Tíminn - 31.05.1972, Blaðsíða 17

Tíminn - 31.05.1972, Blaðsíða 17
Miðvikudagur 31. maí. 1972. TÍMINN 17 - segir David Exall, framkv.stjóri Everton, í viðtali við TÍMANN, en Exall gisti ísland um síðustu helgi sinni. Liðsstjóri Everton er hinsvegar, Harry Catterick. — Eftir að Ball fór til Arsen- al efldist liösandinn hjá okkur mjög og þrátt fyrir gifurleg meiðsl leikmanna tókst okkur sæmilega upp. Ekki bætti það þó úr skák, er Harry Catterick veiktist og þurfti að fara á sjúkrahús. Þjálfarinn Tommy Casey tók þá við stjórninni. Catterick er ekki alveg búinn að ná sér að fullu, en verður vonandi orðinn hress i byrjun leiktimabilsins i ágúst. Hon- um til aðstoðar næsta ár hefur verið ráðinn Tommy Eggle- stone, sem var með Catterick hjá Sheffield Wednesday 1958- 62 og komu þeir Wednesday i 1. deild. Egglestone var siöast framkvæmdastjóri griska liðsins Athaniokos. Miklar vonir eru bundnar við sam- starf þeirra. Og þar sem Everton hefur keypt nokkra nýja leikmenn, ertu þá ekki bjartsýnn fyrir næsta leiktimabil? — Jú, það er ég. Það kom öllum mjög á óvart, er við keyptum Mike Bernard frá Stoke, nú fyrir stuttu, meira að segja stuðningsmenn Stoke, en þeir töldu Bernard vera eina traustustu stoð liðsins, voru alveg bit. Verðið var mjög hagstætt, aðeins 130 þúsund pund og töldum við okkur hafa gert mjög góð kaup. John Connelly kom til Everton frá St. Johnstone Skotlandi, i lok leiktimabils- ins, og var verðið á honum einnig mjög hagstætt, um 70 þúsund pund. Connelly er framlinumaður, en Bernard er tengiliður. Erþá kaupum Everton lokið fyrir næsta leiktimabil? — Nei, alls ekki. Ég býst viö, að nýr leikmaður veröi keypt- ur annaðhvort áður en leik- timabilið hefst eða i byrjun þess — þ.e.a.s.ef einhver fæst, sem okkur fellur við. En um sölu á ykkar eigin leikmönnum? — Það hefur ekki veriö ákveðið enn. Minnkaði ekki mikið aðsókn að heimaleikjum Everton, á Goodison Park? — Jú, áhorfendum fækkaöi úr 44 þúsundum, að meöaltali á leik, niður i aðeins 36 þúsund. Þetta er reyndar i fyrsta sinn i 7 ár, sem við teljum að hafi verið tap. En önnur starfsemi? — önnur starfsemi gekk mjög vel. Égget sagt þér þaö hér uppi á tslandi, að við græddum 96 þúsund pund á getraunaseðlum okkar, sem einnig eru bingo-miðar. 42 þúsund pund græddum við á lekskrám og auglýsingum og er það mjög gott. Hve margir starfsmenn eru hjá Everton? — Það eru 46 fastir starfs- menn á skrifstofum félagsins og við ýmiss konar önnur störf. Leikmenn félagsins eru 46 og i þeirri tölu eru einnig nokkrir áhugamenn og leik- menn, sem eru að gerast atvinnumenn. Finnst þér^að islenzk lið eigi að halda áfram þátttöku sinni i Evrópumótum? — Já, alveg tvimælalaust, ef fjárhagurinn leyfir. Kynni min af komu Keflavikur til Liverpool voru ánægjuleg og efast ég ekki um að leikmenn beggja liða gátu lært þar af. Ahugamannalið, eins og Keflavik, fá skemmtilega reynslu af þátttöku og tel ég það til góðs að blanda áhuga- mönnum og atvinnumönnum saman, eins og gert er i þess- um Evrópumótum. „Öffum fyrir beztu að Alan Ball fór" HARRY CATTERICK — liðs- stjóri Everton heldur hér á Englandsmeistarabikarnum, sem Everton vann 1970. Og að lokum langar mig til að spyrja þig einnar sigildrar spurningar, hvernig likar þér við tsland? — Þó að dvöl min hér nú, og einnig er ég kom hingað með Everton fyrir tveimur árum, sé stutt, hefur hún verið mér mjög ánægjuleg. Hótelið, sem við gistum á, Hótel Loftleiðir, er á mjög háum mælikvarða og allir hér hafa sýnt okkur MIKE BERNARD — Everton keypti hann frá Stoke fyrir 130 þúsund pund. velvild. Okkur i hópnum var meira aö segja boðið sérstak- lega uppá aö sjá tslandsmynd (Loftleiða) og tókum viö þrir þvi boði, á meðan hinir þrir flugu með Ömari) Ragnars- syni á flugvél hans yfir landið. Vil ég nota þetta tækifæri til að þakka yfirmönnum Loftleiða- hótelsins fyrir lipurð þeirra við okkur og Ragnarssyni fyr- irflugiö. -kb- JOHN CONNELLY — leikmaðurinn, sem Everton keypti frá St. Johnstone, Skot- landi fyrir 70 þúsund pund. 6 manna hópurinn sem dvaidi á tslandi um helgina, sést hér á Loftleiðahóteiinu, talið frá hægri: David Exall, framkvstj. Everton, Bill Townsend, aðstoðarmaður Exall.W.J. Henry, auglýsingastjóri Everton, Card. Charlie Johnson, aðstoðarmaður hans, John Creasey, fjáröflunarstjóri Birmingham City og Mr. Skinner, fjáröflunarstjóri Luton Town. FRAMMISTAÐA Alan Ball nokkra mánuði fyrir söluna á honum til Arsenal var ekki viðunandi. Flest- ir forráðamanna Everton og stuðnings- menn félagsins voru óánægðir. Hann var skipaður fyrirliði liðs- ins 1970, en Brian La- bone lék ekki vegna meiðsla, sem hafa orsakað það nú að Labone hefur orðið að leggja knattspyrnu- skóna á hilluna, Geta Ball fór smátt og smátt dvinandi og var það hvimleitt fyrir leikmenn Everton að hlusta á hann ávita þá fyrir mistök sem hann gerði sig ef til viil oft- ar sjálfur sekan um i leik. Siðan kom tilboð frá Arsenal, sem hljóðaði uppá 225 þús- und pund og eftir að hafa ihugað málið vandlega, álitum við það bezt fyrir alla aðila að taka boðjnu. — Þannig svaraði fram- kvæmdastjóri Everton, David Exall, er hann var spurður um ástæðuna fyrir sölu Everton á Alan Ball til Arsenal, en Exall dvaldi hér um helgina ásamt þremur öðrum mönnum frá Everton, einum frá nýliðunum i 1. deild á næsta ári, Birming- ham City og einum forráða- manni 2. deildarliðsins, Luton Town. Hópurinn kom á laugardag, með Loftleiðaþotu frá Glasgow, gistu á Hótel Loft- leiðum um nóttina, en fóru sið- an áfram til New York, þar sem þeir ætla aö leita nýrra leiða til fjáröflunar, félögum sinum til handa. David Exall hefur starfað hjá Everton i nokkur ár og er m.a. þakkað hinar miklu framkvæmdir, sem átt hafa sér stað, a.m.k. utan vallar, undanfarið. Hann er yfir- maður allrar fjáröflunar félagsins, ritstjóri leikskrár, blaðafulltrúi og margt fleira, og ber þvi nafnið fram- kvæmdastjóri með réttu. Lið- stjóri ( sem oftast er titlaður framkvæmdastjóri) sér bara um þá ellefu leikmenn, sem leika með aðalliðinu hverju DAVID EXALL, framkvæmdastjóri Everton og greinar- höfundur, —kb—, á Hótel Loftleiðum. V ✓

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.