Tíminn - 16.03.1972, Qupperneq 6
6
TÍMINN
Fimmtudagur 16. marz 1972.
Alþjóðlegur varaflug-
völlur á Norðurlandi ?
Þingsályktunartillaga um það frá Inga Tryggvasyni
EB—Reykjavik.
Fram er komin á Alþingi
þingsáiyktunartillaga um að
rikisstjórninni verði falið að láta
fara fram könnun á gagnsemi
þess og hagkvæmi, að gerður
verði alþjóölegur varaflugvöllur
á Norðurlandi. Ennfremur er lagt
til, að Alþingi heimili rfkisstjórn-
inni að hefja undirbúning fjár-
magnsútvegunar og fram-
kvæmda ef niðurstööur kön-
nunarinnar verða jákvæðar. —
Flutningsmaður þessarar tillögu
er Ingi Tryggvason, sem nú situr
á Alþingi i forföllum Gisla Guð-
mundssonar.
Greinargerðin sem fylgir tillög-
unni er svohljóðandi:
„Undanfarin 20 ár hefur annað
slagið verið rætt um nauðsyn
þess, að geröur veröi alþjóðlegur
varaflugvöllur á noröanveröu
landinu til bættrar afkomu fyrir
Islenzka millilandaflugið og
aukins öryggis fyrir allt flug um
norðanvert Atlantshaf. Ekki hef-
ur þó oröið úr framkvæmdum, en
gerðar hafa verið athuganir I
þessu efni, sem jákvæðar eru
fyrir gerð millilandaflugvallar á
austanverðu Norðurlandi.
Komi inn i
heildarskipulag
ferðamála
Fyrirhuguð áætlun um fjárfest-
ingu i ferðamálum flýtir fyrir
nauðsyn þess, aö tekin verði ák-
vörðun um framtiöarskipan
millilandaflugþjónustu i landinu.
Er eðlilegt, að gerð alþjóðlegs
varaflugvallar á Norðurlandi
komi inn i heildarskipulag ferða-
mála. Þá er einnig rétt að kanna
áhuga þeirra, sem hagsmuna
eiga að gæta i sambandi við
áætlunarflug um norðanvert
Atlantshaf, fyrir varafl'ugvelli á
islandi og leita eftir fjárhagsleg-
um stuöningi þeirra i formi fram-
lags eða lána, ef sliks er kostur og
hagkvæmt þykir.
Ingi Tryggvason.
Aukið jafnvægi í ferðaþ.
Gerð alþjóðlegs varaflugvallar
á Noröurlandi mundi hafa i för
meö sér aukið jafnvægi i ferða-
þjónustu i landinu. Norðaustur-
land hefur mikiö aðdráttarafl
fyrir ferðamenn, og liklegt er, að
alþjóölegur flugvöllur á Norður-
landi yröi ýmist komu- eöa brott-
fararstaður erlendra og að ein-
hverju leyti innlendra ferða-
mannahópa. Er tvimælalaust
hagur aö þvi fyrir þjóðina i heild,
að uppbygging ferðaþjónustu
beinist ekki um of að takmörkuðu
svæöi, suðvesturhorni landsins. A
Norðausturlandi er myndarlegur
visir aö feröáþjónustu' sem eðli-
legt er og vafalaust hagkvæmt að
efla. Batnandi samgöngur á landi
stækka óðum það svæði, sem gæti
verið i beinu sambandi við vel
staðsettan millilandaflugvöll og
veitt þá þjónustu, sem slikur flug-
völlur krefst.
Meira farþegaflug
um Keflavík.
Alþjóðlegur varaflugvöllur á
Norðurlandi mundi auka öryggi
SKÁKKEPPNI STOFNANA
fer fram I veitingahúsinu i Glæsibæ, dagana 5,10,12, 17. og
24. aprll nk. og hefst téöa daga kl. 20.00. Tefldar verða 7
umferöir eftir MONRAD-kerfi. Mótinu lýkur 24. april með
verðlaunaafhendingu og hraðskákkeppni. Hver sveit skal
skipuð 4 aðalmönnum og 2 til vara. Skákstjóri verður Her-
mann Ragnarsson simi 20662 á kvöldin. Þátttökutil-
kynningar sendist I pósthólf 5232 ásamt þátttökugjaldi,
krónum 2.000.00. Öllum fyrirtækjum á Reykjavíkursvæö-
inu er heimil þátttaka.
TAFLFÉLAG REYKJAVÍKUR
STARF
Staða bæjarritara á bæjarskrifstofunum á Akranesi er
auglýst laus til umsóknar.
Próf 1 lögfræði eða viðskiptafræði er æskilegt.
Fjölbreytt verkefni og góð laun I boöi.
Umsóknarfrestur er til 13. april n.k. Umsóknir ásamt upp-
lýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist undir-
rituðum, sem veitir allar nánari upplýsingar um starfið.
13. marz 1972
Bæjarstjórinn á Akranesi.
islenzka millilandaflugsins og
bæta samkeppnisaðstöðu þess. Ef
slikur flugvöllur gæti enn fremur
stóraukið flugumferð um Kefla-
vik, væri fundinn fjárhagslegur
grundvöllur fyrir gerð sliks flug-
vallar.
Sérfróðir menn telja að stað-
setning varaflugvallar á Norður-
landi mundi beina auknum
straumi farþegaflugs um Kefla-
vik vegna aukins öryggis og
sparnaðar i flutningi eldsneytis
og þvi sé sennilegt, að slikur flug-
völlur stórbæti rekstrarafkomu
Keflavikurflugvallar. Þannig er
liklegt, að gerð alþjóðlegs flug-
vallar á Norðurlandi mundi ekki
aðeins orka til atvinnulegrar upp-
byggingar i nágrenni sinu, heldur
og til eflingar flug- og feröamála-
starfsemi i landinu i heild.
Til slikra athugana
þar vel aö vanda.
Athuga þarf þvl, hvort ekki sé
hagkvæmt að fjármagna sam-
eiginlega fyrirhugaðar umbætur
á Keflavlkurflugvelli og gerð al-
þjóölegs varaflugvallar á Norð-
urlandi. Ef honum yrði valinn
staður þar, sem ódýrast er aö
gera hann, — og þó öruggt land-
fræðilega og veðurfarslega, —
mundi gerð flugvallarins og
nauðsynlegustu flugstöðvar-
bygginga tæpast kosta nema sem
svarar andviröi tveggja nýrra
skuttogara. Það, sem farið er
fram á i þingsályktunartillögu
þeirri sem hér er lögð fram, er at-
hugun á þvi, hvort slik fram-
kvæmt væri þjóðhagslega hag-
kvæm eða ekki. Til sllkra athug-
ana þarf vel að vanda, og á miklu
veltur fyrir þróun flugumferðar
og feröaþjónustu, að athöfn fylgi
athugun, ef jákvæö niöurstaöa
fæst”.
Virkjun Jökulsár eystri.
Magnús Kjartansson, iðn-
aðarráðherra, sagði á fundi
sameinaðs þings s.l. þriðju-
dag, aö menn hjá Orku-
stofnuninni hefðu tjáð sér, að
hæpið væri að virkja Jökulsá
eystri ef um Norðurland eitt
væri að ræða sem markað. Þá
sagði ráðherrann meðal an-
nars i sambandi viö raforku-
mál Norðurlandskjördæmis
vestra, að kostnaður við aö
leggja háspennulinu frá Akur-
eyri til Sauðárkróks væri áætl-
aður kr. 80 millj.
Ráðherrann fjallaði um
þetta mál, er á dagskrá var
tillaga frá Sjálfstæðisflokks-
þingmönnum um virkjun
Jökulsár eystri.
Landhelgissjóöurinn
veröi efldur.
Jóhann Hafstein og átta aðr-
ir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins hafa lagt fyrir neðri
deild Alþingis svohljóðandi
lagafrumvarp um breytingu á
lögum nr. 25. frá 22, april 1967,
um Landhelgisgæzlu tslands:
„17 gr. laganna orðist svo:
1 Landhelgissjóð tslands
skal renna sektarfé að and
viröi upptækra verðmæta
vegna brota gegn fiskveiði-
löggjöfinni, og enn fremur
björgunarlaun, svosem segir I
12. gr.
Rikissjóður leggur Land-
helgissjóði til árlegt framlag,
50 millj. kr., I fyrsta sinn á
árinu 1972.
18. gr. laganna oröist svo:
Sjóðnum skal varið til hvers
konar tækjabúnaðar Land-
helgisgæzlunnar til gæzlu fisk-
veiðilandhelginnar og
björgunarstarfa, svo sem til
kaupa á varöskipum, flug-
vélum og öðrum tækjum hlið-
stæðum eða i tengslum við
fyrrgreint hlutverk”.
Endurskoðun hafnalaga
lokiö.
Hannibal Valdimarsson,
samgönguráðherra, upplýsti á
Alþingi s.l. þriðjudag, að
nefnd sú, sem unnið hefur að
endurskoðun hafnalaga, hefði
lokið störfum fyrir skömmu og
væri búin að skila áliti sinu.
Sagði ráðherrann að frum-
varp til nýrra hafnalaga yrði
lagt fram á þessu þingi.
Ráðherrann skýrði frá
þessu, vegna fyrirspurnar frá
AlexanderStefánssyni (F) um
þetta efni.
Skóla frumvörpin i
byrjun næsta þings.
A þriðjudag spurði Gylfi Þ.
Gislason (A) um frumvörpin
um grunnskóla og skólakerfi,
sem fyrrverandi rikisstjórn
lagði fyrir siðasta þing.
Magnús Torfi Ólafsson,
menntamálaráðherra, sagöi
að frumvörp um þessi mál
yrðu lögð fyrir Alþingi, þegar
það kæmi saman á nýjan leik i
haust. Rikisstjórn hefði i
sumar ákveðið að leggja ekki
fyrir þetta þing grunnskóla-
grumvarpið, og þar sem
frumvarpið um skólakerfi
væri svo nátengt fyrrnefnda
frumvarpinu hefði þurft að
láta það biða einnig. Ráð-
herrann sagði, að allt fram á
siðustu viku hefði mennta-
málaráðuneytinu borizt um-
sagnir um grunnskóla-
frumvarpið. Yrði brátt skipuð
nefnd til þess að endurskoða
frumvarpið. Væri nauðsynlegt
að taka ýmis ákvæöi þess til
rækilegrar athugunar áður en
það yrði lagt fyrir Alþingi.
Nýr veghefill á utanvert
Snæfellsnes.
Vegna fyrirspurnar frá
Alexander Stefánssyni (F)
upplýsti Hannibal Valdimars-
son, samgönguráðherra, á
Alþingi s.l. þriðjudag að Vega-
gerð rikisins hefði nú pantað
nokkra nýja veghefla og
kæmu þeir til landsins nú i
vor. Yrði þá unnt að staðsetja
veghefil á utanverðu Snæfells-
nesi, en sem kunnugt er hefur
verið brýn þörf á að hafa veg-
hefil þar, sem Alexander
minnti á, þegar hann bar fram
fyrirspurnina.
Þá spurði Alexander einnig
um þaö, hvort unnt væri að fá
þangað vestur fullkomna
grjótmulningsvél. Sagði sam-
gönguráðherra, að ekki væri
unnt að taka ákvörðun um
það, fyrr en vitað væri um
fjárveitingu til þessara mála.
Ennfremur sagði ráðherr-
ann vegna fyrirspurnar frá
Alexander Stefánssyni, að
endurbætur á flugvellinum á
Gufuskálum væri ekki á fram-
kvæmdaáætlun enn, þar sem
meira aðkallandi verkefni
sætu fyrir. —EB
TRYGGINGAKERFIÐ VERÐI
GERT EINFALDARA,
ÓDÝRARA OG RÉTTLÁTARA
EB — Reykjavik.
Björn Pálsson (F) hefur lagt
svohljóðandi tillögu fyrir
Sameinað Alþingi um en>
urskoðun á tryggingakerfinu:
„Alþingi ályktar aö fela rikis-
stjórninni að láta endurskoða
tryggingakerfið I heild I þeim til-
gangi aö gera þaö einfaldara,
ódvrara oe réttlátara. Eftir-
farandi atriða sé einkum gætt:
1. Afnumið sé hið tvöfalda lög-
boðna örorku— og lifeyrissjóða-
kerfi, þannig að einn sameigin-
legur lifeyrissjóöur sé fyrir alla
landsmenn. Miðað skal viö, að
upphæð fullra örorkubóta og
lifeyrisbóta eftir 67 ára aldur geti
numið allt að 2/3 af venjulegum
starfslaunum, hafi bótþegi engar
aðrar tekjur, en lifeyrir sé nokkuð
lægri, ef um aörar tekjur er að
ræða.
2. Tryggingakerfið sé fjár-
magnað annaö tveggja af rikis-
sjóði að öllu leyti af rikissjóði og
iðgjöldum einstaklinga. Verði
siðari kosturinn valinn, skulu at-
vinnurekendur greiða ákveöna
prósentu af nettótekjum, en laun-
þegar og vinnuveitendur sam-
Björn Pálsson
eiginlega tiltekna prósentu af
vinnulaunum og sé miðað við dag
vinnu og kauptryggingu sjó-
manna.
3. Þá lifeyrissjóði, sem til eru,
sé heimilt aö hafa I vörzlu þeirra
aöila eöa stéttarsamtaka, sem sjá
um þá nú, og skal ávaxta þá og
nýta á hagkvæman hátt fyrir við-
komandi aðila. Rikisvaldið skal
hafa eftirlit með starfrækslu
þeirra og verðtryggja ef unnt er.
4. Takist eigi samkomulag um
afnám iðgjalda til lögboöinna lif-
eyrissjóöa stéttarfélaga, vegna
þess að þeir séu álitnir nauð-
synlegir til öfluna lánsfjár, þá
verði frekar horfið að þeirri leið
aö afla lánsfjár meö þvi að skylda
einstaklinga á aldrinum 37 — 62
ára til að kaupa sparimerki, hliö-
stætt þvi sem ungt fólk gerir nú.
Miðaö sé við 10% af venjulegum
vinnulaunum. Sparimerki skal
verðtryggja og endurgreiða eftir
ákveðnum reglum eigendum
þeirra, eftir að þeir hafa náö 67
ára aldri. Sé eigandi sparimerkja
látinn, áður en þau eru að fullu
greidd, skal innistæða hans ganga
til erfingja eftir sömu reglum og
aðrar eignir.”
Með þessari tillögu fylgir afar
löng og itarleg greinargerð, sem
rúmsins vegna er ekki unnt að
birta hér.