Tíminn - 16.03.1972, Síða 1
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
/”
"V
SEMDIBIL ASTODIN HF
EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR
Fágætar bækur um ísland á fornbókasölu í Osló:
Fékk mest af íslands-
bókunum í Hollywood
Ferða- og landfræðibækur til sölu hjá Damms í Osló
að verðmæti 25 milljónir íslenzkra króna
JH-ÞÓ, Reykjavik.
Hnifur þeirra hjá Damms
Antikvariati á Tollbúðargötu
25 i Osló hefur heldur betur
komizt i feitt. 1 nýjum bóka-
lista frá þeim eru hvorki
meira né minna en þrjú
hundruð og fimmtiu land-
fræðibækur, ferðabækur og
landabréf, af fágætasta tagi
langflest. Alls er þetta virt á
nær hálfa þriðju milljón
norskra króna.
Meðal bóka, sem okkur
Islendinga varða sérstaklega,
má nefna Skálholtsútgáfu
Landnámabókar, ferðabók
Gaimards, ferðabók Eggerts
Ólafssonar og Bjarna Páls-
sonar á þýzku og frönsku,
ferðabók Ólaviusar, náttúru-
sögu Horrebows, ferðabók
Kerguelens á frönsku og
þýzku, sæferðabók Frobis-
hers, ferðabók Hookers,
ferðabók Martinieres á frön-
sku, hollenzku og ensku,
Grænlandsbók Peyres á
frönsku og þýzku og ferðabók
Unos von Troil á ensku. Auk
þess rit Magnúsar Olaus á
mörgum tungumálum.
Eigendur fornbóka-
verzlunarinnar telja, að aldrei
fyrr hafi jafnmargar fágætar
bækur verið til sölu samtimis i
forbókaverzlun á Norðurlönd-
um. En dýrt er drottins orðið:
Landnáma kostar 17.500
krónur norskar og ferðabók
Gaimards 28.500, enda er það
eintak úr eigu Leópolds Belga-
konungs.
Myndin er af landakorti úr einni landafræði-bókinni, bók Jens
Munck um Amerikuferð, sem hófst í mai 1619.
Þarna er einnig sú bók,
prentuð á Norðurlöndum, er
hæst hefur verið metin fram
að þessu — rit Jens Munks um
Vesturheimsför hans,prentað i
Kaupmannahöfn 1624 og
kostar 85 þúsund krónur
norskar.
,,Það hefur tekið mig fimm
ár, að ná þessum bókum
saman, óg þetta er örugglega
stærsta safn af gömlum
bókum, sem hafa verið til sölu
á einum og sama staðnum á
Norðurlöndum”, sagði Claes
Nyegaard, framkvæmdastjóri
Damms Antikvariat A/A i
Osló, er Timinn ræddi við
hann i gær.
Hvar hefur þú náð i þessar
bækur?
— Ég hef keypt margar i
Hollyvood, þó ótrúlegt sé, og
einnig hef ég keypt þær i Wien,
Róm, London, New York, já
og um allan heim. En stærsti
hlutinn kemur frá Banda-
Frh. á bls. 15
Hagrannsóknardeild Framkvæmda-
stofnunarinnar um skattafrumvörpin:
ALMENNIR SKATT-
AR 370 MILU.
KRÓNA LÆGRI
en ef lagt hefði verið á eftir
gamla skattkerfinu
EB-Reykjavik. meiri hlutans. 1 neðri deild fór á
Hagrannsóknardeild Fram- sama tima fram önnur umræða
kvæmdastofnunar rikisins hefur um tekjustofnafrumvarpið, en
gcrt yfirlit yfir skattbreytingar Þar mælti Stefán Valgeirsson
samkvæmt báðum skattalaga- fyrir áliti meiri hluta heilbrigðis-
frumvörpunum, eins og þau lita °6 félagsmálanelndar deildarinn-
út eftir 2. umræðu i hvorri deild. ar við frumvarpið. Mun vera gert
Miðað er við álagningartölur og r^ fyrir, að Alþingi afgreiði
skattvisitölu 106.5. skattafrumvörpin fyrir helgi.
Þetta y firlil ber það mcð sér, að
miðað við skattvisitölu 106.5, seni
látin er fylgja visitölu fram-
færslukostnaðar, er ekki uin að
ræða aukna skattbyrði i heild
tekið. Ilcildarskattbyrðin af völd-
um þessara tvcggja frumvarpa,
ef gengið er út frá íöguin og frum-
varpi á hækkunarheimilda i báð-
uin tilvikum, lækkar úr 7641 millj.
kr. i 7231 millj. kr. og munar þar
meslu, að almennir skattar, þ.e.
tekjuskattur og útsvar, eru i heild
370 millj. kr. lægri cn tekjuskatt-
ur, útsvar, almannatrygginga- og
sjúkrasamlagsgjöld hefðu verið
samanlagt, ef lagt hefði verið á
eftir sama kerfi og siðast var
gert.
Þetta kemurfram i nefndaráliti
meiri hluta fjárhagsnefndar efri
deildar Alþingis, þ.e. fulltrúa
stjórnarflokkanna við tekju- og
eignarskattsfrumvarpið, en
prentaðar eru sem fylgiskjal með
nefndarálitinu yfirlitstölur Hag-
rannsóknardeildar.
Onnur umræða um tekju-og
eignarskattsfrumvarpið i efri
deild, fór fram i gær. Mælti
Ragnar Arnalds fyrir nefndaráliti
MAÐUR
DRUKNAR
PA-Þingeyri.
Skipverji af brezka
veðurathugunarskipinu
Miranda drukknaði hér i
höfninni á sunnudaginn.
Maðurinn, sem var á fimm-
tugsaldri, mun hafa fallið
niður á milli Miranda og
togarans Crisilla, en skipin
lágu saman úti á höfninni.
Mikið hvassviðri var, er
þetta átti sér stað. Mannsins
hefur verið leitað, en án
árangurs.
Veðurathugunarskipið var
dregið hingað til hafnar á
sunnudaginn. Var það
Crisilla, sem kom með
skipið. Mirainda hafði orðið
fyrir alvarlegri vélarbilun,
sveifarásinn brotnaði, og
verður náð i skipið og það
dregið héðan af dráttarbáti.
tmmmmmmmmmmmmm*
SEYÐFIRÐINGAR
FÖGNUÐU FYRSTA
SKUTTOGARANUM
Eingöngu fiskkassar í annarri lestinni
IH-Seyðisfirði.
Nýtt fiskiskip bættist i flota
Seyðfirðinga s.l. fimmtudag. Er
hér um að ræða 338 lesta skutttog-
ara, sem ber nafnið Gullver NS
12.
Þegar togarinn kom til
heimahaínar, var bærinn allur
fánum skrýddur, og flykktist fólk
niður á bryggju til að fagna skip-
inu, en þetta skip mun koma til
með að treysta undirstöðu at-
vinnulifsins á Seyðisfirði.
Gullver er smiðaður I örskova
Stálskipværk i Fredrikshavn
sumarið 1968, en kemur nú úr
fjögurra ára flokkunarviðgerð og
er skipið þvi i toppstandi.
Skipið er búið 1100 ha. Lister
Dieselvél og fjórum hjálparvél-
um. Að auki er skrúfutoghringur
á skipinu, sem eykur togkraftinn
til muna. Ganghraðinn reyndist
11,5 sjómilur og togkrafur er 13
lestir. Togspilið er vökvaknúið
frá aðalvél og útbúið þannig, að
varpan er dregin i einu átaki upp
á dekkið. Ataksmælir fyrir tog-
vira er i brú og sýnir átak vira i
togblökk.
Tvær lestir eru i skipinu og er
önnur eingöngu gerð fyrir fiski-
kassa og tekur 1100-1200 kassa.
Hin lestin tekur 120 lestir af is-
vörðum fiski, og er skipið búið is-
vél og lestarnar kældar.
Skipstjóri á Gullver er Jón
Pálsson og vélstjórar Gunnar
Þórðarson og Reynir Gunnars-
son.
Eigandi skipsins er Gullberg
h.f., en framkvæmdarstjóri þess
er Ólafur M. Ólafsson.
Þegar skutttogarinn Gullver lagðist að bryggju á Seyðisfirði i fyrsta skipti, flykktist fólk niður á bryggjuna,
og bærinn var fánum skrýddur. ‘ (Timamynd IH)