Tíminn - 31.05.1972, Blaðsíða 15
TÍMINN
15
Miövikudagur 31. mai. 1972.
Alftir og gæsir hafa gert mikinn usla i túnum hjá bændum vföa um land. Vilja fugiarnir einkum setjast
á nýræktir, og rifa þá grasiö gjarnan upp meö rótum. A dögunum mátti sjá mikinn álftahóp á túni i
Landssveit i Rangárvallarsýslu, og sýnir myndin aöeins nokkrar gæsanna, sem þar voru þegar mest
var. (Timamynd Kári)
Vilja daglegar ferðir milli
Þorlákshafnar og Eyja
Almenn óánægja rikir nú i Vest-
mannaeyjum með samgöngu-
málin, og hafa þessi mál mjög
verið til umræðu manna á meðal
að undanförnu.
Athugun nokkurra áhuga-
manna i samvinnu við Óttar
Karlsson, skipaverkfræðing, á að
leysa vandann með kaupum á
skipi og starf átta manna nefndar
á vegum stjórnmálafélaganna i
Vestmannaeyjum, leiddi til þess,
að laugardaginn 13.mai s.l. var
haldinn fjölmennur borgara-
fundur i Samkomuhúsinu um
samgöngumál Vestmannaeyinga.
1 lok fundarins var eftirfarandi
tillaga samþykkt einróma:
„Almennur borgarafundur
haldinn i Vestmannaeyjum
laugardaginn 13.mai 1972, samþ.
að stofna til samtaka um bættar
samgöngur á sjó, þ.e. að komið
verði á daglegum ferðum milli
Eyja og Þorlákshafnar.
Leitað verði fyrst eftir
stuðningi rikisvaldsins við þessa
hugmynd og er skorað á þing-
menn kjördæmisins og hina
væntanlegu þingkjörnu nefnd um
samgöngumál Vestmannaeyinga,
að veita málinu brautargengi.
Beri það ekki jákvæðan árangur
innan mánaðar samþ. fundurinn
að stofan til félagsskapar i hluta-
félagsformi til að hrinda málinu i
framkvæmd.
Verði á þessum fundi kosin
ÞÓ-Reykjavik
Tilraunastöðin i Laugardælum
er nú byrjuð að senda frá sér
djúpiryst sæði. Er hér um að
ræða sæði úr islenzkum nautum,
og einnig Galloway-blendingum
frá Gunnarsholti.
Tilraunastöðin i Laugardælum
byrjaði með djúpfrysta sæðið nú i
undirbúningsnefnd er hafi veg og
vanda af málinu i heild.”
Eftirtalir menn voru siðan
kjörnir i undirbúningsnefndina:
Eyjólfur Pálssoon, skólastjóri,
Jóhann Björnsson, forstjóri,
Guðni B. Guðnason,
kaupfélagsstjóri, Jóhann
Friðfinnson, kaupmaður, Gunnar
Sigurmundsson, prentari,
Magnús H. Magnússon, bæjar-
stjóri, Gisli Gislason,
stórkaupmaður.
þessum mánuði, og á hún að
þjóna öllu Suðurlandi, en fram til
þessa heíur stöðin á Hvanneyri
þjónað öllu landinu.
Um 90% af bændum á Suður-
landi eru fastir viðskiptavinir
Laugardælaátöðvarinnar, og hafa
veriðsæddar um 12 þús. kýr á ári.
Laugardælastöðin með djúpfryst sæði
Dr. Axel Björnsson
Doktor í eðlisfræði
4. mai s.l. lauk Axel Björnsson
doktorsprófi i eðlisfræði frá
háskólanum i Göttingen i Vestur-
Þýzkalandi. Fjallaöi ritgerð hans
um segulsvið jarðar, nánar til-
tekið um breytingar og reglu-
legar sveiflur i styrkleika
sviðsins. Þessar sveiflur stafa frá
straumum i efstu lögum gufu-
hvolsins og voru tengsl þeirra við
norðurljós og svipuð fyrirbrigði
einnig rannsökuð. Við þessar
athuganir voru 'meðal annars
notaðar mælingar frá segul-
mælingastöð Raunvisinda-
stofnunar Háskólans, sem stað-
sett er i Leirvogi. Ritgerðin
nefnist á þýzku „Untersuchungen
von pi 2 Pulsationen auf einem
Profil von Sud-Europa bis in die
Polarlichtzone”.
Axel er fæddur 1942 i
Reykjavik, sonur hjónanna Auðar
Axelsdóttur og Björns Kristjáns-
sonar. Hann tók stúdentspróf og
hóf sfðan nám i eðlisfræði við
háskólann i Göttingen. Þaðan
lauk hann Diplomprófi 1968 og
hefur siðan starfað við jarðeðlis-
fræðistofnun háskólans þar, og
meðal annars birt greinar um
jarðeðlisfræðileg efni. Axel er
kvæntur Ástu Vigbergsdóttur, og
eiga þau tvo syni. Þau eru nu að
búa sig til starfa á íslandi.
Aunlvsinnar, sem eiKu uft koma I lilufiinu u suimudogum þurfa u6
lierasl fyrir kl. I a föstudöKum.
Augl.stofa Timuns er f Hankastræti 7. Slmar: 1952:1 > 11(300.
KAUPMENN
Skáksamband Islands hefur ákveðið að
bjóða út minjagripasölu i Laugardalshöll-
inni i sambandi við heimsmeistaraein-
vigið i skák i júli og ágúst i sumar.
Tilboð um tegund þjónustu, ásamt
upplýsingum um nauðsynlega aðstöðu,
sendist i pósthólf 674 fyrir þriðjudags-
kvöld.
SKAKSAMBAND ÍSLANDS
FRfl SKÓLAGÖRÐUM REYKJAVÍKUR
Innritun i skólagarðana fer fram sem hér
segir:
í Aldamótagarða
við l.aufásveg fimmtudag 1. júni kl. 9-11 fyrir börn búsett
vestan Kringlumýrarbrautar.
í Laugardalsgarða
sama dag kl. 1-3 fyrir börn búsett austan Kringlumýrar-
hrautar og norðan Miklubrautar.
i Ásendagarða
föstudag 2. júní kl. 9-11 fyrir börn búsett sunnan Mikiu-
brautar og austan Kringlumýrarbrautar, ásamt Blesu-
gróf.
í Árbæjargarða
sama dag kl. 1-3 fyrir hörn úr Arbæjarsökn.
i Breiðholtsgarða
noröan Breiðholtsbæjar, mánudag 5. júní kl. 1-3 fyrir börn
úr Breiðholtshverfi.
Innrituð verða börn fædd 1960-1963 að báð-
um árum meðtöldum.
Þátttökugjald kr. 650,00 greiðist við innrit-
un.
Skólagarðar Reykjavikur.