Tíminn - 16.03.1972, Blaðsíða 16

Tíminn - 16.03.1972, Blaðsíða 16
Réttarhöldin yfir Angelu að hefjast endur allir hvítir NTB-San José. Báöir aðilar hafa nú samþykkt átta konur og fjóra karlmenn — öll hvit — sem kviðdóm í réttar- höldunum yfir Angelu Davis. Angela hefur sjálf samþykkt kviðdóm þennan. Umræöur um skipun dómsins hafa nú staðiö i þrjár vikur og var almenntbúizt viö, að ekki myndi ráðast úr þvi i bráð. Réttarhöldin sjálf geta þvi hafizt innan fárra daga, þegar búið er að velja vara- menn i dóminn. — Kviðdómur þessi sýnir vel, hvernig fólk býr hér i héraðinu, sagöi Angela. —.Þótt ekki sé þarna mitt fólk, treysti ég dómnum til að gera sitt bezta til að réttlætið nái fram að ganga. I Santa Clara-héraði, þaðan sem kviödómendur skulu vera, býr 1 milljón manna og aðeins 2% eru negrar. Hussen ætlar að stofna nýtt ríki NTB-Amman. Hussain Jórdaniukonungur lagði i gær fram áætlun um að breyta konungsrikinu Jórdanlu i sambandsriki, ásamt jórdanska svæðinu á vesturbakka Jórdan- árinnar, sem tsraelsmenn hafa nú hertekiö. Aætlun þessi felur i sér, aö tvö sjálfstæö riki verði hvort á sinum árbakkanum, en þó bæöi undir yfirstjórn Hussains, og komi á i stað þess Jórdanska rikis, sem til var áður en tsraelsmenn hertóku vesturbakkann i júni-striöinu 1967. Það voru 500 manns saman- komnir i veizlu i konungshöllinni i dag, þegar Hussain lagði fram áætlunina. Sambandsrikið á að vera opiö öllum frjálsum Arabiu- rikjum, sem vilja sameinast þvi. Amman verður höfuðborgin og aösetur yfirstjórnar rlkisins, en höfuðborg vesturhlutans verður Jerúsalem. Hussain sagöi ekkert um, hvenær áætlun þessi ætti aö koma til framkvæmda, eöa hvort tsrael ætlaði aö láta af hendi herteknu svæðin. Hann taldi, að þaö væri klofningi innan Arabarikjanna sjálfra að kenna, að Israelar hefðu haldið svæöunum allan þennan tima. [ Fimmtudagur 16. marz 1972. ltringurinn á kortinu er dreginn um skagann, sem slysiö varö á. Dubai er i miöjum hringnum, en flakið liggur um 1K km-þaðan, uppi i illfærum eyöimerkurfjöllum. Enn skelfur í Ancona NTB-Róm. Mörg þúsund hinna 100 þúsunda ibúa i borginni Ancona á strönd Adriahafs flýðu heimili sin i fyrri- nótt vegna jarðskjálfta. I borginni urðu miklir jarð- skjálftar 5. febrúar sl. og skemmdust þá 150 hús þar. Jarð- skjálftarnir i nótt voru það snarpir, að hægt var að likja þeim við hina fyrri. Þúsundir borgarbúa létu i fyrrinótt fyrirberast i bifreiðum eða tjöldum utan við borgina. Undanfarnar 5 vikur hafa fundizt meira en 500 jarðskjálfta- kippir i borginni og þegar hörðustu kippirnir gengu yfir i febrúar, voru aðeins 10 þúsund manns i borginni. TALIÐ AÐ 112 SVÍAR, DANIR, ÞJÓÐVERJAR HAFI FARIZT NORÐMENN, FINNAR OG þegar dönsk Caraveile þota rakst á fjall við Persaflóa NTB-Dubai og Kaupmannahöfn Dönsk Caravelle-þota frá Ster- ling-flugfélaginu, fórst við Persa- flóa á þriðjudagskvöldið og með henni 112 manns, allir, sem voru um borð. Ahöfnin var dönsk en farþegarnir 86 Danir, 12 Norö- menn, 4 Finnar, 20 Sviar og 2 V- Þjóðverjar. Ekki er vitað um ástæðuna fyrir slysinu, en Ijóst er, að flugvélin rakst á fjall skö- mmu áður en hún átti að lenda i Duhai. Flugvélin, sem var aö koma frá Colombo á Ceylon og hafði milli- lent i Ankara, átti að lenda i Dubai kl. 18.14 að isl. tima á þriðjudagskvöld. Vélin haföi samband við flugturninn kl. 18.06, en skömmu siöar rofnaöi sambandið. Um kl. 22 um kvöldið fékk Sterling-flugféi. tilkynningu um, að vélarinnar væri saknað. Alla nóttina og i gærmorgun reyndist gjörsamlega ómögulegt að ná sambandi við Dubai frá Kaupmannahöfn i sima eða á telex og það var ekki fyrr en undir hádegi i gærmorgun, aö loks var hægt að koma alþjóðasimakerf- inu i skilning um, að um lif og dauða væri að ræða, að sam- bandið fékkst. Þá fengust þær upplýsingar, að leitarflokkar hefðu verið sendir út upp úr mið- nættinu og nú væru einnig flug- vélar aö leita. Erfiðar aðstæður Leitarstarfið var mjög erfitt, þar sem veður var slæmt og aus- andi rigning. Fjalllendi er þarna og erfitt aö finna lendingarstaö fyrir þyrlur. 1 gærmorgun til- kynnti þyrla, að hún hefði fundið flakið i eyöimerkurfjöllunum i Ras Al-Khaima á Musandam- skaga, sem aðskilur Persaflóa og Oman-flóa. Þar liggur það um 500 metrum ofar sjávarmáli, um 18 km frá ströndinni, þar sem Dubai er. Þyrluflugmaðurinn gat hvergi lent þarna nálægt, en hringsólaði yfir og skýrði siöan frá þvi, aö ekki væri nokkurt lifsmark að sjá. Frétt barst um það i gær, að maður einn, sennilega flug- maðurinn, hefði komið til fiski- þorpsins Kalba, og væri hann eini maðurinn, sem lifað hefði slysið af. Sú frétt var dregin til baka skömmu siðar. Sorg hjá Sterling A blaðamannafundi i aðalskrif- stofum Sterling-flugfélagsins i Dragör i gær, var lesin upp opin- ber tilkynning frá félaginu, þar sem sagði m.a. að félagið heföi tekið við fréttinni um slysið með þungri sorg. Eilif Kroager, Tjöru- borgarpresturinn, á hvers vegum farþegar flugvélarinnar fóru til Ceylon, féll saman og grét, þegar honum barst fréttin. Á blaðamannafundinum var sagt, að Sterling gæti ekkert sagt Prófkosningarnar í Flórída: DEMOKRATAR EIGA NU ENGAN FREMSTAN í BARÁTTUNNI NTB-Washington. Úrslit prófkosninganna i Flórida á þriðjudaginn hafa valdið mikilli ringulreið I her- búðum dmókrata, en sannaði republikönum, að kjósendur þeirra i Flórida styðja Nixon af öllu hjarta. Nixon fékk 87% af atkvæðum repúblikana, en atkvæði demókrata skiptust þannig, að Wallace fékk 42%, lluphrey 18%, Jackson 13% og Muskie 9%. Aðrir fram- bjóðendur fengu 7% eða minna. Demókratar urðu fyrir sárum vonbrigöum með Muskie og hefur hann nú tapað mesta „glansinum” sem mögulegt forsetaefni. Flokkurinn hefur nú engan mann, sem er liklegur til aö verða forsetaefni hans. Humphrey hefur lýst sig hinn eiginlega sigurvegara eftir kosningarnar i Flórlda, en hann þarf að „vinna” fleiri kosningar til að koma til greina. Demókratar segja, að ekki komi til mála, að Wallace verði forsetaefni, þar sem hann sé ekki „ekta” demó- krati. Á flokksþingi demókrata verður tekin endanleg ák- vöröun um forsetaefniö, en þangað til verða fram- bjóöendur að tryggja sér atk- væöi kjörmanna þar. Til að verða útnefndur forsetaefni, þarf frambjóðandinn að hafa atkvæði 1509 kjörmanna. Eftir prófkosningarnar nú i New Hampshire og Flórida, hefur Wallace tryggt sér 75 atkvæði, en Muskie er næstur með 22 1/2 atkvæði. 68 kjörmenn er og verða óháöir. Eins og áöur segir, fékk Nixon 87% af atkvæðum demókrata, næstur var John Ashbrook með 9%, svo enginn getur borið á móti þeirri stað- hæfingu formanns „en- durkjósum-Nixon-nefndar- innar” að kjósendur i Flórida styðji forsetann og stefnu hans. Muskie, sem segja má, að hafi goldið mikiö afhroö i þessum prófkosningum, hélt i gær ræðu til hinna vonsviknu stuðningsmanna sinna. Þar sagði hann m.a. að það, sem hefði valdið sér mestum vonbrigöum væri ekki per- sónulegur ósigur sinn, heldur að kosningabarátta Wallace og sigur, hefði flett ofan af þvi, hvað fólk getur verið illgjarnt. — Hann er ógnun við einingu Bandarikjanna, framgang og allt það, sem gert hefur okkur að stórveldi. Ég hata allt, sem hann er fulltrúi fyrir sagði Muskie að lokum um Wallace. um orsök slyssins, flugstjórinn heföi ekki tilkynnt um neitt óvenjulegt, nokkrum minútum áöur en vélin átti að lenda. Full- trúar Sterling fóru til Dubai i gær ásamt slysarannsóknarnefnd. Hirðingjar sáu slysið Fyrstu tilkynningarnar um slysiö bárust frá hiröingjum I furstadæmi einu fremst á skaganum. Sögðust þeir hafa séð skæran blossa I eyðimörkinni. Björgunarleiðangur var á leiö að flakinu i gær, en ekki var gert ráð fyrir, að hann kæmist þangaö næsta sólarhringinn. Bæði er, að landslag er þarna einstaklega erfitt yfirferöar og veður er slæmt. Sterling fékk þó tilkynn- ingu siödegis i gær þar sem sagöi, að einum manni hefði tekizt að komast að flakinu og að þvi hon- um virtist i fljótu bragði, væri enginn á lifi. Þyrlur gátu ekki i gær lent nálægt flakinu, en ein þeirra nauðlenti og það var ein- mitt flugmaður hennar, sem kom til byggða og i fyrstu var haldið, að væri flugmaöurinn af dönsku vélinni. Höfðingi hirðingjanna, sem sáu slysið, hefur þegar sent þjóð- höfðingjum viðkomandi landa samúðarskeyti. Svart: Reykjavik: Torfi Stefánsson og Kristján Guð- mundsson. ABCDEFGH KAliliH m m m m »9 « AOöiöBöff ABCDEFGH Hvitt: Akureyri: Sigurðsson og Heiðreksson. Sveinbjörn Hólmgeir 1. leikur Reykvikinga, Rg 8 — f 6

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.