Tíminn - 16.03.1972, Side 5

Tíminn - 16.03.1972, Side 5
Fiinmtudagur 16. marz 1972. TÍMINN 5 Hvildarhús fyrir verkamenn Við rætur Zaliski Alatá á bökkum hinnar straumþungu ár Alma-Atinka i Kazakstan hefur verið reist fimm hæða hús nýs hvildarheimilis fyrir verka- menn Balkhas-máliðjuversins. Dvalargestir hafa til umráða þægileg herbergi, kvikmynda- sal, biljarðstofu. Enn eitt hvildarheimili fyrir verkafólk hefur bætzt við þau 1240,sem til eru i landinu — fyrir utan heilsuhæli og hvildarhús fyrir samyrkjubændur. Fjallabúar niður i dalinn byrlur hafa flutt siðustu fjöl- skyldurnar frá fornu þorpi i Tadzjikistan — er það i Minobgili i 3000 metra hæð. Engin hætta steðjaði að byggð þessari, ibúarnir ákváðu ein- faldlega að flytja frá þessu þorpi sem var svo til einangrað fra umheiminum og til þægi- legra svæða, þar sem þeirra biðu ný hús, með öllum þægind- um. Rikið tók á sig allan kostn- að af þessum flutningum. i kapp í hjólastólum Charlie Chaplin, sem nú er 83 ára gamall bauð i keppni Louise Brat, fjögurra ára,á hjólastól nú fyrir nokkru, þegar þau voru bæði stödd á Heathrow flugvelli við London. Louise litla var svo hyggin, að hún neitaði. —Þú vinnur áreiðanlega, af þvi að þú ert eldri, sagði hún. Þau Chaplin og Louise hittust i flugvél á leið- inni frá Sviss til Englands. Hjólastólar biðu þeirra beggja, þegar þau komu til London. Stóllinn beið Chaplins vegna þess hve gamlall og hrumur hann er orðinn og Louise vegna þess að hún var að ná sér eftir að hafa verið með slæma ilensu. Þótt Louise litla sé ekki gömul þekkti hún Charlie Chaplin þegar i stað. —Hann er maður- inn i viðu buxunum og með sta- finn sagði hún. Eru þau skilin Upphafið að undarlegri sögu hófst á flugvellinum i London 5. janúar siðast liðinn. Þá stóðu á flugvellinum kona og maður og rifust hástöfum. Ekki voru það margir, sem þekktu manninn og konuna, en þó nógu margir til þess að frétt um skilnað Jackie Onassis og Ari Onassis komst á kreik, en þetta voru einmitt þau Sú, sem það gerði, heitir Anita Chuan, og er af kinverskum ættum. Eftir myndinni að dæma, er þetta bara venjuleg ung stúlka. Dagsdaglega vinnur hún sem einkaritari, en nú langar hana til þess að fá sér dálitla aukavinnu til þess að bæta upp laun einkaritarans, og þess vegna sótti hún um þetta heldur óvenjulega starf. — Það er ekkert að taka menn af lifi, segir hún. — Það þarf ekki annað en að styðja á hnapp, og þar með er það búið. aukavinnu Áhugamál fólks eru marg- visleg, sem betur fer, þvi erfitt væri, ef allir vildu verða það sama, eða gera það sama. Hvers vegna þá að furða sig á þvi, þótt ung stúlka i Kuala Lumpur i Malaysiu sæki um að verða aftökustjóri i hjáverkum. Tekur fólk af lifi í tvö. Jackie var að fara til New York og yfirgaf mann sinn i mikilli reiði. Ari Onassis hélt til Aþenu. Svo gerðist ekkert fyrr en 21. januar. Þá hittust griski erkibiskupinn, Ari Onassis og tveir lögfræðingar hans i Aþenu. t þessu sambandi er rétt, að geta þess, að þegar fólk ætlar að skilja i Grikklandi kemur til kasta kirkjunnar. Það er þvi heldur erfitt að imynda sér nokkuð annað en skilnað i þessu sambandi. Jackie var stödd i Aþenu um þessar mundir, en hún hitti þó ekki Ari mann sinn.Eftir þetta hvarf hún af sjónarsviðinu um sinn. Myndin, sem hér er með og sýnir Jackie hálfsofandi á svölunum fyrir framan hús Onassis á Scorpios, og önnur mynd af þeim Ari og Jackie, þar sem Ari er að lesa i bók, sanna, að Jackie kom til þess að hitta mann sinn fyrrverandi, eftir að skilnaðurinn hafði farið fram, ef hann þá hefur átt sér stað. Jackie og Ari er mikilsvert, að geta haldið áfram að vera góðir vinir, þrátt fyrir það, að þau séu skilin, ef þau þá eru það, þvi annars eiga þau alls enga vini. Af myndunum að dæma er Jackie hætt að hugsa um lin- urnar og kilóin, og hún er meira að segja með ótilhaft hárið á myndunum Karlmaður er ekki ástfanginn, ef —Auðvitað er ég stoltur af að honum finnst stúlkan ekki ennþá borga skattana mina, það er bara yndislegri en henni sjálfri. það, að ég væri alveg eins stoltur ___________ af að borga helmingi minna i skatta. — Ertu ennþá hrifinn af smur- brauðsdömunni? —Hvers vegna eruð þér með spora á stigvélunum, fyrst þér r i ð i ð e k k i ? —Hvers vegna eruð þér með fjaðrir i hattinum fyrst þér verpið ekki? Gamli reyndi ^kipstjórinn tók á hverjum morgni i brúnni gulnað blað upp úr læstri skúffu og las það, þögull og alvarlegur á svip. Stýrimaðurinn hafði lengi velt fyrir sér, hvort skipstjórinn væri trúaður maður og læsi sálm á hverjum morgni. Það var ekki fyrr en sá gamli fór a eftirlaun, að stýrimaðurinn fékk svalað for- vitni sinni. Hann opnaði skúffuna hátiðlega og tók upp blaðið. A þvi stóð: —Stjórnborði til hægri, bak- borði til vinstri. — Pabbi, þvi veiddirðu ekki þennan þarna ? Hann er miklu _ stærri. Það kom merkur prédikari til bæjarins og ibúarnir fjölmenntu til að hlusta á hann. Ræðan fjall- aði að mestu um Viti og allt það illa, sem þar er. Loks stóð gömul kona upp og gekk út með þessum orðum: —Ef það er svona illt i Helviti, þá er bara ekki verandi þar. DENNI DÆAAALAUSI Hérna. Ef þú trúir ekki aö hann sé haröur, þá skaltu prufa eina f kökunum hans.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.