Tíminn - 04.11.1971, Page 1
smœ&AsjðwuHF
251. tbl.
.— Fimmtudagur 4. nóvember 1971
55. árg.
Fiskileitar- og hafrannsóknaskip í höfn
Það er ekki á hverium degi, sem fiskileitar- og hafrannsóknaskip íslend-
inga eru öll í höf-n samMmis, en ÞaS skeSur þó, eins og þessi mynd sýnir
svo glögglega. Þetta er orSinn myndarlegur floti, eins og fiskveiðiþjóS sæmir. Yzt til vinstri er hafrannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson, og fyrir
aftan þaS er sildarleitarskipið Árni Friðriksson. Utan á Árna liggur svo Hafþór, sem Hafrannsóknastofnunin notar við ýmis konar leitar- og vís-
ifxtastörf. (Tímamynd Gunnar)
II
Breytingar á almannatryggingalögum um áramótin
hjón verður 216 Jjús. á ári
EB—Reykjavík, miðvikudag.
Magnús Kjartansson, trygginga-
málaráðherra, upplýsti á fundi í
efri deild Alþingis í dag, að um
næstu áramót myndu væntanlega
taka gildi þær breytingar við al-
mannatryggingalögin, að séu tekj
ur elli- og örorkulífeyrisþega
lægri en kr. 120 þús. á ári, skuli
hækka lífeyri hans um það sem
vantar á þá fjárhæð og hjóna-
lífeyrir verði í samræmi við það
kr. 216 þús. kr. á ári. — Sem kunn
ugt er, er nú miðað við kr. 84
þús. fyrir einstakling og kr. 151
þús. og 200 fyrir hjón.
Tryggingamálaráðherra upplýsti
ennfremur, að eftirfarandi tillög-
ur ahnannatrygginganefndar, sem
nú endurskoðar tryggingalöggjöf-
ina, myndu væntanlega verða lög-
festar um áramótin:
• Stofnaður verði tryggingadóm
stóll.
• Til þessa hefur verið greidd-
ur barnalífeyrir, ef faðir er
örorkulífeyrisþegi. Lagt er til
að bamalífeyrir verði einnig
greiddur ef móðir er öryrki,
/ sem getur hvorki innt fram-
færsluskyldu af hendi með
starfi á heimili né utan þess.
— Séu báðir foreldrar ófær-
ir um að inna framfærslu-
skyldu af hendi, verði greidd-
ur tvöfaldur barnalífeyrir.
Heimilt verði að greiða barna-
lífeyri með börnum, sem
ekki reynist gerlegt að feðra.
Greiddur verði bamalífeyrir
vegna barna manna, sem sæta
gæzlu- eða refsivist, enda hafi
hún varað a.m.k. 3 mánuði.
Bætur, sem greiddar hafa
verið ekkjum í 12 mánuði —
kr. 7.368.00 í 6 mánuði og kr.
5.525.00 í næstu 6 mánuði
— vegna fráfalls maka, verði
einnig greiddar ekklum.
Ákvæði um slíkar bætur í 12
mánuði í viðþót ef eftirlif-
andi hefur barn innan 16 ára
á framfæri sínu, verði greidd-
ar til 17 ára aldurs þarns-
ins.
Niður verði felld ákvæði um
að sveitarsjóðir greiði % hluta
hækkunar frá hinum almenna
lífeyri.
Iðgjaldagreiðslur verði teknar
inn í skattakerfið.
Samkvæmt núgildandi lögum
má lækka um þriðjung dag-
peninga vegna manns sem
dvelst á sjúkrahúsi eða hæli
á kostnað sjúkrasamlags síns
svo og sjúkradagpeninga, sem
greiddir eru vegna barna
hans. Lagt er til að ekki verði
Framhald á bls. 14
Lægra verð er
nú í Grimsby
ÞÓ—Reykjavík, miðvikudag.
Þrír bátar hafa selt afla í
Grimsby í gær og í dag. Verð
ið hjá bátunum, sem seldu í
gær, reyndist miklu lægra en
það var í síðustu viku, en
Ársæll Sigurðsson, sem seldi
í dag, fékk 38.90 krónur fyrir
kílóið.
í gær seldu Margrét NK og
Matthildur SH. Margrét, sem
var með 49 tonn, fékk 6601
pund fyrir aflann og var með-
alverðið 29.25 kr. Matthildur
seldi 40 tonn fyrir 5461 pund
og var meðalverðið hjá henni
29.75 kr.
í dag seldi svo Ársæll Sig-
urðsson GK 48 lestir fyrir 8471
pund og er meðalveröið hjá hon
um 28.90 krónur 'fyrir kflóið.
Aflinn, sem Ársæll Sigurðsson
var með, var mest þorskur, ýsa
og koli.
Rjúpan seld á
260 krónur
ÞÓ—Reykjavík, miðvikudag.
Það sem af þessu hausti er
rjúpnaveiði orðin mun meiri en
á sama tíma undanfarin ár, og ber
rjúpnaveiðimönnum saman um,
að meira sé um rjúpu en verið
hefur, og gæti vciðin verið mciri.
ef tíðarfar hefði verið liagstæðara.
Ekki er þar með sagt, að rjúpan
hafi Iækkað í verði, þar sem út-
söluverð hennar er 260 kr. íit úr
búð, cn í fyrra var rjúpan seld á
220 til 260 kr. stykkið.
Hafsteinn Ólafsson í Forna-
hvammi sagði í viðtali við blaðið
í dag, að þar uppfrá hefði verið
mjög leiðinleg veðrátta til rjúpna
veiði undanfarið, bæði hefði ver-
ið mikið um þoku og rignt hefði
mikið, og menn því latari að leita
að rjúpu en ella. í nótt snjóaði
Framhald á bls. 14
LANDHELGIS-
VIÐRÆÐUR
í LONDON
SJ—Reykjavík, miðvikudag
í dag, miðvikudag, hófust í
London viðræður um landhelg-
ismálið milli fulltrúa íslands
'og Bretlands. Viðræðurnar
stóðu fram eftir degi, en full-
trúarnir vildu ekkert um þær
segja í kvöld. Þó kváðust
Bretarnir ánægðir með að ís-
lendingar vildu ræða um vænt-
anlega útfærslu landhelginnar.
Viðræðunum verður haldið
áfram á morgun, fimmtudag.
En síðan heldur íslenzka sendi-
nefndin til V.-Þýzkalands sömu
erinda.
Hans G. Andersen, sendi-
herra, er formaður íslenzku
sendinefndarinnar. En Herbert
Keeble ráðherra er formaður
viðræðunefndar Breta.
íslenzku sendinefndina skipa
auk Hans G. Andersens, Níels
P. Sigurðsson, sendiherra, Jón
L. Arnalds, ráðuneytisstjóri
Jónas Árnason, alþingismaður,
Már Elísson, fiskimálastjóri,
og Þórarinn Þórarinsson, al-
þingismaður.
Síldin
veiðist
á daginn
ÞÓ—Reykjavík, miðvikudag.
Síldin lét aftur á sér
kræla í dag, og fékkst
hún á svipuðum slóðum og áð-
ur, en það er 10—30 mílur
vestan við Ingólfshöfða. Síld-
in hefur fært sig á dýpra vatn
Dg veiðist nú á 20 til 30 faðma
iýpi. Margir síldarbátanna
köstuðu í dag, og var vitað um
ifla 7 báta í kvöld og voru Þeir
neð 170 lestir.
Síldin, sem veiðzt hefur síð-
ustu tvær vikurnar, hefur öll
fengizt yfir dagtímann og er
>að heldur óvenjulegt. Sjó-
menn eru að vonum fegnir
þessu uppátæki síldarinn-
ar, þar sem ólíkt betra er að
vinna köstin yfir dagtímann en
yfir nóttinp, en þá er slökkt i
öllum ljósum nema siglingaljós
um þegar kastað er.
Vitað var um afla eftirtalinaa
báta: Akurey 45 tonn, Öskar
Halldórsson RE 20 tonn, Höfr-
ungur III AK 15 tonn, Kópur
VE 15 tonn, Ófeigur VE 20
tonn, Gullberg VE 30 tonn,
Skarðsvík SII 25 tonn, og að
auki var vitað um að Keflvík-
ingur KE var búinn að fá síld.