Tíminn - 10.05.1972, Blaðsíða 17
M iftv ilr nrl q rfii r- 1H moi 1Q7*> 'PílVrTMM
OG SKÓLASTRÁKUR
— sem fengið hefur hæstu einkunn
Maðurinn, sem velur og
stjórnar vestur-þýzka iandsliðinu
i knattspvrnu, heitir Helmut
Schön, hann gegnir sama hlut-
verki i V-Þýzkaiandi og Alf
Ramsey i Englandi. Schön tók viö
af Sepp Herberger sem einvaldur
1964, og hefur hann náð frábærum
árangri með v-þýzka liöið. 1966
kom hann liðinu i úrslit i Heims-
meistarakeppninni i Englandi — I
úrslitaleiknum á Wembley töpuðu
Þjóðverjar fyrir Englendingum
2:4. I HM-keppninni i Mexico
varð liðið i 3. sæti.
Nú er Ilelmut Schön byrjaður
að byggja upp nýtt lið, takmarkið
er að gera V-Þjóðverja að heims-
meisturum 1974. Það má búast
við að möguleikarnir séu miklir
—7 keppnin verður haldin i V-
Þýzkalandi. Og þar að auki hefur
Vestur-Þýzki „einvaldurinn”,
Ilelmut Schön, lætur það ekki á
sig fá, þó að rigni — hann er alltaf
mættur til að fylgjast með
strákunum sinum á æfingum.
erti Vogts — álitinn einn bezti
akvöröur i heimi, hann var val-
nn i heimsliðið eftir Heims-
neistarkeppnina i Mcxico, ásamt
ieckcnbauer og Overath.
Schön marga frábæra knatt-
spyrnumenn undir sinni stjórn.
„Ég var eins og glaöur skóla-
strákur, sem fengiö hefur
hæstu einkunn,” sagöi
Helmut Schön, eftir að Vestur-
Þýzkaland, sigraði England 3:1 á
Wembley i 8 liða úrslitunum i
Evrópukeppni landsliða fyrir
stuttu. Sá leikur var 6. leikur V-
Þýzkalands gegn Englandi —
undir stjórn Schön. Leikirnir hafa
farið þannig:
1965 NCfrnberg 0:1
1966 Wembley 0:1
1966 Wembley 2:4 HM
1968 Hannover 1:0
1970 Leon 3:2 HM
1972 Wembley 3:1
Þjóðirnar mætast aftur 13.
mai i Berlin — er það siðari leikur
liðanna i Evrópukeppninni.
Hér á eftir ætlum við i stuttu
máli, að kynna leikmennina, sem
eru i 20 manna hópi Schön.
Leikmennirnir (11), sem léku á
Wembley, eru fyrst taldir upp.
Josep (Sepp) Maier (27 ára)
markvörður, Bayern Múnchen,
hefur verið fastur landsliðsmark-
vörður undanfarin ár — hann
hefur leikið 38 landsleiki.
Horst-Dieter Höttges (28 ára)
bakvörður, Werder Bremen,
hefur leikið meira og minna með
v-þýzka landsliðinu siðan 1965 —
hann tók þátt i HM-keppninni i
Englandi og Mexico.
Georg Schwarzenback (23 ára)
miðvörður, Bayern Mflnchen, er
einn af hinum ungu og efnilegu
leikmönnum V-Þýzkalands, hann
hefur leikið 10 landsleiki.
Franz Beekenbauer1 (26 ára)
miðvðrður, Bayern Mfinchen, er
tvimælalaust kunnasti leik-
maður þýzka landsliðsins — hann
hefur leikið 59 landsleiki. Er hann
mjög frægur sem miðvallar-
spilari, en er nú búinn að draga
sig aftur. Beckenbauer hefur yfir
mikilli knatttækni að ráða og
framkvæmir erfiðustu hreyfingar
af þvi er virðist án mikillar fyrir-
hafnar — hann á það til að rjúka
allt i einu i sókn — og skora eitt af
sinum frægu mörkum, með
þrumuskotum, fyrir utan vita-
teig. Beckenbauer var bezti leik-
maður V-Þýzkalands i HM-
keppninni i Englandi og Mexico.
Faul Breitner (20 ára) bak-
vörður, Bayern Míinchen, hefur
leikið 4 landsleiki — honum er
bezt lýst með orðum Alf Ramsey,
sem sagði um hann fyrir stuttu:
„Breitner er maður framtiðar-
innar — ég á aðeins eitt orð yfir
hann — frábær”.
Ilerbert Wimmér (27 ára)
tengiliður, Monchen gladbach,
hefur ekki oft klæðzt landsliðs-
peysunni — hann hefur verið einn
Beckenbauer — frægasti knattspyrnumaður V- Þýzkalands, varð heimsfrægur I Heimsmeistar-
keppninni I Englandi 1966, þá aðeins 20 ára. Myndin sýnir hann í leik þar gegn Sviss, sem Þjóðverjar
sigruðu 5:0 — Beckenbauer skoraði tvö mörk I leiknum, eftir glæsilegan einleik, á 40. og 52. mín.
« •
Overath — fyrirliöi V-Þýzkalands og 1. FC Köln.
af mönnunum bak við velgengni
M-gladback, síðustu árin. Tók
stöðu fyrirliða V-Þýzkalands,
Wolfgang Overath, sem er
meiddur.
Uli Hoeness (19 ára) útherji,
Bayern MCfnchen, er enn skráður
áhugamaður — hann er eitt mesta
efni,sem hefur komið fram i v-
þýzkri knattspyrnu siðustu árin.
Hoeness hefur leikið tvo lands-
leiki og skorað mark i þeim
báðum.
Gunter Natzer (27 ára)
tengiliður, Monchen gladbach er
aðal uppbyggjari liðsins og matar
samherja sina á mjög ná-
kvæmum sendingum. Skytta er
hann góð og frægur fyrir mörk sin
úr aukaspyrnum i nánd við vita-
teig. Hann hefur leikið 27 lands-
leiki, en i landsliðinu leikur hann
nú stöðu þá, sem Overath 'ék i
HM-keppninni i Mexico 1970-
Jurgen Grabowski (28 ára)
útherji, Eintracht Frankfurt, er i
Þýzkalandi kailaður „hvirvil-
bylurinn”, vegna hraða sins og
stórhættulegra fyrirgjafa — hann
lék stórt hlutverk i HM-keppninni
i Mexico.
Gerd Miiller (27 ára)
miðherji, Bayern Munchen, er
mesti markaskorari V-Þýzka-
lands, — kallaður „Bomber” þar i
landi. Hann þarf mjög litið svig-
rúm, er eldfljótur að skjóta og er
alltaf á réttum stað, tilbúinn að
pota knettinum yfir marklinuna.
Hann hefur leikið 38 landsleiki og
skorað 44 mörk i þeim.
Sigefried Held (30 ára)
miðvallarleikmaður, Borussia
Dortmund, byrjaði að leika með
landsliðinu 1966 — lék með liðinu i
HM-keppninni i Englandi og
Mexico.
Aðrir leikmenn^sem eru i 20
manna hópi Helmuts Schön, eru
þessir:
Norbert Nigbur(24 ára) mark-
vörður Schalke 04, hann setti met
i v-þýzku „Bundesligunni” i vetur
— fékk ekki á sig mark i 6 knatt-
spyrnuleikum, eða samtals 551
min. skv. skeiðklukku. Þar bætti
hann met Hans Tilkowski (B.
Dortmund) frá 1965 — 547 min. Sá
var árum saman markvörður v-
þýzka landsliðsins, m.a. i Eng-
landi 1966, en er nú hættur.
Berti Vogts (26 ára) bakvörður
Monchengladbach, álitinn einn
bezti markvörður i heimi, hefur
verið valinn i heimslið. Hann er
aðeins 1.68 cm á hæð, og er hann
kunnur fyrir geysilegan baráttu-
vilja. Vogts hefur leikið 42 lands-
leiki — á við meiðsli að striða um
þessar mundir.
Karl-Heinz Schnellinger (31
árs) miðvörður er kallaður þýzki
„ttalinn”, þvi að hann hefur
undanfarin ár leikið með italska
l.deildarliðinu A.C Milan — er
m.a. markið, sem færði liðinu 3.
sætið þar. Overath hefur átt við
meiðsli að striða i vetur, en er aö
komast i sitt gamla góða form.
Wolfgang Kleff (25 ára)
markvöröur Monchengladbach,
hefur leikið 1 landsleik og verið
varamarkvörður i nokkrum.
Wolfgang Webcr(28ára) fram-
herji, 1. FC Köln hefur leikið i
landsliðinu siðan 1964 — hefur
Gunter Natzer — er talinn bezti knattspyrnumaður V-Þýzkalands I dag.
Talið er fullvfst, að hann fái „Gullskóinn”, sem franska blaöið France
Football veitir árlega bezta knattspyrnumanni Evrópu. Á myndinni
sést hann vera að skora I landsleik gegn Austurrfki — Miiller sést lengst
til vinstri.
talinn bezti maðurinn þar ásamt
Rivera. Hann lék sinn fyrsta
landsleik i HM-keppninni i Sviþj.
1958, við Frakkland — um 3,-4.
sætið, var hann þá aöeins 17 ára
(jafngamall Pele). Einnig lék
hann i HM-keppninni i Chile 1962,
Englandi 1966 og Mexico 1970.
Var ekki með á Wembley vegna
meiðsla.
Klaus Fichtel (27 ára) fram-
herji, Schalke 04, marksækinn
leikmaöur með afbrigðum, lék
sinn fyrsta landsleik 1967.
Wolfgang Overath (28 ára)
tengiliður, 1. FC Köln, er fyrirliði
v-þýzka landsliðsins. Hann hefur
verið fastur leikmaður i liðinu,
siðan 1965. Sýndi frábæra leiki i
HM-keppninni i Mexico — skoraöi
ekki alltaf verið fastur maður
þar. Skoraði t.d. jöfnunarmarkið
2:2 i úrslitaleiknum i HM 1966.
Reinhard Libuda (28 ára)
framherji, Schalke 04 vakti
áthygli i HM-keppninni i Mexico,
er eidfljótur og hefur næmt auga
fyrir samleik.
Johannes Löhr (29 ára) bak-
vörður, 1. FC Köln, lék meö liðinu
i HM-keppninni i Mexico. Mjög
marksækinn varnarleikmaður og
viss skallmaður.
Ekki vitum við enn, hvernig
þýzka liðið verður skipað gegn
Englandi i Berlin n.k. laugardag,
en það má.búast við einhverjum
breytingum. En eitt er vist —
Þjóðverjar ætla sér að vinna
leikinn stórt. SOS
VARÐ GLAÐUR EINS