Tíminn - 31.05.1972, Síða 3
Miðvikudagur 31. mai. 1972.
TÍMINN
3
PENINGASTOFNANIR OG
VERÐBRÉFASALAR TÓKU
HELMING SPARISKÍRTEIN-
ANNA TIL SÖLU í GÆR
Sala spariskirteina rikissjóðs i
2. flokki 1972 hófst þriðjudaginn
30. mai. Nam útboðið 300 millj.
króna. Þegar á fyrsta degi höfðu
peningastofnanir og verðbréfa-
salar tekið til sölu um helming
útboðsins.
Nú er i fyrsta sinn boðin út i
einu veruleg fjárhæð. Hafa út-
gáfur til þessa verið all miklu
• /
GRALUÐUBATAR
BÚA SIG Á VEIÐAR
200 bátar komnir á humar
ÞÓ—Reykjavik.
Grálúðubátar eru nú
sem óðast að búa sig til
veiða, en ekki er al-
mennt reiknað með, að
þeir haldi á miðin fyrr
en eftir helgi, enda fer
grálúðan ekki almennt
að gefa sig fyrr en um
miðjan næsta mánuð.
Vitað er, að margir Vest-
fjarðabátar munu halda
til grálúðuveiða, og
einnig fara Sunnlend-
ingar og Austfirðingar
til þessara veiða.
Þrir bátar eru nú farnir til linu-
veiða við Grænland, en ekki er
vitað um aflabrögð hjá þeim.
Hinsvegar er vitað, að is hefur
ekki orðið þeim til trafala, eins og
oft áður, enda eru ein 7 ár siðan
jafn litill is hefur verið á miðun-
um við Grænland.
Nú eru komnir um 200 bátar á
humarveiðar, og þykirmörgúm
það vera orðin iskyggilega há
tala, þar sem bátarnir eru nú um
60 fleiri en i fyrra, og þar að auki
hefur meðal rúmlestatalan
stækkað mikið. Afli humarbát-
anna hefur verið ærið misjafn.
Við S—Austurland hefur hann
verið sæmilegur og góður hjá
mörgum, en við S—Vesturland
hefur bræla háð veiðunum mikið,
og afli þar að leiðandi verið litill.
Búið er að veita 35 bátum leyfi
til rækjuveiða á Eldeyjarsvæð-
inu, og munu 30 vera byrjaðir
veiðar. Rækjan hefur verið blönd-
uð, en aflabrögð hafa verið sæmi-
leg. Hafa bátarnir fengið allt upp
i 3 tonn i veiðiferð.
Vélskólanum slitið í 57. sinn
VÉLAR A ÞJÓÐ-
MINJASAFNIÐ
ÞÓ—Reykjavik.
Vélskóla tslands var sagt upp i
57. skipti s.l. laugardag. Úr skól-
anum útskrifuðust að þessu sinni,
alls 261 vélstjóri, þar af útskrif-
uðust 33 úr 4. stigi, 63 úr 3. stigi,
84 úr 2. stigi og 81 úr 1. stigi.
Skólinn starfaði á þremum
stöðum á landinu i vetur, i
Reykjavik og á Akureyri og i
Vestmannaeyjum, en á þessum
tveim siðari stöðum var 1. og 2.
stig skólans starfrækt.
Skólastjórinn, Andrés Guðjóns-
son sagði m.a. i skólaslitarræðu
sinni: ,,Nú eygjum við lausn á
húsnæðisvandamálum skólans.
Neita varð allmörgum um skóla-
vist s.l. vetur, en ráðamenn
fræðslumála hafa sagt við mig, að
slikt megi ekki eiga sér stað, enda
væri erfitt að forsvara það, þar
sem alltaf er skortur á vé.lstjór-
um. Mun hann sýnilega aukast,
þar eð nú er fyrirsjánanleg mikil
aukning á skipastóli lands
manna, m.a. með tilkomu hinna
nýju skuttogara.
Nú er hafin nýbygging austan
við skólann og verður hluti
hennar væntanlega tilbúinn til
notkunar i haust, og fær skólinn
þar m.a. raftækjasal. Þangað
verður flutt öll verkleg kennsla i
rafmagnsfræði. Gamla raf-
tækjasalnum verður breytt i
kennslustofur. Einnig er ætlunin,
að skólafélag Vélskólanema fái
þar skrifstofu eða litið fundar-
herbergi. 1 nýbyggingunni verður
auk tækjasala fyrirlestrarsalur
og kennslustofur.
Vegna þrengsla i vélasölum,
verðum við, sagði Andres, ,, að
losa okkur við elztu vélarnar. Við
erum löngu hættir að nota þær við
kennsluna. Þær eru orðnar það
gamlar, að þær eru nú hreinir
forngripir, enda hefur nú verið
ákveðið, að þær verði afhentar
Þjóðminjasafni til varðveizlu.”
1 lok ræðu sinnar sagði Andrés:
,,Ef til vill þykir ráðamönnum
fjárveitinga rikisins upphæðir
þær allháar, sem skólinn fer fram
á' til tækjakaupa, en þá vil ég
minna á það, hve mikil þau verð-
mæti eruf sem vélstjórar hafa
undir höndum, þegar þeir koma
til starfa. Til dæmis: aðeins
stjórntæki vegna sjálvirkniút-
búnaðar í einu af nýjustu skipum
Eimskipafélags tslands, kostaði
um 8 milljónir króna: skuttogari
af minni gerðinni kostar um 100
milljónir kr., stærri togari
150—200 milljónir. Þess vegna tel
ég það fremur hógværa kröfu að
fá næstu fjárlögum 10 milljónir til
tækjakaupa fyrir skólann."
12fastráðnir kennarar störfuðu
við skólann i vetur, og að auki 15
stundakennarar.
minni og því ekki náð sem skyldi
út til almennings. Aðalkostir
spariskirteina rtkissjóðs eru:
að þau eru eina verðtryggða
sparnaðarformið, sem á boðstól-
um er,
að höfuðstóll tvöfaldast með
vöxtum á 14 árum, en skirteinin
eru innleysanleg hvenær sem er
eftir fimm á,
að góður almennur markaður
nefur skapazt með skirteinin,
að höfuðstóll, vextir og vaxta-
vextir eru verðtryggðir,
að þau jafngilda fjárfestingu á
fasteign, en eru fyrirhafnar— og
áhyggjulaus,
að þau eru nafnskráð, en eftir
sem áður skatt— og framtals-
frjáls.
Allar uppiýsingar eru veittar
hjá bönkum, sparisjóðum og
verðbréfasölum. Peningastofn-
anir veita og þá þjónustu að
geyma skirteinin gegn vægu
gjaldi og annast umsjón og inn-
heimtu þeirra, þegar eigandi
óskar. (Frá Seðlabankanum)
I
isL
t
II
kmM
Stangaveiðin byr.iar á
morgun. Veiðileyfin
kosta frá kr. 200 —
7900.
l.axveiði á stöng liefst á
morgun, með þvi að byrjað
verður að veiða i Norðurá i
Borgarfirði og i Miðfjarðará i
Miðfirði. i Norðurá verður
byrjað með 9 stangir, en i Mið-
fjarðará verða 4 til að byrja
með. Klestar verða stangirnar
14 i Norðurá i sumar og 10 i
Miðfjarðará.
Veiðimenn bafa sjaldan eða
aldrei getað valið á milli jafn
margra laxveiðiáa bjá
Stangaveiðifélagi Reykja-
vikur og i sumar. iljá Stanga-
veiðifélaginu fengum við þær
upplýsingar, að félagið væri
með 13 ár á leigu, og þær eru:
Klliðaár, Leirvogsá, Grimsá,
G 1 j ú f u r á , N o r ð u r á ,
Miðfjaraðará, Breiðdalsá,
Jökulsárblið, vatnasvæði
Lagarflj óts, Stóra-Laxá i
Ilreppum, bluti af Brúará,
Ilólá og Fullsæll. Fyrir utan
laxveiðiárnar er Stangaveiði-
lélagið með silungsveiði á
Arnarvatnsheiði i Kleppa-
vatni. i Fiskivötnuin og i
Reykjavatni. Þá mun félagið
selja veiðileyfi til þcirra, sem
vilja veiða við Lárós.
Veiðileyfin kosta mjög
mismunandi eða allt frá
krónum 200 til 7900. Að sjálf-
sögðu er dýrast að veiða i
Norðurá, 7900 kr., en samt
seni áður er það nú svo, að i
Norðurá er hægt að fá veiði-
leyfi fyrir 800 krónur á dag.
Það er á svæði, sem Stanga-
veiðifélagið fékk i fyrra, en
það nær frá Straum upp að
Brú við Norðurá. — ÞÓ.
Tónleikar í Laugarneskirkju
Fimmtudaginn 1. júni, kl. 20.30,
efna kirkjukórar Laugarnes-
kirkju og Asprestakalls til tón-
leika i Laugarneskirkju.
A efnisskrá verða verk eftir Pál
Isólfsson, Bach, Haydn og
Mozart. Gústaf Jóhannesson
leikur á orgel. Sólveig M. Björling
og Halldór Vilhelmsson syngja
einsöng, einnig munu þau og
Einar Sturluson syngja með
kórnum, Þorvaldur Steingrims
son leikur á fiðlu. Kirkjukórarnir
syngja undir stjórn Gústafs
Jóhannessonar og Kristjáns Sig-
tryggssonar.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
: Verötryggiö
peningana núna
byggiö seinna
Ungt fólk, sem ætlar sér að ráðast í byggingaframkvæmdir
seinna, ætti að gefa þvi góðan gaum, að verðtryggð spari-
skírteini eru öruggasta fjárfestingin. Þeir, sem kaupa skírteini
nú geta fengið þau endurgreidd með hagstæðum vöxtum,
vaxtavöxtum og verðbótum af höfuðstól og vöxtum, að.fimm
árum liðnum. Auk þess eru skírteinin skatt- og framtalsfrjáls.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
ÍÉj$\