Tíminn - 03.12.1971, Blaðsíða 14

Tíminn - 03.12.1971, Blaðsíða 14
 -— - --—-t—’ "Tyrgf TÍMINN FÖSTUDAGUR 3. desember 1971 . rxZ fk NYTT! FASRLINE ELDHÚSIÐ TRÉVERK FYRIR HÚS OG IBÚÐIR Seljum FAIRLINE eldhús með og án tækja, ennfremur fataskápa, Inni og útihurðir. Hagkvæmt verð og greiðsluskilmálar. % Gerum teikningar og skipuleggium eldhús og fataskápa, og gerum fast, bindandi verðtilboð Komum i heimahús ef óskað er. VERZLUNIN ÖÐINSTORG H.F. BANKASTRÆTl 9 ■ SÍMl 1-42-75. — I I. ■■•>■■■; ■■ ■ ■ —■ ■■ , ■ ■ Veljið yður í hag - Úrsmíði er pkkar fag OMEGA Nivada ©IKEMj JUpmcL pifRPom Wlagnús E. Baldvlnsson Laugavegi 12 - Síml 22804 VELJUM ÍSLENZKT( U / jíSLENZKAN IDNAÐ Saga Vésteins Lúðvíkssonar Gunnar og Kjartan FB—Reykjavík, miSvikudag. Önnur bók Vésteins Lú'ðvíks- sonar er komin út, og nefnist hún Gunnar og Kjartan, fyrsta bindi. Útgefandi er Heimskringla. Fyrir nokkrum árum kom fyrsta bók Vésteins út, Átta raddir úr pípu- lögn. Rekstrargjöld Framhald af bls. 1 sagði Kristján Benediktsson m.a. um þetta atriði áætlunarinnar. Hækkun á gjaldskrám þjónustufyrirtækja Um hina væntanlegu hækkun á gjaldskrám þjónustufyrirtækja borgarinnar sagði Kristján Bene- diksson m.a.: — í desember í fyrra var við- reisnarstjórnin enn við völd í land inu og kosningar framundan. Nú er það vinstri stjórnin sem ræður ríkjum eins og aUir vita. Við samningu fjárhagsáætlunar í fjrra datt engum í hug að nefna gjaldskrárhækkanir af nokkru tagi. Öllum vangaveltum um slíkt var varpað fyrir róða sem synd- samlegum. Núna finnst hins veg- ar yarla ein einasta gjaldskrá, sem ekki er gerð áætlun um stórfellda hækkun á um næstu áramót. Þannig er gert ráð fyrir að gjaldskrá Rafmagnsveitu hækki um 16,7%, gjaldskrá Hitaveitu um 13,2%, fargjöld með strætisvögn- um um 20%, vatnstollur um 45%. Þá eru ráðgerðar stórfelldar liækk anir . á aðgangseyri að sundstöð- um, vistgjöldum á barnaheimilum, gatnagerðargjöldum, leigu fyrir íbúðarhúsalóðir og hafnargjöldum. Þessi upptalning er varla tæm- andi enn, þótt ég láti hér staðar numið. Allar þessar gjaldskrár- hækkanir eiga það sameiginlegt, að ráðgerð liækkun þeirra er mun stórfelldari en svo, að æskilegt sé að framkvæma þær í einum áfanga. Með þessum miklu og almennu hækkunum á gjaldskránum, sem nú er talið nauðsynlegt, er verið að súpa seyðið af því ofurkappi sem fyrrverandi ríkisstjórn lagði á það í fyrra, að halda öllum hækkunum niðri fram yfir kosn- ingar. — Ilér er því um að ræða einn angann af „hrollvekjunni“ • og hann býsna stóran. Á víðavangi Hornafjarðarflugvöllur StaSa umsjónarmanns á Hornafjarðarflugvelli er laus til umsóknar frá og með 1. janúar n.k. Launa kjör eru samkvæmt kjarasamningi starfsmanna ríkisins. Umsóknum skal skilað fyrir 20. des. n.k. Flugmálastjóri, Reykjavíkurflugvelli. Innilega þökkum við auðsýnda samúð og vinrahug við andlát og jarðarför Ara Þorgilsson, forstjóra. Helga Jónsdóttir, Þorbjörg Aradóttir, Steinþór Ingvarsson og dótturbörn. Framhald af bls.'3. vitnar ekki í neinar ákveðnar danskar heimildir frásögn sinni til stuðnings. Þetta blað hcfur þótt liafá á sér gott orð sem heiðarlegt fréttablað. Því verð ur ekki trúað að dönsk stjórn völd geti liaft nokkurn slíkan þankagang um að vinna að því bak vi'ð tjöldin að' Efnahags- bandalag Evrópu beiti fslend- inga viðskiptakúgunum, ef þeir færa fiskveiðilögsöguna við ís- land út í 50 sjómflur. Hins vegar væri rétt að gera kröfu til þess, að þar sem hið norska blað er víðlesið og virt blað, að dönsk stjórnvöld gerðu hreint fyrir sínum dyrum og vísuðu slíkum dylgjum algjör lega á bug. — TK. ÚR OG SKARTGRIPIR KORNELÍUS JONSSON SKÚLAVÖRÐUSTlG 8 BANKASTRÆTI6 (-»18588-18600 Ævisaga Helga Þórarinssonar í Þykkvabæ FRÁ HEIÐITIL HAFS — eftir Þórarin Helgason. FB—Reykjavík, miðvikudag. Frá heiði til hafs, Ævisaga Helga Þórarinssonar í Þykkvabæ eftir Þórarin Helgason er komin út hjá Goðasteinsútgáfunni í Skógum. Þórarinn Hélgason í Þykkvabæ í Landbroti er þjóðkunnur fræði- maður og rithöfundur. Bók hans, Lárus á Klaustri er kom út 1957, er höfuðrit um sögu byggðanna „milli sanda“ í Vestur Skaftafells- sýslu á 19. og 20. öld. Enn er sagna sviðið hið sama, þótt anna® fólk og aðrir atburðir komi nú við sögu. Hér segir frá frægum ætt- föður, Jóni Magnússyni á Kirkju- bæjarklaustri og niðjum hans, en meginefni er þó saga hins snjalla bónda og framkvæmdamanns, Helga í Þykkvabæ. Bókin er fram- lag til íslenzkrar atvinnu- og menn ingarsögu, er jafnan mun mikils metið og oft verður til leitað um Þórarinn Helgason fróðleik og skemmtun, segir út- gefandinn um bókina. Vatnselgur stöðvar umferð í SB—Reykjavík, fimmtudag. Lögreglan í Reykjavík fékk í kvöld tilkynningu um, að um- ferðaröngþveiti mikið hefði skap azt við Nesti í Fossvogi vegna vatnselgs. Ekki er ljóst, hvort þarna hefur stíflazt niðurfall, en sá helmingur akbrautarinnar, sem ekið er eftir sunnan að, er að mestu undir vatni á nokkuð löng um kafla. Vatnið tekur litlum bfl um upp fyrir mið hjól og voru Fossvogi nokkrir fastir þarna, þar sem vatnið drap á þeim. Illt er að sjá pollinn, fyrr en út í hann er komið og vara menn sig ekki á því að draga úr hraða, þannig að gusurnar ganga himinhátt. Bíl- stjórar eiga bágt með að komast leiðar sinnar vegna bfla, sem standa í pollinum, og er lögreglan að hjálpa þeim, sem þurfa að- stoðar með, þegar þetta er skrif að. Odýrast að fljúga með Loftleiðum Tíminn birtir í dag frétt, þar sem það er haft eftir mér, að Loftleiðir muni bjóða sömu gjöld og IATA félögin i ferðum yfir Atlantshafið eftir 1. febrúar n. k. Hér er um misskilning að ræða. f sambandi við frétt í norska blaðinu Nationen talaði blaðamaður Tímans við mig um fargjöld Loftleiða til og frá Skandinavíu eftir 1. febrúar n.k. Ég sagði honum þá, að samkvæmt samningum við skandinavísk stjórnvöld neyddust Loftleiðir til þess að bjóðí> sömu fluggjöld og IATA-félögin til og frá Skandinav íu eftir 1. febrúar n. k; og þess vegna væri það rangt að Loft leiðir hefðu í hyggju að bjóða 11—13%'lækkun á þeirri gjöldum. Um gjöld Loftleiða á öðrum flugleiðum var aldrei rætt okkar í milli að þessu sinni. Loftleiðir bjóða nú imiklu lægri fluggjöld en önnur félög á flug leiðinni milli Luxemborgar og Bandaríkjanna, og hafa í hyggju að halda því ófram. Eftir far- gjaldafundinn, sem haldinn verð ur næstu daga í Reykjavík, mun stjóm Loftleiða skýra frá því hvort fargjaldamismunurinn verð ur um 25—30%, eins og hann er nú, eða annar. Um þetta veit ég ekki enn, en ég þori að fullyrða að hann verður annar og meiri en sá, sem Nationen nefndi, og þess vegna eru ágizkanir þéss blaðs úr lausu lofti gripnar, sé átt við Luxemborg, og alrangar, ef um Skandinavíu væri að ræða, en frétt Tímans byggð á misskiln ingi, sem fyrr segir. 1. desember, 1971. Sigurður Magnússon. Rímnasafn Siguröar Breiðfjörð 2 bindi FB—Reykjavík, miðvikudag. ísafold gefur nú út í tvcimur bindum, Rímnasafn Sigurðar Breiðfjörð. Sveinbjörn Beinteins- son ritar formála. í fyrri bókinni eru Rímur af Högna og Iléðni, Rímur af Þórði hreðu og Rímur af Fertram og Plató, en í þeirri síðari eru Svoldarrímur, Jóms- víkingarímur og Rímur af Indriði Ilbreiða.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.