Tíminn - 31.05.1972, Blaðsíða 6
6
TÍMINN
Miðvikudagur 31. mai. 1972.
New Statesman skammar Wilson
ÍSLENZKUR LÆKNIR
VER DOKTORSRIT-
GERÐ I SVIÞJÓÐ
ÓV—Heykjavik.
Nýr ritstjóri tók við brezka
blaðinu New Statsman á fimmtu-
daginn i siðustu viku og áður en
ritstjóranum nýja haföi tekizt að
venjast ritstjórastólnum, hafði
hann skrifað leiðara, grimmileg-
ustu árás, sem hingað til hefur
verið gerð á prenti á leiðtoga
stjórnarandstöðunnar i Bret-
landi, Harold Wilson, fyrrum for-
sætisráðherra Breta.
Segir ritstjórinn, Anthony
Howard, i grein sinni, að hann
segi með trega, en samt fullviss
um sannleiksgildi orða sinna, að
Wilson sé nú kominn svo lágt, að
forysta hans i Verkamanna-
flokknum sé til þess eins að
menga brezk stjórnmál og
andrúmsloft þeirra.
Fyrirsögn leiðarans er „Hinn
týndi leiðtogi”. IVIeðfylgjandi
skopmynd er úr Guardian og sýn-
ir Howard berja Wilson með blaði
sinu, en Ted Heath, forsætisráð-
herra, fylgist ánægður með fram-
gangi mála i hnefaleikahringnum
— þar sem Howard er dómarinn.
Drap þrjú
lömb og
eina kind
SJ-Reykjavik
Aðfaranótt sunnudags var ekið
á kind og þrjú lömb og þau drepin
á þjóðveginum skammt frá Teigi
i Hrafnagilshreppi og voru
gripirnir eign bóndans þar.
Lögreglunni á Akureyri var til-
kynnt um atburðinn kl. 3.50 um
nóttina, en hann mun hafa átt sér
stað á klukkutimanum áður. öku-
maðurinn fór sina leið, og hefur
ekkert sézt til hans siðan.
Vinna úti á landi
24 ára stúlka með 2
ára barn óskar eftir
vinnu úti á landi
Uppl. í sima 25087
Oska eftir að
komast í sveit
Er vön sveita-
störfum. Get gætt
barna. Upplýsingar
i sima 84871.
12 ára drengur
óskar eftir að
komast á gott sveita-
býli, er vanur
hestum. UppTýsingar
i sima 32702 eftir kl.
6.
Jarðýta til sölu
International
TD—14, árgerð '47.
Upplýsingar i sima
86038 eftir kl. 18.00
næstu daga.
AK—Heykjavík.
— Fyrir skömmu varði
Haraldur Guðjónsson doktorsrit-
gerð i læknisfræði við Karólinska
sjúkrahúsið i Stokkhólmi, og
fjallaði ritgerðin um rannsóknar-
efni, sem kallast Jarisch-
Herxheimer Reaction, og er hún
byggð á tilraunum og rannsókn-
um doktorsins á viðbrögðum hjá
mönnum og kaninum, sem vart
veröur við lækningu á sárasótt.
Dr. Haraldur starfar nú við
Karólinska sjúkrahúsið og er þar
Haraldur Guðjónsson.
Leiðrétting
1 Timanum 14. þ.m. er greinin
„Skýring vegna rikisleiklistar-
skóla” eftir Svein Einarsson. Hún
á að vera skýring á þvi, hvers-
vegna hann vildi ekki taka til-
nefningu menntamálaráðuneytis-
ins i nefnd til að athuga stofnun
sérstaks leiklistarskóla og enn-
fremur er hún kvörtun um það, að
ráðuneytið hafi ekki viljað veita
honum nægilegan styrk til þess að
sækja leiklistarnámskeið i Vasa i
Sviþjóð. Siðan segir Sveinn
Einarsson: ,,Siðar er mér sagt,
að ráðuneytið hafi styrkt
Vilhjálm Þ. Gislason til að ferðast
um á Norðurlöndum og kynna sér
nýjungar i leiklistarkennslu. Er
mér til efs, að sú ferð hafi kostað
rikið minna en þátttaka margra
leikhúsmanna i Vasa-námskeið-
inu”. Þessi ummæli Sveins
Einarssonar eru tilhæfulaus og
röng. Ég hef ekkert fé fengið til
slikra ferðalaga, hvorki úr ráðu-
neyti né nokkrum öðrum stað.
Vilhjálmur Þ. Gistason.
NTB—Philadelphia
Stúlka, sem býr i húsi með
steinveggjum, á margfalt
meiri möguleika til að verja
heiður sinn en kynsystir
hennar, sem býr i húsi með
þunnum— og jafnvel engum
veggjum. Það er bandariski
mannfræðingurinn dr. Robert
Maxwell, sem setur þessar
staðhæfingar fram i skýrslu
um frelsi nútima samfélags.
Segir<ir. Maxwell i skýrslu
sinni, að mjög greinilegt sam-
hengi sé á milli þykkt veggja
og þeirrar virðingar, er jóm-
frúdómi stúlkna sé sýndur.
Segir hann, að jómfrúdómur
— eða hreinlffi i ástum fyrir
hjónaband — sé hærra metinn
i loftslagi, þar sem fólk býr i
V
aðstoðaryfirlæknir, en þvi starfi
hefur hann gegnt allmörg ár og
unnið jafnframt að rannsóknum
sinum.
Dr. Haraldur er sonur
Arnheiðar Jónsdóttur kennara og
Guðjóns H. Sæmundssonar, fædd-
ur i Reykjavik 1929, stúdent 1948
og kandidat i læknisfræði frá
Háskóla tslands 1955. Hann starf-
aði hér á landi, aðallega hjá
borgarlækni næstu þrjú ár, en
hélt þá til framhaldsnáms i
Lundúnum og lauk þar sérgreina-
prófi i atvinnu- og verksmiðju-
sjúkdómum. Þaðan hélt hann svo
til Sviþjóðar og hefur dvalizt þar
siðan, fyrst við sérnám i kyn- og
húðsjúkdómum.
Greinaflokki
Magna lokið
TK—Reykjavik
Með 30.þættinum i greina-
flokki Magna Guðmunds-
sonar, hagfræðings, um
stjórnun, er birtist i Tim-
anum sl. miðvikudag, er
þessum fræðsluflokki lokið.
Þessi greinaflokkur hefur
tvimælalaust orðið fjöl
mörgum," sem við rekstur
eru riðnir, að gagni, og ber
þvi vitni, að fjölmargir hafa
látið þakkir berast til Magna
fyrir skrifin. Tilmæli hafa
borizt um, að þessi greinar-
flokkur verði gefinn út i heild
i bókarformi og er Magni nú
að kanna möguleika á þvi.
Standa vonir til, að af útgáfu
þessari geti orðið. — Timinn
þakkar Magna Guðmunds-
syni samstarfið.
220 þúsund en
ekki 22 þúsund
1 þriðjudagsgrein Stefáns Val-
geirssonar, Stjórnarandstaðan,
varð meinleg prentvilla i siðustu
málsgrein i öðrum dálki, þar urðu
220 þúsund að 22 þúsundúm, og
auk þess hólst málsgreinin á: A
eftir þessu heldur... en átti að
vera sem hér segir i heild:
Eftir þessu heldur Alþýðublaðið
þvi fram,að máður,sem hefur 400
þús. krónur i brúttó tekjur, eigi nú
að borga i beina skatta til rikis og
sveitarfélaga um 220 þús krónur.
Fyrr má nú vera. Er nú liklegt.að
þetta met Alþýðublaðsins i full-
yrðingum um skattpiningu verði
af þeim tekið þótt hin stjórnar-
andstöðublöðin hafi oft gengið
langt i þvi efni.
húsum með þykkum veggjum,
en þjóðfélagi,þar sem fólk búi
við þunna veggi eða alls enga.
Dr. Maxwell var að rann-
saka áhrif arkitektúrs á sam-
félagsháttu manna, þegar
hann komst að þessum niður-
stöðum. Hann tók þó fram, að
kenning sin væri ekki algild,
þvi að til dæmis á Norður-
löndum, þar sem fólk væri til-
neytt að búa innan traustra og
sterkbyggðra veggja, væri
jómfrúrdómur kvenna ekki
sérlega hátt metinn.
En hvað skyldi þá vera sagt
um Island, þar sem 25% barna
fæðast utan hjónabands— og
allir búa i steinkössum, sem
stæðu af sér hvaða kjarnorku-
styrjöld sem er?
-
Svefnsófar
með hlifðardúk og rúmfatageymslu. Þessi glæsi-
legi einsmanns svefnssófi (teak) kostar aðeins
kr. 12.000.oo
Úrval áklæða.
Sófinn fæst einnig úr eini ( kr. 12.990.00 ) og
pallisander ( kr. 14.730.00 )
Sendum gegn póstkröfu.
VERZLUNIN ÓÐINSTORG HF.
Bankastræti 9, Reykjavik, simi 14275
LYFTARAMAÐUR
Maður óskast á lyftara, helzt vanur.
Upplýsingar hjá verkstjóra i vöru-
afgreiðslunni.
Skipaútgerð rikisins
ÞYKKIR VEGGIR
VERJA MEYDÓMINN!