaunda beiti ættflokkinn mis-
rétti. Þessar ásakanir virtust
ætla að valda stjórnmálaerfið-
leikum í apríl í vor, en þá kom
Kapwepwe til liðs við Kaunda
og hvatti forustumenn ætt-
flokksins til að sýna þolin-
mæði.
Kaunda hefur, sfðan í vor,
vikið frá störfum eða refsað
allmörgum mönnum af Bemba-
ættflokki fyrir -.neint brot, en
látið ýmsa menn af öðrum ætt-
flokkum, halda stö-fum, sem
Kapwepwe telur óverðugri en
þá Bemba, sem refsingu hlutu.
Kaunda er af fámennum ætt-
flokki og því ekki verulega
l.áður hinni miklu ættflokka-
hollustu, sem eerir öðrum
stjórnmálaleiðtogum í Zambíu
afar erfitt um vik. Hann hefur
hvað eftir annað kallað ætt-
flokkahollustuna ,sjúkdóm“.
og fjölyrt um nauðsynina é að
kveða niður „sauruga og aun-
virðilega glæpahringa ættflokk
ann;.“.
*
|
:
%a
msmBMum