Tíminn - 04.11.1971, Blaðsíða 7
FIMMTUÐAGUR 4. nóvembcr 1971
TÍMINN
UNESCO 25 ára í dag
SB—Ee.vkjavík, miðvikudag.
Menníngar- og vísindastoínun
Sameinuðu þjó'ðanna (Unesco) er
25 ára á morgun, fimmtudag.
Markmið stofnunarinnar liefur
frá uppliafi verið að vinna að
friði í heiniinum, með því að
miðla þekkingu. Þegar Unesco var
stofnað árið 1946 með aðalstöðvar
í París, voru aðildarlöndin 20, en
nú eru þau 125 talsins.
Fjárhagsáætlun stofnunarinnar
hefur hækkað úr 7 milljónum doll
ara í 90 milljónir. Starfsemi
Unesco má finna um allan heim
og tekur hún til aðgerða eins og
að bjarga egypzkum musterum
undan vatni og kenna suður-ame-
rískum börnum að lesa og allt þar
á milli. Nefna má, að'sem stendur
vinnur Unesco að því að koma í
veg fyrir að Feneyjar sökkvi.
Til að sýna, liverju Unesco hef
ur komið í verk, má geta þess, að
árið 1956 voru 25 milljónir manns
við nám í S.-Ameríku, en 1965
voru það 60 milljónir. Kennara-
fjöldi í S-Ameríkuróndum jókst
úr 634 þús. í einn milljón á sama
tíma.
Hjá Uneseo starfa 700 manns
í aðalstöðvunum í París, 1400 sér-
fræðingar vinna á þess vegum
víða um heim og 1500 aðstoðar-
menn og skrifstofufólk. Starfslið
stofnunarinnar er írá einum 100
þjóðlöndum.
I
Danir vilja ekki EBE-lög
um innflutning áfengis
NTB—Briissel, miðvikudag.
Danska ríkið inun tapa milljörð
um króna í tekjum, ef farið verð-
ur eftir þeim vægu reglurn, sem
gilda í EBE um að ferðamenn
flytii inn með sér áfengi, tóbak
og aðrar tollskyldar vörur.
Lögð var mikil áherzla á þetta
í viðræðum Danmerkur við nefnd
EBE-landanna. Málið hefur borið
á góma oft áður, en EBE vill
enn ekki láta eftir Dönum, að þeir
fái að halda þeim reglum, sem nú
gilda um þetta. í þeim reglum
er m.a. kveðið á um, að Dani þurfi
að hafa dvalið að minnsta kosti 73
klukkustundir erlendis, til að
mega taka með sér inn tollskyld-
ar vörur.
Formaður dönsku sendinefnd-
arinnar segir, að ef EBE reglur
um innflutning áfengis og tóbaks
fyrir ferðamenn verði upp teknar
í Danmörku, verði hreinustu þjóð
flutningar fólks yfir landamærin
til Þýzkalands, þar sem hægt er
að kaupa þessar vörur ódýrar.
Þetta þýðir, að danska rikið tapar
milljörðum króna.
Indland — Paklstan:
Nota sér ástandið til
að knýja fram loforð
NTB—Karachi, miðvikudag.
Pakistönsk dagblöð bera þess
greinilega mérki í dag, að styrjald
arhættan er mikil við Indland.
Allt er rólegt i V-Pakistan, en dag-
lega verða árekstrar á landamær-
unum. Skæruhernaður er mikill í
A-Pakistan og sjá Indvcrjar skæru
liðuin fyrir sprengiefni.
Útlendingum, sem búsettir eru
í Pakistan, finnst helzt að ástandið
sé logn á undan stornii. Pakistansk
ur blaðamaður segir, að þessar
víxl ásakanir Indverja og Pakist-
ana séu til þess eins að nota sér
ástandið til að fá stórveldin til að
lofa sem mestu.
Almenningur í V-Pakistan tekur
þessu brölti með ró. Þeir, sem búa
í grennd við Labore, þaðan scm
flestir hermennirnir eru, vita, aö
daglega falla margir hermenn, en
eftir öllu að dæma, virðist það
ósk yfirvalda, að sem minnst sé
vitað um ástandið. Blaðamenn, sem
nýlega hafa heimsótt Austur-
Pakistan, segja, að þar sé skæru-
hernaður líflegur og mun meiri
en jafnvel indverskar frétta-
heimildir skýra frá. Sérstaklega
er mikið um skærur í sunnan-
verðu landinu. Indverjar komi
sprengiefni yíir landamærin og
svo sjái skæruliðar í A-Pakistan
um afganginn.
5 milljónlr manna nrbu fyrir
barðinu á náttúrubamförum
NTB—Nýju Delili, miðvikudag.
Síðustu skýrslur sýna, að um
5 milljónir manna liafa orðið á
einlivern hátt fyrir barðinu á
flóðbylgjunni og fellibylnum, sem
skall á austurströnd Indlands fyrir
hclgina. Talið er, að allt að 2500
manns hafi látið lífið.
Orissa-fylki hefur beðið ind-
versku stjórnina um 6 milljarða
króna til hjálparstarfsins og mat-
ur og lyf eru komin til borgarinn-
ar Cuttack. 300 þúsund skammtar
af bóluefni eru komnir til hér-
aðsins og 115 læknar munu bólu-
setja fólkið til að koma í veg fyr-
ir að drepsóttir brjótist út.
FjármálaráðheiTa Indlands
sagði í dag, að sparnaðaráætlun
Indlands mundi ekki koma niður
á þessu hrjáða fólki, en hefur
jafnframt höfðað til alþjó sar.:-
taka um hjálp.
Risasprengjan kanski
sprengd um helgina
NTB—Wasliington, miðvikudag.
Hin mjög svo umdcilda kjarn-
orkusprenging á Aleútaeyjum
verður eitthvað á eftir áætlun.
Talsmaður bandarísku kjarnorku-
málastofnunari-nnar sagði í dag,
að verið gæti, að lienni yrði frest-
að. Sprengjan verður sprengd í
fyrsta lagi á laugardaginn.
Upphaflega átti að sprengja í
fvrra mánuði, en nokkru lengri
tíma tók að undirbúa sprenging-
una, sem er sú stærsta, sem hing-
að til hefur verið gerð neðanjarð-
ar.
Talsmaðurinn tók fram, að bar-1
átta náttúruverndarmanna hefði
ekki haft nein áhrif á undirbún-
inginn. Mörg lönd hafa látið i
ljós áhyggjur út af sprengingu
þessari og jafnvel er talið, að
hún geti komið' af stað jarðskjálfta
og eyðilagt laxastofninn í Kyrra-
i hafi. Sprengjan er 5 megatonn.
__ ' ••*»”•• •
Sendinefnd Kína fer
vestur í næstu viku
NTB—New York, miðvikudag.
Hjá Sameinuðu þjóðunum í
New York er nú beðið í ofvæni-
eftir sendincfnd Kína, en til-
kynnt var í gærkvöldi, hverj-
ir skipa muni nefndina. For-
maður hennar verður Chiao Ku-
an-Hua, aðstoðarutanríkisráð-
herra Kína. Hann og Huang
Hua, núvcrandi ambassador í
Kanada, verða fastir ambassa-
dorar Kína hjá Sþ. í nefndinni
eru 10 manns.
Kuan-Hua sagði í dag, að
sendinefndin hlakkaði til aö
fara til New York og gera þar
skyldu sína. Ekki er enn ákveð-
ið, hveivær nefndin kemur, en
það verður að likindum í næstu
viku.
Chiao, vildi ekki segja neitt
um pólitíska þróun innan Sþ
eftir að Kina hefur tekið sæti
sitt þar. Hann sagði, að' Kína
myndi standa með þeim þjóo-
um, sem elska frið og réttlæti.
Kina mun berjast fyrir friði
milli þjóðanna og framförum
mannkynsins.
Fundu eitt tonn af hassi!
NTB—Hockenheim, miðvikud.
Vestur-þýzka lögreglan náði
í dag í sínar hendur mesta
magni af hassi, sem nokkurn
tíma hefur fundizt i landinu.
Hassið var í fóruin lióps
Tyrkja, sem skutu á lögregluna.
Þrír Tyrkir voru handteknir,
en hinir ganga enn lausir. Þegar
lögreglan rannsakaði flutninga-
bil þann, sem Tyrkirnir voru
í, fann hún 20 sekki, sem í
reyndist vera alls um eitt tonn
af hassi.
Það var maður nokkur, sem
gerði lögreglunni vi'ðvart, er
hann hafði séð ljós bifreiöar-
innar slökkt, áður en ekið var
inn í gamla grjótnámu. Lög-
reglan kom á vettvang en var
mætt með skothríð. Enginn
meiddist.
Tító kominn til Kanada
NTB—Ottawa, miðvikudag.
Tító Júgóslavíuforseti, kom
í gærkvöldi til Ottawa í Kan-
ada. Hann mun dvcljast í Kan-
ada í fiinm daga. Hópur fólks
af króatískum uppruna koni
til Ottawa i gær til
að mótmæla, cn hópurinn var
ckki það atkvæðamikill, að eft
ir honum væri teki'ð.
Tító var vel fagnað í Ott-
awa og sagði hann vi'ð mót-
tökuna á flugvellinum, a'ð hon
um hefði fundizt ástæ'ö'a til að
kynnast betur landi og þjóð,
sem 'hefði verið vinuv og banda
niaðú;* i stríðinu.
Titó lagði áherzlu á, að hann
vonaði, að heimsókn sín yrði
til að styrkja samband Júgó-
slavíu og Kanada.
Enn verkfaii á Heathrow
NTB—London, miðvikudag.
Vonin um að friður og ró
kæmist á á Heathrow-flugvelli
í dag, varð að engp, þcgar
starfsfólkið fclldi tilboð vinnu-
veitenda. Verkfallið hefur nú
staðið í tvo daga og lamað að
mestu leyti samgöngur uni flug
völlinn.
Þrátt fyrir hótun um upp-
sögn, ef verkfallið héldi áfram,
litu starfsmennirnir ekki við
málamiðlunartillögu yfirboð-
ara sinna. Verkfallsmenn vilja
senda fulltrúa sína á fund með
brezka loftferðaeftirlitinu, sem
ber ábyrgð á rekstri Heathrow-
flugvallar.
Konur í starfsliði flugvallar-
ins taka ekki þátt í verkfall-
inu, á þeim forsendum, að það
sé ólöglegt. Þúsundir farþega
sitja fastir bæði á Heatlirow
og á flugvöllum erlendis vegna
verkfallsins.
Mesta bankarán í Svíþjoð
NTB—Gedser, miðvikudag.
Tveir Sviar frömdu á niánu-
dagskvöldið mcsta kankarán í
sögu Svíþjó'ðar. Bændu þeir
um 23 milljónum ísl. króna, cr
verið var að flytja peningana
milli banka. Mennirnir munu
hafa komizt tu Rostock / og
segja austur-þýzk yfirvöld, a'ð
þcir vcrði ckki framseldir í
bráð.
Báðir ræningjarnir struku i
sumar úr fangelsi. Þeir stöðv-
u" bankabifreiðina og frúin,
scm ók, varð að gjöra svo vel
og afhenda þeim 23 milljón-
irnar, eða týna lífinu ella.
Eftir öllu að dæma, fóru
ræningjarnir til Danmerkur og
þaðan til A.-Þýzkalands og
sluppu í gegn, áður en sær ':a
lögreglan hafði samband við
starfsbræður sína í Danmörku.
Ef a.-þýzka lögreglan vísar
mönnunum úr landi og scndir
þá til Danmerkur, geta Sví-
ar fengið þá framselda.
U Thant úrvinda
NTB—New York, miðvikudag.
U Thant, aðalritari S.Þ., var
í gærkvöldi lagður inn á sjúkra
hús vegna ofþreytu, og er þetta
í annað sinn, sem sljkt kemur
fyrir. í dag hefur hann verið
aðalritari í rétt tíu ír.
í gærdag kvartaði U Tliant
um svima og þreytu, og í dag
Framhald a bls. 14