Tíminn - 28.06.1972, Page 1
IIGNIS I
FRYSTIKISTUR
RAFIÐJAN SÍMI: 19294
JO/ICÍ tÍCtttAAétCK/l' Á/
RAFTÆKJADEILD
Hafnarstræti 23
Simar 18395 & 86500
Rigningar í Eyjafirði
LÆKUR VIÐ LÆK
í VAÐLAHEIÐI
SB—Reykjavik
Ofan af brún Vaðlaheiðar, á
móts við Akureyri miðja,
fellur nú myndarlegur lækur,
sem enginn minnist að hafa
séð áður. Eyjafjarðará er kol-
mórautt fljót og tjarnir standa
á túnum Svalbarðsströnd-
unga. Afram rigndi hann fyrir
norðan i gær og muna menn
vart jafn blautan júni.
Feikilegar dembur komu i
fyrrinótt og gærdag á Akur-
eyri og þar beljuðu fljót eftir
götunum. Langt út eftir firðin-
um mátti sjá mórautt belti og
var þar Eyjafjarðaráin á ferð-
inni.
Að sjá yfir i Vaðlaheiði frá
Akureyri er lækur við læk og
eru bændur þar litt hrifnir, þó
að Akureyringum finnist sjón-
in tilkomumikil.
KjartanMagnússon á Mógili
á Svalbarðsströnd, sagði Tim-
anum i gær, að þar stæðu nú
tjarnir á túnum og ekki væri
nokkur leið að fara um þau
með vélar. — Það er langt sið-
an við hefðum getað byrjað að
slá, sagði hann, en nú getum
við ekkert, nema beðið. Gras
er löngu fullsprottið og farið
að leggjast i legur i bleytunni.
Mikil kartöflurækt er á Strönd
inni og eru bændur farnir að
hafa áhyggjur af görðum
sinum, þeim sem ekki standa i
halla. Bændur frammi i
Eyjafirði voru fyrir nokkru
byrjaðir að slá, en nú liggur
hey þeirra undir skemmdum á
túnunum.
Björn Brynjólfsson, vega-
eftirlitsmaður á Akureyri
sagði að vegirnir væru furðu
góðireftir þetta, að visu blaut-
ir og holóttir, en ekki hefði
runnið úr þeim og þvi ekki
þurft að gripa til þungatak-
markanna. Hann sagði, aö
nokkuð bætti úr skák, að kalt
væri i veðri og það jafnvel svo
að frysti uppi á heiðum um
nætur.
Stöðvarfjörður:
Jökulfell komst
ekki að vegna
Eldvíkur
- og frystihúsið mun hafa tapað 100 þúsundum
SB—Reykjavík.
Á mánudagsmorgun
geröist einstæöur atburöur
á Stöðvarfirði, er skipstjóri
flutningaskips neitaði að
færa skip sitt svo að annað
skip gæti lestað. Tjón
frystihússins á staðnum
vegna þrákelkni þessarar
er ekki talið undir 100
þúsundum og 1600 kassar af
humri urðu að biða næstu
ferðar til Bandarikjanna.
Björn Kristjánsson oddviti
sagði i viðtali við Tirhann i gær,
að Eldvikin hefði komið aö
bryggju á Stöðvarfirði á mánu-
dagsnóttina snemma, en þar átti
hún að lesta loönumjöl, en vinna
átti að hefjast við skipið kl. 8 á
mánudagsmorgun.
Um kl. 2.30 kom siðan Jökul-
fellið, sem átti aö taka 1600 kassa
af humri og fá afgreiðslu strax.
Brá þá svo við, að skipstjórinn á
Eldvík harðneitaði aö færa sig frá
bryggjunni svo að Jökulfell
kæmist að. Varð nokkurt þóf, sem
lyktaði með þvi að Jökulfellið
varð að snúa frá án humarsins,
en þeir 30 verkamenn, sem búiö
var að ræsa út i vinnu, fengu 4
klukkustunda kaup fyrir að vakna
og sofna aftur.
hvort Fischer kemur”
„Veit ekki hvenær eoa
- sagði Cramer, fulltrúi hans, í viðtali við fréttamann Tímans
ÓV—Reykjavik
Þegar fréttamaður Timans
hitti Fred Cramer, fulltrúa Fis-
chers', i herbergi hans á Loftleiða-
hótelinu i gærkveldi, var hann að
tala i simann við fréttamann frá
New York Times. Sagði Cramer
frétta inanninum, að Fischer
myndi koma með flugvél, sem
setti hann út um það bil 50 miiur
austur af Grænlandi, þar tæki við
honum kafbátur, er flytti skák-
meistarann upp af strönd islands
og kæmi hann siðan með fiskibáti
i land.
Þegar samtalinu var lokið,
snéri Cramer sér að fréttamanni
Timans og hló dátt. — Þetta var
ungur og óreyndur fréttamaður,
sagði hann. —Hann verður að fá
eitthvað spennandi og ef hann
trúir þessari sögu minni, þá hann
um það, ha ha ha!
Fred Cramer sagðist enn
Cramer
ekkert geta sagt um hvenær —
eða hvort — Fischer kæmi til
landsins. —Ég verð ekki viss fyrr
en á sunnudagskvöld. Hann hefur
ennþá enga ákvörðun tekið um
það, hvort hann kærir sig nokkuð
um að taka þátt i þessu einvigi.
Kröfur hans standa og enn hefur
ekki fundizt lausn á þeim.
Helzta krafa Fischers er, sem
Timinn skýrði frá i gær, að dóm-
ararnir verði ekki skákmenn, en
sú krafa útilokar stórmeistarann
Lothar Schmidt, sem kemur til
landsins i dag. Guðmundur Arn-
laugsson er viðurkenndur af
Fischer sem góður og gildur,
enda ekki starfandi skákmaður.
Ættu rök Fischers fyrir þessari
kröfu aö vera nokkuð augljós, en
Cramer hafði sennilega rétt fyrir
sér i viðtali hans við fréttamann
Timans, er hann sagði, að það
væri „fullseint að fara að athuga
það nú”. Fred Cramer sendi
skeyti til FIDE, alþjóðaskáksam-
bandsins, i gær, þar sem þessi
krafa Fischers var itrekuð og
beðið um annan dómara. Sjálfur
hefur skákmeistarinn gert þá
kröfu, að á móti Guðmundi Arn-
laugss. verði Bandaríkjam. Paul
Klein, en hann var dómari i ein-
vigi Fischers og Larsens i Denver
i hitteðfyrra. Schmidt var dómari
i einvigi Fischers við Petrosjan i
Buones Aires i fyrra og þykist
Fischer hafa ástæður til að efast
um að Þjóðverjinn sé jafngóður
Klein. Einhverjar hugmyndir um
að Schmidt myndi hreyfa við
mótmælum hafði Cramer, senni-
lega fyrir hönd Fischers, og sagði
hann, að ef svo færi, gæti farið illa
fyrir mörgum. Orðrétt sagði
Cramer svo — og til að tapa ekki
þessu „gullkorni” er athugasemd
hans birt hér óþýdd: „Mr.
Schmidt would soon find out that
he’son the shitlist for the world”!
(Schmidt kæmist fljótt að þvi, að
hann væri i neðsta sæti vinsælda-
listans.)
Eins og fyrr greinir, þá er
Cramer alls ekki fullviss um, að
Fischer komi til mótsins og benti
hann á, að þegar Ólympiuskák-
mótið hafi verið haldið i Lucano,
hafi Fischer komið en ekki verið
ánægður með staðinn og þvi farið
heim aftur. — Það sama gæti
gerzt hér, sagði Cramer — en
ennþá getur ýmislegt breytzt.
Fred Cramer sem er fyrr-
verandi forseti bandriska skák-
sambandsins, sagðist ekki vera i
nokkrum vafa um, að Fischer
væri betri skákmaður en Spasski.
—Fischer er óumdeilanlega mesti
skákmaður, sem lifað hefur,
sagði hann. Benti Cramer i þvi
sambandi á, að samkvæmt vis--
indalegum útreikningum prófess-
ors Elo við New York State Uni-
versity — og voru þeir útreikn-
ingar gerðir á vegum FIDE —
væri Fischer með 2820 stig á móti
2790 stigum Spasskis. Þrátt fyrir
töp Fischers á móti Spasski. —En
fleira kemur til, sagöi Cramer
—Fischer hefur staðið sig marg-
falt betur gagnvart öllum öðrum,
sem báðir hafa keppt við.
Cramer sagði ennfremur, að
Fischer krefðist þess nú, að fá
hluta af ágóða þeim, sem mögu-
legur væri af aögangseyrinum
—Hann er ekki að heimta meiri
peninga i beinni merkingu, sagði
Cramer, — heldur vill hann fara
eftir almennum, óskráöum
reglum iþróttamanna. Fótbolta-
menn, tennisleikarar og aörir fá
prósentur af aðgangseyri og
Fischer krefst hins sama.
Enn kemur upp i huga manns,
að heldur seint sé að gera þessar
Framhald á bls. 19
Þegar El Grillo sökk
Athugunum froskmannanna þriggja á oliu-og birgðaskipinu E1 Grillo, sem liggur á botni Seyöisfjarö-
ar, heldur enn áfram. Eru þeir búnir að finna margar djúpsprengjur tundurskeyti og skotfærabirgðir f
flakinu. Þá hafa froskmennirnir tekið myndir af tæringu á flakinu, og eru sumsstaðar að brenna á það
göt. Bæjarstjórn Seyðisfjarðar hefur skoraö á yfirvöld, að sendir verði sérfræðingar á sviði sprengiefna
og olíumengufiar til að kanna aöstæður nánar og athuga, hvað hægt er að gera til aö koma í veg fyrir að
skotfærin spryngi og olía flæöi i miklu magni útisjóinn.
Myndina hér að ofan tók Ástvaldur Andrésson að morgni 22. marz 1942, þegar þýzkar flugvélar köst-
uðu sprengjum á E1 Grillo á Seyöisfiröi. Skipið sökk ekki fyrr en um kvöldið og er taliö að Bretar hafi
sökkt þvl endanlega, en þýzku sprengjurnar löskuðu það mikið.