Tíminn - 10.11.1971, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 10. nóvember 1971
TTMINN
Ávísanaþjófnaður og fals:
KONAN í 20 DAGA GÆZLU TIL VD6ÚTAR,
MAÐUR HANDTEKINN VEGNA MÁLSINSIDAG
OÓ—Reykjavík, þriðjudag.
Konan, sem staðin var að verki
er hún var að reyna að selja ávís-
un úr stolnu tékkhefti í Sparisjóði
Hafnarfjarðar, vár sl. miðvikudag
úrskurðuð í sjö daga gæzluvarð-
hald. í dag var gæzluvarðhaldsvist
in framlengd uim tuttugu daga.
Stúlkan var handtekin er hún
gerði tilraun til að fá útleysta
ávísun að upphæð kr. 26.300.00.
f ljós kom að ávísunin var úr
hefti, sem stolið var frá starfs-
stúlku Krabbameinsfélagsins, en
í möppu, sem stolið var, voru tvö
ávísanahefti, annað sem Krabba-
meinsfélagið á, en hitt eigið tékk-
hefti stúlkunnar. Auk þess voru
þrjár bankabækur í möppunni.
Gengið hefur sæmilega að selja
ávísanir úr þessum heftum.
Snemma í síðustu viku tókst
manni að selja tvær ávísanir í
bönkum í Reykjavík, aðra að upp-
hæð kr. 16.500,00 og hina að upp-
hæð kr. 11.456,00.
Rétt fyrir síðustu helgi voru
enn seldar nokkrar ávísanir úr
hefti Krabbameinsfélagsins í bönk
um í R&ykjavík og Hafnarfirðí.
Tvær ávísanir voru að upphæð
kr. 30.200.00 og ein að upphæð
kr. 40.200,00. Þá hafa koimið fram
þrjár ávísanir úr einkahefti stúlk
unnar, samtals að upphæð kr.
28.630,00.
Einnig hefur verið reynt að ná
úr einni af bankabókunum, sem
stolið var, en það tókst ekki, en
starfsfólk viðkomandi banka
reyndi að tefja fyrir afgreiðslunni
eins og hægt var er það sá bók-
ina, en þrjóturinn var hlaupinn
út úr bankanum áður en lögreglan
kom.
í dag handtók rannsóknarlögregl
an mann, sem grunaður er um
þátttöku í þjófnaðinum og ávís-
anafölsunum. Er ekkert látið uppi
um framburð hans að svo stöddu.
Norðursjórinn:
ALLTAF BRÆLA - SILDIN LELEG
Þetta er mynd af plakatinu, sem
Flugfélagi'ð hefur gefið út.
ÞÓ-Reykjavík, mánudag.
Á tímabilinu frá 1. til 6. nóv.
s.l. seldu tuttugu íslenzk sfld-
veiðiskip afla sinn í Danmörku
og Þýzkalandi, alls 1.124 lestir,
fyrir 11.228.415 krónur.
Þetta er lang lélegasta söluvik-
an hjá islenzku síldveiðiskipun-
um, frá því að þau hófu veiðar á
Norðursjávarmiðum í haust. í
síðustu viku mátti heita að bræla
væri alla vikuna, og lágu bátarnir
Ævintýraplakat .
frá Flugfélagi íslands
Síðastliðin tvö sumur hafa all-
margir hópar skólafólks og fólks
úr ungmennafélögum komið til
íslands og dvalið hér í sumar-
leyfi. Þessir hópar hafa komið
hingað vegna fyrirgreiðslu og
fyrir tilstuðlan Flugfélags fslands,
sem hefur á undanförnum mánuð
um aukið mjög kynningarstarf-
semi meðal slíks fólks á Bretlands
eyjum og í Mið-Evrópu. Þessir
hópar hafa dvalið hér í ódýru
skólahúsnæði og haft mikil sam-
skipti við jafnaldra sína á ís-
landi á íþróttasviðinu, og enn-
fremur hafa t.d. hópar frá Skot-
landi komið fram á skemmtunum,
sýnt skozka dansa og leikið á
sekkjapípur. f framhaldi af þess-
ari kynningarstarfsemi hefur Flug
félag fslands nú látið útbúa mjög
skrautlegt veggspjald (plakat) og
landkynningarbækling, þar sem
æviritýrum íslands er lýst, og hvers
fólkið geti vænzt, er það kemur
hingað. Á veggspjaldinu stendur
með stórum og skrautlegum stöf-
um „Iceland Adventure Holidays“
og táknar hver stafur í þessari
fyrirsögn ákveðið atriði í íslands
ferðinni, sem síðan er útskýrt í
texta neðan við hvern staf. Hinum
megin eru myndir og upplýsingar
um ýmis atriði, svo sem íþróttir,
menntun, rannsóknir, hestaferðir
fjallgöngur og um Grænlandsferð
ir, en þessi útgáfa er prentuð í
fjórum litum. Veggspjaldið er
prentað á ensku, en verður senn
gefið út á fleiri tungumálum.
MIKLAR TAFIR Á
FLUGI VEGNA Þ0KU
OÓ—Reykjavík, þriðjudag.
Bæði Reykjavíkur- og Keflavík-
urflugvöllur lokuðust um hádegis-
bilið í dag vegna þoku. Voru flug
vellirnir lokaðir fram eftir kvöldi
og varð talsverð röskun á áætl-
unarflugi vegna þess, bæði inn-
anlandsflugi og utanlandsflugi.
. t
Flugfélag íslands hélt uppi inn-
anlandsflugi samkvæmt áætlun
fram til hádegis, en þá lokaðist
flugvöllurinn og stöðvaðist þá
allt flug til Reykjavíkur, en lend
andi var á flugvöllum norðanlands
og austan. Flugvél frá FÍ lagði af
stað frá London í dag og átti að
lenda á Keflavíkurflugvelli kl. 4.
En þegar sú flugvél var komin
upp undir land var henni snúið
við og lend hún í Glasgow og
beið þar þangað til þokunni létti.
Loftleiðaflugvél, sem var á leið
frá Luxemborg, varð að snúa við
og lenti á Shannonflugvelli á ír-
landi og hélt þaðan til New York.
Þotan, sem koma átti frá Norður-
löndum beið veðurs í Osló.
Pan Americanáætlunarflugvél
átti að lenda á Keflavikurflugvelli
en beið í Prestwick. Lítli þota
átti að lenda á Keflavíkurflug-
velli en hún varð að fara til Akur-
eyrar.
mikið inni vegna brælu og þá
bæði í Leirvík á Hjaltlandi og
í dönskum og norskum höfnum.
Nú um helgina var mjög vont
veður á miðum bátanna við Hjalt-
land og lágu þeir allir í höfn.
Þó svo að bræla hafi verið á
miðunum mest alla síðustu viku,
náðu bátarnir til að kasta
meðan veðurguðirnir skiptu
um átt, og fékk einn og
einn bátur afla, en síldin, sem
fékkst, var mjög blönduð og var
verðið á honni mjög lágt. Meðal
yerðið í vikunni reyndist ekki
vera nema 9.98 kr. ísl. og er það
lægsta meðalverð haustsins. Nú
í ‘ vikulókiri" urðu nokkrir bátar
varir við síld á Kattegat, en þeir
náðu ekki til að kasta þar vegna
brælu. Síldin, sem er í Kattegat
er vanalega stór og falleg að
öllu jöfnu, og gera sjómenn sér
vonir um að svo sé í þetta sinn.
Ef veiði verður á þessum slóð-
um, ætti því að fást gott verð fyr
ir síldina, og að auki er ekki
neriaa nokkra tíma sigling úr
Kattegat til dönsku hafnarbæj
anna.
Hæsta meðalverð í síðustu viku
fékk Helga Guðmundsdóttir BA,
en Helga seldi Þann 6. nóv. í
Framhald á bls. 14
Treg síldveiði og
lítið að finna
ÞÓ—Reykjavík, þriðiudag.
Sfldveiðin í Meðallandsbug, var
mjög treg f nótt. Aðeins er vitað
um einn bát, sem fengið hafði
síld. Er það Akurey frá Horna
firði, sem fékk 26 tonn af feitri
og góðri síld við Tvísker. Bátur
inn fór með síldina til Hornafjarð
ar, þar sem hún var söltuð og
fryst.
Leitarskipið Hafþór, er nú í
síldarleit undir stjórn Jakobs
Jakobssonar( og í nótt var leitað
á stóru svæði f kringum Jökul, en
ekkert fannst. Seinni hluta dags
voru komin 6—7 vindstig á mið
unum og lét skipið reka.
EIGANDI
KÁPUNNAR
ÚFUNDINN
OÓ—Reykjavík, þriðjudag.
Rannsóknarlögreglan hefur
undir höndum dularfulla kápu,
sem ung kona kastaði af sér á
stein í fjörunni neðan við veit-
ingahúsið Klúbbinn sl. laugar-
dagskvöld. Eigandi kápunnar
hefur ekki gefið sig fram, en
konan sást í fjörunni um kl.
11—12 á laugardagskvöld. Þar
sá bílstjóri nokkur hana og
þótti honum hátterni konunnar
undarlegt.
Taldi bílstjórinn kringum-
stæður benda til, að hún ætlaði
að kasta sér í sjóinn. Gekk
hann til konunnar í fjörunni
og ætlaði að hafa tal af henni,
en hún var mjög miður sín.
Maðurinn taldi, að hún gæti
farið sér að voða. Gerði hann
lögreglunni viðvart um kon-
una, og þegar lögreglumenn
komu á staðinn skömmu síðar
sást konan hvcrgi, en kápan
sem hún var í, lá á steini rétt
við fjöruborðið, þar sem bíl-
stjórinn skildi við konuna
skömmu áður. Síðan þetta var,
hefur enginn látið lögregluna
vita, að kápu væri saknað, né
heldur hefur verið tilkynnt að
konu sé saknað.
Er nú spurningin. Hvert fór
konan, þegar >-00 skildi kápuna
eftir í fjörunni?
340 ATVINNULAUSIR
EJ-Reykjavík, þriðjudag.
Um síðustu mánaðamót voru
340 skráðir atvinnulausir á öllu
landinu, og var þar um aukningu
úr 136 að ræða frá september-
lokum.
Aukningin var mest í kaupstöð-
unum; þar voru 215 (95) skráðir
atvinnulausir, í kauptúnum með
1000 íbúa aðeins 3 (0), en í öðr-
um kauptúnum 122 (41).
Af kaupstöðunum eru flestir á
at /innuleysisskrá í Reykjavík, 65,
en næst koma Siglfirðingar 59, og
Sauðárkrókur 51.
Af kauptí am er langmest
atvinnuleysi á þremur stöðum:
Vopnafirði 35, Skagaströnd 32 og
Ilofsós 32.
Þess vegna bíðum
við ekki
f niðurlagi frumsöguræðu
sinnar á Alþingi í gær fyrir
þingsályktunartillögu ríkis-
stjórnarinnar um útfærslu fisk
veiðilögsögunnar við ísland í
50 sjómílur á næsta ári, sagði
Ólafur Jóhannesson, forsætis-
ráðherra m.a:
„Ein er sú spurning, sem oft-
lega er lögð fyrir okkur í sam-
bandi við þetta mál. Hvers
vegna bíðið þið ekki eftir hinni
fyrirhuguðu hafréttarráðstefnu
1973 og sjáið til, hvað þar
gerist? Þetta er í sjálfu sér
ekki óeðlileg spurning, og vel
má vera, að sumum ókunnug-
um gangi illa að skilja, að við
skulum ekki geta beðið. En
við verðum að svara því til, að
málið er a okkar dómi svo að-
kallandi, að það þolir ekU
slíka bið. Við teljum suma fisk
stofna í yfirvofandi hættu. Það
eru síðustu forvöð að gera viss
ar friðunarráðstafanir og setja
reglur um skynsamlega hagnýt
ingu fiskimiða landgrunnsins.
Það er á okkar valdi að setja
slíkar reglur upp á cindæmi,
þegar fiskveiðimörkin hafa ver
ið færð út. Það er of seint
að grípa í taumana, þegar fisk
stofnarnir hafa verið eyðilagð-
ir og miðin eru uppurin. Við
getum ckki tekið slíka áhættu,
enda er með öllu óvíst, að ráð-
stefnan verði haldin 1973.
Margir telja líklegt, að henni
verði frestað. Ennfremur minn
um við á, að það hefur áður
verið sagt við okkur að bíða.
Það var gert fyrir ráðstefnuna
1958. Við biðum. En á ráð-
stefnunni 1958 náðist engin
lausn. Þá urðum við að grípa
til okkar ráða og færa út, þrátt
fyrir mótmæli ýmissa þjóða.
Þá er og á það að líta, að það
er yfirlýst stefna stórvelda, að
fá 12 sjómílna landhelgi sam-
þykkta á ráðstefnunni sem al-
þjóðalög. Þó að ekki séu mikl-
ar líkur til að slíkt takist, er
ekki leyfilegt að loka augunum
fyrir þeim möguleika. Ef svo
færi, væri erfitt um vik á
eftir. Hins vegar er hugsanlegt,
að jafnvel í því falli yrðu rflri
ekki skylduð til að stíga til
baka þau skref, sem þau hefðu
þegar stigið, og gætu því e.t.v.
haldið þeirri landhelgi, sem
þau hefðu þegar ákveðið, enda
þótt víðáttumeiri værj.“
Enga tæpitungu
Ennfremur sagði Ólafur:
„Þetta eru megin ástæðurnar
fyrir því, að við getum ekki
haldið að okkur höndum og
beðið, enda er reynslan sú, að
í þessu efni hefur aldrei neitt
áunnizt, nema með ákveðnum
-aðgerðum af fslendinga hálfu.
Það lætur r* af fyrir sig ekki
illa í eyrum, að útfærslu fisk-
veiðimarka eigi að byggja á ai-
þjóðasamningi og að ekki verði
viðurkennd útfærsla nema hún
byggist á aiþjóðasamningi. En
ég spyr hvaða útfærsla og hvc
nær hefur það átt sér stað
þannig? Ég þekki ekki til þes*.
Hafa stórveldin stuðzt við slík-
an alþjóðasamning, þegar þau
Framhald á bls. 14