Tíminn - 31.05.1972, Blaðsíða 7

Tíminn - 31.05.1972, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 31. mal. 1972. TÍMINN 7 Barnið pyndaö, eða hvað? Söngvarinn Charles Aznavour hefur orðið fyrir miklu aðkasti að undanförnu i tilefni af þvi, að hann heimilaði að þriggja ára dóttir hans Katia léki aðalhlut- verkið i nýrri kvikmynd, sem byrjað er að sýna i Evrópu. En hvers vegna er þetta svona merkilegt? Jú, i myndinni græt- ur barnið ofboðslega, og lætur öllum illum látum, eins og verið sé að pina það, og reyndar litur hreinlega út fyrir, að það se pyndað. Fólk hefur sagt, að það sé nokkuð langt gengið, þegar fólk á borð við Charles Aznavour, og hina sænsk fæddu konu hans, Ullu, leyfi sér að selja börn sin til þess að leika i kvikmyndum, og hlutverkin séu þannig, að börnin hljóti að biða varanlegt tjón á sálu sinni við að leika þau. Þessar ásakanir hafa gengið svo langt, að Charles Aznavour hefur séð sig til- neyddan til þess að bera hönd fyrir höfuð sér. — Telpan hefur alls ekki verið pynduð, segir hann. Hins vegar er gráturinn, og ofsinn, sem fram kemur hjá henni i myndinni eins eðlilegur og slikt getur nokkru sinni orðið i kvikmynd. Kvikmyndatöku- mennirnir voru nefnilega lang- timum saman á heimili Aznavour, og fylgdust með litlu stúlkunni. Þeir gripu hvert tækifæri, sem gafst, þegar hún fékk reiðiköst, eða grét, til dæmis þegar hún fékk ekki karamelluna, sem hún hafði beðið um, eða þegar hún hélt, að taka ætti af henni dúkkuna hennar. Þá streymdu tár niður litlu kinnarnar, og það voru engin gervitár framkölluð með þvi að láta hana lykta af lauk, eða öðru álika. Katia er mikil skapofsamanneskja, eins og faðir hennar er einnig sagður vera, og þvi hefur kvikmyndin, sem gerð var með þessum grátinnskotum, á viðeigandi stöðum orðið jafn raunsönn mynd af þvi, sem fram hafði átt að fara og raun ber vitni. Fólk á þó enn erfitt með að trúa þessari skýringu, en flestum foreldrum finnst ótrúlegt, að nokkur geti selt barnið sitt til þess að láta pynda það, þótt háar peninga- upphæðir séu i boði fyrir kvik- myndaleikinn. Rödd að ofan Þjófar, sem brjótast inn i kirkjuna i Vrena i Sviþjóð heyra allt i einu rödd kalla til sin. Þú skalt ekki stela. Þetta er rödd prestsins, Lars Ekrelius, sem hljómar til þeirra af segulbandi. Tveir þjófar, sem létu sér ekki segjast, þegar þeir heyrðu prestinn tala, lögðu þó á flótta, þegar kirkjuklukkurnar tóku að hringja. En kirkjuklukkurnar, sem eru i beinu sambandi við aðvörunarbjöllu á lögreglustöð- inni, gerðu lögreglunni viðvart, og þjófarnir náðust. Vildrsjálf hegna þjófinum Sjötiu og þriggja ára gömul kona i Omaha i Nebraska var kölluð á lögreglustöðina til þess að lita framan i hóp manna, en talið var, að i hópnum leyndist maður, sem skömmu áður hafði rænt mann hennar, sem var mikill sjúklingur. Gamla konan gekk fram hjá röðinni, og allt i einu kom hún auga á þjófinn. Aður en við var litið, hafði hún ráðizt á manninn, og barði hann nú sundur og saman með regnhlifinni sinni. Hún hafði ætlað sér að lumbra sjálf á hon- um fyrir það, að hann réðist á mann hennar og rændi hann, hjálparlausan. Nýr svifnökkvi frá Gorki I skipasmiðastöðinni i Gorki, iðnaðarborginni miklu við Volgu, hefur nýjum svifnökkva (loftpúðabáti) verið hleypt af stokkunum og var honum gefið nafnið ,,Orion” við sjósetn- inguna. Þetta er stærsti far- þegabátur af þessari gerð, sem smiðaður hefur verið til þessa i Sovétrikjunum. Hann getur flutt 80 farþega og siglt á mjög grunnu vatni með allt að 60 km hraða á klukkustund. Silfurrefurinn á nýjan leik Þá er senn kominn timi til þess að draga gamla silfurrefinn sinn fram á nýjan leik, ef dæma má af þessari mynd frá haust- tizkusýningu i London. Sýn- ingarstúlkan, Vicki Hodge er hér i hvitri ullardragt með hvit- an hatt og slæðu, og á herðum hennar hangir langur silfurref- ur. Það er tizkuteiknarinn Tania Soskin, sem hefur teiknað þenn- an haustklæðnað. DENNI DÆAAALAUSI Auðvitað sef ég, en ég geri það bara ekki á daginn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.