Fréttablaðið - 27.01.2004, Síða 24
24 27. janúar 2004 ÞRIÐJUDAGUR
MEÐ AUGUN Á BOLTANUM
Brasilíumaðurinn Adriano lék sinn fyrsta leik
með Internazionale Milano um helgina.
Fótbolti
hvað?hvar?hvenær?
24 25 26 27 28 29 30
JANÚAR
Þriðjudagur
Enska bikarkeppnin:
Arsenal mætir Chelsea fjórða árið í röð
FÓTBOLTI Bikarmeistarar Arsenal
mæta Chelsea í bikarkeppninni
fjórða árið í röð. Arsenal vann 3-1
á Stamford Bridge í fyrra eftir
2-2 jafntefli á Highbury og 2-0 í
bikarúrslitaleiknum árið 2002.
Arsenal vann einnig 3-1 í leik fé-
laganna á Highbury í 5. umferð
keppninnar árið 2001. Chelsea,
sem hefur aldrei sigrað í bikarleik
á Highbury, hefur ekki unnið
Arsenal í bikarkeppninni síðan
1947.
Arsenal keppir að sigri í bikar-
keppninni þriðja árið í röð en ekk-
ert félag hefur afrekað það síðan
Blackburn Rovers sigraði árin
1884 til 1886. Arsenal er ósigrað í
síðustu sextán bikarleikjunum en
félagið tapaði síðast þegar það lék
til úrslita við Liverpool árið 2001.
Manchester City fær útileik
gegn Manchester United í næstu
umferð, sigri félagið Tottenham í
aukaleiknum eftir viku. United
hefur sigrað í síðustu þremur bik-
arviðureignum erkifjendanna en
City vann United síðast í bikarleik
árið 1955.
Liverpool leikur við Ports-
mouth á heimavelli. Félögin hafa
aðeins einu sinni áður mæst í bik-
arkeppninni en Liverpool sigraði í
vítakeppni eftir tvo jafnteflisleiki
í keppninni árið 1992.
Það kemur í ljós eftir viku
hvort West Ham leikur við Ev-
erton eða Fulham í næstu umferð.
West Ham hefur ekki tapað fyrir
Everton í bikarnum síðan 1957 og
ekki fyrir Fulham síðan 1958. ■
Auka samkeppn-
ina í hópnum
Guðmundur Karlsson að auka þurfi samkeppnina í íslenska hópnum og
vinna í varnarleiknum fram að Ólympíuleikunum í sumar.
HANDBOLTI „Það hefur aldrei hent-
að okkur að skrúfa upp vænting-
arnar fyrir stórmót. Það hefur
hentað okkur betur að koma á
óvart með keppnisskapi og leik-
gleði,“ sagði Guðmundur Karls-
son, þjálfari Íslandsmeistara
Hauka árið 2000. Guðmundur tel-
ur að væntingarnar sem liðið
byggði upp fyrir mót hafi orðið til
þess að það mætti stressað til
leiks gegn Slóvenum. „Við köstuð-
um frá okkur því sálfræðilega
forskoti sem við höfðum. Við vor-
um jafn stressaðir og Slóvenarn-
ir.“
„Nýtingin í leikjunum við Sviss
var misjöfn. Ólafur Stefánsson
átti misjafna leiki og Patrekur Jó-
hannesson og Dagur Sigurðsson
voru ekki í formi til að nýtast okk-
ur. Í fyrsta leiknum gegn Sviss
lentum við í mótlæti og brotnuð-
um við það,“ sagði Guðmundur
þegar hann var spurður hvort
hann hafi séð fyrir útkomuna á
EM í Slóveníu.
Leikur liðsins byggði á fáum
mönnum en Guðmundur bendir á
að Íslendingum hafi gengið vel á
undanförnum tveimur stórmótum
og í þannig stöðu sé oft erfitt að
breyta til. „Við eigum fáa heims-
klassaleikmenn og því er eðlilegt
að við byggjum á Ólafi Stefáns-
syni og samvinnu hans við Sigfús
Sigurðsson. En mér fannst vanta
áræði að breyta til. Patrekur Jó-
hannesson og Dagur Sigurðsson
voru ekki í leikformi og því var
ekki rétt að skilja Loga Geirsson
og Arnór Atlason eftir heima. Eft-
ir fyrsta leikinn hefði verið eðli-
legt að hvíla Guðjón Val Sigurðs-
son og láta hann vinna sig inn í lið-
ið að nýju. Logi hefði getað fengið
að spreyta sig þá.“
„Ólafur virkaði þreyttur og var
laminn frá og með fyrstu mínútu.
Ég hefði viljað sjá Ásgeir Örn
Hallgrímsson koma fyrr inn í
mótið. Hann hefði getað leyst Ólaf
af og hefði getað leikið í bakverð-
inum í vörn og Ólafur í horninu.“
„Það hefði verið betra að prófa
að breyta til í fyrstu tveimur
leikjunum. Dagur var ekki að
leika vel þó hann hafi gjarnan vilj-
að gera vel en Ragnari Óskarssyni
er enginn greiði gerður með að
koma inn í þriðja leikinn og eiga
að breyta öllu.“
Guðmundur Karlsson er ekki
svartsýnn á framhaldið og bendir
á þrennt sem landsliðsþjálfarinn
mætti vinna með fram að Ólymp-
íuleikunum. Hann segir að það
þurfi að byrja á ástandsgreinigu
og skoða hvað fór miður, og hvers
vegna, og hvað gekk vel. „Það
þarf að fríska upp á hópinn og
auka samkeppnina. Við megum
ekki eyrnamerkja leikmönnum
stöður í liðinu. Við þurfum að
vinna í varnarleiknum fram að
Ólympíuleikunum og eigum að
reyna að púsla liðið í kringum
Ólaf með nýju stjörnunum okkar
eins og Loga Geirssyni og Arnóri
Atlasyni. Handboltinn er þeirra
viðfangsefni númer eitt og þeir
eru á leið út í atvinnumennskuna.
Þeir eiga að mínu viti heima í
sextán manna hópnum.“ ■
ÆTLA TIL AÞENU
Svíar hafa lýst því yfir að sæti á Ólympíu-
leikunum í sumar sé meginmarkmið þeirra
á Evrópumótinu. Svíar keppa við heims-
meistara Króata í dag.
EM Í HANDBOLTA
Leikir í milliriðlum
I. riðill, leikið í Celje
Leikir í dag
15.00 Rússland - Danmörk
17.00 Svíþjóð - Króatía
19.00 Sviss - Spánn
Leikir á morgun
15.00 Rússland - Spánn
17.00 Sviss - Króatía
19.00 Svíþjóð - Danmörk
Leikir á fimmtudag
15.00 Svíþjóð - Spánn
17.00 Sviss - Danmörk
19.00 Rússland - Króatía
Rússland 2 2 0 0 58-47 4
Króatía 2 2 0 0 56-54 4
Svíþjóð 2 1 0 1 62-54 2
Danmörk 2 1 0 1 49-46 2
Spánn 2 0 0 2 49-54 0
Sviss 2 0 0 2 44-63 0
2. riðill, leikið í Ljubljana
Leikir í dag
15.30 Slóvenía - Serbía/Svartfjallaland
17.30 Ungverjaland - Frakkland
19.30 Tékkóslóvakía - Þýskaland
Leikir á morgun
15.30 Slóvenía - Þýskaland
17.30 Tékkóslóvakía - Frakkland
19.30 Ungverjaland - Serbía/Svartfjal.
Leikir á fimmtudag
15.30 Ungverjaland - Þýskaland
17.30 Tékkóslóvakía - Serbía/Svartfjall.
19.30 Slóvenía - Frakkland
Ungverjaland 2 1 1 0 59-54 3
Slóvenía 2 1 1 0 66-62 3
Frakkland 2 1 1 0 52-49 3
Serbía/Svartfj. 2 1 0 1 48-49 2
Þýskaland 2 0 1 1 55-57 1
Tékkóslóvakía 2 0 0 2 58-67 0
Tvö efstu lið hvors riðils leika í undanúr-
slitum á laugardag. Úrslitaleikur og leikur
um þriðja sæti fara fram á sunnudag.
Frakkar, Króatar, Íslendingar, Rússar,
Spánverjar, Ungverjar og Þjóðverjar hafa
tryggt sér þátttökurétt á Ólympíuleikun-
um í Aþenu í sumar. Aðrar þjóðir keppa
um eitt laust sæti á leikunum. ■
LEIKIR
19.15 ÍBV og Fram keppa í Eyjum í
RE/MAX-deild kvenna í hand-
bolta.
SJÓNVARP
15.05 Trans World Sport (Íþróttir
um allan heim) á Stöð 2. Kraft-
mikill þáttur um allt það nýjasta í
heimi akstursíþrótta.
17.15 Motorworld á Sýn. Rallíbílar,
kappakstursbílar, vélhjól og ótal
margt fleira. Fylgst er með gangi
mála innan og utan keppnis-
brauta og farið á mót og sýningar
um allan heim.
17.45 Olíssport á Sýn. Fjallað er um
helstu íþróttaviðburði heima og
erlendis.
18.15 Gillette-sportpakkinn á Sýn.
18.45 Trans World Sport (Íþróttir
um allan heim) á Sýn.
19.35 Enski boltinn á Sýn. Bein út-
sending frá síðari leik Aston Villa
og Bolton Wanderers í undanúr-
slitum deildabikarkeppninnar.
22.00 Olíssport á Sýn. Fjallað er um
helstu íþróttaviðburði heima og
erlendis.
22.30 Heimsbikarinn á skíðum á
Sýn. Nýjustu fréttir af framgöngu
skíðamanna á heimsbikarmótum.
23.00 Supercross (Edison
International Field) á Sýn. Nýjustu
fréttir frá heimsmeistaramótinu í
Supercrossi.
Michael Schumacher:
Ég er tilbúinn
FORMÚLA 1 „Ég er tilbúinn, við
erum tilbúnir fyrir nýja keppni og
nýtt tímabil,“ sagði Michael
Schumacher, sexfaldur heims-
meistari í Formúlu 1, þegar Ferr-
ari-liðið kynnti nýjan bíl í gær.
Schumacher þótti frekar fá-
máll við kynninguna og fannst
Luca Di Montezemolo, forseta
Ferrari, það vita á gott. „Það eru
góð teikn þegar ökumenn segja
lítið. Þegar þeir tala of mikið
byrja þeir að skálda. Það eina sem
skiptir máli er hvernig þeir
keyra.“
„Þetta verður bara eins og á
síðasta ári; eitt liðið leiðir, svo
kemur það næsta. Við sjáum bara
til hver verður með forystuna í
lokin en við hjá Ferrari erum stað-
ráðnir í að halda sigurgöngu okk-
ar áfram,“ sagði Schumacher.
„Fólk var búið að afskrifa okkur í
vetur en hér erum við í fullu fjöri
og ætlum að vera með um langa
framtíð.“
Rubens Barrichello vill einnig
ná árangri í ár. „Ég vil byrja eins
og ég endaði síðasta tímabil, með
því að sigra fyrir mig og fyrir
Ferrari,“ sagði Brasilíumaðurinn,
sem er samningsbundinn Ferrari
til loka árs 2006.
„Ferrari hefur verið í fremstu
röð síðan 1999 og við munum
gera allt sem við þurfum til að
sigra,“ sagði Luca di Monte-
zemolo. „Við vitum að 2004 verð-
ur erfitt ár en ég vona bara að
niðurstaðan verði sú sama. Við
erum mjög meðvitaðir um styrk
keppinauta okkar.“
„Við eigum erfiða keppni fyrir
höndum,“ sagði Ross Brawn,
tæknistjóri Ferrari. „Ég get ekki
tryggt að við vinnum en við mun-
um gera okkar besta til að ná ár-
angri.“ ■
LEIKIR 5. UMFERÐAR ENSKU BIK-
ARKEPPNINNAR
Arsenal - Chelsea
Everton eða Fulham - West Ham
Liverpool - Portsmouth
Man. United - Man. City eða Tottenham
Sheffield United - Coventry eða Colchester
Sunderland - Birmingham
Telford eða Millwall - Burnley
Tranmere - Swansea
Leikirnir fara fram
helgina 14. og 15. febrúar.
LEIKIR 4. UMFERÐAR
3. febrúar Colchester - Coventry
4. febrúar Fulham - Everton
Man. City - Tottenham
Telford - Millwall
ARSENAL
Bikarmeistarar Arsenal stefna að sigri í
keppninni þriðja árið í röð.
NÝR FERRARI BÍLL
Michael Schumacher, sexfaldur heimsmeistari í Formúlunni, var ánægður með nýja
Ferrari-bílinn.
GUÐMUNDUR KARLSSON
Þurfum að fríska upp á landsliðshópinn og auka samkeppnina.