Tíminn - 01.06.1972, Side 12
12
TÍMINN
Fimmtudagur 1. júni 1972.
ekkert frá honum. Svo fann ég út
að ekkert mundi ske fyrst um
sinn, þvi Maeve sagði mér að
börn Stellu lægju i mislingum og
Fleur væri á Fairfield til þess að
hjálpa henni.
— Ég geri ráð fyrir þvi að
Fleur sá ánægð með að vera
heima á Fairfield aftur? sagði ég.
Maeve hlö. — Sannleikurinn er
sá,að hún er það ekki. Hún sagðist
hafa svo mikið að gera — en eg
skil það bara ekki, þvi hótelið sér
um ibúðina hennar, svo og mat-
inn, og Chris er ekki i Lundúnum
sem stendur.
— Oh, hún hefur eignazt svo
marga vini i seinni tið. Hún stend-
ur sjálf fyrir samkvæmum ekki
svo sjaldan, og það er sjálfsagt
henni til ánægju.
— Kannski, en ég vona samt að
hún verði ekki alltof upptekin af
þessu. Ef ég vissi ekki hve ákaf-
lega henni þykir vænt (um
mömmu, mundi ég lita svo a að
hún vildi slita af sér öll fjöl-
skyldubönd.
Letta var nýtt fyrir mér og ég
var dálitið undrandi. Ég fór að
hugsa um hvort Chris hefði fylgzt
með þessari þróun málanna. Ég
hafði gert mér i hugarlund að
Fleur mundi setjast að á Fairfield
eftir hugsanlegan skilnað, að
minnsta kost fyrst um sinn. En ef
hún vildi nú brjóta allar brýr að
baki sér — ja, hvernig mundi þaö
fara?
Við töluðum ekki meira um
Fleur. Maeve var búin að biðja
mig að fara með sér i búðir. Hún
hal'ði áhuga á að kaupa fallegan
brúðarkjól. Eg skoðaöi hana i
krók og kring i kjólnum. Hún leit
svo framúrskarandi vel út,að ég
gleymdi i bili öllum minum
áhyggjum.
Maeve snéri sér allavega fyrir
Iraman spegilinn. — Ég er mjög
ánægð með að hafa haft þitt ráð,
Kay. Ég held að þessi kjóll sé
alveg yndislegur.
Ég var sömu skoðunar — Þetta
var glæsilegur kjóll, þunnar
blúndur yfir dálitið stifu efni, allt
i hlýjum koparlitum. Við kjólinn
átti hún að hal'a litinn hatt i sama
litog gulgrænar orkidóur löngum
stilkum sem brúðarblómvönd.
Flú Blaney hafði heimtaö þennan
venjulega hvita kjól með slöri, en
i þetta sinn hafði Maeve sagtmein
ingu sina. — Ég er ekki ung stúlka
lengur, mamma, en var jafn-
framt dauðskelkuð um,að frú
Blaney mundi fá sitt fram. Ég lét
það þvi ekki biða að fara með
hana i verzlun þar, sem ég hafði
kynnzt ungri stúlku, sem var frá-
bær tizkuteiknari. Hún horfði um
stund á Maeve, og þar með var
kjóllinn ráðinn. Ég var með
Maeve flesta daga fyrir hádegi,
þegar brúðkaupiö fór að nálgast,
og það var ekki svo fátt, sem við
þurftum að ráðgast um.
— Sviktu mig ekki, Kay, sagði
hún, ég hef svo litið vit á þessu, ég
hef aldrei haft mjög mikinn
áhuga á klæðnaöi fyrr en nú. Og
þú finnur alltar.hvað klæðir mig
og veizt hvar það fæst.
Þetta var reglulega skemmti-
legur timi, og stundum gaf Edwin
miðdegisverð. Þaö var eins og að
hann hefði einnig yngzt um ein tiu
ár og það haföi góð áhrif á mig
hve hamingjusöm og vonglöð þau
voru. Kannski, hugsaði ég,
kannski við Chris. . . En ég þorði
ekki að vona það ennþá.
Það breytti snögglega um veð-
ur, með snjóburði og þoku.
Fjöldamargir fengu inflúensu og
aðrir kvefuðust, og var þvi fá-
mennt i leikhúsinu( sjálf fékk ég
svo flensuna og var heima við i
nokkra daga. Einn seinnipart
dags sat ég alein heima i fremur
þungu skapi. Það var svo óttalega
langt siðan ég hafði heyrt nokkuð
frá Chris. En þá var dyrabjöll-
unni hringt og það var Fleur sem
var komin. Ég ætlaði ekki að
þekkja hana. Það gat ekki aðeins
verið kuldinn úti, sem háfði gefið
kinnum hennar þennan lit. Hún
var svo kát og friskleg alveg eins
og hún var þegar ég sá hana fyrst
á Fairfield. En sú Fleur, sem nú
stóð fyrir framan mig var bók-
staflega geislandi, og á bak við
æskufegurðina og gleðisvipinn
þóttist ég geta greint nýjan
persónuleika.
Það var eins og að Maeve hefði
rétt fyrir sér. Ekki varð betur séð
en Fleur væri loksins orðin full-
tiða kvenmaður, sem hefði vikið
sér úr hinum ráöriku móöurörm-
um. Hún virtist þóttafull og
ánægð með sig, eins og kona, sem
hel'ur fundið sjálfa sig.
— Key, ég varð að koma til þin.
Ég þarf að segja þér svolitiö.
Iijarta mitt sló ótt og titt —
hafði Chris talaö við hana? En
Fleur lagði arminn utanum mig
og kyssti mig hjartanlega á kinn-
ina.
- Kay, ég er komin til þess að
kveðja þig. Ég fer til Canada á
morgun, og enginn veit það nema
þú. Ekki einu sinni Chris.
Ég held að ég hafi algjörlega
tapað andanum, þvi að hún hló —
gáskafullum hlátri eins og að hún
skemmti sér hið bezta. Svo ýtti
hún mér ofan i stólinn.
— Það verður bezt fyrir þig að
setjast.
— Þú ert bara að gera. . . .
Hún settist við hiiöina á mér og
hélt áfram að hlægju að mér.
— Nei, ég er ekki að gera að
gamni minu. Mér hefur aldrei
verið meiri alvara, Kay. Þú veizt
jafnvel og ég sjálf, að hjónaband
okkar Chris hefur ekkert hjón-
aband verið. Hann hefur verið
einstaklega góður og nærgætinn
við mig, en — það er ekki nóg. Ef
barnið hefði fengið að lifa, ja, þá
hefði ég reynt að skapa raunveru-
legt heimili, en eins og nú er kom-
iðer litil meining i að leggja það á
sig.
Með alvörusvip bætt hún við:-
Ég hef ekki tekið þessa ákvörðun
út i bláinn, Kay. Ég vil fá meira
út úr lifinu en ég fæ nú. Ég ætla
mér að byrja alveg uppá nýtt, en
hér heima, ég get ekki. Fjölskyld
min mundi taka meira og minna
af mér ráðin, og þess vegna brýt
ég á blað — þessvagna fer eg nú
til Canada.
— Til Lindsay og Eiriks?
Hún kinkaði kolli. — Til að
byrja með. Ég er búin að skrifa
Lindsay og hún skrifar mér, að
þarna séu margir möguleikar. Ég
hef mina kennaramenntun, en fái
ég ekkert að gera til að byrja
með, á ég alltaf þau Lindsay og
Eirik að.
Ég spurði ofurrólega: — En
hvað segir Chris um þessi boð-
orð?
— Við Chris slitum samvistum
sem beztu vinir. Hann mun skilja
mig. Hann er skilningsrik
manneskja.
— Og fjölskylda þin?
— Þau skilja þetta aldrei þótt
þau reyndu i hundrað ár, ég vona
aðeins að þau fyrirgefi mér með
timanum. Köddin skalf sem
snöggvast, en svo hélt hún áfram :
— Ég gat ekki sett þau inni fyrir-
ætlanir minar, það mundi hafa
kostað eilifar rökræður i fjöl-
skyldunni, þangað til að ég hefði,
að öllum likindum, misst móðinn.
Þar að auki mundu þau hafa lagt,
án efa, hindranir i veginn fyrir
mig. Ég var þvi til þess neydd að
undirbúa för mina með leynd —
og fyrst gera hana kunnuga, þeg-
ar of seint væri að stöðva mig.
Ég horfði á þetta fagra andlit,
sem ljómaði af stolti.
— Og ertu nú alveg viss um að
þú gerir það eina rétta?
— Ég hef aldrei verið vissari
um nokkurn skapaðan hlut alla
mina ævi.
— En heldurðu ekki að réttara
hefði verið að segja Chris frá
þessu?
— Nei. Hann hefði ásakað
sjálfan sig — honum hefði fundizt
það vera skylda sin að tala um
fyrirmér. Nei, ég vissi frá byrjun
að þú varst eina manneskjan,
sem ég gat trúað fyrir þessu.
— En hvers vegna það, Fleur?
— Fyrir það að undirniðri
erum við svo likar, Kay. Eða
mundirðu ekki hafa gert það
sama i minum sporum?
— Jú, ég býst við þvi.
— Já, þarna sérðu. . . . Fleur
var sigri hrósandi. Hanni fannst
hún hafa sannað réttmæti þess,
sem hún hafði gert, eða ætlaði að
gera. — Ég hef ekki tima til að
vera lengur núna. Töskurnar
minar er ég búin að senda um
borð i skipið, hef aðeins litla
handtösku með mér, sem ég
skiidi eftir niðri hjá dyraverð-
inum. Ég ætla ekki að segja þér
hvar ég verð i nótt, og heldur ekki
nafnið á skipinu, sem ég fer með.
Ef einhver skildi spyrja þig, get-
urðu með góðri samvizku sagt, að
þú hafir ekki hugmynd um hvar
ég er niðurkomin.
Ég skildi eftir tvö bréf i ibúðinni
— eitt til Chris, hann kemur heim
1119.
Lárétt
1) Herbergi- 6) Krot.- 8)
Landnámsmaður,- 10) Sár.-
i2) Komast,- 13) 499.- 14)
Óþrif.- 16) Straumkasti,- 17)
Fljót - 19) Undna.
Lóðrétt
2) Dýr,- 3) Leyfist.- 4) Lifa,- 5)
Kjafts.- 7) Tindur,- 9) Komist,-
11) Suð.- 15) Málmur,- 16) 1
hús.- 18) Strax,-
Káðning á gátu nr. 1118
Lárétt
1) Jöfri,- 6) Gái.- 8) Væn,-
Svo,- 12) Ær,- 13) Ég,-
Tap,- 16) Oln,- 17) Aið,-
Kriur-
Lóðrétt
2) Ogn,- 3) Fá,- 4) Ris.- 5)
Övætt.- 7) Bogna,- 9) Æra.-
11) Vél -15) Par,- 16) Oðu,- 18)
It,-
HVELL
G
E
I
R
I
D
R
E
K
I
IlrÍI llliií
Fimmtudagur 1. júni
7.00 Morgunútvarp.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 A frivaktinni Eydis Ey-
þórsdóttir kynnir óskalög
sjómanna.
14.30 Siðdegissagan: „Einkalif
Napóleons” eftir Octave
Aubry Þóranna Gröndal les
(6)
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
15.15 Miðdegistónleikar.
16.15 Veðurfregnir. Létt lög.
17.00 Fréttir. Tónleikar.
17.30 ,,A vori iifs i Vinarborg”
Dr. Maria Bayer-Juttner
tónlistarkennari rekur
minningar sinar. Erlingur
Daviðsson skráði. Björg
Árnadóttir les (2).
18.00 Fréttir á ensku.
18.10 Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Þegninn og þjóðféiagið
Már Pétursson og Ragnar
Aðalsteinsson sjá um þátt-
inn.
19.55 Samsöngur i útvarpssal
Ólafur Þ. Jónsson og Guö-
mundur Jónsson syngja tvi-
söngva eftir Eyþór
Stefánsson, Sigurð Ágústs-
son, Bjarna Þorsteinsson og
Giuseppe Verdi. Olafur
Vignir Albertsson leikur á
pianó.
20.15 Leikrit: ..Kjúklingasúpa
ineð bygggrjónum” eftir
Arnold Wesker Þýðandi:
Geir Kristjánsson. Leik-
stjóri Briet Héðinsdóttir.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Kvöldsagan: „Gömul saga”
eftir Kristinu Sigfúsdóttur
Olöf jónsdóttir les (9).
22.35 Létt músik á siðkvöbli
Þjóðlagasöngur á Abbey-
kránni i Dublin. Þorsteinn
Hannesson qynnir.
23.20 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Magnús E. Baldvinsson
iaugavegi 12 - Simi 22804
(
I
H&lfnað
erverk
þá hafið er
sparnaðnr
skapar
verðnuBti
Samvinnnbankinn